Dagur - 01.05.1998, Blaðsíða 2
18-FÖSTUDAGUR l.MAÍ 1998
D^ir
LÍFIÐ í LANDINU
Sögusagnir eru á kreiM um það að
Björk Guðmundsdóttir sé á leið til ís-
lands til að setjast að aftur eftir nokk-
urra ára heimilisfesti í Lundúnum.
Sindii sonur hennar fer að komast á
táningsárin og kann það að valda bú-
setuflutningum þeirra mæðgina. Björk
veröur þá að passa upp á alþjóðlega
formió með öðrum hætti en reynst hcf-
ur svo bærilega til þessa.
Þau mæðgin eru alltaf aðdáunarefni
íjölmiðlamanna sem við kannast og
spinnast skemmtilegar sögur af. Ein er
frá því þegar Björk var að gera einn af sínum fyrstu mikil-
vægu plötusamningum, og sú frcgn flaug heim að hún fengi
milljón pund í fyrirframgreiðslu. Blaðamaður á DV var ekki
seinn á sér að hringja út til að vita hvort þetta væri rétt. Á
hinum endanum var símanum svarað og var þar Sindri son-
ur, þá eittlivað um átta ára. Hann var ekki seinn á sér og
breytti rödd sinni og svaraði spumingum blaðamaims greið-
lega. „Jú jú, ég fæ alveg helling af peningum." Blaðamaður-
inn sem fann að hann hafði hitt á óskastundina spurði ítar-
lega um málið og klykkti út með eimii góðri: Hvað ætlar þú
svo að gera við alla þessa peninga? Svarið lét ckki á sér
standa hjá „Björk“: „Ég ætla að gefa það allt bágstöddum!"
Móðirin skellihló að öllu saman en DV var íyrst með frétt-
ina. íheild.
Fleiri fregnir úr íslendinganýlendumii
í London herma að Jakob Magnússon
sé á kafi í rekstri hugbúnaðarfyrirtæk-
is í eigu norsks auðkýfings, en Ragn-
hildur kona hans einbeiti sér að tón
listinni. Það geri líka félagi þeirra í
listinni, Friðrik Karlsson gítarleik-
ari, sem hafi nóg að gera með helstu
toppmönnum Lundúna.
Jakob Frímann Magnússon.
Stórtenórinn Kristján Jóhaimsson
hyggst halda stórtónleika á Akureyri í
október næstkomandi. Tónleikamir
verða til minningar um föður Kristjáns
Jóhann Konráðsson í tilefni af því að
hann hefði orðið áttræður í nóvember
síðastliðnum. Undirhúningur er þegar
hafinn og mun Sinfóníuhljómsveit
Norðurlands leika með stórsöngvaran-
um. Búist er við mikilli aðsókn, enda
var uppselt á síðustu tónleika Kristjáns
á Akureyri, áður en þeir vom auglýstir.
Enn ein sjónvarpsrás-
in erað hefjagöngu
sína þessa dagana, en
það erBamarásin,
sjónvarpsstöðfyrir
böm á aldrinum
2-12 ára.
Dagskrárstjóri nýju Barnarásar-
innar er Guðrún Bjarnadóttir en
rásin er í eigu nokkurra einkaað-
ila.
„Upphafsmaður að þessari rás
er Böðvar Guðmundsson sem
rekið hefur fyrirtækið Hljóð og
mynd,“ segir Guðrún. „Núna
eru yfir 20 leikarar á fullu við að
talsetja myndir, en við munum
eingöngu sýna talsett efni fyrir
yngstu kynslóðina og texta leikið
efni fyrir unglingana."
Barnarásin mun sýna mikið
efni frá Nickelodeon sem er ein
þekktasta barnasjónvarpsstöð í
heimi og er í eigu Viacom.
Nickelodeon leggur mikla
áherslu á að vera með vandað
barna- og unglingaefni sem er
ofbeldislaust og sýnir veröldina
með augum barna. Einnig er
þess gætt að jafnrétti sé í heiðri
haft og efnið höfði jafnt til
stúlkna og pilta og að þættirnir
fjalli um reynslu barna og séu
skemmtilegir og fjölbreyttir.
Gert er ráð fyrir því að efnið frá
Nickelodeon muni nema allt að
50% af öllu efni sem stöðin
sendir út.
35 klukkustimdir á viku
„Við munum senda út efni í 35
klst. á viku,“ segir Guðrún.
„Með haustinu ætlum við svo að
fara í að framleiða efni sjálf en
verðum einnig með efni frá
MTV tónlistarstöðinni, öðrum
barnastöðvum víða um heim og
svo erum við í samstarfi við
Námsgagnastofnun sem meðal
annars mun leggja til úrvals
fræðsluefni á íslensku. Pakkinn
kostar 1.150 kr. á mánuði, sem
er ódýrara en eitt myndband ef
það er keypt,“ bætir hún við.
„Við dreifum efninu í gegnum
Breiðvarp Pósts og síma og það
er byrjað að selja aðgang að
rásinni. Fyrsta mánuðinn verður
rásin þó höfð opin til kynning-
ar.“
Efnið frá Nicelodeon er ekki
bara talsett, þess er gætt vand-
lega að raddirnar passi. Þvf er
allt efni sent í talprufur og hér á
landi eru nú staddir tveir aðilar
frá fyrirtækinu, Jules Bocknett,
dagskrárstjóri, sem fylgist með
talsetningu og fer yfir efnið og
Samantha Marther sem er hjá
Rauða dreglinum og fylgist með
vinnslu á skiltum á íslensku.
Leikstóri að íslenskri talsetningu
er Saga Jónsdóttir leikkona og
Maríanna Friðjónsdóttir er sér-
stakur ráðgjafi. „Við erum mjög
bjartsýn og trúum því að foreldr-
ar vilji að börn þeirra sjái ofbeld-
islaust og vandað barnaefni,“
segir Guðrún. „Við lítum fyrst
og fremst á þetta sem viðbót við
það efni sem fyrir er, en ekki
beina samkeppni." -vs
Rússneski handboltamaðurinn Oleg Titov gerði stór
skemmtilega og óvenjulega játningu á íþróttasíðu Morgun-
blaðsins nýlega. Þcgar honum var hælt íýrir góða frammi-
stöðu hjá Fram í vetur sagði kappinn hreinskilnislega að sín
íýrrverandi hafi farið af landi brott í iýrra ásamt hami þeirra
„þannig að ég var einn eftir það. En ég varð ástfanginn af ís-
lenskri konu, sem vildi mig rcyndar ekki - en hún veitti mér
engu að síður mikinn kraft. Ég veit að ég lék svona vel í vet-
ur hennar vegna,“ segir Titov. Helgarpotturinn spyr sig að
því hver kraftaverkakonan getur verið og óskar um leið Titov
velgengni í ástamálunum.
Maöur vlkuimar
ereiim
Ólafur Örn Haraldsson stendur einn þingmaður þeirra þéttbýlisbúa
sem vilja hafa úhrif á framttðarskipan hálendisins - við hlið jafnaðar-
manna - gegn sameinuðum stórflokki Sjálfstæðis- framsóknar ogAl-
þýðubandalags. Ólafur hefur talað gegn áformum ríkisstjórnarinnar í
hálendismálinu og húðskammað aðra þingmenn þéttbýlis fyrir að
standa ekki vörð um hagsmuni umbjóðenda sinna. Auðvitað hafa
þingmenn stjómar með mikinn meirihluta leyfi til að hlaupast undan
merkjum stöku sinnum - og þykir engum mikið - en Ólafur hefur sýnt
að hann hefur í raun og sannleik sannfæringu í málinu. Hann og
Rannveig Guðmundsdóttir hafa haldið á loft merkjum heildarinnar,
sem er meira en hægt er að segja um þá þingmenn sem Ijúga bæði að
sjálfum sér og öðrum að hagsmunum allra landsmanna hafi verið
borgið. Þeir sem vilja kjósa Ólafí næstu kosningum geta það hins veg-
ar ekki nema kjósa alla hina sem hann er á móti.
Ólafur Örn Haraldsson er maður vikunn-
ar, eini þingmaður þéttbýiis i sameinuð-
um andstöðuflokki Sjálfstæðisflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðubandalags.