Dagur - 31.12.1997, Side 11
1^0-
ÞRIÐJUDAGUR 31. DESEMBER 1997 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Sjúkrahús í Kongó þar sem ebólaveiran skaut heimsbyggðinni skeik í bringu fyrir rúmiega tveimur árum.
Bóluefni gegn ebola
Hópur vísindamanna í Michig-
an, Bandaríkjunum, skýrði frá
því á mánudag í tímaritinu Nat-
ure Medicine að þeim hefði tek-
ist að búa til bóluefni gegn hinni
skæðu ebola-veiru. Notkun þess
hafi borið góðan árangur í mús-
um og svínum og þess kann að
vera skammt að bíða að það dugi
einnig til að bjarga mannslífum.
Vísindamennirnir sprautuðu
litlum skammti af erfðaefni
veirunnar í dýrin, með skjótum
áhrifum því dýrin mynduðu þeg-
ar mótstöðu gegn veirunni
sjálfri.
Vísindamennirnir segja þessa
aðferð hættulausa vegna þess að
veiran sjálf er ekki í bóluefninu,
en með þessu segja þeir í fyrsta
sinn vakna von um að fundin sé
leið til að bólusetja gegn ebola-
veirunni, og sömuleiðis gegn
HlV-veirunni og fleiri veirum
sem menn hafa hingað til ekki
fundið ráð gegn.
„Við erum komin með fótinn
inn fyrir dyrnar,“ segir Gary
Nabel, sem vann að gerð bólu-
efnisins ásamt starfsfélögum sín-
um við Michigan-háskóla. „Nú
þurfum við að athuga hvort það
hefur sömu áhrif hjá öðrum
dýrategundum." Fram til þessa
hafa allar tilraunir til að finna
bóluefni gegn ebola-veirunni
mistekist, og hafa margir jafnvel
efast um að nokkru sinni verði
hægt að bólusetja menn gegn
þessari hættulegu veiru.
Þótt enn hafi ekki látist nema
um 1.000 manns af völdum
ebola-veirunnar er hún talin
mjög hættuleg og gæti valdið
miklu manntjóni ef hún næði að
breiðast út. Hún smitast mjög
auðveldlega milli manna og leið-
ir í flestum tilvikum til dauða á
skömmum tíma.
Stutt er síðan veirunnar varð
fyrst vart í mönnum, en hennar
hefur hingað til aðeins orðið vart
í Afríku, einkum í Saír (sem nú
heitir Kongó), Súdan og á Fíla-
beinsströndinni.
„Við getum ekki verið alveg
viss um að ónæmisviðbrögðin
sem við náum fram í nagdýrum
verði einnig í öpum og síðar meir
loks í mönnum," sagði Nabel og
varaði við of mikilli bjartsýni.
Engu að síður færir þessi árang-
ur okkur aðeins nær því að finna
bóluefni sem gæti „losað okkur
við þessa veiru fyrir fullt og allt,“
segir dr. Thoma Folks, sem er
sérfræðingur í veirusjúkdómum í
Atlanta. - NEWSDAY
Eim á ný fjöldamorð í Alsír
ALSIR - Fjölmiðlar í Alsír tilkynntu í gær að vopnaðir hópar hefðu myrt
37 alsírska borgara, en það orðalag er venjulega notað þegar bók-
stafstrúaðir múslimar standa að verki. Fjöldamorðin skyggja á upphaf
ramadan, helgasta mánaðar ársins hjá múslimum, sem þetta árið hófst
í gær, 30. desember. Samkvæmt frásögnum fjölmiðlanna voru 14
manns myrtir við vegartálma vestast í landinu, en að auki áttu sér stað
tvö fjöldamorð rúmlega 200 km suður af Algeirsborg, höfuðborg lands-
ins.
Kosningar framlengdar
KENÍA - Kjörstjórn í Kenía sá sig í gær tilknúna að framlengja kosn-
ingarnar í sumum héröðum landsins um einn dag vegna mikillar óreiðu
sem fylgdi framkvæmd þeirra á mánudag. Meðal annars mynduðust
langar biðraðir á kjörstöðum, kjörkassa vantaði og eitthvert rugl var á
kjörseðlum. Vildu stjórvöld m.a. kenna slæmu veðri um það sem mis-
fórst, en gagnrýnendur sögðu kosningakerfið ekki rísa undir því sem til
er ætlast og vafasamt verði hvort kosningarnar verði í raun frjálsar og
sanngjarnar.
Concorde til Kúbu
KÚBA - Fyrsta Concorde-þotan flýgur til Kúbu í kvöld, gamiaárskvöld,
á vegum franska flugfélagsins Air France, að því er ferðaskrifstofa á
Kúbu skýrði frá. Innanborðs verða 100 breskir kaupsýslumenn sem
hyggjast að sögn kanna hvaða fjárfestingatækifæri bjóðast á eyjunni.
Vonast ferðaskrifstofan tii þess að þessi ferð verði til þess að auka
ferðamannastraum til Kúbu frá Evrópulöndum, einkum Bretlandi,
Frakldandi og Þýskalandi.
Friðsamleg mótmæli brotin á bak aftur
JÚGÓSLAVÍA - Serbneska lögreglan réðst í gær með valdi gegn frið-
samlegri mótmælagöngu albanslrra námsmanna í Pristina, höfuðborg
Kosovo-héraðs. Samkvæmt fréttum var Ijöldi manns handtekinn og
margir hlutu meiðsl af. I sex öðrum borgum í Kosovo kom einnig til
átaka milli lögreglu og mótmælenda. Um það bil 2000 manns tóku þátt
í mótmælunum í miðborg Pristina, en lögreglan hafði ekki gefið leyfi
fyrir fjöldasamkomu.
Ástkær kona mín og móðir okkar
HERGERÐ G. PETURSSON
var jörðuð í Klakksvík, Færeyjum, 23. des. sl.
Þökkum innilega samúð og vinahug.
Kær kveðja,
Guðmundur Petursson og börn.
(%Aum uúkÁffetaui/ium
oAAu/1 oíj AjuuAs/nönmun/
öi/u/n^ (j/edi/ecjs cuss o cj
'^fu/'&œA/an cí Aío/na/u/i dri\
Dreifing h.f.
/iód/t fÁ'/e/u///iya/t/
Vúuuini sarncui/, /xí nmn oe/Jomo&t.
cl/eru/n/s/ájstœc£, óttiunst/ad eAAi, ru£t/um s/ó/f
/a/ix/syœáin, sj/tun/au e/Ái, eJ/un/ (/at//i//uen/,
/eúfar/etj s/ú/tl/oar se/n^t/Júst.
.yf/ex/i 'J/o órijjœ/xt o//ttr (//iau}(f oi/u/u,
Jarste/t/ qt//Jritf.
Þórhallur Bjömsson
Hamraborg 14
SlAHV
Innlausnarverð vaxtamiða
verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs
Hinn 10. janúar 1998 er 24. fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra
spariskírteina ríkissjóðs í 1. fl. B 1986.
Gegn framvísun vaxtamiða nr. 24 verður frá og með 10. janúar nk. greitt sem hér segir:
Vaxtamiði með 50.000 kr. skírteini = kr. 5.252,20
Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið
10. júlí 1997 til 10. janúar 1998 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun
sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu skírteinanna.
Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga.
Innlausn vaxtamiða fer fram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka íslands,
Kalkofnsvegi 1, Reykjavík og hefst hinn 12. janúar 1998.
Reykjavík, 31. desember 1997
SEÐLABANKIÍSLANDS