Dagur - 16.01.1998, Qupperneq 8

Dagur - 16.01.1998, Qupperneq 8
8 - FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998 FRÉTTASKÝRING. MHdl ÓYÍssa i VALGERÐUR JÓHANNS- DÓTTIR SKRIFAR Tuttugu og átta maims bítast iim 7 sæti í borgarstjóm í prófkjöri Reykjavíkur- listans í lok mánaðar- ins og ríkir wiikil óvissa um útkomuna. Mik.il óvissa ríkir um niðurstöð- una í prófkjöri Reykjavíkurlistans í lok mánaðarins enda fyrir- komulagið nýtt og þátttaka að auki heimil öllum stuðnings- mönnum, en ekki bundin við flokksmenn. Flokkarnir sem standa að Reykjavíkurlistanum hafa ekki mikla reynslu af galopn- um prófkjörum og eitt er að þekkja sitt heimafólk og annað að spá í óútreiknanlega kjósendur út í bæ. Fyrirkomulagið er líka frá- brugðið hefðbundnum prófkjör- um og því erfitt að spá og reyndir flokkshestar, sem venjulega telja sig vita hvernig landið liggur, naga nú á sér neglurnar í óvissu. Stigafjöldinn ræöur Þátttakendur í prófkjörinu kjósa bæði fólk og flokka, en fylgi flokkanna ræður því hvaða flokk- ur fær hvaða sæti. Sá fiokkur sem fær flest atkvæði fær efsta sætið og það skipar sá frambjóðandi flokksins sem flest atkvæði fær. Kjósendur eiga að merkja við fimm frambjóðendur í þeirri röð sem þeir vilja hafa þá. Fyrir at- kvæðið í fyrsta sætið fær fram- bjóðandi 8 stig, fyrir 2. sætið 7 stig, fyrir 3. sætið 6 stig og svo koll af kolli. Samanlagður stiga- fjöldi segir til um hvar menn lenda á listanum og það er ekki síst þessi stigagjöf sem veldur þeim heilabrotum sem spá í próf- kjörsspilin þessa dagana. Frambjóðandi sem fær mjög mörg atkvæði í neðri sætin getur hugsanlega færst upp fyrir mann sem fékk mun fleiri atkvæði í sæti ofar en færri stig samtals. Kinrt óháður En hvaða fólk er þetta sem kepp- ir við virðulega starfandi borgar- fulltrúa um sætin góðu? Fyrst að keppinautum Arna Þórs Sigurðs- sonar og Guðrúnar Ágústsdóttur um Alþýðubandalagssætin. Einar Valur Ingimundarson er umhverfisverkfræðingur og kem- ur inn sem óháður hjá Alþýðu- bandalaginu. Hann var í flokkn- um, en er nú utan flokka. Einar Valur er kunnur fyrir skrif sín um umhverfismál og tekur ábyggilega nokkuð af róttækum og grænum atkvæðum. Guðrún Kr. Oladóttir er vara- formaður Sóknar, varaborgarfull- trúi og hefur m.a. setið í Hús- næðisnefnd fyrir Reykjavíkurlist- ann. Helgi Hjörvar, framkvæmda- stjóri Blindrafélagsins, hefur starfað lengi í Alþýðubandalag- PRÓFKJÖR REYKJAVÍKURLISTANS Frambjóðendur Alþýðubandalagsins taka á móti stuðningsfólki í Miðgarði, Austurstræti 10, sunnudaginn 18. janúar kl. 16.00. Einar Már Guðmundsson les upp úr nýjustu bók sinni, Fótspor á himnurm. Reynir Jónasson mætir með harmonikuna. Ný málverk eftir Bjartmar til sýnis. Sterkt Alþýðubandalag - Sterkur Reykjavíkurlisti inu, er formaður Birtingar-Fram- sýnar og hefur einnig starfað með Grósku. Hann er varaborgarfull- trúi og gegnir ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Reykjavíkurlistann. Kolbeinn Ottarson Proppe, sagnfræðinemi, ungur og ekki mjög þekktur en sagður vinsæll í flokknum. Sigrún Elsa Smáradóttir hefur starfað með Grósku, er varafor- maður Birtingar-Framsýnar, en ekki mikið þekkt. Kratar hæta við sig Pétur Jónsson er eini borgarfull- trúi Alþýðuflokksins, en reiknað er með að flokkurinn fái 2 menn í prófkjörinu. Bryndís Kristjánsdóttir rekur kvikmyndagerðarfyrirtæki. Hún hefur starfað lengi í Alþýðu- flokknum, verið þar í stjórn og í forystusveit félags Alþýðuflokks- kvenna í Reykjavík og er formað- ur umhverfisnefndar borgarinnar. Helga Pétursson, kenndan við Ríó Tríó, þarf tæpast að kynna. Hann sagði skilið við Framsókn- arflokkinn fyrir nokkrum árum og gékk nýlega til liðs við krata. Hrannar Arnarson er ekld í Al- þýðuflokknum, en kemur inn sem óháður. Hann er þó ekki ókunnur pólitík, hefur starfað í Reykjavíkurlistanum frá upphafi og með Grósku og var kosninga- stjóri Þjóðvaka í alþingiskosning- unum 1995. Magnea Marinósdóttir hefur starfað í ungliðahreyfingu krata og kvenfélagi flokksins en hefur ekki verið mjög áberandi í flokks- starfinu að sagt er. Rúnar Geir- mundsson, útfararstjóri, er for- maður Alþýðuflokksfélagsins í borginni. Hann er eðalkrati eins og stundum er sagt og hefur starfað lengi með flokknum. Stefán Jóhann er hagfræðingur hjá Seðlabankanum, er af vest- firskum krataættum en nýr í flokksstarfi og lítt þekktur. Enginn óháður Alfreð Þorsteinsson og Sigrún Magnúsdóttir, borgarfulltrúar Framsóknar, sækjast bæði eftir endurkjöri. Fimmmenningarnir sem við þau keppa eru öll flokks- bundnir framsóknarmenn, því það gaf enginn óháður kost á sér fyrir Framsókn þótt boðið væri upp á það. Guðjón Olafsson er aðstoðarmaður umhverfisráð- herra. Hann hefur starfað lengi í Framsókn og var m.a. formaður Sambands ungra framsóknar- manna og framkvæmdastjóri þingflokksins. Guðrún Jónsdóttir, arkitekt, er vel þekkt úr borgarmálastarfinu. Hún var borgarfulltrúi Nýs vett- vangs á síðasta kjörtímabili og er núna varaborgarfulltrúi R-listans. Hún gekk í Framsóknarflokkinn 1995 og var á Iista hans í síðustu kosningum. Oskar Bergsson hefur hins veg- ar starfað lengi í flokknum og var m.a. formaður Félags ungra framsóknarmanna í Reykjavík. Hann er varaborgarfulltrúi og sit- ur í nefndum á vegum Reykjavík- urlistans og er m.a. í skólanefnd Iðnskólans í Reykjavík. Sigfús Ægir Árnason, fram- kvæmdastjóri TBR, er einnig gamalreyndur flokksmaður. Hann er varaborgarfulltrúi og í stjórn íþrótta- og tómstundaráðs. Þuríður Jónsdóttir, lögfræðing- ur, hefur verið í forystusveit Neytendasamtakanna. Hún situr í framkvæmdastjórn flokksins og er einnig formaður Félags fram- sóknarkvenna í Reykjavík. Missa eiim Kvennalistinn hefur tvo borgar- fulltrúa, Steinunni V. Oskarsdótt- ur og Guðrún Ögmundsdóttur. Guðrún gefur ekki kost á sér aft- ur, en það er ekki þar með sagt að fleiri komist að því ólíklegt er talið Kvennalistinn fái nema einn mann. Drífa Snædal er formaður Iðn- nemasambandsins. Hún hefur verið viðloðandi samtökin mörg undanfarin ár, en ekki mjög virk fyrr en nú undanfarið. Guðrún Erla Geirsdóttir, myndlistarkona, hefur verið vara- borgarfulltrúi Kvennalistans tvö síðustu kjörtímabil. Krístín Blöndal, fóstra, hefur starfað lengi með Kvennalistan- um, ekki síst í borgarmálum og verið á lista samtakanna í borgar- stjórnar- og þingkosningum. Einn óháðan frambjóðanda er að finna hjá Kvennalistanum. Það er Kolbrún Jónsdóttír, sjúkraliði af Kjalarnesi. Hún hef- ur ekki starfað með samtökunum áður en sat á þingi fyrir Bandalag Jafnaðarmanna á sínum tíma.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.