Dagur - 07.02.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 07.02.1998, Blaðsíða 5
rDfgpr' LAUGARDAGUR 7.FEBRÚAR 1 9 9 8 - S FRÉTTIR Lögbrot ráðuneytis Sigurður Gizurarson, sýslumað- ur á Akranesi, hefur skilað dómsmálaráðherra greinargerð vegna ÞÞÞ-málsins og fer hann hörðum orðum um athafnir ráðuneytisins. Sigurður segir meðal annars að ráðuneytið hafi brotið fjölda lagaákvæða þegar það sakaði hann um Iögbrot með samkomulagi við lögfræð- ing Þórðar Þ. Þórðarsonar um afborganir á sektarskuld Þórðar. Sigurður nefnir brot á and- mælareglu stjórnsýslulaga, á rannsóknarreglu sömu laga, á meginreglu laga um hollustu- skyldu og kallar yfirlýsingar ráðuneytismanna „aérumeiðandi aðdróttanir í minn garð“. Sig- urður segir: „Má vera Ijóst, að mér er illkleift að starfa, ef ég á ávallt á hættu að ráðuneytið ráð- ist á mig opinberlega hvenær sem það telur sig hafa fundið höggstað.“ Sigurður segir enn fremur að dómsmálaráðuneytið sé vanhæft til að fjalla um áminningu um ámælisvert brot í starfi í ljósi þessara lagabrota sem ráðuneyt- ið hefur framið. - FÞG Allt eftklit med likiiieliiuin sem lög- reglan leggur hald á hefur veriö hert, en í rannsókn Atla Gísla- sonar kom fram að því væri í ýmsu áhóta- vant. Lögreglan leggur hald á verulegt magn af fíkniefnum á ári hverju, en samkvæmt heimildum Dags kemur fram í skýrslu Atla Gísla- sonar frá í fyrra að eftirlit með þessum efnum hafi verið lítið. Starfsmenn tæknideildar lög- reglunnar taka við fíknefnum sem gerð eru upptæk og gera á þeim frumathuganir, skrá þau og vigta. Síðan er þeim komið fyrir í sérstakri geymslu. Samkvæmt skýrslu Atla virðist sem allir starfsmenn fíkniefnadeildarinn- ar hafi í reynd haft aðgang að fíkniefnageymslunni og ekki væri skráð hverjir gengju um hana. Efnin hafi verið sett í merkta poka en þeir ekki innsigl- aðir eða þeim lokað á þann hátt að sjá mætti ef átt hafi verið við þá. Þá virðist ónákvæmni hafa gætt við eyðingu fíkniefna og í mörgum tilvikum ekki verið hægt að sjá neina skýringu á af hverju sumum efnum hafi verið Lögreglan leggur hald á verulegt magn af fikniefnum á ári hverju, en samkvæmt heimildum Dags kemur fram í skýrslu Atla Gistasonar frá í fyrra aö eftirlit með þessum efnum hafi verið lítið. eytt. Sum efni sem voru á skrá fundust ekki, en önnur fundust eftir mikla leit. Sérstaka athygli vekur að í einu tilviki var tæpt kíló af amfetamíni geymt í skrif- borðsskúffu þáverandi yfirmanns deildarinnar Björns Halldórsson- ar. Nýtt skipulag Ný lögreglulög tóku gildi um mitt síðasta ár og þá var öllu skipulagi lögreglunnar og þar með fíkniefnadeildarinnar breytt. Guðmundur Guðjóns- son, yfirlögregluþjónn, sem tók við stöðu yfirmanns rannsóknar- deildar 1. júlí sl. segir að allt eft- irlit með fíkniefnum sem lagt er hald á hafi verið hert og „fyllsta öryggis sé gætt.“ Strangar reglur gildi um með- ferð fíkniefna og strangt eftirlit sé með vörslu þeirra. I dag sé ná- kvæmlega skráð hverjir með- höndli efnin. Það fari alltaf tveir í einu í geymsluna og mánaðar- Iega sé gerð úttekt á öllu saman og farið yfir allar skrár. Kerfið sé því orðið enn öruggara en áður. Guðmundur segir hins vegar rangt að aðgangur að fíkniefna- geymslunni hafi áður verið nær óheftur. Undanfarna tvo áratugi hafi verið tvöfalt öryggiskerfi. Annars vegar hafi þurft lykla að sjálfri geymslunni og þá hafi fáir haft og síðan hafi verið talnalæs- ing á skápunum í geymslunni sem efnin séu geymd í og mjög fáir hafi haft aðgang að henni. Sigurður Gizurarson, sýslumaður á Akra- nesi: Dómsmálaráðuneytið braut lög. Utgerðin borgar Útvegsmenn verða að greiða vélstjórum og öðrum sjómönnum sem ekki eru í verk- falli laun. Eftir að Félagsdómur dæmdi boðað verkbann LIÚ ólögmætt. Þessar launagreiðslur geta numið 20-30 milljónum króna í viku hverri á meðan ekki semst. Þarna er um að ræða hátt í 900 manns og þar af 700 vélstjóra á skipum sem eru með minni vél- arstærð en 1501 kw. Jónas Haraldsson, lögfræðing- ur LIÚ, segir að þeir sem séu í verkfalli séu í „ráðningarsam- bandi.“ Hann segir að það sé ekkert vandmál fyrir útgerðir að Eftir úrskurð Félagsdóms þarf útgerðin að hafa hátt i 900 sjómenn á launaskrá sem ekki eru íverkfalli. Jónas Haraldsson hjá LÍÚ segir að þetta fólk sé í ráðningarsam- bandi við útvegsmenn. sjá t.d. vélstjórum fyrir vinnu í verkfallinu. Bæði sé um að ræða fyrirbyggjandi viðhald og þrif um borð í skipunum. Hann segir að það hafi trúlega verið á misskiln- ingi byggt að hægt sé að taka þessa sjómenn af launaskrá, eins og forystumenn VSI höfðu á orði eftir úrskurð Félagsdóms. Helgi Laxdal, formaður Vél- stjórafélags Islands, segist ekki óttast að vandkvæði verði á launagreiðslum til vélstjóra. Ef einhver verði þá verða launin sótt af hörku með innheimtuað- gerðum af hálfu félagsins. Hann segir að launagreiðslur til þess- ara vélstjóra geti numið um 20 milljónum króna á viku eða 100 milljónum króna á mánuði. GRH Forystusveit Akureyrarlista Jaíiiaðariiiaimalélag Akureyrar kyirnti á fiiniiituclagskvöld framhjóðendur flokksms á sameigin- legum framhoðslista. Oktavía Jóhannesdóttir mun skipa 2. sæti Akureyrarlistans samkvæmt samkomulagi þeirra sem að listanum standa, Jón Ingi Cæsarsson mun skipa 5. sætið, Kristján Halldórsson skipar 8. sætið og Finnur Birgisson mun Ásgeir i fyrsta sæti. Oktavía íöðru sæti. skipa 12. sætið, en þessi sæti komu í hlut Alþýðuflokksins. Þessi niðurstaða er þó ekki bind- andi, þ.e. sameiginleg uppstill- ingarnefnd hefur heimild til að hnika til fólki á listanum, en það verður að teljast ólíklegt, nema t.d. hlutur kvenna verði óeðlilega rýr. Oktavía Jóhannesdóttir segir að 7. sæti listans verði skipað óflokksbundnum, en sameigin- Ieg uppstillingarnefnd mun skipa í það sæti. Alþýðubandalagið skipar í 1., 3., og 6. sæti listans og samkvæmt heimildum Dags verða það Asgeir Magnússon, Þröstur Asmundsson og Kristín Sigursveinsdóttir. 4. sætið skipar Kvennalistakonan Sigrún Stef- ánsdóttir. — GG Hnindi enn úr Reynisfjalli Enn hrundi stórt flykki úr austanverðu Reynisfjalli í Mýrdal í fyrri- nótt. Reynir Ragnarsson lögregluvarðstjóri f Vfk sagði í gær að þarna hefði hrunið snös sem til stóð að sprengja niður í öryggisskyni. Þess gerist ekki lengur þörf. Hrunið úr fjallinu á dögunum var mikið, en nú hrundi það sem eft- ir var og lagðist yfir skriðuna sem fyrir var. Reynir sagði að enginn hefði verið í hættu af völdum skriðufallanna, en þau hefðu getað ver- ið hættuleg fyrir göngufólk ef það hefði hætt sér út á skriðusvæðið. Opnað í BláfjöUum Svolítinn snjó hefur fest í Blá- fjöllum og þrjár lyftur teknar í notkun, - en ný sunnanátt með rigningu væntanleg strax á sunnudagskvöld. „Eg hvet fólk að fara varlega í fyrstu skíða- ferð vetrarins. Þetta er fyrsti snjórinn og snjórinn er ekki of mikill. Fólk verður að gæta sín vel og forðast óhöppin," sagði Þorsteinn L. Hjaltason, Dossi í Bláijöllum, í samtali við Dag í gær. Bláfjallasvæðið opnar i dag kl. 11 og verður opið til kl. 17. Veðurspáin er góð, - en að- eins fram á sunnudagskvöld. Þá er reiknað með rigningu úr suðrinu. Rúnar Ómarsson mun örugglega fara á snjóbretti i Bláfjöllum á næstunni. Sjö ár fyrir hnífstungu Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær rúmlega fertugan mann til sjö ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps. Maðurinn hafði veist að ungri stúlku í miðborg Reykjavíkur í september í fyrra og stungið hana í brjóstið „af ráðnum hug.“ Gekk hnífurinn svo nálægt hjarta stúlkunnar að hún hlaut næstum bana af.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.