Dagur - 29.04.1998, Side 5

Dagur - 29.04.1998, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 29.APRÍL 1998 - S l^MT' FRÉTTIR Fæðmgarorlof karla er betra en kvenna Samræmdar reglur sveitarfélaga og ríkis. Laimanefnd óttast af- leiðingamar. Óeðli- legt og jafnvel ólög- legt. Fáir karlar í fæð- ingarorlof hjá horg. „Við vorum að benda á að afleið- ingin væri sú að sennilega risu ASI-konurnar upp og vildu fá fá það sama og karlarnir. Við tókum því ekki afstöðu heldur vísuðum því til ákvarðanatöku í hveiju sveitarfélagi," segir Lúðvik Hjalti Jónsson hjá Launanefnd sveitar- félaga. Leiðbeinandi reglur launa- nefndar til sveitarfélaga um greiðslur í fæðingarorlofi karla eru samhljóða reglum ríkis og borgar. I grófum dráttum kveða þær á um það að allir feður, óháð stéttarfélagsaðild, halda óskert- um dagvinnulaunum í fæðingar- orlofi. Til viðbótar halda þeir 50% af yfirvinnu. Sem kunnugt er eiga feður rétt á tveggja vikna fæðingarorlofi sem þeir geta tek- ið hvenær sem er fyrstu átta vik- urnar eftir fæðingu eða heim- komu barns. Ólöglegt? Launanefndin vakti hinsvegar athygli sveitarfélaga á því að með því að fara sömu leið og borg og ríki væri verið að mismuna starfsmönnum eftir kyni. Það stafar m.a. af því að karlmenn utan opinberra stéttarfélaga nytu hærri greiðslna í fæðingarorlofi en konur í sömu stéttarfélögum vegna þess að miðað er við laun. Nefndin telur einnig að slík mis- munun hljóti að vera óeðlileg og jafnvel ólögleg. Með því væru sveitarfélögin auk þess að taka á sig greiðslubyrði sem að öðrum kosti lenti á Tryggingastofnun. Jafnframt væri hætt við því að stofnunin mundi neita að greiða hlutdeild í slíkum fæðingaror- lofsgreiðslum. Þá gæti þetta leitt til þess að konur í þessum stéttarfélögum gætu krafist sömu greiðslna og karlar. I það minnsta í tvær vikur og hugsanlega allan fæðingaror- lofstímann. Launanefndin bend- ir á að slík niðurstaða myndi Jón Kristjánsson, starfsmannastjóri Reykjavíkurborgar, segir mismunun hafa verið tii staðar áður. hafa í för með sér að Trygginga- stofnun myndi líklega neita að greiða það sem hún greiðir í dag vegna þessara kvenna. Greiðslur allra launa í fæðingarorlofi myndu því lenda á sveitarfélag- inu. Mismunim Jón Kristjánsson, starfsmanna- stjóri Reykjavíkurborgar, segir að mismunun hafi verið til staðar gagnvart opinberum starfsmönn- um annars vegar og félags- mönnum aðildarfélaga ASI hins vegar áður en borgin samþykkti reglur um feðragreiðslur í fæð- ingarorlofi. I því sambandi bend- ir hann á að opinberir starfs- menn fengu hvorki greiðslur frá Tryggingastofnun né frá vinnu- veitanda. „Spurningin er því hvort þetta sé meiri mismunun að taka inn alla opinbera starfsmenn, þótt það komi þarna fram mismunur á milli karla og kvenna í aðildar- félögum ASI,“ segir starfs- mannastjóri borgarinnar. Sjálfur telur hann brýnt að tekið verði heildstætt á fæðing- arorlofsgreiðslum óháð kjmi og stéttarfélagsaðild. Hann segir að örfáir feður meðal borgarstarfs- manna hafi notfært sér þennan rétt til fæðingarorlofs frá síðustu áramótum þegar lögin tóku gildi. -GRH Árni Sigfússon spurði um sjálfsvíg í Borgarráði. 6 sjálfs- vígstilvik „I fljótu bragði komu upp í hug- ann 6 sjálfsvígstilvik á sl. ári,“ segir í svari Félagsmálastofnun- ar Reykjavfkur við fyrirspurn Arna Sigfússonar sem lögð var fram í borgarráði í gær. I svarinu kemur fram að ekki liggja fyrir staðfestar eða kerfisbundnar upplýsingar um sjálfsvíg skjól- stæðinga stofnunarinnar þrjú árin þar á undan. A sama hátt liggja ekki fyrir upplýsingar um hversu margir þeir einstaklingar eru af annarri og þriðju kynslóð fjölskyldna sem notið hafa fjár- hagsaðstoðar stofnunarinnar eins og spurt var um. 119 milljoiiir í Gullmbni Borgarráð samþykkti í gær að taka sameiginlegu tilboði þriggja verkatakafyrirtækja í tvöföldun Gullinbrúar. Þarna eiga hlut að máli Háfell, AN-verktakar og Borgartak sem buðu rúmar 119 milljónir króna í verkið, eða 91,2% af kostnaðaráætlun. Vill samþykki foreldra í tilefni af fréttaflutningi Stöðvar 2 fyrir skömmu, þegar tveggja ára gamall drengur fannst nak- inn í Grafarvogi, hefur umboðs- maður barna, Þórhildur Líndal, skilað áliti. Hún beinir því til fjölmiðla að þeir sýni foreldrum nærgætni þegar fjallað er um persónuleg og viðkvæm mál. Þar á meðal verði framvegis fylgt þeirri meginreglu að birta ekki viðtöl við börn undir sakhæfis- aldri sem tengjast ætluðum af- brotum og alls ekki nema með samþykki foreldra þeirra eða annarra forsjáraðila. Það var Miðgarður, Fjölskyldu- þjónusta í Grafarvogi, sem fór fram á álit umboðsmanns barna vegna fyrrgreinds máls. Tvær stúlkur er Stöð 2 ræddi við sögð- ust fyrst hafa fundið drenginn klæðalausan, en síðar kom ann- að á daginn. — Bl> Fjölbreytt dagskrá verdur á Listasumri á Akureyri, en óvissa með viðburði í Ketil- húsi. Gilfélagið á Akureyri, sem ásamt mörgum samstarfsaðilum stend- ur fyrir Listasumri á Akureyri, kynnti drög að dagskrá sumars- ins. Þetta er í sjötta sinn sem Listasumar er haldið og hefur það unnið sér fastan sess í bæjar- lífinu. Þeim sem koma að dagskrá sumarsins fjölgar stöðugt og er Listagilið að verða miðstöð menningar í bænum. Fjölmargir aðilar koma nálægt dagskrá Listasumars s.s. Jassklúbbur Ak- ureyrar, Sumartónleikar á Norð- urlandi, Minjasafnið á Akureyri og fleiri. Meðal þeirra sem koma nýir að starfinu eru Sumarhá- skólinn á Akureyri. Fram kom í máli forsvars- manna Gilfélagsins að nokkur óvissa er með mannfagnaði sem fyrirhugaðir eru í Ketilhúsinu, en framkvæmdir við endurgerð þess hafa staðið í rúmt ár. Að sögn Sigurðar Jónssonar, gjaldkera Gilfélagsins, eru þeir Sigurður Jónsson, gjaldkeri Gilfélagsins, og Finnur Gunnlaugsson, starfsmaður þess, kynntu fyrirhugað Listasumar á Akureyri næsta sumar. mynd: bös fjármunir sem ætlaðir voru til verksins búnir, en um 9 milljónir vantar upp á að húsið sé löglegt fyrir stærri mannfagnaði. Eftir- litsmaður frá bænum hefur farið yfir framkvæmdir í húsinu og eru menn sammála um að vel og sparlega hafi verið unnið að end- urnýjun hússins. Framhald fram- kvæmda er því í höndum bæjar- yfirvalda. - hh Ketilhús í óvissu ALÞINGI Ný lög um bæjar- nöfn Ný lög um bæj- arnöfn voru samþykkt á Al- þingi í gær með 39 atkvæðum gegn 2 en 4 sátu hjá. Samkvæmt lögunum má ekki gefa býlum nöfn eða breyta gömlum nöfnum nema með sam- þykki Ornefnanefndar og hún á einnig að skera úr ágreiningi um ný götunöfn og sambærileg ör- nefni innan sveitarfélaga. Kristinn H. Gunnarsson, Al- þýðubandalagi, greiddi atkvgeði gegn frumvarpinu og sagðist treysta bændum til þess að velja býlum sínum sómasamleg nöfn hér eftir sem hingað til. Sigríður Anna Þórðardóttir, formaður menntamálanefndar, benti hins vegar á að verið væri að breyta eldri lögum og breytingarnar væru allar í frjálsræðisátt. Endurgreiðslan bíður Frumvarp Ingi- bjargar Pálma- dóttur heil- brigðisráðherra um heimild til að endurgreiða sjúklingum kostnað vegna sérfræðilækna sem ekki voru á samningi við Tryggingastofnun bíður nú þriðju og síðustu umræðu á Alþingi. Heilbrigðisnefnd mælti með samþ\’kkt frumvarpsins og annar- ri umræðu um það er lokið. Ekki er hægt að endurgreiða fólki fyrr en frumvarpið er orðið að lögum. RíMsstofnanir lagðar niður Nærri 20 ríkisstofnanir hafa ver- ið lagðar niður á síðustu 10 árum, samkvæmt svari forsætis- ráðherra við fyrirspurn Kristins H. Gunnarssonar. I mörgum til- vikum var um að ræða breytingar á skipulagi þar sem aðrar stofn- anir tóku við verkefnum þeirra sem lagðar voru niður eins og t.d. þegar verkefni Ríkismats sjávar- afurða voru færð undir Fiskistofu og rannsóknarlögregla ríkisins lögð niður en embætti Ríkislög- reglustjóra stofnað í staðinn. Nokkur dæmi eru um að stofnan- ir hafi verið sameinaðar í eina nýja, en einnig um að stofnun hafi verið lögð niður án þess að aðrar ríkisstofnanir tækju við. Það á t.d. við um Skipaútgerð rík- isins og þrjá héraðsskóla. Opinberar list- skreytingar Ný Iög um listskreytingasjóð voru samþykkt á Alþingi í gær, en sam- kvæmt þeim á að verja 1% af heildarbyggingarkostnaði opin- berrar byggingar til listskreyting- ar og umhverfisins. Listskreyt- ingasjóður á að standa straum af kostnaði við listskreytingu opin- berra bygginga sem þegar eru fullgerðar og verður veitt fé til hans á fjárlögum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.