Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 1
~4 Vilja stórhækka vanskilavexlina Dráttarvextir geta orðið allt að 10% ofan á samningsvexti, eða allt að 25% mið- að við núverandi bankavexti sam- kvæmt nýju vaxta- lagaframvarpi. Dráttarvextir verða frjálsir upp að vissu marki, en ekki lengur ákvarðaðir af Seðlabankanum. Þetta er ein athygliverðasta breytingin sem lögð er til í nýju frumvarpi um vexti. Frumvarpið, sem raunar er heildarendurskoð- un vaxtalaganna frá 1987, gerir ráð fyrir að samningsaðilar geti ákveðið dráttarvexti sem álag, að hámarki 10%, ofan á samnings- vextina. Þetta gæti þýtt allt að 25% vanskilavexti miðað við allt að 14-15% nafnvexti bankakerf- isins um þessar mundir. Verkbann LÍÚ ólöglegt Félagsdómur úrskurðaði í gær að boðað allsherjarverkbann LIÚ á flotann væri ólöglegt, en það átti að taka gildi á mánudaginn kem- ur. Dómurinn telur lög VSI ekki samrýmast vinnulöggjöfinni. Samkvæmt dómnum verður hvert aðildarfélag LÍÚ að ákveða hvort það ræðst í atkvæða- greiðslu um boðun verkbanns og það verður einnig að telja í hverju félagi fyrir sig. Hólmgeir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sjómannasam- bandsins, segir niðurstöðuna fagnaðarefni, en það var SSÍ sem kærði atkvæðagreiðsluna. „Þetta kemur verulega á óvart og þá sérstaklega þegar haft er í huga að VSÍ hefur starfað í 60 ár,“ sagði Ólafur B. Ólafsson, formaður VSÍ. Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig um dóm- inn. - GHH Sjá einnig bls. 8-9. Dráttarvextir gætu þannig hækkað stórlega, því þeir eru nú ákvarðaðir 16,5% af Seðlabank- anum. Honum verður einungis ætlað að ákvarða eins konar við- miðunarálag, sem notast yrði við í þeim tilvikum þegar menn semja ekki sjálfir um dráttar- vaxtaálagið. Seðlabankinn á líka að hætta að gefa út meðalvexti. Dráttarvöxtum ætlað að vera refsiálag „Astæða þess að við setjum þetta fram með þessum hætti er fyrst og fremst sú, að við erum að færa íslenskt viðskiptaumhverfi nær þvi sem gengur og gerist í Iöndunum kringum okkur," sagði Benedikt Arnason, deildarstjóri í viðskiptaráðuneytinu. „Dráttar- vöxtum er ætlað að hafa varnað- aráhrif; hvetja skuldara til réttra efnda á skuldbindingum sínum, og það teljum við best gert með samningsbundnu refsiálagi ofan á umsamda vexti.“ Benedikt bendir á, að í núgild- andi kerfi geti samningsbundnir vextir til ótraustra skuldara jafn- vel verið hærri en þeir dráttar- vextir, 16,5%, sem Seðlabankinn ákvarðar, t.d. vextir á greiðslu- kortalánum, yfirdráttarlánum og lánum manna á milli. Það hefur alltaf verið dýrt að borga ekki skuldir sínar á réttum tíma, . en það verður enn dýrara ef vaxtalagafrumvarp viðskiptaráðherra verður að lögum. Lægstu bankavextir í stað meðalvaxta I frumvarpinu er líka lagt til að Seðlabankinn hætti að birta meðalvexti, en birti þess í stað lægstu vexti í bankakerfinu. Benedikt segir óskaplega algengt að menn noti hina almennu við- miðun við meðalvexti nánast í blindni. „Við gerum jafnv'el ráð fyrir að meðalvextir geti Ieitt til hærri vaxta en ella, þar sem þeir eru í svo ríkum mæli notaðir í samningum manna á milli utan bankakerfisins, án þess að tillit sé tekið til mismunandi að- stæðna lántaka." Því er lagt til að Seðlabankinn birti vexti sem miðast við lægstu vexti í bankakerfinu. Þá viðmið- un geti menn notað sem grunn og síðan samið um viðbótarálag ofan á hann, mismunandi hátt eftir stöðu lántakanda, svipað og í kjörvaxtakerfinu. „Við viljum þannig búa svo um hnútana að það sé hvati fyrir menn að semja um vexti sín í milli í stað þess að nota í blindni þessa almennu viðmiðun við meðalvexti," sagði Benedikt. — hei Jóhann G. Bergþórsson. Jóhanná Hafnarfjarð- arlistann Jóhann G. Bergþórsson, bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði, hefur látið skrá nafn Hafnarfjarðarlistans í firmaskrá. Þykir það sterk vís- bending um að hann hyggist bjóða fram lista í bæjarstjórnar- kosningunum í vor, en jafnframt leiða menn getum að því að hann hafi viljað tryggja að fram- boðslisti A-flokkanna í Hafnar- firði fengi ekki nafnið. Viðmælendur Dags töldu ólík- legt að Jóhann hefði tryggt sér einkarétt á nafninu Hafnarfjarð- arlistinn með því að skrá „félaga- samtök um starfsemi stjórnmála- samtaka" með þessu nafni í firmaskrá. Það var varamaður Jó- hanns í Hafnarstjórn, Þorkell Guðnason, sem skráði nafnið fyrir síðustu áramót. Ekki náðist í Jóhann í gær, en hann er í or- lofi erlendis. Á viðkvæmu stigi Viðræður A-flokkanna um sam- eiginlegan lista fyrir kosningarn- ar hafa staðið linnulaust yfir undanfarna daga, en undirbún- ingsnefnd á að skila endanlegum tillögum fyrir 8. febrúar. Nefnd- in bar í gær til baka fréttir um að leggja ætti fram tillögu um lista þar sem aðeins væri gert ráð fyr- ir að tveir núverandi bæjarfull- trúar, Ómar Smári Armannsson og Lúðvík Geirsson, yrðu áfram í öruggum sætum og að Gestur Gestsson, formaður undirbún- ingshópsins, Ieiddi listann. „Við- ræðurnar eru á viðkvæmu stigi og ýmsar tillögur í gangi. Ef einu nafni er hnikað til breytist allur listinn. Það er ekkert hægt að segja um útkomuna fyrr en á lokastundu,'1 sagði einn \aðmæl- enda blaðsins í gær. — FÞG Þó fyrr hefði verið, kunna einhverjir að segja um snjóinn sem féll i höfuðborginni. Þessi maður er að minnsta kosti sæll með að komast á gönguskíöi. Þeir sem töfðust í umferð vegna snjókomunnar voru ekki jafn kátiryfir snjókomunni, en þeir geta vart kvartað yfir snjóþyngslum þennan veturinn. Gabriolrif (höggpeyfar) Gi varahlutir Hamarshöfða 1-112 Reykjavík Sími 567 6744-Fax 567 3703 ÍBUCKSiDEGKER _Handverkfæri SINDRI k, -sterkur í verki BORGARTÚNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024 m X

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.