Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 06.02.1998, Blaðsíða 2
2 —FÖSTUDAGUR6. FEBRÚAR 1998 ro^tr FRÉTTIR „Kardiiiiomiiiul)æru mætir tortryggni Fjöllistamaðuriim Örn Ingi á Akureyri hefur sðtt lun leyfi til að nýta leik- vallarloð við Hraungerði undir smáhýsi fyrir höm og fullorðna, eins konar Kardimommuhæ. Hugmyndin mætti tor- tryggni nágranna á kynn- ingarfundi í gær. Mugmyndin felur í sér að smáhúsa- garður þessi gæti iaðað til sín ferða- menn auk þess að verða bæjarbúum til skemmtunar og þar yrði skipulagður sérstakur sumarskóli. Skipulagsnefnd Akureyrarbæjar hefur tekið jákvætt í erindið en ákvað að álits íbúa í ná- grenni lóðarinnar verði fyrst leitað, eins konar grenndark)Tining, þó þess sé ekki krafist samkvæmt lögum. Kynningarfundur um þetta mál var í gærkvöld í KA-heimilinu á Akureyri og mætti hugmyndin nokkurri tortryggni nágranna. Það voru íbúar við Hraungerði og Stóragerði sem voru boðaðir á fund- inn, en ekki úr Hólsgerði sem þó er mjög nærri leikvellinum. Sigurgeir Sig- urpálsson, sem býr í Hraungerði 6, segir að kolólöglega sé staðið að því að boða fundinn, fyrirvarinn sé allt of stuttur, en hann sé mjög andvígur þessari hugmynd um nýtingu leikvall- arins. „Það bíða allir í götunni átekta með hvað þarna eigi að fara fram,“ sagði Sigurgeir. Hann sagði að menn hefðu þó viljað hlusta á rök skipulagsnefndar, enda hefði allt málið verið mjög óljóst í því bréfi sem sent var út. Það sem íbúarnir hafa hvað mestar áhyggjur af er að fái Örn Ingi yfirráð yfir lóðinni, sem er bara byggingalóð, geti hann í raun gert fjöldamargt við hana. Því finnst mönnum varasamt að hleypa inn á leikvöllinn starfsemi sem ekki er mótaðri en raun ber vitni. Örn Ingi segir að fáist þetta sam- þykkt muni hann einnig geta boðið upp á fjölbreytt vetrarnámskeið, t.d. fyrir skólabekki sem vilja koma í „upp- Iifunarferðir" til Akureyrar, ekki bara á skíði heldur einnig eitthvað gjörólíkt og þá gæti þetta hentað. — GG Smávandamál. Það vakti furðu margra að umsækj- endur um framkvæmda- stjórastöðu útvarps væru aðeins fjórir en ekki 104 - enda venjulcga grúi um sækjenda um svo miklar stöður. Meðal skilyrða í aug- lýsingu voru háskólapróf, en það útilokar þegar tvo (Sigurð G. Tómasson og Halldóru Ingvadóttur, skrifstofustjóra útvarps) sem ekki hafa lokið slíku. Þá stendur Margrct Oddsdóttir (fýrrum yf- irmaður Rásar 1) eftir líkleg, nema nú herma raddir að Sjálfstæðisflokksarmur útvarpsráós sé búhm að koma sér saman um Halldóru. Breytir maður auglýsingu eftir á?.. Sigurdur G. Tómas- son. í pottinum heyrast alltaf annað slagið sögur um að Eimskipafélagið sé á leiöinni inn í Stöð 2. Nokkuð er síðan þessi saga var á kreiki síðast, en nú hcyrist hún af tvíefldu afli. Rifja menn nú upp að þegar Stöð 2 og Stöð 3 gengu í eitt var þehn möguleika haldið opnum að þcir sem stóðu að Stöð 3 gætu komið sterkari inníStöð2...... í pottinum velta menn þvl mikið fýrh sér hver taki við af Ara Þorsteinssyni hjá Snæ- felli á Dalvík, en hann er sem kunnugt er á leiðinni til Kanada. Sumir pottverjar fullyröa að ýinsir komi til greina og margir eru nefndir sem hugsanlegir kandidatar, þar á meðal sé Kristján Þór Júh'usson, nýbakaður oddviti sjálfstæðismanna á Akureyri.. V Kristján Þór Júlíus- son. FRÉTTAVIÐTALIÐ 1 Samúel Öm Erlingsson varafréttastjóri íþrótta hjá RÚV Hátt í 150 tíma útsend- itigarí Sj'ónvarpinufrá Vetr- arólympíuieikutium í Naga- no í Japan. Þaraf 70-80 tímar í beitini. Áhersla á alpa- og göngugreinar auk skautadans. Svigið í lok leikanna. íþróttaveisla í 16 daga - Hvemig verður háttað útsendingum í Sjónvarpinu frá Vetrarólympíuleikunum í Nagano íJapan? „I grundvallaratriðum erum við að sýna beint frá alpa- og göngugreinum frá mið- nætti og framundir morgun, eða klukkan 24 til 04. Margar greinar byrja á miðnætti en þá er klukkan 9 að morgni í Japan en þeirra tími er á undan okkar. Á þeirra tíma byrja margar þessar greinar um morguninn og fram undir hádegi. Þetta byrjar með setning- arhátíðinni klukkan 02 aðfaranótt laugar- dagsins og tilheyrir því í raun dagskrá föstu- dagsins 6. febrúar. Þessu Iýkur svo sunnu- daginn 22. febrúar nk. þannig að þarna er um að ræða 16 daga veislu. Svigkeppnin verður hinsvegar ekki fyrr en 21. þ.m. þar sem Kristinn Björnsson er meðal þátttak- enda.“ - Á hvað leggja menn aðaláherslu í þess- um útsendingum? „Það má segja að það sé á þrennskonar efni fyrir utan setningar- og lokahátíð. Fyrir það fyrsta eru það þessar hefðbundnu alpa- greinar. 1 þeim eigum við sjö keppendur. Síð- an eru það göngugreinarnar. Við höfum ver- ið mjög virkir þátttakendur í þeim en eigum engan keppenda að þessu sinni. Auk þess leggjum við áherslu á skautadansinn. Fyrir utan þetta þrennt sýnum við frá úrslitaleikn- um í íshokkí. Á degi hverjum verðum við ein- nig með tæpan ldukkutíma í samantekt af öllum viðburðum dagsins, eða frá ldukkan 19 og fram að veðurfréttum. Þessi ákvörðun hefur í för með sér að ýmsir unglinga- og skemmtiþættir að ógleymdum íþróttaþættin- um hálf átta falla niður á meðan. Á móti kemur að við sendum efnið út frá myndveri íþróttaþáttarins þaðan sem því verður lýst. Þetta þýðir jafnframt að við munum fjalla um allt það sem kemur upp á þessum leik- um. Hinsvegar verður kannski minnst sýnt frá ísknattleiknum og það stafar af því að einn slíkur leikur stendur yfir í þrjá tíma." - Hvað verða þetta tnargir útsendingar- tímar? „Beinar útsendingar verða eitthvað í 70-80 tíma. Með öllu má gera ráð fyrir að þetta verði hátt í 150 tímar í sjónvarpinu. Síðan leggjum við áherslu á það að einhvern tíma dagsins á eftir reynum við að endursýna mest af því sem við höfum áður sýnt beint. Það verður ýmist á morgnana eða eftir há- degi. Beinar útsendingar frá skautadansin- um verða hinsvegar á morgnana vegna þess að þeir eru á kvölddagskrá þeirra í Japan. Sem dæmi að þegar klukkan er níu að morgni hjá okkur, þá er hún um sex að kvöl- di hjá þeim. Það sem byrjar klukkan átta að kvöldi í Japan er klukkan 11 að morgni hjá okkur.“ - Gekk ekki erfiðlega að fá grænt Ijós á leikana frá yfirstjórninni? „Þeir voru slegnir af þrisvar sinnum ef ekki oftar af ráðamönnum stofnunarinnar vegna þess hvað þeir voru dýrir. Síðan tókst að semja um lægri réttindagreiðslur, auk þess sem til liðs við okkur komu öflugir aðilar úr íþróttahreyfingunni og fulltrúar sterkra íyrir- tækja úr atvinnulífinu. Vegna þessa fór und- irbúningur seinna af stað en venjulega og því vil ég hvetja fólk til að fylgjast grannt með dagskrá útsendinganna í textavarpinu okkar og blöðunum. Eg segi þetta vegna þess að það er viðbúið að það geti orðið einhverjar breytingar og þá sérstaklega á elstu dag- skránum sem gefnar eru ut í sérstökum dag- skrárblöðum." — GRH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.