Dagur - 26.03.1998, Blaðsíða 10

Dagur - 26.03.1998, Blaðsíða 10
26 - FIMMTUDAGUR 26.MARS 19 9 8 FERMINGARLÍFIÐ í LANDINU Ferming - stór ákvörðun Víða í heiminum er einhver at- höfn framkvæmd þegar ungling- urinn stígur yfir mörkin á milli þess að vera barn og fullorðinn. A Vesturlöndum og hjá kristinni kirkju er fermingin sú athöfn sem viðhöfð er, en hún hefur yf- irleitt verið framkvæmd á vegum kirkjunnar. Hin síðari ár hefur hins vegar einnig verið tekin upp borgaraleg ferming, sem á sér stað utan kirkjunnar. Islenska orðið ferming er þýð- ing á latneska orðinu „con- firmare" sem merkir að styðja, að styrkja, að staðfesta. Tilheyrir kirkju Krists Fermingin er staðfersting skírn- arinnar sem í flestum tilfellum hjá þjóðkirkjufólki er fram- kvæmd stuttu eftir fæðingu. Það er fjölskylda viðkomandi barns sem ákveður að fela barninu Guði á hendur og þar með taka það inn í kristið samfélag. í fermingunni staðfestir barnið það að vilja tilheyra kirkju Krists. Hjá þjóðkirkjunni hefst hinn hefðbundni fermingarundirbún- ingur að hausti, þegar börnin hefja skólagöngu í 8. bekk. Þau koma vikulega í fræðslu yfir vet- urinn og eiga að fara í messur 7- Velkomin í Villta vestríð eftir Ingihjörgu Hjartardóttur. Leikstjéri Helga E. Jónsdóttir. 3. sýning. fimmtud. 26. mars kL 21.00 4. sýning. föstud. 27. mars kl. 21.00 5. sýning. laugard. 28. mars kl. 21.00 Miðapantanir í síma 463 1195 frá kl. 17.00. - 19.00. Freyvangs- leikhúsið 16 sinnum á tímabilinu en það er ákveðið af hverjum presti fyrir sig. Hjá sumum sóknum er for- eldrafræðsla einnig nokkur og er foreldrum gert að mæta á fræðslufundi þar sem fjallað er um þroska unglingsins, vímu- efni og annað sem þurfa þykir. Einnig eiga foreldrar að mæta í messur eftir atvikum, en þeim er það þó í sjálfsvald sett. Fræðsla felst í því að fara í gegn um trúfræðina, læra boð- orðin, læra um kærleikann, um ábyrgð okkar gagnvart náttúr- unni og öllu lífi og ýmislegt fleira. I Reykjavíkur- og Kjalarnes- prófastsdæmi fara börnin einu sinni yfir veturinn í Vatnaskóg á námskeið, þar sem þau dvelja tvo daga og eina nótt. Slíkar ferðir þekkjast hjá flestum söfn- uðum. Kostnaður við kirkjulega fermingu er sá að fyrir fræðsl- una um veturinn eru greiddar um 6.400 kr. og að auki um 600 kr. fyrir kyrtilinn á fermingar- daginn (hreinsunargjald). Annar kostnaður er enginn, nema við ferðir á námskeið annars staðar. Fermingin, gjöf heilags anda „Aður en Jesús fór frá þessum heimi til Föður síns lofaði hann postulunum sínum að senda Rympa á Melum Fjölskylduleikritið RYMPA Á RUSLAHAUGNUM Höfundur: Herdís Egilsdóttir. Leikstjóri: Sunna Borg. Sýningar laugard. 28. mars kl. 14.00, sunnud. 29. mars kl. 14.00. Miðapantanir í síma 462 6564 kl. 18-20 virka daga og 11-13 um helgar og í síma 461 4040 virka daga til kl. 18. Leikfélag Hörgdæla annan huggara, Heilagan anda. A Hvítasunnu kom Andi Guðs yfir postulana og Maríu Mey eins og eldtungur og mikill gnýr heyrðist. Upp frá þessu hófu postularnir boðunarstarf sitt og vitnuðu um Jesúm krist og lögðu hendur sínar yfir hina trúuðu til að veita þeim gjöf Heilags anda. Eftirmenn postulanna, biskup- arnir hafa haldið áfram síðan að veita gjöf Heilags anda með handaryfirlagningu og smurn- ingu með heilagri Krismu olíu og þessi athöfn er fermingar- sakramenti, eitt af sjö sakra- mentum kaþólsku kirkjunnar," segir Sr. Jakob Rolland einn presta kaþólskra á Islandi. Kaþólsk börn hefja undirbún- ing fermingarinnar 6-7 ára göm- ul, en fermast um líkt leyti og önnur börn hér. Einungis bisk- upar (eða prestar í sérstöku um- boði biskupa) veita fermingar- sakramenti og því heitir það einnig biskupun. Eitt af aðal- störfum biskupanna í stórum kaþólskum biskupsdæmum er að ferðast á milli sókna og ferma. Fermingin er yfirleitt veitt í heilgari messu. Eftir boð- un fagnaðarerindisins í guð- spjallinu og predikun biskupsins koma fermingarbörnin fram og játa trú kirkjunnar. Því næst ákallar biskupinn Heilagan Anda og veitir smurningu með heilagri olíu um leið og hann segir: „Meðtak þú innsigli veitingar Heilags anda.“ Börnin eru eftir það fullgildir meðlimir kirkjunn- ar og bera ábyrgð á sínu trúarlífi sjálf. 1 fermingu kaþólskrar kirkju felast þessi meginatriði: Þroski í kristilegu lífi og efld samstaða með kirkjunni. Styrkur í trúnni og dýpkaður trúarskilningur. Hlutdeild t þreföldu hlutverki Krists, sem er prestur, spámaður og konungur. Skylda til að hera Kristi vitni í heiminum. Enginn kostnaður er við ferm- ingu í kaþólskri kirkju. Borgaraleg ferming Með kirkjulegri fermingu stað- festir einstaklingurinn skírnar- heit og játast kristinni trú. Mörg ungmenni á fermingaraldri eru ekki tilbúin til að vinna trúar- heit af ýmsum ástæðum. Sum eru annarrar trúar en kristinnar eða trúa á Guð á sinn hátt, á meðan önnur eru ekki trúuð. Engin skilyrði eru fyrir borgara- legri fermingu önnur en þau að sækja námskeið þau sem eru undirbúningur undir ferming- una. Börnin hittast 12 sinnum og kennt er eftir námsskrá, þar sem fjallað er um viðfangsefni eins og fjölskylduna, lífsviðhorf, frelsi, ábyrgð, hamingju, gleði, sorg, samskipti, mannréttindi, siðfræði, efahyggju, umhverfis- mál og fleira. Einnig er gert ráð fyrir þátttöku foreldranna, þar sem þau vinna sérstök verkefni með börnum sínum og eiga helst að taka virkan þátt í öllu námskeiðinu. Hápunktur fermingarinnar er virðuleg Iokaathöfn sem foreldr- ar barnanna skipuleggja og stjórna með hjálp Siðmenntar. Þar eru börnin sjálf í aðalhlut- verkum, koma fram prúðbúin, flytja ávörp, ljóð og sögur og spila á hljóðfæri. Að lokum fá þau skrautritað skjal til staðfest- ingar á þvf að þau hafi lokið fermingarnámskeiðinu. Fyrsta borgaralega fermingin hér á landi var árið 1989 og í vor munu 49 börn á Reykjavíkur- svæðinu láta ferma sig borgara- lega. Kostnaður við borgaralega fermingu er 8.000 kr. á barn sem er námskeiðsgjald og 3.500 kr. fyrir athöfnina. -VS .. Canon Z-90 MIKIÐ UIT F MYNDAVELUM APS OC 35 MM verb frá kr. 5.490, ^Pedi^myndir" Skipagata16 - 600Akureyri - Sími 462 3520 APS myndai 3 myndastæröir abdráttarlinsa Nú kr. 34.900, Ábur kr. 39.900,-

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.