Dagur - 01.05.1998, Qupperneq 14
30 - FÖSTVDAGUR 1. MAÍ 1998
HEILSULÍFIÐ í LANDINU
-Tk&pr
ISSHrjf
mma
Guðrún Rut Guðmundsdóttir tannlæknir segir að ekkert komi í stað tannþráðar
við nauðsynlega tannhirðu. mynd: bös
í veg fyrir skemmdir á milli tannanna nema tannþráðurinn.
„Þegar tannþráður er notaður á að byrja á bitfleti og fara þétt
upp með tönnunum til ná á milli þeirra. Það á ekki að nota þráð-
inn fram og til baka heldur upp og niður. Eftir það er farið niður
undir tannholdið, það er laust um 3 mm, til að hreinsa sýkil sem
myndar tannstein. Þarna þarf að hreinsa vel og vandlega og ég
ítreka að börnin þurfa líka að nota tannþráð eins og þeir full-
orðnu.“
Ekkert í
stað tann-
þráðar
Það á að bursta tennumar tvisvará dag. Nota
tannþráð einu sinni á dag. Bursta með mjúk-
um bursta og nota tannkrem
með flúor.
Þetta segir tannlæknirinn Guðrún Rut Guðmundsdóttir þegar
hún er spurð um nauðsynlega tannhirðu. „Það á að bursta tenn-
urnar eftir morgunmatinn og eftir síðustu máltíðina á kvöldin,
þannig að tennurnar séu hreinar í svefninum. Það er alveg nóg.
Gæðin á burstuninni eru nefnilega mikilvægari en tíðnin."
Guðrún segir að fólk bursti tennurnar almennt ekki nógu vel
og hún leggur áherslu á að börnum upp að átta til tíu ára aldri sé
hjálpað við burstunina. Hún mælir með að fólk noti mjúkan
tannbursta með lítið burstahöfuð. Fólk eigi það nefnilega til að
bursta fast og það geti bæði sært tannhold-
ið og slitið tönnunum. Þegar burstað er á að
nudda tennurnar létt en ekki skrúbba þær.
Endurnýja skal tannburstann þegar hárin
eru ekki lengur bein, á u.þ.b. 3 mánaða
fresti.
Allir eiga að nota tannþráð
Notkun tannþráðar er mikilvæg í daglegri hirðu tannanna. Nóg
er að nota tannþráðinn einu sinni á dag, á kvöldin áður en farið
er að sofa. „Flestir ná að bursta þokkalega vel með tannburstan-
um en nenna ekki að nota þráðinn. Þó burstað sé 100 prósent vel
þá er aldrei hægt að bursta nema 60-70 prósent af flötum tann-
anna. Til að hreinsa hin 30-40 prósentin þarf að nota tannþráð.
Það er ekki hægt öðruvísi."
Ef tannþráðurinn er ekki notaður reglulega koma skemmdir
milli tannanna, undir snertipunkti þeirra. Einnig safnast fyrir
óhreinindi sem geta valdið bólgum í tannholdi vegna ertingar. Ef
fólk á við tannholdsvandamál að stríða mælir Guðrún með því að
notaðir séu litlir flöskuburstar en það er ekkert sem nær að koma
Passa skal tannkremin
Þegar Guðrún er spurð um tannkrem segir hún að velja eigi
tannkrem sem innihaldi rétt magn af flúor, flúor sé jú vítamín
tannanna. Börn þurfi yfirleitt minna af flúor og gott sé að kaupa
barnatannkrem fyrir þau. Einnig sé best að kaupa tannkrem frá
þekktum framleiðanda. „Það eru tannkrem á markaðnum í dag
sem auglýst eru til að ná af blettum eða reykingalit af tönnum.
Það má passa sig á þessum tannkremum því þau eru með grófari
slípikornum en önnur tannkrem til að ná óhreinindunum af.
Með notkun þessara tannkrema slitnar yfirborð tannanna og
verður rennislétt. En þannig á það ekki að vera. Tennurnar eiga
að vera hrjúfar til að fá á sig eðlilegt ljósbrot. Þannig eru þær fal-
legastar." hbg
Þetta er
hroki!
Hroki er magnað fyrirbæri sem flestir
kynnast einhvern tímann á Iífsleiðinni, í
flestum tilfellum hjá öðrum og sjaldnast í
eigin barmi þó að auðvitað geti hann
leynst þar eins og annars staðar. Þjóðin
hefur reyndar fengið að kynnast hroka í
beinni útsendingu í sjónvarpinu og orðið
hneyksluð. Þrátt fyrir þessa sýnikennslu
gera fæstir sér grein fýrir því hvaða tilfinn-
ingar, hvers konar framkomu eða sam-
skipti orðið hroki nær yfir enda tilfinning-
arnar oft eitthvað sem við bara vitum, höf-
um „á tilfinningunni", án þess að við get-
um bent nákvæmlega á þær og sagt: þetta
er hroki.
Iþróttasálfræðingurinn Jóhann Ingi
Gunnarsson var nýlega með námskeið hjá
Endurmenntunarstofnun Háskóla Islands
og í námskeiðsgögnunum hans Ieyndust
athyglisverðar upplýsingar um hroka. Þar
má segja að sé sett jafnaðarmerki hroka og
tillitsleysis enda ættu þessar tilfinningar
að minnsta kosti að vera nátengdar. Sam-
kvæmt honum er hroki þegar einstakling-
ur á erfitt með að virða viðmælendur sína,
setja sig í spor annarra og gefa af sér. Við-
komandi gerir kröfur til annarra og er til-
búinn til að misnota aðra til að koma sér
og sínum viðhorfum á framfæri og lengra
en það.
Sá hrokafulli skipar fyrir og niðurlægir.
Hann er í stuttu máli árásargjarn og hann
hótar og beitir valdi ef honum svo býður
við að horfa. Hann velur fyrir aðra, spyr
ekki en grípur fram í og veður áfram.
Hann er gífuryrtur og hávær. Hann upp-
nefnir aðra í málflutningi sínum og er
sjálfhælinn. Hann bendir á viðmælanda
sinn, hefur gjarnan stingandi augnaráð og
horfir niður til fólksins í kring. Hann er
spenntur á tauginni og hefur sem mark-
mið að niðurlægja aðra og drottna, þó að
auðvitað myndi hann neita því væri það
borið undir hann. Fyrir þann hrokafulla
skiptir réttur annarra ekki máli.
Of brátt sáðlát
Bráðasáðlát er vandi sem
hrjáir einkum yngri
menn. Betra orð yfir þetta
vandamál er líklega
ótímabært sáðlát. Með
ótímabæru sáðláti er átt
við það þegar sáðlosunin
verður fyrr en ætlað er í
kynmökunum, jafnvel um
leið og kóngurinn snertir
sköp konunnar, fer inn í
leggöngin eða eins og oft vill verða, eftir
gælur í forleiknum, jafnvel áður en limur-
inn kemur nálægt kynfærum konunnar.
Strax og sáðlátið hefur átt sér stað verður
Iimurinn slappur og er það einstaklings-
bundið hversu Iangan tíma það tekur
manninn að ná reisn aftur, en gerist þó yf-
irleitt fyrr hjá ungum mönnum. Þessi kvilli
hijáir oftar taugaspennta og tilfinningaríka
menn. Sáðlát getur líka borið of brátt að
eftir langvarandi skírlífi, í návist nýs rekkju-
nautar eða við óvenju kröftuga örvun.
Þetta er hinsvegar vandi sem hægt er að
ráða bót á. Hjón/pör þurfa að hafa fulla
samvinnu við lausn vandans. Karlmaður-
inn þarf að geta rætt opið við konuna um
hvað hann teiur gagnast sér í þessari bar-
áttu svo sem hvaða stellingar við samfarir
gefa honum vald til að stjórna sáðlátinu.
Ýmsar æfúigar
Sett hafa verið saman ýmis æfingakerfi
fyrir menn sem eiga við þennan vanda að
stríða. Eins og alltaf í kynlífsmeðferð er
frumskilyrði að rekkjunauturinn sé sam-
þykkur öllum æfingunum sem gerðar eru
og geri sér fyllilega grein fyrir hvað hver
æfing felur í sér. Oft er talað um þríþætta
Með ótímabæru sáðiáti er átt við það þegar sáð-
losunin verður fyrr en ætlað er í kynmökunum.
aðferð eða æfingar til að ná stjórn á sáð-
látinu. I fyrsta lagi að hafa samfarir án
örvunar eða sáðláts. I öðru Iagi samfarir
með örvun, en án sáðláts og í þriðja Iagi
lengdar samfarir sem karlinn hefur stjórn
á án örvunar og sáðláts.
Kynfræðingarnir Master og Johnson
þróuðu aðferð sem kölluð hefur verið
kreistimeðferðin. Þessi aðferð hefur verið
notuð til að endurþjálfa karlmenn í að ná
stjórn á sáðláti. Þetta er æfing sem karlinn
getur gert einn eða með rekkjunaut. Lim-
urinn er ertur þar til hann rís. Þegar karl-
maðurinn finnur fyrir sáðfallsþörf, kreistir
hann Iimbroddinn í nokkrar sekúndur
með því að leggja fingur á forhúðarhaftið
neðan á limnum og brún forhúðarinnar og
kóngsins ofan á limnum. Þegar sáðfalls-
hvötin er Iiðin hjá, byrjar hann aftur á ert-
ingu. Þetta er síðan hægt að endurtaka í
10-15 mínútur áður en endanleg fullnæg-
ing fæst. Við þetta nær maðurinn stjórn á
sáðlátinu. Ráðlegt er að tæma þvagblöðr-
una áður en æfingarnar hefjast. Eigi
menn við vanda af þessu tagi að stríða,
geta þeir leitað lausna í samráði við sér-
fræðing í þvagfæraskurðlækningum. Eg vil
einnig benda fólki á bókina „Betra kynlíf"
eftir Barböru Keesling sem gefin var út af
Erni og Örlygi hf. 1991, en í henni er að
finna ýmsar gagnlegar æfingar og fróðleik
er tengjast kynlífi og vandamálum því
tengdu.
Halldóra Bjamadóttir er hjúkrunar-
fræðingur og skrifar um kynlíf fyrir Dag.
Því miður er hroki neikvæður eiginleiki,
ekkert síður fyrir þann hrokafulla en þá
sem hrokinn bitnar á. Sá hrokafulli nær
sínu ef til vill fram um stund en hann
finnur ekki til verðleika og mikil hætta er
á að hann einangrist. Smám saman getur
hann fundið sig læstan í búri einmana-
leika og tortryggni.
Þessir eiginleikar og þessi framkoma,
sem hér er lýst, geta átt að hluta til, en
kannski sjaldnast að öllu leyti, við hvern
þann hrokafulla einstakling sem menn
hitta á lífsleiðinni. En sjálfsagt má segja að
því meira af þessum eiginleikum þvi ör-
uggara er að um hrokafullan einstakling er
að ræða. Spurningin er hvernig þeir, sem
verða fyrir barðinu á hrok-
anum, eiga að bregð-
ast við. Eiga þeir að
halda ró sinni og
reyna að ná stjórn
á kringumstæð-
um eða eiga þeir
að æsa sig upp úr
öllu valdi? Auð-
vitað er alltaf
best að halda ró
sinni, undir öllum
kringumstæðum,
en síðan gildir
sjálfsagt gullna
reglan: Það verð-
ur hver að finna
sinn veg.
Gleðilegt sum-
ar.
Guðrún Helga
Sigurðardóttir.
ghs@ff.is