Dagur - 06.02.1998, Page 11

Dagur - 06.02.1998, Page 11
 FÖSTUDAGUR 6.FEBRÚAR 19 9 8 - 27 LÍFIÐ t LANDINU NærFylkirþví að komastíl. deild í handbolt- anum?Það er stórspuming, framundan em spennandi leikir. Einar Þorvarðarson hefur tekið við þjálfun handbo/taliðs Fylkis. Hann stefnir að því að koma liðinu i 1. deild. mynd: pjetur. Haröari æfingar og önnur hugsun Nýlega tók Einar Þorvarðarson við þjálfun handboltaliðs Fylkis. Liðið er í 2. deild eins og er, en Einar hefur til margra ára þjálf- að 1. deildar lið Aftureldingar í Mosfellsbæ. „Það hefur gengið alveg þokkalega að koma liðinu upp,“ segir Einar, „en það verður að hafa í huga að hér var mjög léleg aðstaða til æfinga, þar sem að- eins var um lítið íþróttahús, skólahús, að ræða. Aðstaðan breyttist hins vegar gífurlega við tilkomu nýja íþróttahússins, sem er í nágrenni sundlaugarinnar." Einar er í fullu starfi hjá HSI, þar sem hann sér um allar keppnir sem fram fara á vegum sambandsins og fleiri mál. Hann finnur fyrir þvi að starfið í 2. deild er heldur léttara, mikið til vegna þess að ekki eru eins margir krefjandi leildr eins og í 1. deildinni. Spumingin um að komast í 1. deild er líka spuming um það með hverjum heilla- dísimar standa. Spennandi keppni „Eg hef verið að reyna að breyta þessum 2. deildar hugsunar- hætti hjá liðinu og herða æfing- arnar. I Iiðinu er nokkuð um unga menn sem ekki hafa kom- ist í 1. deild vegna plássleysis, en eru mjög góðir Iiðsmenn og ég tel að með góðum æfingum eigum við góða möguleika á því að komast í 1. deild,“ segir Ein- ar. „En þetta er líka spurning um það með hverjum heilladís- irnar standa. Framundan er spennandi keppni, leikirnir við . Þór á Akureyri og Selfyssinga eru þeir leikir sem koma til með að ráða mestu um ganginn.“ Liðin sem koma til með að Ieika innan 2. deildar, til baráttu um 1. deildar sæti eru Þór á Akureyri, Selfoss, Grótta og Fylkir. Það má segja að mikil spenna sé framundan, kannski meiri en verið hefur lengi. Fylkir hefur ekki verið í 1. deild í handbolta síðan í kringum 1980, en á hins vegar Islands- meistara í 4. flokki kvenna. Meira um handbolta „Eg vona að með tilkomu þessar- ar góðu aðstöðu muni hand- boltaáhugi aukast að mun í Ár- bænum, en hingað til hefur fót- boltinn verið ráðandi hér,“ segir Einar. „Við munum sjá það á næstu árum og ég mun gera mitt besta til þess að bandboltinn nái að festa sig í sessi hér.“ vs. Ég lét mig hafa það að sjá Alien 4 í Borgarbíói á Akureyri. Enn er verið að gera framhald af mynd- um sem hafa slegið í gegn (ég fæ engu um það breytt). Og enn misheppnast það. Ég var orðinn svakalega órólegur og gjörsam- lega klístraður við sætið að horfa á slímugu ófreskjurnar sem voru í aðalhlutverki á móti Sigorney Weaver og Winonu Ryder. Nú var Winona Ryder vélmenni. ímyndið ykkur kynþokkafullt vélmenni. Þetta var fyrsta Aiien mynd sem ég hef séð. Ég trúi ekki öðru en að fyrri myndirnar hafi verið betri. Ahorfandinn er alltaf staddur í sömu leikmyndinni og Einn í ellefubíó Ekki gaman fór það agalega í taugarnar á mér. Þannig er nú með flestar geimmyndir nema kannski Star Wars. Þú ert alltaf að upplifa það sama í söguþræðinum. Það var ófreskja sem beit mann, síð- an liðu nokkrar mínútur þá var annar bitinn. Þannig gekk þetta eðlilega „goggunarröð" þangað til að aðalhetjurnar urðu eftir. Nú, kom á óvart. Ég var ofsalega hissa. Nei, ég varð ekki hissa. Ekkert nýtt svo sent. Tæknibrell- ur eru nokkuð góðar og einn og einn góður brandari kom inn á milli. Það voru ekki margir í bíó þetta kvöld klukkan ellel'u. En mér heyrðist að einn og einn hafi haft nokkuð gaman af. AII flestir í Norðurlandskjördæmi eystra búnir að sjá Titanic en þeir sem ekki eru búnir að sjá hana verða að sjá hana. Hún verður sýnd eitthvað fram í næstu viku í Borgarbíói á Akur- eyri. Ég verð að viðurkenna að ég gekk út af Alien þegar tutt- ugu mínútur voru eftir. Það er nokkuð langt síðan að undirrit- aður hefur fengið nóg og gengið út af kvikmynd. Það er bara vel. En ef einhverjum er það í mun að segja mér frá endinum þá er bara taka upp símtólið og segja mér söguna í stuttu máli. Bara ef endirinn hefur verið merki- legur. En ég efast. ---- PISTILL ----- Aftastir meðal jafningja Stundum er sagt að fólk sé fremst meðal jafningja og heyrast þau ummæli einna helst við forsetakjör og um biluð magnarakerfi á Sautjánda júní ár hvert. Mannjöfnuður þessi er skrýtinn jöfn- uður og á bakvið hann Iiggur landlæg hræðsla forystusauða við meðalsauð- inn í hjörðinni. Menn eru hræddir við að ríða á vaðið. Menn eru ekki lengur fremstir í flokki eins og f gamla daga heldur týnast meðal jafningj- anna í moði miðjunnar. Fyrir bragðið heldur meðalhjörðin kyrru fyrir og fer hvorki lönd né strönd. Allt er þetta jafn- ingjakjaftæði því tómt bull og stórhættulegt fyrir þjóðfélagið. Jöfnuður Sá fremsti í hópnum hefur tekið forystuna og er ekld á meðal jafningja sinna lengur heldur á undan þeim. Hvað sem síðar kann að verða. Næsti maður skarar svo fram úr á öðru sviði og svo koll af kolli. Jöfnuðurinn felst ein- göngu í þeim rétti að allir sauðirnir í hjörðinni mega taka forystu ef þeir geta. Hjörðin reynir svo að jafna bilin á milli þeirra fremstu og öftustu. A milli máttugra og minni máttar. Stundum tekst það vonum framar og stund- um misheppnast það hrapal- lega. Hlutverk stjórnmálamanna er að taka af skarið í málum sem horfa til heilla fyrir hjörð- ina og forðast að leiða hana fram af hamrinum. Sauðir verða ekki forystusauðir af þvf hjörðin felur þeim forystuna heldur af því að þeir taka for- ystuna. Aðrir sauðir eiga ekki erindi sem erfiði f stjórnmálin. En þ\4 miður hefur jafn- ingjaröflið náð tökum á stjórn- málunum og komin er slag- síða á allt stjórnkerfið. Á alþingi Pistilhöfundur sat á þingi um skeið og þá máttu bílstjórar Alþingis ekki skutla þing- mönnum á milli húsa vegna þingstarfa þeirra en óku aftur á móti helstu starfsmönnum þingsins samviskusamlega heim til sín að lokinni vinnu á kvöldin. Farið var með jafn sjálfsögð hjálpartæki og tölvur og bílasíma eins og manns- morð á meðan sendlarnir hjá Pósti og Síma í næsta húsi höfðu hvort tveggja og heila bifreið þar að auki. Alþingis- menn fengu hvorki ráðgjafa né aðstoðarmenn á meðan deildarstjórar hins opinbera höfðu slíka þjónustu á hverj- um fingri. A ferðalögum földu þingmenn sig á öðru farrými á meðan embættismenn þeirra sátu í vellystingum praktug- lega á Saga Class. Eldd er nema von að ráð- herrum hætti til að missa eitt og eitt ráðuneyti í hendur ráðuneytisstjóra þegar sjálft Alþingi hefur verið tekið her- skildi fyrir löngu. Stéttaskipt- ing þessi í stjórnsýslunni er því miður ekki hugar- órar pistilhöfundar einir saman heldur er hún staðfest af Kjara- nefnd ríkisins um þá yfirmenn hins opin- bera sem undir nefndina falla. Kaup og kjör eru eins góður mælikvarði og hvað annað á stöðu fólks í þjóðfélaginu. Bæði einstakra manna og heilla starfsgreina. Og sjá: I vel grunduðu mati Kjara- nefndar er aðeins einn emb- ættismaður íslenska ríkisins svo illa haldinn að ná ekki launum Alþingismanna á mánuði og er það sjálfur Húsameistari ríldsins, ekki meir ekki meir! Alþýða manna hefur átt öðru að venjast á þeim bæ og má loks taka und- ir með þjóðskáldi sínu að nú sé hún Snorrabúð löggildur stekkur. Hvað ræður En slök afkoma Húsameistar- ans breytir ekki því mati þjóð- félagsins að nokkur hundruð opinberir starfsmenn skulu hafa hærri Iaun frá ríkinu en Alþingismenn. Að vísu hefur ráðuneytisstjórinn í Stjórnar- ráðinu forsætisráðherra sinn undir með herkjum og aðrir ráðherrar hverfa í miðjum hópi opinberra meðaljóna. Þetta nær ekki nokkurri átt. Hver ræður ferðinni í ráðu- neytum þar sem starfsfólk er með mun hærri laun en ráð- herrarnir? Ráðherrann eða járáðherrann? Hvernig líður ráðherra að ávarpa starfsfólk sem er meira metið í ráðuneyt- inu en hann sjálfur? Brýnir ráð- herrann raustina eða læðist maðurinn með veggjum? Að vísu hefur hagur forsætisráð- herra vænkast frá því hann var rétt innan við topp eitthundrað mörkin en betur má ef duga skal. Laun eru svo nátengd valdi í hugum fólks að valda- pýramídinn stendur á haus eftir úrskurð Kjaranefndar. Fólk hættir að greina á milli kjörinna fulltrúa og opinberra starfs- manna. Eru það vond býtti fyrir þjóðfélagið og gera kosningar að óþarfri meðalgöngu. Tómt mál er að tala um ábyrgð hér á landi og hvorki stjórnmálamaður eða embætt- ismaður hefur verið sóttur til saka fyrir fjárhagsleg afglöp í starfi. Ekki frekar en peningar skipti ekki máli í stjórnsýsl- unni. Eina ábyrgðin er pólitísk ábyrgð kjörinna fulltrúa sem svara kjósendum til saka fjórða hvert ár. Og því skyldi kjósandinn ekki fá að nýta kjörklefann sinn betur? Urskurður Kjaranefndar staðfestir kröfuna um að kjósa helstu þrjú hundruð embætt- ismenn þjóðarinnar til fjög- urra ára í senn eins og Alþing- ismennina. Ekki einasta standa ráðherrar og þingmenn þá nær starfsfólki sínu heldur losna þeir undan því fargi að skipa áfram frændur sina og flokkshesta í feitustu embætt- in.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.