Dagur - 04.03.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 04.03.1998, Blaðsíða 2
18-MIÐVIKUDAGUR 4.MARS 1998 LÍFIÐ í LANDINV Dagur • Strandgötu 31 • 600 Akureyri og Þverholti 14 • 105 Reykjavík Símiun hjá lesendaþjónustiumi: 513 1121 netfang: ritstjori@dagur. Símhréf: 460 6171 eða SS16270 6,026, is Ábyrgð dýrahaldara „ibúar sveitarfé/aganna fá að kjósa um sameiningu, samhiiða sveitarstjórnarkosningunum nú í vor en áður mun fara fram ítarieg kynning bæði með útgáfu á upplýsingabæklingi og kynningarfundum, “ segir Sigurður Ingi Jóhannsson m.a. Myndin er frá Hlíðarlaug í Biskupstungum. AJlt er í heim- inum hverfult Þetta gerðist í október síðastlið- ið haust. Eg var að koma frá Syðri-Bægisá. Eg var í bíl með Rögnu og Tona. ... Þar sem við erum komin inn undir bæjar- mörk Akureyrar og Glæsibæjar- hrepps þar sem Byggingarvöru- verslun KEA er á vinstri hönd og á þá hægri nokkurt þéttbýli, (aðeins íbúðarhús, ekki bænda- býli), veit ég ekki fyrr til en bíll- inn hendist eldsnöggt til, út á vinstri kant, svo jafn snöggt aft- ur til hægri. Heljar mikið högg kemur á bílinn. Ragna kloss- bremsar og stoppar á hægra kanti. Hún hrópar: „Það hljóp hundur yfir veginn þvert fyrir framan bílinn. Nú hef ég stórslasað blessaða skepnuna." RiIIinii stórskemmdur Þau hjónin Ragna og Toni flýta sér út úr bílnum. Mér verður Iit- ið út um hliðarrúðuna og sé hvar hundur er að fara niður af vegin- um. Þau fylgja honum eftir en tapa honum fljótt út í myrkrið. ... Vegalögreglan kom á staðinn. Þeir skimuðu eftir hundinum í allar áttir en ekki sást hundur- inn. ... Lögreglan gerir skýrslu og Ioks er þetta búið. Farið var með bílinn á verkstæði. Eg spurði: „Hvað er að bílnum, er hann ekki ökufær?" „Nei,“ svaraði Ragna „hann er allur brotinn. Stuðarinn, vatns- kassinn og ljósin, allt í klessu.“ Þetta var lyginni líkast. Einn hundur hefur valdið þessum ósköpum. „Hvað nú?“ spyr ég, hver er tryggingin fyrir svona tjóni? „Engin," segir Ragna, „þetta er ótryggður hundur. Hann er úr einu húsanna vestan vegarins." Er þetta hægt? Hundurinn gengur laus, ótryggður stofu- hundur hér í þéttbýlinu, um- ferðin er ógurleg þarna, mikil frammúrkeyrsla og oft ólöglegur hraði. Hvað nú ef þarna hefði orðið stórslys af fyrrnefndum or- sökum, ef bílar hefðu komið úr báðum áttum? Eg spyr: Er þetta hægt. Er þetta eins og það á að vera? Ragna fékk bílinn sinn lagaðan að mestu eftir nokkrar vikur og síðan reikning upp á 40.000,- kr. AHan þennan tíma varð hún að útvega sér bíl til þess fyrst og fremst að koma sjúklingum sínum, sem reyndar voru tveir, til og frá spítala og út á Bjarg einnig. Svo þurfa víst öll heimili einhverja aðdrætti. Hef- ur þetta kostað þetta heimili mikið, fyrir utan áhyggjur og erfiðleika. Er þetta réttlætan- Iegt? Væri ekki hægt að koma í veg fyrir að atburður sem þessi þurfi að koma fyrir. Hundurinn re)mdist til allrar lukku ómeidd- ur að sögn eigandans. Margrét H. Lútliersdóttir. Við lifum á miklum breyt- ingatímum. Ekkert er eins og í gær og við getum bara giskað á hvað morgun- dagurinn ber í skauti sér. AIl- ir mögulegir sem ómögulegir hlutir eru nú í endurskoðun einhverra hluta vegna. I mörg ár og áratugi ríkti nokkuð stöðugt ástand sem kalda stríðið ól af sér. Rússar voru öðrumegin, Kanar hinumegin. Vinstri var vinstri og hægri var hægri. Berlínar- múrinn var hinn sýnilegi múr sem sldpti fólki í fylkingar. All- ur heimurinn tók þátt í þessu, stöðugleikinn fólst í ógnarjafn- væginu i vopnaeign risaveld- anna. Islensk pólitík byggðist jafnvel á þessu. I daglegu Iífi fólks kom þetta hvarvetna fram, meira að segja hér í sveitinni minni, Hrunamanna- hreppi. Ekki svo að skilja að fólk hefði miklar áhyggjur af ógnarjafnvæginu, ekki svona dags daglega. Hinsvegar var þessi góði stöðugleiki. AUar lík- ur voru á að morgundagurinn væri gærdeginum afar líkur. Svo gerist þessi ægilegi at- burður; almenningur í Evrópu og víðar brýst fram og heimtar réttlæti og frelsi, Berlínarmúr- inn fellur. GrundvöIIur pólitík- ur brostinn, stöðugleikinn horfinn, líka á Islandi. Síðan hefur allt verið að breytast, Iíka á Islandi. Fall múra hvarvetna og upplýsingaöldin hefur minnkað heiminn, fært ólíka hópa nær hverjum öðrum, líka á Islandi. Samslarí og sameming En fleira hefur fylgt í kjölfarið á smærri heimi. Samkeppni hefur aukist gríðarlega, sam- keppnin um markaði, atvinnu og fólk. Að því leyti eru erfiðari og harðari tímar nú en voru í „ógnar stöðugleikanum". Silki- húfudagarnir eru horfnir, blá- kaldur veruleikinn er harður og samkeppni er lausnarorðið hvort sem okkur líkar betur eða verr. Samkeppnin Ieiðir til þess að Ijárhagslega hagkvæm- ustu leiðirnar eru farnar. Það hefur leitt til verulegra breyt- inga á högum og lífi einstak- linga, fyrirtækja, sveitarfélaga og ríkja. Við þessu bregðast menn með auknu samstarfi fólks og hagsmunafélaga þeirra, samruna fyrirtækja, sameiningu sveitarfélaga og jafnvel ríkja eins og Evrópu- sambandið sýnir og sannar. Eins og við þekkjum hefur þessi sameiningarbylting vaðið yfir Island síðustu misserin. I öllum geirum samfélagsins er sameinað; fyrirtæki stækka, hagsmunafélög slá saman og nú skellur sameiningarbylgja yfir sveitarfélögin. Sumir telja að þetta sé stærsta múgsefjun Islandssögunnar, aðrir bráð- nauðsynlega aðgerð, löngu tímabæra. MiMl yfirbygging I raun á hvorugt við. Múgsefj- un er það minnsta kosti ekki og sveitarfélögin munu ekki leggja upp laupana þó þau sameinist ekki, allavega ekki strax. Hinsvegar erum við Is- lendingar ekki nema u.þ.b.. 270 þús. og fyrir nokkrum árum var fjöldi sveitarfélaga rúmlega 200. Yfir þessum 270 þúsundum eru tvö stjórnsýslu- stig, ríkisvaldið og meira en 200 sveitarstjórar/oddvitar. I þessum sveitarstjórnum hafa setið u.þ.b. 1.200 manns. Með öllum nefndum, má giska á, að á stjórnsýslustigi sveitarfélaga hafi starfað u.þ.b. 8 -10 þús- und manns!! Þetta myndi kall- ast of mikil yfirbygging í at- vinnulífinu og kalla á endur- skoðun. Það hefur einmitt verið að gerast um allt land og við hér í uppsveitum Arnessýslu erum þessa dagana að skoða kosti og galla við slíka sameiningu. Ibú- ar sveitarfélaganna fá að kjósa um sameiningu, samhliða sveitarstjórnarkosningunum nú í vor en áður mun fara fram ít- arleg kynning bæði með útgáfu á upplýsingabæklingi og kynn- ingarfundum. Ögrandi og skapandi Mörgum finnst að allar þessar breytingar séu af hinu slæma því áður fyrr hafi hlutirnir ver- ið góðir og stöðugir. Þeir segja, að við vitum hvað við höfum en að við vitum ekki hvað við fáum. Eftir byltingarnar og umrótið sem við minntumst á í upphafi er þetta ekki lengur svona einfalt. Upplýsingabylt- ingin gerir það að verkum að allar breytingar og straumar berast sífellt hraðar og hraðar um heimsbyggðina alla og kalla á fljótvirkari og faglegri vinnu- brögð en núverandi Iitlar sveit- arstjórnir ráða við með góðu móti. I raun vitum við ákaflega lítið hvað framtíðin ber í skauti sér hvort sem við sam- einumst eður ei. Það eina sem við eigum víst er óvissan. Ekki þýðir að gefast upp og segja að allt sé slæmt og breyt- ingar af hinu illa. Breytinga- tímar eru ögrandi og skapandi. I breytingum felast áskoranir um að fá og geta tekið þátt í að móta framtíðina, þína eigin framtíð og barnanna þinna. Þitt er valið! „Hvað nú efþarna hefði orðið stórslys? Erþetta hægt. Er þetta eins og það á að vera?“ spyr Margrét H. Lúthersdóttir i bréfi sinu. Óþolandi hvað það er kalt í nýju strætisvögnunum hjá Almenningsvögnum. Á morgnana þegar farþegi sest í gluggasæti þá blæs á hann ískalt loft úr Ioftræstikerf- r inu í vagninum svo að hann er orðinn jökulfrosinn eftir 20-25 mínútna hreyfingarlausa setu úr Hafnar- firði niður í miðbæ Reykjavíkur. Annað hvort kunna vagnstjór- amir ekki á Ioftræstikerfið í þessum vögnum eða vagnarnir eru ekki jafn fínir og þeir eiga að heita! jPk Enn og aftur skal kvartað yfir því að sjónvarpið láti kúga sig og vari við ofbeldismyndum en sýni hiksta- r laust sprautumyndir án viðvörunar. Það óhugnanleg- asta sem til er er að horfa upp á fólk, oftast fíkla, sprauta sig í handlegginn eða annars staðar. Slík mynd, alltaf sama myndin, hefur margítrekað verið sýnd í sjónvarpinu að undanförnu. Vér heimtum jafnstöðu og krefjumst þess að varað sé við sprautu- myndum í sjónvarpi. Sigurðup Ingi Jóhannsson skrifar

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.