Dagur - 16.01.1998, Side 12
12- FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1998
ÍÞRÓTTIR
KFI vann
Grmdavík
Stdrleikur uiníerdar
iiuiar var í GrindavLk
þar sem heimamenn
tdku á mdti KFÍ. Það
voru gestimir sem
fdru brosandi heim.
Leikur Grindvíkinga og Isfirðinga
var mjög jafn fyrstu 12 mínúturn-
ar og liðin skiptust á að hafa eins
til þriggja stiga forystu. Seinustu
5 mínúturnar tóku Grindvíkingar
af skarið og juku forskotið upp í
12 stig og staðan í hálfleik var
53:41 fyrir heimamenn í Grinda-
vík. Darryl Wilson lék frábærlega
og skoraði 22 stig í fyrri hálfleikn-
um.
Isfirðingum tókst að jafna met-
in og komast yfir í seinni hálfleik.
Eftir það varð leikurinn æsispenn-
andi þar sem gestirnir leiddu
lengst af og Darryl Wilson náði að
jafna, 92:92, með skemmtilegu
gegnumbroti þegar 2 sekúndur
voru eftir af leiktímanum.
Isfirðingar voru mun ákveðnari
í framlengingunni og náðu að
fiska Darryl Wilson út af með 5
villur. Eftirleikurinn var auðveld-
ur og gestirnir unnu, 96:112.
Darryl Wilson var yfirburða-
maður í liði Grindvíkinga og skor-
aði 40 stig en það var liðsheildin
sem bar ísafjarðarliðið uppi.
KR-ingar sigruðu Njarðvík
næsta auðveldlega, 100:89, eftir
að hafa Ieitt í hálfleik með 50 stig-
um gegn 39.
Keflvíkingarnir unnu botnlið
deildarinnar IR, í hörkuleik á
heimavelli sínum í Keflavík. ÍR-
ingar áttu í fullu tré við íslands-
meistarana en urðu að játa sig
sigraða eftir langa og stranga bar-
áttu, 90:81.
Haukar unnu Skallagrím í mikl-
um baráttuleik, þar sem varnirnar
voru í fyrirrúmi, með 68 stigum
gegn 65.
I botnslag DHL-deildarinnar
rótburstaði Valur Þór með 112
stigum gegn 84.
Úrslit gærkvöldsins urðu
eftirfarandi:
KR-Njarðvík 100: 89
Haukar-Skallagr. 68: 65
Valur-Þór 112: 84
Grindavík-KFÍ 96:112
Keflavík-ÍR 90: 81
Grindavík hefur nú aðeins 2ja
stiga forskot í deildinni, liðið hef-
ur 22 stig, Haukar 20, KFÍ 18,
Tindastóll og Keflavík 16, ÍA 14,
KR og Njarðvík 12, Skallagrímur
10, Valur 8, Þór 4 og ÍR situr á
botninum með 2 stig.
13. umferðinni lýkur í kvöld kl.
8 þegar Tindastólsmenn taka á
móti IA. — GÞÖ
KR-ingar eru allir að braggast og lögdu Njardvikinga næsta auðveldlega
í gærkvöld. - mynd: hilmar
Öm
varðí
33. sæti
Orn Arnarson frá Sundfélagi
Hafnarfjarðar hafnaði í 33. sæti
af 51 í 100 m baksundi á heims-
meistaramótinu í sundi í fyrri-
nótt, en keppnin stendur nú
sem hæst í Perth í Astralíu. Tími
Arnar var 58,01 sek. og millitími
hans 28,61 sek.
Örn bætti árangur sinn í
greininni um 11/100. úr sek-
úndu frá móti í Svíþjóð í nóvem-
ber og hann er nú farinn að
nálgast rúmlega tíu ára gamalt
íslandsmet Eðvarðs Þórs Eð-
varðssonar, 57,15, sem hann
setti á Evrópumóti í Frakklandi.
Örn hefur því lokið keppni í
tveimur greinum og á einungis
eftir að keppa í sinni aðalgrein,
200 m baksundi, en keppt verð-
ur í henni um aðra nótt að ís-
lenskum tíma.
Eru mjólkursýru-
mælingar óþarfar?
Trond Sollid, nýráðinn þjálfari
knattspyrnuliðsins Rosenborg frá
Þrándheimi, sem hampað hefur
norska meistaratitlinum undan-
farin ár, og Hermundur Sig-
mundsson, íþróttafræðingur sem
búsettur hefur verið í Þránd-
heimi undanfarin ár, munu um
aðra helgi halda fyrirlestur á veg-
um ISI um um knattspyrnuþjálf-
un og skipulagningu hennar. Is-
lenskum knattspyrnuþjálfurum
ætti að vera fengur í að fá þá
Sollid og félaga, en uppgangur
knattspyrnunnar í Noregi hefur
verið með miklum ólfkindum á
undanförnum árum. Ekki er
langt síðan Islendingar stóðu
nær jafnfætís frændum sínum,
þegar kom að árangri á knatt-
spyrnuvellinum, en því er ekki að
heilsa nú.
Dagur sló á þráðinn til Her-
mundar, sem fylgst hefur grannt
með þjálfun Rosenborgarliðsins,
og hann segir að íslenskir knatt-
spyrnuþjálfarar geti lært margt af
þeim hjá Rosenborgarliðinu, sem
hefur verið yfirburðalið í Noregi
á undanförnum árum.
Þrek með bolta
„Það sem kom mér einna mest á
óvart er að norska Iiðið byggir að
langmestu leyti þrekæfingar sín-
ar upp með boltaæfingum. Það
er fáséð að sjá leikmenn Rosen-
borgar í langhlaupum, en bolta-
æfingarnar eru keyrðar undir
miklu álagi, með hvíldum á
milli,“ sagði Hermundur.
Mjólkusýrumælingar á knatt-
spyrnumönnum voru teknar upp
hér á landi í byrjun þessa áratug-
Hermundur Sigmundsson.
ar og eru víða notaðar, þrátt fyrir
að mörg knattspyrnufélög hér á
landi hafi horfið frá þeim vegna
mikils kostnaðar, en ekki er óal-
gengt að mælingar á leikmanna-
hópi liðs, tvisvar á tímabili, kosti
félag um 300 þús. kr.
Hættu með mjólkursýrumæl-
iugar
Hermundur sagði að norska fé-
Iagið hefði lagt mjólkursýrumæl-
ingar af, því þær hefðu ekki ver-
ið taldar þjóna neinum tilgangi.
„Ég mundi ekki segja að mjólkur-
sýrumælingar væru almennt úr-
eltar, en fyrir knattspyrnumenn
og handknattleiksmenn, eru sér-
fræðingar f Iífeðlisfræði við há-
skólann hér, á þeirri skoðun að
þær séu óþarfar," sagði Her-
mundur og rökstuddi mál sitt
með því að þessar mælingar
þjónuðu aðeins tilgangi fyrir
íþróttafólk sem er undir miklu
stöðugu álagi, eins og til að
mynda millivegalengdarhlaupara
og langhlaupara, því áreynsla
þeirra væri mun jafnari, heldur
en hjá knattspyrnumönnum.
Tíu km í leik
Að sögn Hermundar er algengt
að knattspyrnumenn hlaupi tíu
kílómetra í níutíu mínútna leik,
stundum við hinn loftfirrða
þröskuld, en munurinn á knatt-
spyrnumönnum og langhlaupur-
unum er sá að þeir fyrrnefndu fá
alltaf tækifæri til að kasta mæð-
inni, því áreynsla þeirra er eldd
stöðug. Því er nóg að mæla súr-
efnisupptöku Ieikmanna, hún
segir til um það, hve fljótir menn
eru að jafna sig eftir álag, og það
skipti mestu máli, að sögn Her-
mundar.
Þvf má svo bæta við til gamans
og fróðleiks að Háskólinn í
Þrándheimi gekkst fyrir rann-
sókn fyrir síðasta tímabil, á þeim
fjórtán leikmönnum sem léku
mest fyrir liðið. Að meðaltali
mældist hver leikmaður með
67,5 ml/kg súrefnisupptöku, sem
að sögn Hermundar er með því
hæsta sem náðst hefur hjá knatt-
spyrnuliði og þess má geta að
einn þindarlaus miðjumaður
liðsins mældist með 75 ml/kg. I
sömu rannsókn var styrkur leik-
manna mældur. Að meðaltali
stökk hver leikmaður Rosenborg-
ar 57,6 sm (beint upp), Iyfti
164,6 kg í hnébeygju og tók 82,7
kg í bekkpressu. -FE
X^MT
Kristiim á
tveimur stöðvum
Kristinn Björnsson.
Það hefur ekki farið mikið fyrir
áhuga íslenskra sjónvarps-
stöðva, og kannsld einnig al-
mennings, hér á landi fyrir
heimsbikarmótum í svigi, en það
hefur heldur betur breyst með
tilkomu Ólafsfirðingsins Krist-
ins Björnssonar á mótaröðina.
Sýn og Ríkissjónvarpið hafa til
þessa sýnt frá mótunum í vetur,
en nú ber svo við að báðar stöðv-
arnar sýna beint frá fimmta
heimsbikarmóti vetrarins sem
fram fer í Sviss á mánudag.
Norðmaður með í
hástökkinu
Vegard Hansen, tvítugur há-
stökkvari frá Osló, hefurjjekkst
boð frjálsíþróttadeildar IR um
að keppa á innanhússmóti fé-
lagsins í næstu \iku. Hansen á
best 2,20 m og er annar erlendi
keppandinn í hástökkinu. Sví-
inn Thomas Hansen verður
einnig með og þeir mæta íslend-
ingunum Einari Karli Hjartar-
syni, Ólafi Símoni Ólafssyni og
Theodóri Karlssyni.
SJÓNVARP
Sýiit beint frá
Nagaiio
Ríkissjónvarpið hefur ákveðið að
senda í beinni útsendingu frá
vetrarólympíuleikunum í Naga-
no í Japan, sem hefjast þann 6.
næsta mánaðar. Aformað er að
senda 75 klukkustunda efni frá
leikunum í beinni útsendingu
og 35 klst. til viðbótar í endur-
sýningu, en þess má geta að
keppnin fer fram á fyrri hluta
nætur og endursýningar síðdeg-
is sama dag.
Leikarnir standa yfir í sextán
daga og mun Ríkissjónvarpið
vera með sérstaka ólympíuþætti
daglega um kvöldmatarleytið.
Þá verður lögð áhersla á beinar
útsendingar frá alpagreinum,
norrænum greinum og list-
hlaupi á skautum.
Ákvörðun um að sjónvarpa
beint frá leikunum var tekin á
fundi útvarpsráðs í fyrradag, en
vegna kostnaðar hafði Ríkissjón-
varpið ekki áformað að senda frá
leikunum. Það sem réði því að
ákveðið var að sýna frá leikun-
um var að það tókst að semja
um lægri greiðslur til rétthafa.
Rtkissjónvarpið mun ekki senda
fréttamenn á staðinn, heldur
verður keppninni lýst beint úr
myndveri, þá hefur Skíðasam-
bandið unnið að því að fá styrkt-
araðila til að hlaupa undir
bagga.