Dagur - 04.03.1998, Blaðsíða 3
MIÐVIKVDAGUR 4.MARS 1998 - 19
DINU
Af f unnlensk-
un draugum
Bitmýs-
lirfan
gefur
gott
- Sæll Bjarni. Ég
þessa dagana að v:
og forynjur á Suði
„Jú, það er rétt.
fjölskyldunni úti í i
dunda mér við að
drauga, forynjur, n
og slíkt í huga. Æt
lenskt draugakort ú
- Hverjir eru 1'
landi?
„Fyrst get ég nt:
Skerflóðsmóri, Mó’
draugurinn leika la
er ein frægasta ál
Markarfljóti og að
ekki síst get ég nefn
fram að Hestvatni í
sig og hafa sést alv
ingjar mínir í Biski
tti að sunnan að þú sért
a að gerð korts um drauga
trdi...
hef í vetur haft setu með
landi og þar hef ég verið að
aða í þjóðsagnaritum, með
a, skrírmsli, álfa, huldufólk
ún er að gefa bók og sunn-
næsta ári.“
tu draugastaðir á Suður-
nefnt Eyrarbakka, þar sem
úsaskotta og Mundakots-
um hala. Undir Eyjafjöllum
byggð landsins, það er frá
étursey í Mýrdal. Síðast en
svæðið í kringum Skálholt og
irímsnesi, þar halda skrímsli
g fram á okkar daga. Kunn-
stungum hafa rekist á þessi
skrímsli alveg
fram á okkar
daga - síðast í
fyrrasumar."
Heldurðu ^Jarnl’ Harðarson, blaðamaður á Selfossi.
„Nú þegar er ég búinn að finna á fimmta
hundrað sögur um yfirskilvitleg fyrírbæri
á Suðuríandi afþessum toga."
um draugasög- -------------------
um og leggur
þú trúnað á þær sjálfur?
„Nú þegar er ég búinn að finna á fimmta hund-
rað sögur um yfirskilvitleg fyrirbæri á Suðurlandi
af þessum toga - og mér finnst engin þeirra beint
ósennileg. En hitt get ég annað sagt þér að mér
finnst ábyrgðarhluti að Landsmælingar Islands
skuli ekki hafa gefið út kort um drauga- og huldu-
fólksslóðir. Draugar og mannýg skrímsl ber að var-
ast og mér þætti sjálfsagt að sett yrðu upp skilti
þar að lútandi á heistu slóðum þeirra þannig að
fólk \dti hvar hættur eru.“
að það sé eitt-
hvað til í þess-
- Já, blessuð Hólmfriður. Hvað
er að frétta í Mývatnssveit?
„Það er allt gott að frétta.
Tíðin hér hefur verið afskaplega
góð, í augnablikinu eru svona
póstkortastillur hér og snjór yfir
jörð. Þetta er annað en var um
jólin, þegar hér var snjólaust og
rigning."
- Heyrðu og eru þið eystra
farin að spá í urriðaveiði á
efsta svæðinu í Laxá í sumar?
„Það er mikið spekúlerað í
henni á þessu heimili skal ég
segja þér og drjúgur hluti veiði-
leyfa hefur þegar verið seldur.
Við
Hólmfríður Jónsdóttir á Arnarvatni I Mý-
vatnssveit. „Þessi góði mýbúskapur gerði
það að verkum að alls 2.700 silungar
veiddust á þessu svæði í fyrra, en veiði í
meðalári er um 1.800 fiskar."
ráðgerum að hefja veiði um
hvítasunnuna og hún verður
stunduð fram í ágústlok. Reynd-
ar höfum við heimild til veiða
fram til 20. september, en það
höfum við hinsvegar ekki gert
enda væri erfitt að koma því við,
af praktískum ástæðum."
- Hvernig er útlit með veiði
í sumar?
„Það er nokkuð gott segja
fræðingar okkur og það dæma
þeir út frá mýbúskapnum í Laxá.
Það var nægur vargur í og við
ána í allt fyrrasumar, enda
þó sáralítið væri um hann í
Mývatni. En þessi góði
mýbúskapur gerði það að
verkum að alls 2.700 sil-
ungar veiddust á þessu
svæði í fyrra, en veiði í
meðalári er um 1.800
fiskar. Silungurinn á allt
sitt undir bitmýslirfunni.
Ég held að segja megi án
hiks að vænta megi góðs
veiðisumars.“
Loönu-
skip og
ljúft
tíðarfar
- Er það Dalatangi. Blessaður Heiðar,
hvað er að frétta utan af ystu nesjum -
er tíðin góð?
„Já, það er alveg fært hingað út á
Dalatanga úr Brekkuþorpi og hefur verið
í allan vetur, þó ófært sé um Mjóafjarðar-
heiði og upp á Fagradal. Pósturinn hefur
komist til okkar samkvæmt áætlun, það
er einu sinni til tvisvar í viku. Krakkarnir
okkar, þau Einar Hafþór 14 ára og Aðal-
heiður Elfríður sem er 11 ára, hafa kom-
ist heim um hverja helgi úr skólanum á
Brekku. En það er auðvitað spurning
hvernig færðin helst þegar komið er fram
á þennan tíma vetrar."
- Já, ég gæti trúað því. En segðu
mér hitt, hefur verið einhver gesta-
gangur á Dalatanga í vetur?
„Ja, það var nú heimildð rennirí á fólki
hér um jól og áramót. Síðan áttu þær
mæðgurnar, Marsibil og Aðalheiður dótt-
ir okkar, afmæli um síðustu helgi og þá
kom hingað talsverður hópur fólks. Ann-
ars var fyrirliugaö að halda góugleði Mjó-
firðinga um sl. helgi. en hinsvegar var sá
póll tekinn í hæðina að fresta henni um
viku. Þetta er svona ígildi þorrablóts;
Heiðar WJones, vitavörðurá Dalatanga. „Það eral-
veg fært hingað út á Dalatanga úr Brekkuþorpi og
hefur veríð i allan vetur, þó ófært sé um Mjóafjarð-
arheiði og upp á Fagradal."
með sviðakjömmum, lundaböggum, rófu-
stöppu og harðfiski og öllu tilheyrandi.
Við frestuðum þessu vegna veðurspár, því
spáin gaf ekki tilefni til þess að ætla að
við eða brottfluttir Mjófirðingar, sem bú-
settir eru uppi á Egilsstöðum eða í Nes-
kaupstað kæmust á hátíðina, sem haldin
verður næsta laugardag í samkomuhús-
inu á Brekku.“
- Já og nú er loðnuvertíð á fullu. Er
ekki flotinn þarna fyrir utan gluggann
hjá ykkur?
„Nei, þau eru öll nokkru sunnar skip-
in, en við sjáum þau hinsvegar þegar þau
eru að koma inn til löndunar á Norðfirði
- að ég tali nú ekki um Seyðisfirði. Þá
sigla þau hér fyrir utan stofugluggann hjá
okkur - og mikið liggur skipstjórunum á
að komast til löndunar. Hitt finnst mér
merkilegra hvað þessi skip taka af loðnu.
Þetta minnir mig þá daga þegar ég vann
á loftskeytastöðinni á Raufarhöfn 1966
og stóð frammi á bryggju og fylgdist með
síldarbátunum sem voru að koma norðan
úr hafi, drekkhlaðnir - meira að segja svo
hlaðnir að sjórinn vætlaði yfir iunning-
una.“
- Heyrðu, ég rak augun í auglýsingu í
blaði um daginn þar sem fram kom að skólinn á Skútustöðum væri falur til kaups.
Hvað eru Mývetningar að spekúlera?
„Hreppsnefnd Skútustaðahrepps ákvað að kanna hvaða áhugi væri fyrir skólanum og
við vitum reymdar að ýmsir aðilar utan skóla hafa verið að spekúlera. Vitað er af áhuga
ferðaskrifstofa á skólanum - því að nýta hann í þágu sinnar starfsemi. Frekar hefði ég
viljað sjá að þarna yrði sett upp fræðasetur."
Þreytt á
kvöldin
- Sæl og blessuð Guðfinna...
„Já, sæll. Bíddu er þetta Siggi Bogi.
Hvað er í gangi núna, ertu að leita að ein-
hverjum fréttum héðan að austan.
Hvað ber hæst; ertu búin að mynda
þér einhverja afstöðu til sameiningar
sveitarfélaga ...
„Veistu að mér Iíst alveg ljómandi vel á
þessa hugmynd og tillögu. Ríkið er alltaf
að ýta sífellt fleiri og stærri verkefnum
yfir á sveitarfélög og þau verða að bregð-
ast við þeirri þróun. Ég vil því fyrir alla
muni sjá sameiningu hér í sýslunni. Sjálf
er ég svo treg að vilja sjá sýsluna í tveim-
ur sveitarfélögum en Oddgeir Guðjóns-
son eiginmaður minn, sem er 88 ára og
þrettán árum eldri en ég, segir að það sé
ekki nokkur leið. Því stærri sem samein-
ingin sé verði hún betri og að sameina
Rangárþing í tvö sveitarfélög en ekki eitt
sé einsog að hlaupa frá hálfkláruðu
verki."
- Einhversstaðar heyrði ég að heil-
miklar byggingaframkvæmdir væru í
gangi þarna eystra hjá Sláturfélaginu;
að það sé að stækka vinnustöð sína á
Hvolsvelli?
„Já, það er rétt. Ég ætla þá bara að
vona að þeir fjölgi líka eitthvað fólki hjá
„Ég er stundum svo þreytt á kvöldin að ég sofna
snemma. En mér heyrst fólk hérna láta vel afþættin-
um með Árna og Þorsteini, “ segir Guðfinna Ólafs-
dóttir á Hvolsvelli.
sér og að mál hér í kauptúninu komist á
hreyfingu. Hér hefur verið lágdeyða og
sala á fasteignum treg.“
- Og þú hefur horft á Þorstein Páls-
son og Arna Johnsen, þingmenn ykkar
Sunnlendinga, í þættinum A elleftu
stundu í sl. viku.
,/Ei, nei ég missti af því. Ég er stund-
um svo þreytt á kvöldin að ég sofna
snemma. En mér heyrist fólk hérna láta
vel af þættinum. Hinsvegar sá ég þáttinn
þar sem Oskar Magnússon í Hagkaup
mætti og mér þótti þar ágætlega takst til.
Annað get ég nefnt þér að fyrir nokkrum
dögurn fór ég á tónleika með Kvenna-
kórnum Ljósbrá, sem haldnir voru hér á
Hvolsvelli. Það er hinsvegar verst að ég
næ ekki að njóta slíks til fulls, enda ólag-
\iss.“