Dagur - 07.02.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 07.02.1998, Blaðsíða 2
I. 2 -LAUGARDAGUR 7 . FEBRÚAR 19 9 8 ro^ír L FRÉTTIR Frá Bæjarstjórnarfundi i Hafnarfirði. Erfitt hefur reynst að raða mönnum á sameiginlegan iista. Hér má sjá þá félaga Magnús Jón Árnason núverandi oddvita Alþýðubandalagsins og Lúðvlk Geirsson. Núverandi foringjar íA-flokkunum hafa dregið sig í hlé en rætt er um að þeir fái jafnvel stöður skólastjóra eða bæjarstjóra. Prófkjor A-flokkaima í Hafnarfirði til umræðu Illa gengur að raða möiiu- um á sameiginlegan lista Aflokkaima í Hafnar- firði. Rætt iiiii að efna til prófkjörs eða gefa út sam- starísyfirlýsiiigu. Viðræður A-flokkanna í Hafnarfirði um sameiginlegan framboðslista hafa staðið linnulaust yfir undanfarna daga, en undirbúningsnefnd á að skila tillög- um íyrir helgarlokin. Samkvæmt heim- ildum Dags er lítil hrifning ríkjandi yfir þeim tillögum sem hafa lekið út um listann og hann ekki talinn sigur- stranglegur. A fundi hjá Alþýðuflokkn- um á fimmtudag var rætt um mögu- leikann á því að efna til prófkjörs. Sú hugmynd gengur út á að efna til prófkjörs að hætti Reykjavíkurlistans í lok febrúar. Flokkunum yrði tryggður lágmarks^'öldi sæta á listanum og inn- byrðis útkoma innan flokkanna segði til um röðun í sæti. A-flokkarnir halda báðir félagsfundi á mánudag og þá verða tillögur ræddar og væntanlega afgreiddar. Þá gæti hugmyndin um prófkjör fengið byr undir báða vængi. Hinir svartsýnustu í A-flokkunum eru famir að gera ráð fyrir þeim mögu- leika að ekki náist samstaða um sam- eiginlegan lista. „Út af þessum vanda- málum með mönnun listans gæti kom- ið til þess að látið yrði reyna á málefna- vinnuna. Með öðrum orðum að flokk- arnir bjóði fram í sitthvoru lagi en leggi fram málefnagrundvöll og samstarfsyf- irlýsingu," segir einn viðmælenda Dags. Vinna undirbúningsnefndarinnar hefur aðallega gengið út á að þeir ein- staklingar sem harðast hafa deilt dragi sig í hlé. Um tíma var settur saman listi þar sem gert var ráð fyrir að tveir núverandi bæjarfulltrúa, Omar Smári Ármannsson og Lúðvík Geirsson, yrðu áfram í öruggum sætum og að Gestur Gestsson markaðsstjóri Ieiddi listann. I öðru og þriðja sæti yrðu Guðrún Arna- dóttir og Hafrún Dóra Júlíusdóttir. Þessi hugmynd hefur fallið í grýttan jarðveg. Það þýðir þó ekki að „gömlu“ bæjarfulltrúarnir vilji ekki víkja sæti og er enn verið að leita að „sigurstrangleg- um“ einstaklingum. Um Ieið er rætt um að bæta þeim gömlu upp brott- hvarfið úr bæjarstjórninni og hafa stöður eins og bæjarstjóraembættið og skólastjórastóllinn í Öldutúnsskóla komið til umræðu. - fþg „Óviðurkvæmilegar Flug- leiðaauglýsingar um „ehmar nætur gaman“ á íslandi voru til umræðu á Bylgjunni, þar sem ferðamálanefndarmaður- inn Helgi Pétursson gagn- rýndi framferðið harkalega. Taldi reyndar að hugsanlegar málsbætur Flugleiðamanna væru þær að þeir hefðu mis- skilið ferðamálaslagorð Reykjavíkur: „í faðmi náttúrunnar!" Á fundi í Grafarvogi sl. finuntudagskvöld vakti Guð rún Ágústsdóttir kátínu fund- armanna er hún ruglaðist nafni formanns hverfissam- takanna. Maðurinn heitir Friðrik Hansen, en Guðrún kallaði hann óvart Friðrik Brekkan, en var fljót að bjarga sér íyrir hom með því að segja þetta bara gert til að gleðja satngönguráðherra og kannski svok'tið til að hefiua sín vegna þess að téður Friðrik hefði kallað sig Ágústu fýrr unt kvöldið. Guðrún Ágústs- dóttir. Helgi Pétursson. í pottinum segja menn að sjaldan hafi legið hetur á Sævari Gunnarssyni og öðr- um í sjómannaforystumii en einmitt nú, þegar allt er strand í deilunni. Ástæðan? Jú þeir segja að það sé tvö núll fyrir sjómönnum! Ólei, ólei, ólei... Fyrsta markið kom þegar Smáey sigldi í land og amiað markið þegar niðurstaða félagsdóms kom. Sævar Gunnarsson. Reykjavík 5 Sun Mán Þri NA2 SV3 SSV4 NV3 VNV2 ANA2 SV4 SSV3 N3 Stykkishólmur Sun Mán Þri Mið m Mm il; -10- NNA4 ANA3 SSV5 N4 V4 NA5 SV5 S3 N5 Boíungarvík c Sun Mán Þri Mið mm -10- NNA4 NA4 ANA2 NNA3 V2 NA3 NA2 NA2 NNV2 Blönduós £ Sun Mán Þri NV1 NA2 S3 NNA3 V2 NA1 SA1 S1 NV2 Akureyri Mið Mán -10- VSV3 NA3 SSV3 NNV3 VNV3 NA3 S2 SSV2 VNV3 Egilsstaðir N2 SV3 NNV4 NV4 l SV4 N3 VNV4 Kirkjubæjarklaustur C Sun Mán Þrí Mið ■ g»a Í98BÍ. SSV3 V2 SSV2 VNV2 NV2 NA2 SV3 NNV2 VNV3 Stórhöfði Mið m ™5 Sun Mán Þri Mið m™5 ■ !■ ?M — \ SSV5 VSV4 SSV4 VNV4 NV4 NA4 SV8 V4 NV5 Línuritin sýna íjögurra daga veðurhorfur á hverjum stað. Línan sýnir hitastig, súluritið 12 tíma úrkomu en vindáttir og vindstig eru tilgreind fyrir neðan. Vestan og suðvestan gola eða kaldi. Dálítil él sunnan- og vestanlands. Vægt frost víðast hvar. Færö á vegum Flestar aðalleiðir eru færar en víða flughálka, sérstaklega á Austíjörðum. Fært er um Djúp til ísafjarðar en Hrafnseyrar- og Dynjandisheiðar eru ófærar. Lág- heiði er ófær og þungfært er um Vopnafjarðarheiði og því gæti vegurinn frá Mývatni austur á Hérað teppst. Víða er snjókomu- og skafrenningsspá.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.