Dagur - 29.04.1998, Page 4
> » - V ' . I I
4 -MIÐVIKUDAGUR 29
APRÍL
f ; *■
19 9 8
FRETTIR
D-listinn á Austur-Héraði
Listi sjálfstæðismanna í Austur-Héraði, nýju sveitarfélagi á Austur-
landi, hefur verið Iagður fram. I þremur efstu sætum Iistans eru kon-
ur, þær Sigrún Harðardóttir, Eiðahreppi, Soffía Lárusdóttir, Egilsstöð-
um og Ágústa Björnsdóttir, Egilsstöðum. Síðan koma Bernharð Boga-
son, Egilsstöðum, Hannes Snorri Helgason, Egilsstöðum, Magnús Jón-
asson, Egilsstöðum, Kjartan Benediktsson, Egilsstöðum, Jökull
Hlöðversson, Skriðdalshreppi, Gunnhildur Sigþórsdóttir, Hjaltastaða-
hreppi og Sóley But Isleifsdóttir, Skriðdalshreppi.
Krían á Homafirði
Prófkjör fór nýlega fram hjá Kríunni á Hornafirði um skipan framboðs-
lista og voru niðurstöður bindandi fyrir fimm efstu sætin. Krían er sam-
tök fólks sem aðhyllast jafnaðar- og félagshyggju og hefur listinn boðið
fram tvisvar áður. Krían á 3 fulltrúa í bæjarstjórn Hornafjarðar, en nú
verður kosið til sveitarstjórnar í nýju sveitarfélagi sem nær til þeirra
fjögurra sveitarfélaga sem mynda Austur-Skaftafellssýslu. I fimm efstu
sætunum verða Gísli Sverrir Árnason, Eyjólfur Guðmundsson, Sigrún
I. Sveinbjörnsdóttir, Þorbjörg Arnórsdóttir og Kristfn Gestsdóttir.
Kvótaþing á Homafirði
Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur samþykkt eftirfarandi tillögu: Sam-
kvæmt nýsamþykktum lögum frá Alþingi sem sett voru til að binda
enda á verkfall sjómanna stendur til að setja á stofn Kvótaþing sem hef-
ur það hlutverk að annast tilboðsmarkað fyrir öll viðskipti með afla-
mark skipa. Einnig Verðlagsstofu skiptaverðs en tilgangur hennar er að
fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna. Bæjarstjórn
Hornafjarðar beinir þeim tilmælum til stjórnvalda að staðsetja Kvóta-
þing og Verðlagsstofu skiptaverðs á Höfn í Hornafirði.
SkaftfeUingabvggð eða Hornaíjörðiir
Sævar Kr. Jónsson, bæjarfulítrúi á Höfn, segir að ekki sé einhugur um
nafnið Hornafjörð á nýja sveitarfélagið í Austur-Skaftafellssýslu, m.a.
sættir hreppsnefnd Hofshrepps sig ekki við það. Lögð hafi verið niður
sveitarfélög og stofnað nýtt og finna hefði átt nýtt nafn á sveitarfélag-
ið. Hreppsnefnd Hofshrepps hefur lagt til að kosið verði milli nafnanna
Skaftfellingabyggð og Hornafjörður.
Fjarðálistinii í „Austurríki66
Framboðslisti Fjarðalistans, samtaka félagshyggjufólks í hinu nýja
sveitarfélagi á Mið-Austurlandi, sem stundum er nefnt Austurríki, hef-
ur verið birtur. Að Iistanum standa Alþýðu- og Alþýðubandalagsfélögin
á Eskifirði, Reyðarfirði og Neskaupstað auk óflokksbundins fólks.
Framboðslistann leiðir Smári Geirsson, framhaldsskólakennari á Nes-
kaupstað og forseti bæjarstjórnar Neskaupstaðar. I næstu sætum koma
Elísabet Benediktsdóttir, Reyðarfirði, Ásbjörn Guðjónsson, Eskifirði,
Guðmundur R. Gíslason, Neskaupstað, Guðrún M. Óladóttir, Eski-
firði, Þorvaldur Jónsson, Reyðarfirði, Petrún Bj. Jónsdóttir, Neskaup-
stað, Ásta Einarsdóttir, Reyðarfirði, Aðalsteinn Valdimarsson, Eskifirði
og Heiðrún Helga Snæbjömsdóttir, Neskaupstað. — GG
Auglýsing frá
Kjörstjórn Húsavíkur
Framboðsfrestur til sveitarstjórnakosninga 23.
maí 1998 rennur út á hádegi laugardaginn 2. maí
1998. Kjörstjórn Húsavíkur tekur á móti framboðslistum á
skrifstofum Húsavíkurkaupstaðar milli kl. 10.00 og 12.00
laugardaginn 2. maí 1998. Gæta skal þess um öll fram-
boð að tilgreina skýrlega fullt nafn frambjóðanda, kenni-
tölu hans, stöðu og heimili, til þess að enginn vafi geti leik-
ið á því hverjir í kjöri eru.
Hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg til-
kynning frá frambjóðendum listans um það
hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Til
þess að framboðslisti teljist réttilega fram bor-
inn þarf tiltekinn fjöldi kjósenda að mæla með
listanum, í sveitarfélagi með 2001-10.000 íbúa
alls 40 meðmælendur. Hámarkstala meðmæl-
enda skal vera tvöföld tilskilin lágmarkstala.
Hver kjósandi má einvörðungu mæla með ein-
um lista við hverjar kosningar.
Kjörstjórn Húsavíkur.
Vilja Náttúrn-
vemdina norður
Mývetningar bjóða
Náttúruveriid ríkisins
að flytja höfuðstöðv-
araar norður í sveit.
Framk væmdastj óri
NR telur það óhag-
kvæmt.
Þrír ráðherrar komu saman á
fund um atvinnumál í Mývatns-
sveit á dögunum, þeir Halldór
Blöndal, Guðmundur Bjarnason
og Finnur Ingólfsson ásamt
sveitarstjórnarmönnum og yfir
30 fulltrúum fyrirtækja á svæð-
inu. Þar kom fram að framtíð
Kísiliðjunnar er ekki björt þótt
menn leiti leiða til að stækka
vinnslusvæðið. Það mál sem
hæst bar á dagskránni var þó
Náttúruvernd ríkisins og Iögin
um verndun Laxár og Mývatns.
Stjómsýslulög brotin?
Nær allir sem tóku til máls töldu
að breyta þyrfti þessum lögum og
flytja ákvörðunarvaldið heim í
hérað. Þriðja grein Iaganna segir
að Náttúruvernd ríkisins þurfi að
samþykkja allan atvinnurekstur í
Skútustaðahreppi og lýstu sumir
heimamanna andstöðu sinni við
þetta og töldu stangast á við
stjórnsýslulög. Þeirri hugmynd
var hins vegar skotið fram á
fundinum að höfuðstöðvar Nátt-
úruverndar ríkisins yrðu fluttar
norður í Mývatnssveit. Það sam-
ræmdist væntanlega vel stefnu
ríkisstjórnarinnar um flutning
ríkisstofnana og gerðu fundar-
menn góðan róm að tillögunni.
Ekki góð hugmynd
Árni Bragason, framkvæmda-
stjóri Náttúruverndar ríkisins,
segir að við fyrstu sýn lítist hon-
um ekki vel á þessa hugmynd.
„Þessi stofnun hentar mjög illa
til flutnings út á land vegna þess
hve stjórnsýsluhlutverkið er
stórt. Höfuðstöðvar fyrirtækja
eins og Vegagerðar, Landsvirkj-
unar, Skipulags ríkisins og fleiri
lögbundinna umsagnaraðila er
þess eðlis að kostnaður við flutn-
inginn myndi aukast mjög mikið.
Þetta eru fyrst og fremst pen-
ingaleg og stjórnsýsluleg
rnótrök.11
Dýrara á Egilsstöðum
Árni segir að á hinn bóginn sé
það aðlaðandi hugmynd að vera í
nálægð við hið sérstæða og
verndaða lífríki Mývatnssveitar.
Margar aðrar stofnanir væru þó
sannarlega hentugri til flutnings.
„Það kostar verulega miklu meira
að starfrækja Skógrækt ríkisins á
Egilsstöðum en t.d. í Reykjavík,“
bendir Árni á. — Bl>
MiMð tap á Spari-
sjóði Ólafsfjarðar
Eiginfjárstaða sjóðs-
ins liefur aukist úr
2,1% í 8,4% með sölu
hlutabréfa og uppfyll
ir þar með skilyrði
laga.
Sparisjóður Ólafsfjarðar var rek-
inn með 316 milljóna króna tapi
á árinu 1997. Meginástæða taps-
ins er sú að nauðsynlegt reyndist
að leggja 388 milljónir króna í af-
skriftarreikning útlána. Þetta er
lakari afkoma en áætlað var við
endurfjármögnun Sparisjóðs
ÓlafsQarðar sl. haust en spari-
sjóðurinn gekk í gegnum mikia
erfiðleika á síðasta ári er í Ijós
kom að kröfur sjóðsins sem hann
var í ábyrgð fyrir voru ekki nægj-
anlega tryggðar. I framhaldi af
því var sparisjóðurinn endurfjár-
magnaður með nýju stofnfé að
Mun lakarí afkoma varö hjá Sparísjóöi
Úlafsfjarðar f fyrra en spáö hafði verið.
fjárhæð 201 milljón króna og
Sparisjóðabanki Islands veitti
sparisjóðnum víkjandi lán að
upphæð 50 milljónir króna.
Þessi mál hafa síðan verið til
rannsóknar hjá Rannsóknarlög-
reglu ríkisins.
I árslok 1997 nam eiginfjár-
hlutfall sjóðsins 2,1% en verður
að vera samkvæmt Iögum 8,0%.
Eiginfjárstaðan hefur að undan-
förnu verið styrkt með sölu
hlutabréfa í eigu sjóðsins og á
eftir söluna að uppfylla skilyrði
um eiginfjárstöðu.
„Þrátt fyrir mikið tap á síðasta
ári tel ég að sparisjóðurinn hafi
alla burði til þess að skila eigend-
um sínum viðunandi arði í fram-
tíðinni. Sparisjóðurinn hefur
hlutfallslega lágan rekstrarkostn-
að, háa framlegð og ekki er
ástæða til að ætla að framlag í af-
skriftarreikning Sparisjóðs Ölafs-
fjarðar verði lægra en hjá öðrum
peningastofnunum," segir
Magnús Brandsson sparisjóðs-
stjóri.
Stjórn Sparisjóðs Ólafsfjarðar
skipa Gunnar Sigvaldason, Ás-
geir Logi Ásgeirsson og Jón Hall-
ur Pétursson og bæjarstjórn
Ólafsfjarðar skipar Gunnar L. Jó-
hannsson og Óskar Sigurbjörns-
son. — GG