Dagur - 21.02.1998, Side 11
LAUGARDAGUR 21.FEBRÚAR 1998 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
Airnan reynir
tíl þrautar
Úrslitatilraim verður
gerð nú um helgiua
til að ná fram frið-
samlegri lausn á deil-
unni við írak.
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, flaug í
gær til Bagdað frá París og mun
hann um helgina ræða við
Saddam Hussein, forseta Iraks.
Skömmu áður en Annan kom til
íraks fluttu Sameinuðu þjóðirn-
ar 30 starfsmenn sína á brott frá
landinu.
í París, skömmu fyrir brottför
sína, sagðist Annan hafa góðar
vonir um að Saddam Hussein
fallist á lausn deilunnar þannig
að ekki þurfi að koma til hernað-
arárásar á írak. BiII Clinton, for-
seti Bandaríkjanna, lýsti því hins
vegar yfir að Bandaríkjamenn
væru staðráðnir í að gera árásir á
írak ef Annan tækist ekki að ná
fram Iausn. Bandarískir embætt-
ismenn sögðust þó bjartsýnni en
undanfarna daga á að friðsamleg
lausn kunni að vera í sjónmáli.
Talsmaður SÞ í New York
sagði að Annan hefði fengið afar
„jákvæð merki“ frá stjórnvöldum
í Bagdað áður en hann flaug af
stað til íraks. Að sögn rússnesku
fréttastofunnar Itar-Tass hafa
írakar fallist á að vopnaeftirlits-
menn Sameinuðu þjóðanna
skoði alla hernaðarlega staði, þar
á meðal svonefndar forsetahallir.
Ramadan, aðstoðarforsætisráð-
herra íraks, segir stjórnvöld þar
vera reiðubúin til fullrar sam-
vinnu við Annan og uppfylla all-
ar kröfur Sameinuðu þjóðanna.
„Ég heid að við getum náð
samkomulagi sem Oryggisráðið
getur samþykkt án nokkurra
vandkvæða,“ sagði Annan.
Fylgdarlið með eftirlits-
hópum
Talið er að Annan leggi fyrir
Hussein tilboð sem felur í sér að
írak verði að fara að skilmálum
Sameinuðu þjóðanna og sýna
vopnaeftirlitsnefndunum fulla
samvinnu, sem þýðir að þeim
verði frjálst að fara hvert sem er
um landið. Hussein verði hins
vegar boðið að semja um breytt
fyrirkomulag á eftirliti á svo-
nefndum forsetasvæðum og sér-
stakir stjórnarerindrekar frá ríkj-
um sem eiga fastasæti í Öryggis-
ráðinu verði í fylgd með eftirlits-
nefndunum þegar farið er inn á
forsetasvæðin.
Tveir sjálfstæðir sérfræðinga-
hópar tóku nú í vikunni undir
fullyrðingar Sameinuðu þjóð-
anna að Irakar kynnu að vera
með Ieynilegar birgðir af efna-
vopnum og hafi ekki orðið við
kröfum um að gera opinber öll
gögn um gjöreyðingarvopn sín.
Sérfræðingarnir eru frá níu
ríkjum, en þeir komust að þess-
ari niðurstöðu eftir að hafa setið
fundi í Bagdað fyrr í mánuðinum
að beiðni íröksku ríkisstjórnar-
innar. Svo virðist sem íröksk
stjórnvöld hafi vonast til þess að
sérfræðingahóparnir tækju undir
fullyrðingar sínar um að öll efna-
vopn og skotflaugar hafi verið
eyðilagðar.
Þess í stað benda niðurstöður
sérfræðinganna til þess að langt
sé í að eftirlitsstarfi og útrým-
ingu írakskra gjöreyðingarvopna
sé lokið.
Elskulegur sambýlismaður minn
JAKOB PÁLMASON
Gilsbakkavegi 3
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
fimmtudagskvöldið 19. febrúar.
Friðrika Gestsdóttir.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts og útfarar
MAGNÚSAFt HREINS JÓHANNSSONAR
frá Kúskerpi, Skagafirði.
Sigurlína Magnúsdóttir,
Jóhann Lúðvíksson,
Elísabet Valgerður Magnúsdóttir,
Jóhann Birgir Magnússon,
Magnús Bragi Magnússon,
Steingrímur Magnússon,
Halldóra Magnúsdóttir,
Þorgils Magnússon,
Ólafur Björnsson,
systkini, tengdabörn og barnabörn.
Móðir okkar
GUÐRÚN ELÍN KRISTJÁNSDÓTTIR
lést á Dvalarheimilinu Hlíð að kvöldi
miðvikudags 18. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda
Kolbrún Inga Sæmundsdóttir,
Óli Helgi Sæmundsson.
HEIMURINN
íranar gagnrýna tvískinnung Vestur-
landa
IRAN - Rafansjaní, fyrrverandi forseti írans, gagnrýndi í gær Vestur-
lönd fyrir ttdskinnung gagnvart Irak og sagði þau að hluta til bera
ábyrgð á þeirri hættu sem stafar af efnavopnum íraka. Þær birgðir
efnavopna, sem Vesturlönd væru nú að reyna að eyða, hefðu upphaf-
lega komið frá Vesturlöndunum sjálfum. Bæði Bandaríkin, Bretland,
Frakldand og Þýskaland hefðu ekki aðeins afhent írökum þau efni
sem til þarf í vopnin, heldur einnig þá þekkingu sem þarf til að búa
þau til og nota, sagði Rafansjaní.
Airnar stór jarðskjálfti í Afganistan
AFGANISTAN - Gríðarmikill jarðskjálfti, sem mældist sjö stig á
Richterkvarða, reið í gær yfir í norðurhluta Afganistans, aðeins rúm-
um tveimur vikum eftir að mikill jarðskjálfti varð á sömu slóðum með
þeim afleiðingum að 4.000 manns létust og fjölmargir misstu heim-
ili sín. Erfiðar aðstæður hafa gert björgunarfólki erfitt fyrir. Ekki var
vitað hve margir hefðu látið lífið eða orðið fyrir tjóni í gær.
Russneska þingið staðfesti mannrétt-
indasáttmála
RUSSLAND - Rússneska Dúman, neðri deild þingsins, staðfesti í
gær með yfirgnæfandi meirihluta mannréttindasáttmála Evrópu.
Sömuleiðis staðfesti Dúman samning gegn pyntingum, sem gerir
kleift að farnar verði eftirlitsferðir á lögreglustöðvar, fangelsi og geð-
sjúkrahús til að kanna hvort þar sé farið með fólk á mannsæmandi
hátt.
í Bæjarsjónvarpinu
laugardag kl.5
1>
NÓI SÍRÍUS