Dagur - 29.04.1998, Side 12
12 - MIDVIKUDAGVR 29. APRÍL 1998
X^«r
Frá yfirkjörstjórn
í Mosfellsbæ
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga,
sem fram skulu fara 23. maí 1998 er til
kl. 12.00 laugardaginn 2. maí 1998.
Yfirkjörstjóm verður til viðtals á skrifstofum
bæjarstjórnar 4. hæð í Kjarna, Þverholti 2, frá
kl. 11.00 til 12.00 þann dag.
Mosfellsbæ 28. apríl 1998.
Yfirkjörstjórn í Mosfellsbæ,
Björn Ásmundsson, Leifur Jóhannesson,
Magnús Lárusson.
A
Kópavogsbær
Salir - breyting á
aðalskipulagi
Tillaga að breyttu aðalskipulagi Kópavogs 1992-2012 auglýsist hér
með skv. 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.b.
Breytingin nær til svæðis sem afmarkast af Hádegishólum og byggð
í Lindum í vestur, lögsögumörkum Kópavogs og Reykjavíkur í norð-
ur, mörkum Vatnsendalands og Fífuhvammslands, við Markastein í
austur og Rjúpnahlíð og Hnoðraholt í suður.
Breytingin felst í eftirfarandi:
1. Arnarnesvegur er færður norðar og tengibraut
felld út allt frá Leirdalsbotni að bæjarmörkum
Reykjavíkur og Kópavogs á móts við Jaðarsel.
2. Verslunar- og þjónustusvæði í Leirdalsbotni
er fellt út.
3. Iðnaðarsvæði í Rjúpnadal er fellt út.
4. Gert er ráð fyrir 9 holu golfvelli í Litla-Leirdal.
5. Afmörkun fyrirhugaðs kirkjugarðs í Leirdal er
breytt og hann stækkaður.
6. Afmörkun bæjarverndar í Háteigshólum er breytt
með tilvísan í ítarlegri afmörkun.
7. Afmörkun íþrótta- og skólasvæðis breytist.
8. Afmörkun íbúðarsvæðis vestast á svæðinu
breytist. Milli þess og íþróttasvæðisins er gert ráð
fyrir hverfisþjónustu og leikskóla.
9. Afmörkun íbúðarsvæðis austast á svæðinu
breytist og það fært norðaustur.
Sjá jafnframt lið þrjú hér að ofan.
10. Göngu- og reiðleiðir breytast.
Athugasemdum og ábendingum skal skila skriflega til Bæjarskipu-
lags eigi síðar en kl. 15.00 föstudaginn 8. maí nk. Þeir, sem ekki
gera athugasemdir innap tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
IÞROTTIR
Keppa uni sæti á
meðal þeirra bestu
Tveir af bestu snókerspilurum
íslands, á undanförnum misser-
um, þeir Kristján Helgason og
Jóhannes B. Jóhannesson taka
þátt í úrtökumóti fyrir evrópsku
atvinnumannamótaröðina í
snóker sem hefst á morgun.
Keppt er um sex laus sæti á
þessari sterkustu mótaröð heims
og fer úrtökumótið fram í
Antwerpen í Belgíu. Keppt er í
þremur átta manna riðlum og
komast tveir efstu menn í hvor-
um riðli áfram. Þeim er síðan
skipt í tvo þriggja manna riðla,
þar sem efstu menn spila til úr-
slita. Mótaröðin samanstendur
af níu stigamótum og auk þeirra
sex, sem vinna sér þátttökurétt á
mótinu í Antwerpen, þá keppa
þar 186 bestu atvinnumennirnir
f snóker.
Að sögn Björgvins Hólms Jó-
hannessonar, formanns Billiard-
og snókersambands Islands, öðl-
ast menn þátttökurétt á úrtöku-
mótinu, með því að ná tilsettum
árangri í undankeppnum. „Við
íslendingar fengum okkar eigið
mót, sem kallað var „Iceland
open“. Það mót var haldið á
knattborðstofunni Klöpp, þar
sem Kristján Helgason sigraði
Jóhannes B. Jóhannesson í úr-
slitum. Með þeim árangri unnu
þeir félagar sér rétt til keppni,
en aðeins tveir aðrir Norður-
landabúar, báðir frá Finnlandi,
náðu sama árangri. Það er því til
mikils að vinna fyrir þá félaga,
Jóhanrtes B. Jóhannesson og Kristján Helgason keppa aö sæti á evrópsku móta-
rööinni, sem fiest allir bestu snókermenn heimsins keppa á. - mynd: ek
að keppa gegn sterkustu
snókerspilurum heims. Strák-
arnir eiga sfna möguleika, en
þeir hafa báðir staðið sig vel á
mótum erlendis," sagði Björg-
vin.
Þess má geta að Kristján
Helgason er íslandsmeistari síð-
ustu þriggja ára og hann varð
einnig heimsmeistari unglinga
1993. Jóhannes er stigameistari
í ár og náði þriðja sæti á heims-
meistaramóti unglinga 1993 og
‘94. Hann tók á síðasta ári þátt í
heimsmeistaramóti atvinnu- og
áhugamanna í Zimbabve og
komst þar í 16 manna úrslit.
Hann tapaði þar íyrir sjálfum
heimsmeistaranum eftir spenn-
andi keppni.
Strax eftir úrtökumótið halda
þeir félagar til Finnlands, þar
sem þeir taka þátt í Evrópu-
meistarmótinu, sem haldið .er í
Helsinki 7.-17. maí. Kristján
hefur afrekað það, að vera í úr-
slitum þess móts s.l. tvö ár.
Hann náði því í fyrra, að fara yfir
eitt hundrað stig í sjö römmum
og var þar með nálægt að jafna
met þeirra Steve Davis og
Stephen Hendry, sem er 8 yfir
100 á einu og sama mótinu.
Náin sam-
viima hjá Þrótti
og Ármanni
Glímufélagið Ármann og Knatt-
spyrnufélagið Þróttur munu
væntanlega ganga frá viðamikl-
um samningi um samvinnu fé-
laganna á sviði íþrótta- og æsku-
lýðsstarfs á næstu dögum, en fé-
lögin reka sem kunnugt er stór-
an hluta af starfsemi sinni á
svipuðum slóðum í austurbæn-
um í Reykjavík. Fullbúinn
samningur Iiggur nú fyrir og
bíður þess að félögin veiti hon-
um samþykki sitt.
Knattspyrnufélagið Þróttur
fluttist í Laugardalinn á síðasta
ári, samkvæmt samningi félags-
ins við Reykjavíkurborg, og
óhætt er að segja að sá samning-
ur hafi farið misvel í Armenn-
inga, sem hafa verið á nokkrum
hrakhólum á undanförnum
árum. I þeim samningi sem nú
bíður undirritunar, er gert ráð
fyrir því að Armenningar fái að
halda áfram starfsemi í þeim
greinum, þar sem þeir eru með
aðstöðu utan þess svæðis, sem
félögin hafa helstu bækistöðvar
sínar. Helsti ávinningur Ár-
menninga, að margra mati, er
aðstaðan sem opnast fyrir frjáls-
íþróttafólk félagsins í Laugar-
dalnum.
Félögin náðu ekki samkomu-
lagi um hvort þeirra starfrækti
handknattleiks-, körfuknatt-
Ieiks- og almenningsdeild, en
ljóst er að ef viðræður félaganna
bera ekki árangur, er þeim báð-
um heimilt að hefja rekstur
slíkra deilda. Verkaskipting milli
félaganna um rekstur íþrótta-
deilda verður að öðru leyti með
eftirfarandi hætti:
Á vegum Armanns:
Frjálsíþróttadeild, fimleika-
deild, sunddeild, júdódeild og
aðrar sjálfsvarnaríþróttir, skíða-
deild, glímudeild og lyftinga-
deild.
Á vegum Þróttar:
Knattspyrnudeild, blakdeild,
tennisdeild, pílukastdeild,
snókerdeild, skautadeild og
skvassdeild.
■« ■ i
ERLENT
Stam fær góða summu
Manchester United gekk í fyrra-
kvöld frá samningi við Jaap Stam
og er kaupverðið talið vera á bil-
inu 10-11,6 milljónir punda.
Enska liðið á enn eftir að ganga
frá samningi við leikmanninn, en
talið er að Stam gangi frá fjög-
urra eða fimm ára samningi og
geti vænst þess að fá eina og
hálfa milljón sterlingspunda í
árslaun, eða sem samsvarar rúm-
um 180 milljónum íslenskra
króna.
Flótti frá PSV
Svo virðist sem hollenska liðið
PSV Eindhoven, sem Eiður
Smári Guðjohnsen hefur verið á
samningi hjá, missi fleiri af mátt-
arstólpum sinum til annarra liða
i vor. Phillip Coca sem var með
útrunninn samning við félagið
hefur samið við spænska liðið
Barcelona til tveggja ára og Marc
Degryse, belgískur landsliðsmað-
ur til margra ára fer til Ghent.
Sjö aðrir leikmenn kunna að vera
á förum, þeirra á meðal varnar-
maðurinn Arthur Numan sem
mun Iíklega ganga til liðs við At-
letico Madrid, sóknarmaðurinn
Luc Nilis mun Iíklega fara til
Glasgow Rangers og miðjumað-
urinn Wim Jonk gæti einnig ver-
ið á förum. Markvörður liðsins
Ronald Wateraus, er með út-
runninn samning, en hefur verið
orðaður við þýska liðið Borussia
Dortmund. Eiður Smári og
Marciano Vink sem báðir hafa
átt í erfiðum meiðslum, verða að
öllum líkindum heldur ekki á
launaskrá hollenska liðsins í
sumar og ljóst er að félagið þarf
að byggja upp nýtt lið fyrir haust-
ið.