Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 8

Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 8
t 8- FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 FRÉTTASKÝRING Oagur Ð*gur_ GUÐ- MUNDUR RÚNAR HEEÐARSSON SKRIFAR Fiskverð víða mark- aðstengt að hluta. Aukin veiðiskylda leysir ekki vaudanu. Loðnan í næsta stór- straumi um helgina. Litlar vonir hundnar við sáttafund í dag. „Það fer ekki að verða lending í þessu fyrr en búið verður að markaðstengja fiskverð þannig að það þróist sjálfkrafa. I því sam- bandi verða menn einfaldlega að una því að verðið sé þá komið upp í það sem við köllum að sé hjá skikkanlegum fyrirtækjum," segir Guðjón A. Kristjánsson, for- seti Farmanna- og fiskimanna- sambandsins, FFSI. Tvær leiðir Helgi Laxdal, formaður Vélstjóra- félags Islands, segir að það séu tvær leiðir sem koma til greina um Iausn deilunnar. Önnur er að , vera með Iágmarksverð, kvóta- r banka, styrkja úrskurðarnefndina r og auka veiðiskyldu útgerða. Hin ! leiðin er einfaldlega bein verð- lagning sjávarfangs eins og tíðk- : aðist á tímum Verðlagsráðsins. ( Það sé ekki leið til framþróunar r vegna þess að þá séu menn nán- i ast komnir á sama byrjunarreit- inn og í lok sjötta áratugarins við verðlagningu sjávarfangs. Sævar Gunnarsson, formaður Sjómannasambands Islands, seg- ir að þótt veiðiskyldan verði auk- in um 200% frá því sem hún er muni það ekkert leysa í barátt- unni við kvótabraskið eitt og sér. Hinsvegar mundi það auka á at- , vinnuöryggi sjómanna. Hann r leggur áherslu á að markaðsteng- r ing sjávarfangs sé sú Ieið sem get- ur komið í veg fyrir braskið þann- ig að öll verðmyndun verði sýni- r leg og uppi á borðum. , Hann segir að lágmarksverð á ► þeim nótum sem útgerðin hefur ’ boðið, eða 60 krónur á þorskkíló- ið, breyti engu enda hafa menn þegar hafnað því. Þá telur hann að útgerð Smáeyjar VE hafi svið- sett málið til að Iáta reyna á þan- þol sjómanna. Það hafi hinsvegar snúist í höndunum á þeim, enda samstaða sjómanna aldrei verið meiri en í yfirstandandi baráttu við útvegsmenn. Samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða er veiðiskylda útgerða úr úthlutuðum kvóta um 50% annað hvert ár, eða 25% að jafn- aði á ári. Sjómenn benda enn- fremur á að fyrir hver 10% sem standa út af í veiðiskyldu eru hvorki meira né minna en 45 þúsund tonn í leigu. Til saman- burðar má nefna að á síðasta ári voru 36 þúsund tonn sem voru í Þrátt fyrir sjómannaverkfall var talsvert tíf á kajanum á Akureyri i gær. Verid var að skipa upp frystum afurðum. Búast má við að ekki verði eins mikið lif við höfnina á næstu dögum þegar búið verður að tæma skipin. - mynd: bös beinni leigu. Það þýðir að sjó- menn munu vart kyngja öðru en að veiðireynslan verði aukin upp í 90% það minnsta. Vamarbarátta Kristján Ragnarsson, formaður LÍU, ítrekar þá skoðun útvegs- manna að þeir séu í varnarbar- áttu gegn óbilgjörnum kröfum sjómanna og þeir séu ekki í Karp- húsinu til að semja um fiskverð. Þar að auki mundi það rústa fisk- vinnslunni ef gengið yrði að kröf- um þeirra um markaðstengingu sjávarfangs. Hann vill hinsvegar ekki tjá sig um það hversu mikið útgerðin sé tilbúinn að hækka veiðiskylduna. Segir að það komi í ljós við samningaborðið en ekki í Degi. Formaður LIÚ neitar því að harkan í deilunni sé vegna ein- hverra persónulegra væringja á milli hans og forystumanna sjó- manna. Hinsvegar sé engin laun- ung á því að fram til þessa hafa hann og forseti FSSI getað lagt Iínurnar fyrir lausn deilumála. Astæðan fyrir því að það hefur ekki gerst nú er að mati Kristjáns að Guðjón A. hefur hreinlega ekki gefið neitt færi á því við sig. Sjálfur telur hann sig hafa lagt sig fram um það. Pattstaða Algjör pattstaða virðist vera í sjó- mannadeilunni og litlar vonir eru bundnar við samningafundinn sem ríkissáttasemjari hefur boðað í dag, föstudag, klukkan 13. I það minnsta eygja menn engar smug- ur sem gefa von um hugsanlega lausn. A meðan standa fylkingar sjómanna og útvegsmanna and- spænis hvor annarri gráar fyrir járnum þar sem liðsmenn þeirra standa þétt upp að foringjunum og hvetja þá til að hvika hvergi frá settu marki. Samhliða því harðnar áróðurs- stríðið þar sem lýst er yfir áhyggj- um yfir gríðarlegu tekjutapi þjóð- félagsins vegna verkfallsins og yf- irvofandi hruni bæjarfélaga sem eiga allt sitt undir vinnslu og veiðum. Fjárlög eru sögð í hættu og góðærið fyrir bí ef stjórnvöld grípa ekki í taumana með laga- setningu. Engu að síður virðist almenningur standa með kröfum sjómanna um að kvótabraskið verði að afnema í eitt skipti fyrir öll og koma verðlagsmálum sjáv- arfangs í ásættanlegt form sem allir geta unað við án átaka. I það minnsta hefur ekki orðið vart við andóf gegn þessum kröfum sjó- manna nema í röðum útvegs- manna og fiskvinnslu sem óttast um sinn hag ef fiskverð hækkar. Ennfremur virðist fiskverkafólk standa með sjómönnum þótt verkfallið geti leitt til fjölda at- vinnuleysis meðal þeirra vegna hráefnisskorts. Sjómeim nnnn fyrstu lotu Rólegt var um að litast á yfirborði deilunnar í gær eftir átök mið- vikudagsins þegar samingamenn sjómanna gengu af fundi vegna meints verkfallsbrots útgerðar Smáeyjar VE. Þessi hörðu við- brögð sjómanna virtust koma út- gerðinni í opna skjöldu sem sá sitt óvænna og kallaði skipið inn til hafnar í gær. I hnefaleikum yrði þetta túlkað sem svo að sjó- menn hafi unnið fyrstu Iotuna. Ef engin snurða hleypur á þráð- inn á næstu dögum er viðbúið að útgerðarmenn eigi næsta leik þegar allsherjarverkbann þeirra á flotann kemur til framkvæmda nk. mánudag, 9. febrúar. Horft upp á Skaga „Við höfum bent á útfærsluna hjá þeim á Akranesi sem viðmiðun og tengja það síðan við markaðinn," segir Guðjón A. Kristjánsson. Hann segir að þeir séu búnir að skoða hvern samninginn á fætur öðrum sem gerðir hafa verið hjá einstaka fyrirtækjum um fiskverð með tilliti til verðtengingar. I því sambandi bendir hann á að út- færslan hjá þeim á Skaga sé álíka og hjá Granda. Hann segir að þeir á Akranesi noti gömlu verð- lagsráðskúrfuna þar sem viðmið- un er 85 krónur fyrir kílóið á fimm kílóa fisk og síðan mínusað niður eftir stærð og þyngd. Guð- jón telur að þessi útfærsla hjá þessum tveimur fyrirtækjum um verðmyndun sjávarfangs sé nán- ast um 87% af markaðsverðinu. „Það þarf ekkert nema að skrifa þann texta og þá eru menn komnir með þá kúrfu,“ segir Guðjón A. Haraldur Sturlaugsson, fram- kvæmdastjóri Haralds Böðvars- sonar, vildi hinsvegar ekki tjá sig um þessar verðútfærslur að öðru leyti en því að sjómenn á skipum fyrirtækisins væru mjög ánægðir. Meðal annars hefði verið gerður samningur við sjómenn til tveggja ára á síðasta ári. Hinsvegar lagði hann áherslu á að ýmsar forsend- ur lægju til grundvallar verð- mynduninni. Viljaskortur Guðjón A. segir að útfærslan hjá Útgerðarfélagi Akureyringa sé nokkuð öðruvísi. Þar á bæ séu menn með fasta markaðsteng- ingu á 23% af aflanum og 77% aflans gerð upp miðað við 60 krónur. Hann bendir einnig á að það skorti ekkert á hugmyndir til að útfæra markaðstengingu fisk- verðs. I þeim efnum sé það fyrst og fremst skortur á vilja útvegs- manna til að stíga skrefið það langt að kvótabraskið verði af- numið. Hann segir að það séu tvö markmið sem útgerðarmenn virð- ast ætla að standa vörð um í þess- ari deilu. Annarsvegar að það verði ekki lokað fyrir frjálsræði útvegsmanna til að leigja frá sér aflaheimildir. Hinsvegar að ekki verði gengið þannig frá verð- mynduninni að leiguliðar týni töl- unni. „Máður skilur það vel að sá sem á happdrættisvinning og get- ur Ieigt frá sér kvóta á hverjum einasta degi, vill auðvitað geta stundað það áfram og fundið sér leigjendur," segir forseti FFSÍ. Loðnulög „Árið 1995 kom loðnan eftir há- degi þann 8. febrúar, 1996 kom hún klukkan fimm um morguninn sama dag og í fyrra var byijað að veiða hana í nót í kringum 1. febr- úar. I ár er stórstraumur í kringum 8.-9. febrúar," segir Haraldur Sturlaugsson, framkvæmdastjóri Haralds Böðvarssonar á Akranesi. Búist er við að töluverðs skjálfta fari að gæta f röðum sjómanna og útvegsmanna þegar og ef loðnan finnst. Samkvæmt þessari lýsingu Haralds er viðbúið að það geti orð- ið fljótlega í byrjun næstu viku. Ekki aðeins er í húfi stór hluti tekna bæði loðnusjómanna, út- gerða og landverkafólks heldur einnig þjóðarbúsins. Þá hafa menn einnig verið iðnir við að tjá sig um þá markaði sem kunna að verða í uppnámi fyrir loðnuafurðir ef flotinn verður bundinn í höfn. Þá mun loðnan synda framhjá bræðslum og frystiklefum landsins og drepast að lokinni hrygningu. Þótt enginn af deilendum ljái máls á því að stjórnvöld grípi í tau- mana og setji lög á sjómannadeil- una, virðist það vera nokkur út- breidd skoðun meðal óbreyttra sjómanna að það verði reyndin þegar í harðbakkann slær. Hvort það sé byggt á óskhyggju eða pólit- ísku þefskyni skal ósagt íátið. Hinsvegar hefur það komið fram hjá einstaka forystumanni sjó- manna að það sé varla einleikið hvað útvegsmenn virðast vera ró- legir í tíðinni við samningaborðið. Það hefur m.a. verið skýrt á þann veg að þeir vita sem er að stjórn- völd muni grípa inn í deiluna fljót- lega eftir að loðnan verður orðin veiðanleg í nót. Þessvegna sé í lagi að taka smá skurk í hefðbundinn leðjuslag og láta hvína í tálknum um stund. Þessu mótmæla útvegs- menn að sjálfsögðu sem hverri annarri bábilju. FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 - 9 átt ImP . SStí§S§sm : I M -' von á góðum Degi Við á Degi höfum nú í tæpt ár unnið að stórfelldum breytingum á blaðinu. Askrifendur okkar hafa tekið þeim vel og nú teljum við að tími sé kominn til að sýna þér morgunblað við hæfi. A næstu vikum og mánuðum* eiga allir íbúar höfuðborgarsvæðisins von á Degi inn um lúguna, ókeypis í heila viku. A nsestu þremur mánudum fíerum vid okkur ur einu hverfi í annad. Þá fa:rd þú Dag frítt, frá laugardegi til laugardags. Cirænt wám T

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.