Dagur - 06.02.1998, Síða 7
FÖSTUDAGUR 6 .FEBRÚAR 1998 - 23
HVAÐ ER Á SEYÐI
AKUREYRl
Tónleikar til styrktar
Minningarsjóði Þorgerðar S.
Eiríksdóttur.
Sunnudaginn 8. febrúar verða haldn-
ir tónleikar til styrktar Minningarsjóði
Þorgerðar S. Eiríksdóttur í Safnaðar-
heimili Akureyrarkirkju. Tónleikarnir
hefjast kl. 17.00 og verður efnisskrá-
in fjölbreytt. Nemendur á efri stigum
og kennarar við Tónlistarskólann á
Akureyri sjá um flutning.
Aðgangur er ókeypis en tekið er við
framlögum í styrktarsjóðinn. Tekjur
sjóðsins hafa einkum verið af þessu
tónleikahaldi og sölu minningarkorta.
Strenjadeildartónleikar
Strengjadeildartónleikar verða
haldnir á sal Tónlistarskólans á Ak-
ureyri þriðjudaginn 10. febrúar kl.
20.00. Þar koma fram margir ungir
og efnilegir fiðlu- og sellónemendur
skólans. Undirleikari er Richard
Simm.
Orkustund
Námskeiðið Orkustund verður haldið
í fyrsta sinn á Akureyri laugardaginn
7. febrúar að Glerárgötu 32 kl.
16.00-20.00.
Námskeiðið verður fyrst haldið á Ak-
ureyri laugardaginn 7. febrúar og
síðan í Reykjavík laugardaginn 14.
febrúar. Leiðbeinandi er Fanný Jón-
mundsdóttir.
Upplýsingar og skráning er hjá Inn-
sýn í símum 552 7755 eða 551 5555.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Fræðslukvöld um
trjáklippingar
í kvöld kl. 20-23 verður haldið
fræðslukvöld fyrir áhugafólk um trjá-
klippingar í húsnæði Landgræðslu-
sjóðs, Suðurhlíð 38, Reykjavík. Að
fræðslukvöldinu standa Garðyrkju-
skóli ríkisins, Skógrækt ríkisins og
Landgræðsla ríkisins.
Fyrirlesari verður Kristinn H. Þor-
steinsson stundakennari við Gar-
yrkjuskólann og garðyrkjustjóri Raf-
magnsveitu Reykjavíkur. Hann mun
byggja fyrirlesturinn upp á litskyggn-
um. Boðið verður upp á kaffi og
meðlæti. Skráning og nánari upplýs-
ingar fást á skrifstofu Garðyrkjuskól-
ans, frá kl. 8-16.
Þrír sýna í Þingi
Listamennirini Birgir Snæbjörn Birg-
isson, Jóhann Torfason og Sigríður
Ólafsdóttir opna sýningu á verkum
sínum á laugardag klukkan 16:00 í
Listhúsinu Þingi, Hólabraut 13, Akur-
eyri. Á sýningunni gefur að líta mál-
verk og teikningar sem unnin eru á
síðasta ári.
Flest verkin á sýningunni eru „fígúra-
tíf“. Jóhann og Sigríður sækja í hefð-
ina og fást við umhverfi íslendings-
ins séð með augum nýrrar kynslóðar.
Verk Birgis fjalla að hluta til um sak-
leysi bernskunnar sem gjarnan birtist
á tviræðan hátt í verkum hans.
Sýningin stendur til 15. febrúar og er
opin alla daga frá klukkan 14:00 -
18:00.
Fagstefna Ljósmyndarafé-
lags íslands
Laugardaginn 7. febrúar næstkom-
ALLT UM ARGENTÍNU
S T E I K H Ú S
andi heldur Ljósmyndarafélag Is-
lands sína árlegu fagstefnu á Grand
hótel í Reykjavík. Dagskráin hefst kl.
13 með erindi Maríu Karenar Sigurð-
ardóttur, forvarðar á Árbæjarsafni.
Aðgangseyrir er kr. 500.
Burns supper
Edinborgarfélagið heldur árlega
Burns Supper laugardaginn 7. febrú-
ar kl. 20.00 í Dugguvogi 12. Matur
kvöldsins er með hefðbundum hætti,
Haggis með rófustöppu og kart-
öflumús. Veislustjóri er Helga Ög-
mundsdóttir læknir.
Hitt húsiö
Brynja Grétarsdóttir myndlistarkona
heldur sína fyrstu einkasýningu í
Gallerý Geysi í Hinu Húsinu við Ing-
ólfstorg. Sýningin ber nafnið HUG
MYNDir. Hún stendur tii 15 febrúar.
Gallerí Listakot
Álfheiður Ólafsdóttir opnar sýningu á
olíumálverkum laugardaginn 7. febr-
úar kl. 14-17. Sýningin er haldin í
Gallerí Listakoti Laugavegi 70 og
nefnist „Nykurheimar".
Sýningin er opín alla virka daga frá
kl. 12-18 og frá kl. 10-16 um helgar.
Henni lýkur 28. febrúar.
Listaféiag Hafnarfjaröar
Menningarmálþing á vegum Listafé-
lags Hafnarfjarðar og Menningar-
málanefndar verður haldið í Tónlist-
arskóla Hafnarfjarðar, Strandbergi,
laugardaginn 7. febrúar kl. 14-18. Að
málþingi loknu munu verða afhentir
styrkir menningarmálanefndar. Nán-
ari upplýsingar veitir Marín Hrafns-
dóttir menningarfulltrúi Hafnarfjarðar.
Tónskóli Sigursveins
Tónleikar í Seltjarnarneskirkju
sunnudaginn 8. febrúar nk. kl. 17.
Þar verða flutt verk eftir Grieg,
Nordgren og Sibelius. Nemendur í
Tónskóla Sigursveins leika og Petri
Sakari stjórnar.
Rabb um rannsóknir og
kvennafræði
Sóley Bender lektor í námsbraut í
hjúkrunarfræði og formaður
Fræðslusamtaka um kynlíf og barn-
eignir heldur rabbfund í Odda, stofu
201, þriðjudaginn 10. febrúar kl. 12.
Félag eldri borgara
Félagsvist í Risinu kl. 14 í dag, allir
velkomnir. Göngu Hrólfar fara í létta
göngu um borgina frá Risinu kl. 10 á
laugardagsmorgun.
Viö slaghörpuna" í Kópavogi
Næstu tónleikar „Vlð slaghörpuna“ í Listasafni Kópavogs verða á mánudag kl.
20.30. Sólrún Bragadóttir og Jónas Ingimundarson flytja franska söngva. Halldór
Hansen flytur inngangsorð og kynningar um franska sönglagið á tónleikunum.
Hverfafundir
með borgarstjóra
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri heldur hverfa-
fundi með Reykvíkingum á næstu vikum.
Fundirnir verða sem hér segir:
Fyrsti fundurinn verður haidinn mánudaginn 9. febrúar með íbúum Vesturbæjar,
Miðbæjar og Austurbæjar vestan Snorrabrautar.
Fundarstaður: Ráðhúsið kl. 20.00.
2. fundur verður haldinn mánudaginn 16. febrúar með íbúum í Túnum, Holtum,
Norðurmýri og Hliðum.
Fundarstaður: Kjarvalsstaðir kl. 20.00.
3. fundur verður haldinn mánudaginn 23. febrúar með íbúum Háaleitis-,
Smáíbúða-, Bústaða-, Fossvogs- og Múlahverfis.
Fundarstaður: Réttarholtsskóli kl. 20.00.
4. fundur verður haldinn mánudaginn 2. mars með íbúum Seljahverfis,
Efra- og Neðra Breiðholts.
Fundarstaður: Gerðuberg kl. 20.00.
5. fundur verður haldinn mánudaginn 9. mars með íbúum Laugarness-,
Lækja-, Teiga-, Langholts-, Sunda-, Heima- og Vogahverfis ásamt Skeifunni.
Fundarstaður: Langholtsskóli kl. 20.00.
6. fundur verður haldinn mánudaginn 16. mars með íbúum í Arbæjar-,
Ártúnsholts- og Seláshverfi.
Fundarstaður: Ársel kl. 20.00.
7. fundur verður haldinn mánudaginn 23. mars með íbúum Grafarvogshverfa.
Hamra-, Folda-, Húsa-, Rima-, Borga-, Víkur- og Engjahverfi.
Fundarstaður: Fjörgyn kl. 20.00.
8. fundur verður haldinn mánudaginn 30. mars kl. 20.00 með ungu fólki í
Ráðhúsi Reykjavíkur.
Fundarefni: Framtíðarborgin Reykjavík.
Á fundunum mun borgarstjóri m.a. kynna áætlanir og framkvæmdir í hverfunum.
Síðan verða opnar umræður og fyrirspurnir með þátttöku fundarmanna og
embættismanna borgarinnar. Sýndar verða teikningar og myndir af fyrirhuguðum
framkvæmdum í hverfunum ásamt öðru fróðlegu og myndrænu efni.
Sjá hverfafundi á heimasíðu Reykjavíkurborgar: WWW.reykjavik.IS
Allir velkomnir.
Skrifstofa borgarstjóra.
Leikfélag
Akureyrar
♦ Á ferð með
frú Daisy
eftir Alfred Uhry
Hjörtum mannanna svipar
saman íAtlanta og á Akureyri.
Úr leikdómum:
„Sigurveig ... nær hæðum ... ekki
síst í lokaatriðum í nánum samleik
við Þráin Karlsson.“
Haukur Ágústsson í Degi.
„Það cr ótrúlegt hve Þráni tekst
vel að komast inn í persónuna.“
Sveinn Haraldsson í
Morgunblaðinu.
„... einlæg og hugvckjandi
syning sem fyllsta ástæða er
til að sjá.“
Þórgnýr Dýrfjörð í
Ríkisútvarpinu.
Sýnt á
Renniverkstæðinu
að Strandgötu 39.
11. sýning
6. febrúar kl. 20.30
12. sýning
7. febrúar kl. 20.30
næstsíðasta sýningarhelgi
13. sýning
13. febrúar ki. 20.30
14. sýning
14. febrúar kl. 20.30
Allra síðustu sýningar
y
Söngvaseiður
6. mars verður Samkomuhúsið
við Hafnarstræti
opnað gestum eftir gagngera
endurnýjun á áhorfendasal
með frumsýningu á þessu
hugþekka verki þeirra
Rodgers og Hammersteins.
Aðalhlutverk:
Þóra Einarsdóttir
Hinrik Olafsson
Hrönn Hafliðadóttir
Jóna Fanney Svavarsdóttir.
é
Markúsar-
guðspjall
Einleikur Aðalsteins Bergdal.
Frumsýning á Renniverkstæð-
inu urn páska.
Gjafakort í leikhúsið.
Gjöf sem gleður.
Kortasala í miðasölu
Leikfélagsins,
í Blómabúð Akureyrar
og á Café Karólínu.
Sími 462 1400
X)^uir
er styrktaraðili Leikfélags Akureyrar
WWW.ISLANDIA.IS/ARGENTINA/