Dagur - 29.04.1998, Blaðsíða 1

Dagur - 29.04.1998, Blaðsíða 1
FÍB segir gj aldskrá Spalar vekj a furðu Frainkvæmdastjóri FÍB telur að gjaldtaka um Hvalfjarðagöng sé aUt of há. Spölur seg- ir að lánveitendur leyfi ekki lægri gjald- skrá. „Þessi gjaldskrá vekur furðu. Þegar umræðan um Hvalfjarðar- göngin fór í gang á sínum tíma var rætt um að hæsta gjaldið yrði það sama og nú hefur komið í Ijós að verður lægsta gjald. Við erum undrandi yfir þessari háu gjaldtöku. 1000 krónur eru allt of mikið fyrir eina ferð í fólks- bíl,“ segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra bifreiðaeigenda. Grefur sér gröf? Runólfur reiknaði út aukakostn- aðinn sem fylgir því að fara inn í botn Hvalljarðar. Munurinn er 42 kílómetrar fyrir aðra en Akur- nesinga og fyrir venjulegan fólks- bíl þýðir aukakostnaðurinn á kílómetra um 15 krónur og tekur þá Runólfur tillit til allra þátta. Bensíns, viðhalds, viðgerða, hjól- barða og lægra endursöluverðs. „Við fáum út töluna 630 krónur og það er einmitt nálægt þeirri gjaldtöku sem menn voru að tala um. Tímasparnaðurinn er innan við 20 mínútur þannig að maður spyr sig hvort forsvarsmenn fyr- irtækisins reikni dæmið ekki vit- laust. Akveðinn hvati hefur orðið fyrir landsmenn að fara frekar inn í Botn vegna þessarar okur- verðskrár. Eru menn ekki mark- aðslega að grafa sér gröf?“ spyr Runólfur. Þrautpindir fyrir Ein af forsendum þess að sátt skapaðist á sínum tíma um fram- kvæmdina var gjaldtökufjárhæð sem oftast var nefnd 600-700. Runólfur segir bíleigendur á Is- landi nógu þrautpínda fyrir. „Þeir Runólfur Ólafsson, framkvst. FÍB segir 630 kr. eðlilegt gjald í göngin. borga um 25 milljarða kr. á ári í skatta fyrir og ef álögur aukast enn vegna sjálfsagðra samgöngu- bóta sem þegar hefur verið greitt fyrir verða menn hreinlega klum- sa. Það er jafnframt verið að setja höft á tekjulægstu hópana að komast þarna í gegn.“ Hvers virði er tímiim? Stefán Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Spalar, vísar gagn- rýni Runólfs á bug. „Þetta er ekkert hærri fjárhæð en það sem lá fyrir í undirbúningsgögnum. Þá er ég að tala um meðaltalið sem við áætlum að komi út úr þessu. Menn verða lílca að taka tímasparnaðinn með í reikning- inn. Hæsta gjald er 1000 krónur og Runólfur reiknar út 630 krón- ur sem sparast. Hvers virði meta menn tíma sinn?“ spyr Stefán. Skyldur við lánveitendur Framkvæmdastjóri Spalar segir að neðar verði ekki farið í gjald- skránni. „Við eigum mjög erfitt með að lækka hana frá því sem nú er, einfaldlega vegna samn- inga okkar við lánveitendur. Eg vil benda á að við gefum færi á afsláttarkjörum niður í 600 krónur á ferð og við erum að vonast til að sem flestir nýti sér þau.“ — BÞ Samvinna Armaims og Þróttar Glímufélagið Ármann og Kuatt- spyrnufélagið Þróttur hafa ákveðið að stofna til samvinnu á starfssvæðum félagana. Þá mun Ungmennafélagið Fjölnir taka að sér íþrótta- og ungmennastarf í Borgarholtshverfi þegar ljóst þykir að Glímufélagið Armann mun ekki flytja þangað. Höfuð- stöðvar Fjölnis verða í Iþrótta- miðstöðinni í Grafarvogi. I sam- starfssamningi Ármanns og Þróttar við borgina sem var til umljöllunar í borgarráði í gær kemur m.a. fram að aðalforsend- an fyrir góðu og nánu samstarfi félagana í Laugardal er m.a. bygging Ijölnota íþróttahúss við Laugardalshöll. Þá mun Armann fá afnotarétt á húsnæði því sem byggt verður fyrir Þrótt við gervi- grasvöllinn í Laugardal. Nú rennur upp sá tími að veðurblíðan glepur huga þeirra sem sitja í próflestri. Sara Elísa Þórðardóttir, nemi á 2. ári í Mennta- skólanum í Reykjavík, lét veðurblíðuna ekki trufla sig, heldur einbeitti sér að undirbúningi fyrir efnafræðipróf. Það er líka eins víst að þeir verði fleiri góðviðrisdagarnir en atrennurnar að prófinu. mynd: bo Á Lágheið/. Ekki mjög sumarlegt, en hlýtur að batna, ekki versnar það. For á fjíill- vegiim Helstu fjallvegir landsins, þó ekki hálendisvegir, eru að verða færir en víða er mikil aurbleyta og varla fólksbílafært. Þannig er t.d. með Lágheiði milli Fljóta- hrepps og Ólafsfjarðar. Há- marksöxulþungi er 3 tonn en drullupyttirnir eru alls staðar. Öxarljarðarheiði er ekki opin, er eitt drulludý og vegurinn austan Jökulsár á Fjöllum er lokaður en samt eru alltaf einhverjir að læð- ast um hann, festa bílana og skemma veginn enn frekar. Snjór er á Mývatns- og Möðrudalsör- æfum, Hellisheiði eystri lokaðist á mánudag vegna snjóa og snjór er á Vopnafjarðar- og Sandvíkur- heiðum. Hrafnseyrarheiði fyrir vestan er orðin fær og því bílfært milli ísafjarðar og Vesturbyggðar. A Ströndum er þæfingur vestur í Bjarnarfjörð. Veðurstofan gerir ráð fyrir breytingum á fimmtu- dag úr norðaustanátt í hæga suð- vestanátt með dumbungi vestan og sunnan til um helgina en bjartviðri austan- og norðaustan- lands. - GG Ekkert svar Bankaráð Islandsbanka hefur synjað ósk Guðmundar Arna Stefánssonar alþingismanns um að veita upplýsingar um laxveiði- og risnukostnað bankans. Vill Is- landsbanki ekki að sér sé bland- að inn í umræður um vandamál stærsta samkeppnisaðilans. Auk þess kveðst bankinn halda uppi ströngu kostnaðarefirliti. Guð- mundur Árni segir það vera mikil vonbrigði að bankaráð hafi ekki viljað svara fyrirspurn sinni og rökstuðningur bankans lítil- vægur. Þetta sýni hins vegar að nauðsjmlegt sé að breyta hlutafé- Iagalögum til að ná upplýsingum af þessu tagi fram. 1 i ! I I I l 1 BUCK&DECKER Handverkfæri SINDRI V. -sterkur í verki BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024 T

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.