Dagur - 26.03.1998, Blaðsíða 4

Dagur - 26.03.1998, Blaðsíða 4
20 — FIMMTUDAGUR 2 6 . M ARS1998 FERMINGARLÍFIÐ í LANDINU Fermingarbamið Fermingarbömin sem í vorkomast í ,Jullorðinna manna tölu“þurfa núflestífyrsta skipti á ævinni að horfa alvarlega á sjálfsig ogframtíðina. Lífið er ekki bara æskuleikur, það ermeira - og sú staðreynd blasirvið þeim. Herra Karl Sigurbjömsson biskup segirí viðtali viðDag: „Ég erbúinn að ferma böm í 25 ár-á þeim tíma hefurýmislegt breyst, en þó er alveg ótrúlegt hvaðfermingin hejursterka stöðu í vitundfólks. Mérhefurfundistað unglingamir flestir takiferminguna afarhátíðlega oggangi að henni heils hugar. “ Fermingarbömin líta í eigin barm, ogþau líta í kringum sig. Eins og blaðamenn Dags víða um land komustað þegarþeirhittu þau að máli em þetta ómótaðar sálir. En með skynfærin opin, á sjálfsig og umheiminn. Um leið og Dagur óskarfermingarböm- um landsins bjartrarframtíðarbjóðum við lesend- um að kynnast nokkmm einstaklingum úrhópnum. FLmleikar og Bugsy Malone Ofbeldi er ógeðslegt Daníel Ingi Þórisson les blöðin vand- lega. Hann fylgist með fréttum og horfir líka mikið á sjón- varp en hefur ekki mikinn áhuga á stjórnmálum og hlustar mest á ís- Ienska tónlist. Daníel Ingi segist ekki vita enn hvort hann komi til með að fara utan til náms eða hvar hann vill búa þegar hann er orðinn stór en hann ætlar alveg örugglega í Iangskólanám. Hann notar engin ávana- eða fíknilyf og segir ofbeldi vera slæmt og engum til sóma. „Undirbúningur undir ferminguna hef- ur verið ágætur og þetta lítur bara vel út,“ segir Daníel, sem segist fermast til að staðfesta skírnarheitið. „Við höfum verið að læra um Jesú Krist í undirbúningn- um, en ég er eiginlega hlutlaus í trúmál- um, alla vega ennþá.“ Daníel á tölvu en notar netið ekki mik- ið, bara stundum. Hann æfir fimleika fimm sinnum í viku og leikur í Bugsy Malone og hefur þess vegna ekki mikinn tíma til að taka þátt í félagslífinu í skólan- um. Honum finnst fatatískan ágæt en segir fólk eiga að klæða sig eftir því sem það vill, ekki að láta tískuna ráða. Varð- andi samskipti kynjanna er hann á þeirri skoðun að krakkar eigi ekki að fara að sofa saman mjög snemma og hann hefur enga sérstaka skoðun á hinu kyninu. Björg Þórs- dóttir hefur haft ánægju af undirbún- ingnum. Björg telur ferminguna skipta miklu máli og segist fermast vegna þess að hún sé trúuð, en auðvitað sé gam- an að fá veislu og gjafir. Björg segir sam- band sitt við foreldrana vera mjög gott. „Eg vil gjarnan fara út í heim í skóla, en búa hér á landi,“ segir Björg. „Mér finnst landið fínt og helst þurfa að koma til íjölbreyttari skólar og heldur meiri gróður." Björg segist helst lesa gróusögur og grín í dagblöðunum, horfa mikið á sjón- varp, „allt sem ég má,“ og eftir að hún fór að læra í bókinni „Sjálfstæði Islendinga 3“ þá hafi hún fengið mun meiri áhuga á stjórnmálum og hafi ákveðnar skoðanir í þeim málum. Er í kórmun „Skólinn er ágætur, en námsefnið mætti vera skemmtilegra og stundum nýrra,“ segir hún. Hún tekur þátt í sem mestu af því sem boðið er upp á í félagslífi skólans og er að læra á píanó og er í unglingakirkjukórn- um. Á heimilinu er tölva en ekki aðgang- ur að Netinu. Hvað varðar samskipti kynjanna þá finnst henni þau oftast góð. „Annars hef- ur maður frétt af því í útvarpinu að krakk- ar sem eru 14,15 og 16 ára séu farin að sofa saman, það finnst mér rugl. Samkyn- hneigðir eru bara venjulegt fólk, það er ekki eins og það sé eitthvað að þeim.“ Ekkert tískufdk Björg er reyklaus og segir árganginn sinn í skólanum vera alveg reyklausan. Henni finnst alltof mikið einblínt á ofbeldi sem kannski sé skiljanlegt, því ofbeldi sé ógeðslegt.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.