Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 4
T 4- FÖSTUDAGUR 6. FEBRÚAR 1998 FRÉTTIR ^ L á Dagwr Umferdarljós viö Hrafnagilsstræti á framkvæmdaáætlim Skipulagsnefnd Akureyrar hefur fjallað um drög að framkvæmda- áætlun í umferðaröryggismálum og samkvæmt tillögum Gunnars H. Jóhannessonar deildarverk- fræðings eru verkefnin umferð- arljós á gatnamótum Þórunnar- strætis og Hrafnagilsstrætis; Torontoljós og miðeyja á Þór- unnarstræti við Munkaþverár- , stræti; hraðahindrun á Greni- , völlum við Norðurgötu; aðgrein- i ing húsagatna og safngatna, þ.e. i húsagötur við Miðsíðu verði að- I greindar frá henni með upp- hækkuðum gatnamótum/gönguleiðum; aðgerðir til að takmarka um- ferðarhraða við 30 km á Skólastíg, Laugargötu og Möðruvallastræti og r breikkun gangstéttar við Þingvallastræti milli Mýrarvegs og Byggðavegs. f Skipulagsnefnd vfsar tveimur síðasttöldu verkefnunum til fram- I kvæmdanefndar þar sem hún telur þau Ilokkast undir endurbætur á f gangstígum og götum. | Fróðlefksbrot n m sögu og nátturu Atvinnumálanefnd Akureyrar hefur samþykkt að gefa út götu- kort með upplýsingum um Akur- eyri samkvæmt samningi við Auglýsingastofuna Tengsl í 60 þúsund eintökum, sem skiptast milli íslensku, ensku og þýsku. Einnig var samþykkt að gefa út að nýju bæklinginn „Akureyri - fróðleiksbrot um sögu og nátt- úru“ á þýsku og ensku. Stefnt er að kynningu á vetraríþróttum á Akureyri í tímaritinu „Ský“ sem -------------------- Flugfélag Islands og Iceland Review gefa út og var formanni atvinnumálanefndar falin afgreiðsla málsins. Forstöðumenn Sundlaug- ar Akureyrar og Skíðastaða hafa leitað eftir samstarfi við Atvinnumála- nefnd vegna kynningarinnar í Ský. Meimingaxbær á leiö í nýja öld Málþing sem Der heitið „Akureyri - menningarbær á leið í nýja öld“ verður haldið á Akureyri 21. mars nk. á vegum menningarmálanefndar Akureyrar. Nefndin fjallaði einnig um sölu á Deiglunni og telur rétt að fjalla á víðari grundvelli um uppbyggingu og starfsemi í listamiðstöðinni í Kaupvangsstræti og boða fulltrúa Gilfélagsins á næsta fund um það mál. Menningarmálanefnd hefur hafnað erindi Arnar Inga um gerð sjónvarpsþáttaraðar undir heitinu „Island 2000“, en Örn Ingi bauð Ak- ureyrarbæ til samstarfs um verkefnið. íþróttaskóli Þórs styrktur Iþrótta- og tómstundaráð Akureyrar hefur samþykkt að styrkja rekstur íþróttaskóla Þórs um 236 þúsund krónur en hafnaði jafnframt erindi sjö stúlkna vegna þátttöku í Islandsmeistaramóti í fijálsum dönsum í Reykjavík. íþrótta- og tómstundaráð styðst við þá vinnureglu að styrkja ekki keppnis- eða æfingaferðir hópa eða einstaklinga. — GG Forsvarsmenn Sundlaugar Akureyrar hafa óskað eftir aö vera með i kynningu á bænum í tímaritinu Ský. Gatnamót Hrafnagilsstrætis og Þórunnar- strætis verða vettvangur næstu umferðar- Ijósa á Akureyri. - mynd: bös Kannar íslensk áhrif á Wagner Árni Björnsson þjóðháttafræðingur hefur fengið aðstöðu í Wagner- safninu í Bayreuth í Þýskalandi til að kanna sérstaklega hvaða áhrif íslenskar fornbókmenntir höfðu á tónskáldið Richard Wagner og verk hans. Arni mun helga sig þessum rannsóknum um nokkurra mánuða skeið. Grindavíkurlistinn orðinn til „Þetta var glæsilegur stofnfundur á þriðjudagskvöld þar sem mættu 40 manns, sem þykir mjög gott hér. Á fundinum var ákveðið að stofna bæjarmálafélag til að bjóða fram undir merkjum félagshyggju og jafn- réttis, Grindavíkurlistann," sagði Sigurður Gunnarsson, talsmaður listans, í samtali við Dag. Að listanum standa A-flokkarnir og óháðir. Efna á til bindandi prófkjörs um oddvita listans 21. febrúar næstkom- andi. Prófkjörið nær til fleira fólks, en niðurstaða þess verður ekki bindandi, heldur höfð til hliðsjónar við uppröðun á Iistann. Auglýst verður eftir nöfnum til að taka þátt í prófkjörinu. Síðan verða fram- bjóðendur kynntir á sérstökum kynningarfundi og prófkjörið fer svo fram 21. febrúar, sem fyrr segir. — S.DÓR Þegar nýr áfangi Giljaskóla á Akureyri var tekinn I notkun I upphafi vikunnar, voru það ekki einvörðungu timamót fyrir grunn- skólanemendur, heldur losnuðu fjölmörg leikskólapláss i Kiðagili, sem skólakrakkarnir höfðu áður teppt. - mynd: gs Eins árs böm fara á leikskóla Bæjarstjóm Akureyr- ar hefur að tillögu leihskólanefndar samþykkt að tekin verði inn höm frá 1 árs aldri í leikskól- ann Kiðagil í Gilja- hverfi. Valgerður Jónsdóttir, formaður leikskólanefndar, segir þetta nýlundu á Akureyri, og ástæðan sé fyrst og fremst sú að eftir að nemendur Giljaskóla nýttu ekki lengur hluta af húsnæði leik- skólans Kiðagils, standa í haust mun fleiri leikskólapláss til boða á Akureyri en áður, þ.e. eftir að allur Ieikskólinn Kiðagil verður kominn í notkun. Valgerður seg- ir að þrátt fyrir það verði alltaf einhver biðlisti eftir leikskóla- plássi á Akureyri, erfitt sé að sjá fyrir hversu stórir árgangarnir eru eða t.d. hversu margt barna- fólk flytur til Akureyrar. Eins árs börnin gætu verið um 30 talsins, og verða eingöngu tekin inn á Kiðagili. Bæjarstjórn hefur jafnframt ákveðið að Bugðu-, Illíða-, Eyra- og Byggðavellir verði reknir áfram sem gæsluvellir fyrir 2ja til 6 ára börn frá 1. maí til 1. október 1998. Smíðavellir fyrir 4ja til 10 ára börn verða á Leiru- og Borgarvelli frá 15. júní til 15. ágúst en þó aðeins einn mánuð í senn á hvorum velli. Aðgangur að gæslu- og smíðavöllunum kostar 100 krónur fyrir barnið. „Við erum mjög hreykin yfir því að geta boðið flest öllum börnum sem um það sækja leik- skólapláss á þessu ári. Ástandið í leikskólamálum hér á Akureyri verður betra í haust en nokkru sinni fyrr,“ segir Valgerður Jóns- dóttir. - GG Guðfræðin réði vali forstjóra Stjóm Kirkjugarða Reykj avíkurprófasts- dæmis taldi guðfræði- menutim og reynslu af kirkjulegu starfi mikilvægari en reynslu af stjómunar- störfum hjá „aggressífri“ konu. Héraðsdómur Reykjavíkur hefur tekið til umfjöllunar mál kæru- nefndar jafnréttismála gegn Kirkjugörðum Reykjavíkurpróf- astsdæmis (KRP), en ráðning Þorsteins Ragnarssonar í starf forstjóra var kærð sem meint brot á jafnréttislögum. Kærand- inn er Ólína Torfadóttir. Eftir að Ásbjörn Björnsson lét af störfum sem forstjóri KRP var auglýst eftir nýjum forstjóra og voru Þorsteinn og Ólína meðal 33 umsækjenda. Þorsteinn var ráðinn en Ólína kærði afgreiðsl- una til kærunefndar jafnréttis- mála. Kærunefndin úrskurðaði að KRP hefði ekki sýnt fram á að Þorsteinn hefði neina þá sér- stöku hæfileika umfram Ólínu, sem starfaði sem hjúkrunarfor- stjóri, að það vægi þyngra en menntun hennar og starfs- reynsla. Kærunefndin beindi því til stjórnar KRP að fundin yrði viðunandi lausn á málinu sem kærandi gæti sætt sig við, en það gerðist ekki og því lá Ieið málsins fyrir héraðsdóm. Við meðferð málsins hjá kæru- nefnd kom fram að í auglýsing- unni um starfið hefði mikil áhersla verið Iögð á stjórnunar- reynslu. Þar var staða Ólínar ótvírætt betri, en hjá stjórn KRP vó þungt að Þorsteinn hefði guð- fræðimenntun (sem ekki var þó skilyrði), auk mikillar þekkingar og reynslu af kirkjulegu starfi. Auk þess hefði stjórnin talið Olínu „aggressífa“ og „fráhrind- andi“ og því ekki henta í starfið, sem fæli í sér mikil samskipti við syrgjendur. — FÞG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.