Dagur - 16.01.1998, Page 6

Dagur - 16.01.1998, Page 6
6-FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998 ÞJÓÐMÁL Útgáfufélag: Útgáfustjóri: Ritstjórar. Aðstoöarritstjóri: Framkvæmdastjóri: Skrifstofur: DAGSPRENT EYJÓLFUR SVEINSSON stefAn jón hafstein ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON BIRGIR GUÐMUNDSSON MARTEINN JÓNASSON STRANDGÖTU 31, AKUREYRI, GARÐARSBRAUT 7, HÚSAVÍK OG ÞVERHOLTI 14, REYKJAVÍK Simar: 460 6ioo og soo 7080 Netfang ritstjórnar: ritstjori@dagur.is Áskriftargjald m. vsk.: 1.680 kr. á mánuði Lausasöluverð: íso kr. óg 200 kr. helgarblað Grænt númer: 800 7080 Simbréf auglýsingadeildar: 460 6161 Sfmar augiýsingadeiidar: (REYKJAVÍkj563-1615 Ámundi Ámundason (AKUREYRIJ460-6191 G. Ómar Pétursson OG 460-6192 Gréta Björnsdóttir Netfang auglýsingadeildar: omar@dagur.is Simbréf ritstjórnar: 460 617i(akureyrí) 551 6270 (REYKJAVÍK) Ámi fær að reyna í fyrsta lagi Sjálfstæðismenn í Reykjavík hafa raðað í skipsrúmið. Eftir hallærislegan vandræðagang vikum saman hefur fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna loksins tekið af skarið. Framboðslistinn sem var samþykktur í fyrrakvöld ber með sér að Arni Sigfússon verður ótvíræður skipstjóri D-Iistaskiítunnar í vor og fær að reyna aftur. Guðrún Pétursdóttir, sem sumir spáðu lykilhlut- verki í komandi kosningabaráttu, hefur verið gerð að messagutta og send undir þiljur. Sjálf virðist hún harla sátt við það hlutverk, enda kveðst hún líta á setu sína í níunda sæti framboðslistans sem námskeið í pólitík. í öðru lagi Á sama tíma er baráttan um öruggu borgarfulltrúasætin hjá R- listanum að komast í fullan gang, en prófkjörið fer fram eftir rúman hálfan mánuð. Sex núverandi borgarfulltrúar leita eft- ir stuðningi til endurkjörs, en ríflega tveir tugir karla og kvenna leita líka eftir stuðningi kjósenda til að komast á fram- boðslistann. Hvernig svo sem prófkjörið fer liggur ljóst fyrir að borgarstjórinn, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, mun fara í átt- unda sæti listans, sætið sem ræður úrslitum um hvort R-list- inn heldur meirihluta sínum í borgarstjórn. Hún leggur því setu sína í borgarstjórn að veði í kosningunum, en Árni mun sitja í borgarstjórn hvort sem honum tekst að ná meirihluta eða ekki. í þriðja lagi Skoðanakannanir síðustu vikna og mánuða gefa til kynna að slagurinn um borgina verði afar tvísýnn. Þær bera með sér að munurinn á milli listanna tveggja sé vart marktækur. Þá vakti sérstaka athygli að í síðustu könnuninni á vinsældum oddvit- anna - Árna og Ingibjargar - var munurinn mjög lítill og mun minni en í eldri könnunum. Það undirstrikar einfaldlega að í komandi borgarstjórnarkosningum er ekkert gefið. Úrslitin kunna fyrst og fremst að ráðast af framgöngu foringjanna tveggja í sjálfri kosningabaráttunni. Elías Snæland Jónsson. Eimi á meðal unglinga Garri Ias í Degi að mikið bíóæði hefði gripið um sig á Akureyri vegna sýningar stórmyndarinn- ar Titanic í Borgarbíói. Þar munu bæjarbúar nánast hafa gengið í skrokk starfsmanna bíósins í baráttunni um miða, en mun færri hafa komist að en vildu á myndina og þarf að fara aftur til sjöunda áratugarins til að finna viðlíka aðsókn. Pikkað í Garra Það er gott og bless- að að áhugi Akureyr- inga og nærsveita- manna sé svona mik- ill á þessari mynd, en hitt getur Garri ekki skilið af hveiju allir þurfa að sjá hana á sama tíma. Fleira hefur orðið Garra að umhugsunarefni varðandi bíó- menninguna norðan heiða. Til dæmis fara fullorðnir yfirleitt alls ekki i bíó á Akureyri og hefur Garri upplifað það ítrek- að að sitja einn á meðal barna f Borgarbíói og vakið þar með forvitni ungra bíógesta. Um þverbak keyrði þegar eitt barn- ið pikkaði í Garra fyrir skemm- stu, sennilega til að athuga hvort hann væri raunveruleg- ur. Þegar Garri kvartaði undan þessu við innfæddan Akureyr- ing (Garri er ekki í þeirra hópi) brosti heimamaðurinn skiln- ingsríkt og svaraði síðan: „Já, þú ert að tala um virku k/öld- in. Á Akureyri fara fullorðnir í bíó á sunnudögum. Þá eru bíó- kvöld.“ Það var nefnilega það. Allt er ööruvísi fyrir noröau Annað er sérkennilegt en það er þegar metsölumyndir í v______________________ Reykjavík kolfalla aðsóknar- lega á Akureyri. Stundum hef- ur Garri ætlað á einhverja mynd (sparslað í hrukkurnar og klætt sig að hætti ungling- anna til að dulbúast) en þá hefur sýningum verið hætt, mun fyrr en menn gátu vænst. Fram- kvæmdastjóri Borg- arbíós upplýsir: „Við erum svolítið öðru- vísi fyrir norðan,“ og hann virðist hafa rétt fyrir sér í þeim efnum. Tekið hefur verið til þess að ís- lenskar bíómyndir eiga t.d. ekki upp á pallborðið hjá Akur- eyringum. Er hugs- anlegt að það sé vegna þess að þær eru almennt fram- leiddar í Reykjavík? Bíómeiming er betri Garri ætlar að halda áfram að fara í Borgarbíó til að sjá góðar myndir og ekkert frekar á sunnudagskvöldum en önnur kvöld. Urvalið er fínt og eflaust kemst það upp í vana að herma eftir unglingunum svo Garra Iíði ekki eins og pervert í bíó. Best væri þó ef fullorðnir Ak- ureyringar hættu að glápa á myndböndin sín og kæmu út úr skotgröfunum. Ekkert jafn- ast á við rökkur bíósalar og poppkornskjams. Sérstaklega ef félagsskapurinn er góður. En meðal annarra orða. Skyldi vera hægt að komast á Titanic í kvöld án þess að verða troðinn undir? GARRI. Hér ríkir svo ofboðslegt góðæri að starfstéttir með hálfa milljón á mánuði standa í ströngu til að hækka þá óveru um einhver hundruð þúsund til viðbótar. Ráðgjafar kaupsýslunnar spá 60% aukningu á smásöluverslun á næstu árum og er því stefnt að því að auka verslunarhúsnæði um helming til að hægt verði að anna viðskiptunum. Stóriðjueig- endur eru í biðröð eftir að fá keypta orku, sem enn er óbeisluð og bíður gróðavænleg framtíð í þeim vonarpeningi öllum. Að vísu eru einhverjir smáfugl- ar að tísta um að þeir hafi ekki orðið góðærisins varir og spyrja hvenær það hafi komið og hvert það fari. Fátt er um svör við svo fáfengilegum spurningum, enda hafa vitringar fjármunaumsýsl- unnar um annað að hugsa en að velta því fyrir sér hvernig góðær- inu er útdeilt meðal landsins barna. Fyrir aðeins hálfu ári stóð bun- Blekkmg og vanþekking an upp úr öllum fjármálasérfræð- ingum og nokkrum áhrifamiklum stjórnmálamönnum um góðæri Asíutígranna. Þar voru hin miklu fyrirmyndarþjóðfélög fjár- málaumsýslu og gróðahyggju, sem læra átti af. Ein- hver var nú munur- inn á þeim og gömlu og úreltu, kristnu samfélögum Norður- álfu. Hnmin fjármála- veldi Á örfáum mánuðum hrundi spilaborgin og enginn þorir nú að spá hvaða slóða hún á eftir að draga á eftir sér. Hagspekingar upplýsingaaldar rýna í tölvuskjái og gapa hver upp í annan og spytja, af hverju sáum við þetta ekki fyrir? Hægt og bítandi er þessi spurning farin að grafa um sig og efasemdir vakna um fjármála- kerfi nýkapítalismans, sem hvergi blómstraði eins fagurlega og meðal Asíutígra. Nú er að koma upp úr kafinu að glögg- skyggnir menn voru búnir að sjá hve rotið og heimskulegt spilling- arkerfið var og er. En það var þaggað niður í þeim af fyrirbærum sem áttu mikilla hags- muna að gæta. Lygar og blekldngar voru þeirra fjármálavit. Margrómað upp- lýsingastreymi er notað til að viðhalda blekkingu ekki síður en til að miðla þekkingu. Hiö óvænta Vonandi hvílir íslenska góðærið á traustari grunni en Asfuundrin miklu. En hvort það stendur undir þeim miklu væntingum sem til þess eru gerðar, er önnur saga. Það hljóta að vera takmörk fyrir því hve margar og fjölmenn- ar stéttir geta fengið tvenn ráð- herralaun. Að smásöluverslun meira en tvöfaldist á næstunni er svo gagnsæ blekking, að það þarf meira en meðalheimskingja til að gleypa við henni. En risaversl- anaklasar verða byggðir eigi að síður. Enginn þorir að véfengja spár um orkuþörf framtíðar og sam- göngur skulu aukast þar til mal- bikið verður allsráðandi í byggð sem óbyggð. Alltaf er verið að spá og fjár- festingar af öllu tagi við þær mið- aðar. Og alltaf er eitthvað óvænt, sem enginn spáði, að koma upp á og allar forsendur breytast á svip- stundu. Og þá stendur upplýs- ingaöldin eins og átján barna fað- ir í álfheimum, frammi fyrir hinu óþekkta og hefur „aldrei séð svo langan gaur í svo lítilli grýtu“. Og þjóðarsáttarlýðurinn spyr um góðærið og fær útúrsnúninga eina að svari. Lítið dæmi: Friðrik segir það vera hjá skattpíndum launþegum. -OMfur svaraö Gefur framganga Hall- dórs Blöndals í ýmsum málum að undanfömu tilefni til að nafn hans sé í umræðunni um ráð- herrahróheringar? Ámi M. Matihesen þingmaður Sjálfstæðisfloltks. Nei, hún gefur ekki tilefni til þess. Kastljósið hefur aðallega beinst að mál- efnum Pósts og síma hf. og þar er Halldór að gera góða hluti við breytingar á fyrirtækinu. Þó upp hafi komið vandamál því samfara eru þau minni en hinar stóru og góðu breytingar sem Halldór hefur gert í málum fyrirtæksins. Hvað varðar Raufarhafnarmálið þá er það ekki stórmál, þó það skipti miklu fyrir þá sem á Raufarhöfn búa. Það mál verður í löglegum og eðlilegum farvegi. SigurðuT J. Sigurösson oddviti sjálfstæðismanna í bæjar- stjóm Akureyrar. Nei, það er ósköp einfalt í mínum huga að Halldór hefur verið að vinna að málefnum á sviði samgöngumála með hagsmuni allra landsmanna í huga og verið afar farsæll 1' sínum störfum. Ég sé því enga ástæðu til þess að breyta stöðu hans innan ríkis- stjórnarinnar. Guðmundur Ámi Stefánsson þingmaður Alþýðufloltks. Eg sé ekki ástæðu til þess að taka Halldór Blöndal út frem- ur en aðra. Helst vildi ég sjá þá alla fara, og við fengjum nýja - ekki bara ráðherra - heldur líka ríkisstjórn. Kristín Ástgeirsdóttir þingkona ntan flokka. Embættisfærslur Halldórs Blön- dals á Iiðnu hausti voru um margt sérkenni- legar, bæði hvað varðar Póst og síma hf. og nú síðast í sambandi við upplýsingar til Flugmálastjórnar og veitingu flugleyfis til Raufarhafnar, sem átti að bjóða út. Alltaf er slæmt þegar ráðherrar verða berir að vanþekkingu og þetta sýnir slæ- leg vinnubrögð í ráðuneytinu. Halldór þarf greinilega að taka sig á, ef hann ætlar ekki að missa stólinn.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.