Dagur - 04.03.1998, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 4.MARS 1998 - 23
D^wr
LÍFIÐ í LANDINU
fYsega. fólkið
Einsog
nýgift
þráttfyrir
skiinað
Jsa Marie Presley og Michael
ackson skildu fyrir tveimur
irum en ástin virðist enn ríkja
nilli þeirra. Um daginn sást til
>eirra á veitingastað í Beverly
dills og þar kysstust þau og
öðmuðust. Ekki sást í Michael
dlan því hann var með grímu
yrir andliti, sjálfsagt verið að
afna sig eftir enn eina lýtaað-
;erðina.
Ættingjar og vinir Lisu Mariu
hafa miklar áhyggjur af nánu
sambandi þeirra skötuhjúa og
óttast að Michael muni nýta sér
hlýjar tilfinningar Lisu Mariu í
hans garð og plata hana til að
selja sér fyrirtækið sem sér um
útgáfu á verkum Eivis Presley,
en það fyrirtæki erfði Lisa Maria
fyrir nokkrum dögum þegar hún
varð þrftug.
Ekki er að sjá að Lisa Marie og Michael hafi
skilið fyrír tveimur árum.
Hún frá Húsavík -
hann frá Akureyri
„Man ekki hvar ég sá hann fyrsf það voru að minnsta kosti ekki neinarþær aðstæður sem eru
nér sérstaklega minnisstæðar, “ segir Þórunn Harðardóttir, sem hér er ásamt Tómasi Inga Jónssyni,
eiginmanni sinum. (Ijósmyndast Páls, Akureyri.)
„Tómas er héðan frá Akureyri en
ég er austan frá Húsavík, en er
búin að búa hér á Akureyri síðan
1982. Við erum búin að vera
saman frá 1989 og ákváðum síð-
an að láta verða af því að gifta
okkur með pomp og pragt síð-
asta sumar. Okkur fannst sá tími
einmitt vera hentugur," segir
Þórunn Harðardóttir. Þann 12.
júlí á síðastliðnu ári gaf séra
Birgir Snæbjörnsson þau Þór-
unni og Tómas Inga Jónsson
saman í heilagt hjónaband við
hátíðlega athöfn í Akureyrar-
kirkju. A eftir var giftingarveisla
á heimili foreldra hans.
„Eg man ekki hvar ég sá hann
fyrst, það voru að minnsta kosti
ekki neinar þær aðstæður sem
eru mér sérstaklega minnisstæð-
ar,“ segir Þórunn. Þau Tómas
eiga saman tvo stráka, þá Róbert
Inga fjögurra ára og Arnór Orra,
sem er 11 ára. Þórunn starfar í
dag - og hefur gert síðastliðin
tvö ár - sem sölumaður hjá
AKO-plasti, en Tómas hjá Sand-
blástri og málmhúðun á Akur-
eyri, en það fyrirtæki er í eigu
Ijölskyldu hans.
„Giftingarveisla okkar var
haldin á heimili forelda Tómas-
ar og ætli gestir hafi ekki verið
um 50 talsins. A eftir fórum við
í svolitla brúðkaupsferð að Ytri-
Vík á Arskógsströnd þar sem við
dvöldumst í þrjár nætur - og átt-
um góða daga,“ segir Þórunn
Harðardóttir. -SBS.
Lísa Kristín og
Eyjólfur
Gefin voru saman þann 6. des-
ember á sl. ári af séra Ægi Fr.
Sigurgeirssyni þau Lísa Kristín
Gunnarsdóttir og Eyjólfur Gísla-
son. Þau eru til heimilis að
Holtagerði 42 í Kópavogi. (Ljós-
myndast. MYND, Hafnarfirði.)
Jacqueiline og
Guðmundur
Gefin voru saman þann 8. nóv-
ember á sl. ári, af séra Jakobi
Rolland, þau Jacqueiline Becker
og Guðmundur Asmundsson.
Heimili þeirra er að Jöklafold 37
í Reykjavík. (Barna- og fjöl-
skylduljósmyndir, Gunnar Leifur
Jónasson.)
P I RT ÁN
ABYRGÐAR
Kvikniyndir hafa áhrif
Tvær konur voru handteknar
eftir að hafa rænt kjörbúð í
Bandaríkjunum. Þær voru vopn-
aðar byssum og notuðu féð til
að greiða sektir vegna inni-
stæðulausra tékka. Þegar þær
voru yfírheyrðar sögðust þær
hafa horft á myndina „Set it off‘
þar sem sagan snýst um fjórar
konur er ræna banka.
Gott að hafa kreditkort
forsetans
Leyniþjónustumenn handtóku
Michael Robinson íyrir að hafa
notað kreditkort Jimmy Carter
til að kaupa geisladiska að and-
virði 45$. Robinson komst yfir
númerið á kreditkortinu þegar
hann var að vinna á stað sem er
f um 10 mílna Ijarlægð frá
heimabæ Carters. Carter borð-
aði þar iðulega og greiddi með
kreditkorti sínu. Verði Robinson
sakfelldur, gæti refsing hans
orðið þriggja ára fangelsisvist.
Eldur, eldur
Hinn 19 ára gamli Keith Porter
var alveg ákveðinn í því að vinna
fyrir sér með skólanum og gerð-
ist sjálfboðaliði í slökkviliðinu.
Svo ákveðinn var hann, að hann
kveikti elda hér og þar til að
hafa meira að gera og vinna sér
inn meira fé. Hann var ákærður
fyrir 11 íkveikjur og gæti þurft
að eyða 115 árum f fangelsi og
greiða 200 þúsund dollara í
sektir. Sjálfboðaliðar fá um 5
dollara á tímann í slökkviliiðinu.