Dagur - 26.03.1998, Blaðsíða 5

Dagur - 26.03.1998, Blaðsíða 5
T Tfc^ui- FERMINGARLÍFIÐ t LANDINU FIMMTVDAGUR 26.MARS 1998 - 21 Til í að fara tilAfrfku Adda Þóra Daníelsdóttir segist ekki fylgjast mikið með því sem er að gerast í heiminum. „Eg veit að ástand- ið er ekki alls- staðar gott, þar sem er stríð og þess háttar og maður veit aldrei hvort eitthvað svo- leiðis gæti gerst hér.“ Hún bætir því við að hún viti vel af því að ýms- ir hafi það slæmt í gömlu Júgóslavíu og í Afríku. Hún segir að fermingarundirbúningur- inn geri það að verkum að hún hugsi öðruvísi um lífið og tilveruna og það sé mjög margt sem fjallað sé um í undirbún- ingnum. „Eg væri aiveg til í að fara til Afríku og sjá hvað er að gerast þar og taka þátt í að hjálpa fólki, samt finnst mér best að vera hér heima. Mér finnst skipta miklu máli að fara vel með lífið, hugsa skýrt og gera ekki neina vitleysu." Hún segir ekkert standa uppúr í því sem hún hafi lært í ferm- ingarundirbúningnum. „Mér finnst eigin- lega allt vera þess virði að hugsa um það.“ Adda Þóra segir að hún hugsi svolítið um þessi mál og henni finnist að við ber- um ábyrgð á því að fólkið sem þarna býr hafi það betra. Maður viti heldur ekki hvenær maður þyrfti sjálfur á því að halda að einhver hjálpi manni. Adda Þóra Danielsdóttir segist ekki tyigjast mikið með því sem er að gerast í heiminum. Bænin núMvægust Arnór Sigmarsson segist ekki fylgjast neitt sérstaldega vel með því hvað sé að gerast í heiminum. „Eg horfi stundum á fréttir og maður sér að margir krakkar lifa erfiðara lífi en maður sjálfur." Hann segir að þegar maður sjái hvernig aðrir hafa það þá verði maður þakklátur fyrir það hvað maður hafi það gott. Arnór segir að fermingarundibúning- urinn hafi áhrif á sig og segir að sér finn- ist bænin mikilvægust í því sem hann hefur verið að læra. í gegnum bænina geti maður nálgast Guð og komist nær honum. „Maður hugsar um það hvernig maður vill að aðrir komi fram við mann og reynir Arnór segir að fjölskylda og vinir skipti líka miklu máli í lífinu og mað- ur eigi að reyna að lifa góðu lifi. að koma svoleiðis fram við aðra.“ Hann seg- ir að sér finnist það skipta miklu máli. Arnór segir að íjölskylda og vinir skipti líka miklu máli í lífinu og maður eigi að reyna að lifa góðu lífi. Hann segir að það séu ekki margir sem fermist bara fyrir gjafirnar og að hann sjálfur fermist af því að hann vilji staðfesta skírnarheit- ið. Aö vera sáttur við sjálfansig Stefán Steingrímur Bergsson segist fylgjast svolítið með fréttum og því sem er að gerast i heiminum. „Astandið í heiminum mætti alveg vera betra og þegar ég hugsa um hvernig það sé að búa á stöðum þar sem ástandið er slæmt, þá finnst mér ég vera heppinn að búa á svona góðu Iandi.“ Stefán segir að hann hugsi öðruvísi um lífið og tilver- una eftir að hann byijaði í fermingarundirbúningnum. „Maður hugsar meira um það að sumir eiga bágt og svo- leiðis og er kannski meira vakandi í því að gera eitthvað fyrir fólk.“ Hann segir að það sé mjög margt sem hann hafi lært í fermingarundirbúningnum, og ekkert eitt standi uppúr. „Það skiptir mestu máli í lífinu að vera hamingjusam- ur og til þess held ég að maður þurfi að vera sáttur við sjálfan sig,“ segir Stefán. Hann bætir því við að það skipti máli hvemig maður komi fram við aðra til þess að maður geti verið sáttur við sjálfan sig. Hann segist halda Stefán segir að hann hugsi öðruvísi að krakkarnir í fermingarhópnum hugsi talsvert um lífið um lífið og t/lveruna eftir að hann Qg tilveruna og ekki séu margir sem fermist bara fyrir byrjaði i fermingarundirbúningnum. gjafir En er hann sáttur við sjáifan sig? já>« svarar Stef- án og er ákveðinn í að vera það áfram. I I ' - Græðgin er slæm Lilju finnst að fermingarundirbúning- Lilja Guð- munds- dóttir seg- ist ekki fylgjast með stjórnmál- urinn breyti því hvernig hún hugsi um um, en lífið og tilveruna. hún fylgist vel með fréttum utan úr heimi í blöðum og Ijölmiðlum. „Eg held að ástandið sé gott hérna, en það er náttúrlega mjög slæmt víða, eins og í Júgóslavíu. Eg hugsa stundum um það hvernig krakkar eins og ég hafa það, þar sem ástandið er slæmt.“ Lilju finnst að fermingarundirbúning- urinn breyti því hvernig hún hugsi um líf- ið og tilveruna. „Maður hugsar auðviðtað meira um Guð og líka um annað fólk.“ Hún segist alveg vera til í að fara og hjálpa til þar sem fólk á erfitt, en segist ekki kunna mörg ráð til að koma í veg fyr- ir svona ástand. „Eg held að eina leiðin sé að halda áfram því starfi sem verið er að vinna á þessum stöðum, eins og Rauði krossinn er að gera. Eg held að græðgi stjórnmálamanna ráði miklu um þetta ástand,“ segir Lilja og bætir því við að græðgi sé mikill óvinur fólks. Hún er ekki á því að græðgi ráði miklu í sambandi við ferminguna. „Kannski hjá sumum sem hugsa bara um gjafir,“ segir hún og bætir því við að sennilega séu þeir ekki margir. Fjöl- skyldan skiptir mestu Helga Rut Torfadóttir segist ekki fylgjast mikið með því sem er að gerast í heimin- um, en hún horfi stöku sinnum á fréttir. „Astandið í heiminum er ekki mjög gott,“ segir hún. Helga segist stundum leiða hugann að því hvernig sé að vera ungling- ur í löndum þar sem ríkir stríð eða aðrar hörmungar. Helga Rut segist hugsa talsvert um það sem hún læri í fermingarundirbúningn- um. „Eg hugsa um sumt, en kannski ekki annað. Kannski hugsa ég helst um trúar- játninguna." Hún segir að afstaðan til ná- ungans sé það sem hún hafi Iært mest um í fræðslunni fyrir ferminguna. Hún segir að hún hugsi stundum um Helga Rut Torfadóttir segist ekki fylgjast mikið með þvi sem er að gerast í heiminum. það hversu gott sé að búa hér og veltir því stundum fyrir sér hvernig væri ef stríð brytist út hér á landi. „Maður hefði miklu minna og Iífið væri allt svo miklu erfið- ara.“ Henni finnst fjölskylda og vinir skipta mestu máli í lífinu. „Maður reynir auðvit- að að lifa eftir því og koma vel fram við Ijölskylduna og vinina, en það tekst ekki alltaf,“ segir Helga Rut og bætir því við að maður verði að reyna að koma vel fram við annað fólk. Meira umburöarlyndi Jón Ingi Svein- björnsson segist ekki fylgjast mikið með stjórnmálum. „Eg fylgist heil- mikið með fréttum og maður sér að ástandið er rosalega slæmt. Maður vor- kennir þessu fólki mikið að búa þarna. Krakkarnir sem búa þarna eru ekkert öðruvísi en við, en þau hafa alls ekki nóg að borða og hafa það slærnt." Jón Ingi segir að hann hafi lært margt í fermingarundirbúningnum og segist hafa leitt hugann talsvert að boðorðunum. „Ég veit ekki hvort það breytist mikið hvernig maður kemur fram við fólk, en maður hugsar kannski meira um það.“ Honum finnst það skipta miklu máli að lifa góðu lífi og segir að það feli svo margt í sér. Það séu svo margir hlutir sem skipti máli. Hann segir til dæmis að íþróttir skipti sig miklu máli, en auðvitað sé margt annað sem sé mjög mikilvægt í líf- inu. Jón Ingi segir að hann sé að fermast vegna trúarinnar. „Ég er samt ekkert rosa- lega trúaður, bara mátulega, en maður hugsar mikið um trúna í fermingarfræðsl- unni.“ Hann segir að stríð í heiminum spretti oft af trúardeilum og segir að menn ættu að temja sér meira umburðar- lyndi hver gagnvart öðrum. „Þeir eru sum- ir alveg brjálaðir sem eigast við í þessum styijöldum," segir Jón Ingi. Jóni Inga finnst miklu máli skipta að Hfa góðu lífi - það feli svo margt í sér. 1

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.