Dagur - 01.05.1998, Page 19
FÖ'STUDAÓUR Í.\1AI 'l"$ 9 635
LÍFIÐ í LANDINU
L j
Sigurður Bogi
Sæuarsson
skrifar
Landogþjóð
Undirskriftin fræga. Þegar íslensk erfðagreining
undirritaði samninga við erlenda fjárfesta, fyrr á
þessu ári, var viðvera Daviðs Oddssonar forsætis-
ráðherra þar mörgum undrunarefni. Spurt er um
það sem vikur að ætt- og erfðafræði; hverjar voru
meiningar Stefáns Jónssonar, frétta- og alþingis-
manns, föður Kára Stefánssonar, um að ættir
Davíðs mætti rekja til erlendra manna?
Listaverkið. Þetta listaverk stendur skammt
austan við Eyrarbakka, en það var reist til heiðurs
magarínframleiðanda og bókaútgefanda sem er
minnst m.a. minnst fyrir að hafa gefið listaverka-
safn sitt til „heildarsamtaka íslenskra erfiðis-
manna “ einsog segir á stöpli verksins. Hver var
maðurinn og hver eru samtökin sem um ræðir, en
það voru þau sem reistu listaverkið umræddum
manni til heiðurs?
Forsöngvarinn. Hann hefur í áratugi verið for-
ystumaður í tónlistarlífi Skagfirðinga með for-
mennsku sinni I karlakór sem er i raun einkennis-
tákn héraðins. Hver er kórinn sem sést i baksýn
þess manns sem spurt er hvað heiti og hvar búi?
Jakinn. Guðmundur J. Guðmundsson lagði
gjörva hönd á margt um dagana, þó nafn hans rísi
hæst sakir áratugalangra afskipta hans af verka-
lýðsmálum. En við hvaða listaverkagerð var Guð-
mundur fyrirmynd Einars Jónssonar myndhöggv-
ara og hvar er það listaverk niður komið í dag?
Vinstri stjórnin. Árið 1978 var mynduð ríkisstjórn
Alþýðuflokks, Alþýðubandalags og Framsóknar-
flokks. Hver þessara flokka var það sem vann
stórsigur í kosningunum þetta ár, sem síðan bar -
að margra mati - skarðan hlut frá borði, þegar i
stjórnarsamstarf var komið?
l.Hver var kappinn sá sem fæddur var á
Bjargi í Miðfirði, sem seinna varð svo út-
Iagi á eyðieyju?
2.1 líðandi viku var gert heyrinkunnugt hvert
yrði gjaldið fyrir að aka um Hvalfjarðar-
göng. Að minnsta kosti einu sinni áður
hefur innheimtu vegatolla verið beitt hér á
landi; hvar var það?
3. Hann fæddist í Reykjavík fyrir tæpum
fimmtíu árum og er Norðmaður í föðurætt.
Hann er KR-ingur í húð og hár, konan
hans er ofan af Akranesi, og um dagana
hefur þessi maður víða komið við, var
meðal annars á Mogganum um skeið. En
nú er hann kominn í hóp landsfeðranna -
og hver er hann?
4. Hvaða firðir fyrir austan eru á milli Reyð-
arfjarðar og Seyðisfjarðar?
5. Hvaða á landsins er stundum nefnd Fúli-
Iækur?
ó.Stundum er sagt að sr. Einar sálmaskáld í
Eydölum sé ættsælasti maður á Islandi fyrr
og sfðar. En annar íslenskur kennimaður
hefur einnig verið nefndur í þessu sam-
hengi; prestur sem uppi var á Islandi um
siðaskipti og hlaut umtalaðan dauðdaga,
ásamt sonum sínum tveimur. Hver er
hann?
7. Á fimmta áratugnum reisti Tryggvi Ofeigs-
son, útgerðarmaður, gríðarstórt frystihús á
besta stað í Reykjavík og var þar gert að
fiski um langt skeið. En síðar var þessu
húsi fundið annað hlutverk. Hvert er það?
8. Hvar á landinu er Lambatindur?
9. Hvaðan af landinu er Grétar Þorsteinsson,
forseti ASÍ?
10. Hvar á landinu er bærinn Blikalón?
Svör:
■JJtABpBJS
-jBpmStg BpujauoAS rnpuajs 8o njjajs
-B>p]BJ[3^\I E JSJÁU J3 UO[B\|!|g UUUæg '0[
•Butjput b Jnpnjj
n8uo[ jijXj jo uo ‘uinpoAJESuBy b uui
-jBddn 8o jnppæj jo uossuiojsjocJ JBjpjg-g
•ipjtjnsáajpisyy jn joa jsas 8o
uinpuojjg B BSojjBpjou jo jnpuijBquiBy8
•p!puBquiB§ iiiáj
jnjojsjijqs i isnqijsájj jn jjÁojq SnjBJB tun
jijáj jba nuisnq uo BquBqspuBjsj jBApojs
-pnjoq 8Ep i nio ‘qjABfqÁog i ipiÍBsnfqjrq
B jo uios ‘jbuossSiojo baSSÁjx isnqijsÁij [ v
•[BpBjjÉfpj J dnqsiqBjpjq ‘uos
-Bjy uof jo piA jjb ja jpq uias uuidmjsig'9
•Jn88aj luuoq
bjj uias njÁjBjqof jBjjjiunBp jdjbs ‘jn
-qæjijnj pujou puaA Jnjoq uinpunjs uios
ipuBSBUipqjps B BSjnqof piA JJB 13 JpH'S
•jnpjpfjlpf[\[ 8o ipjJJBQJBfjpjOfv] -p
•spjBBH H JPO £
•uuiSnjEJB Epunofs UEfpiui
uin uui8oajnqiABjjoyj b p8oj jba eóáojs
-uisjs jb8oc| jpuiisquui niOA jBjjojBSayyj
•uosjBpunuisy jijjsjo • [
'6Á6I uinpnuBuijsnBq b jBuóssauuBq
-of sjejo ujpfjsspju njnjq Jiacj pB ssacj jij
pjBA UI3S JJo8 UBJ13J BJJ pf>[3 Jl3cj æq UII3cj
B uinuuoui Ijjpcj nUIJJEJSUIBSJBUjpfjS
i ua ‘8Á6I uinunSuiusoq t jn8is bjssui
uuis uuba ui3s uuunqqojjnpÁcjjY jba pBq
•nfjjjnjsuiuSjjBH J J3 uids psijyj-nsaf jb
nSæjj BunjjÁjs i\uo8 uueq jE8Dcj BJEASSoq
-pUÁUI JBUOSSUOf SJBUig pUÁUIJIJÁj JBA
‘uupjBf ‘uosspunuipno 'f jnpunuipno
•ipJlJBSBJJS I JIDASJnqjApW i um
-pojsnjiDjg B JÁq uuBq ud ‘siuiidh sutsjpq
-BJJByj JIlpBUUOJ ‘UOSSJBJJSQ 'O JnpjBA
-JOcj jd jjnds jd uin uids ÚuubaSuosjoj *
•BJBUI8 l [UÁSSUof
uBu8By sjnpioq jij spuBjsj puBquiBsnpÁcj
-jy ijsidj \)iic| 8o UEjjyj Jijioq piqjOABjsiq #
'suBjjoqpBJ uimjqoj uimjqop
8o uinmjqojq i -B’ui Bunjddn bssdc] ojjdui
JSIEfS -sdpjs ipUBJJS i ipuBj B Jpq BSOJÁJUUI
pjBA UI3S SUUBUIofs SpUDJJD [IJ JBUOSSppQ
SpiAEQ Jljjæ BÖJDJ i8dui -B-UI pB uossupf
uejdjs jnpjoq ijjBfj BjÁDjq \>y luupjoq j *
Fluguvciðar að sumrí (65)
I vor rætist draumurinn, þú verður fluguveiðimaður!
Fyrir byrjendur (I)
Fyrsti maí. Elliðavatn verður opnað í dag,
háskóli fluguveiðimanna, þeir sem veiða
þar, geta veitt alls staðar. Við þökkum fé-
Iaga Sigurdóri fyrir að halda uppi skrifum
í minn stað meðan ég kannaði kóralrifin
og fiskalífið við þau. Nú standa kappar á
bökkum vatnsins og reyna fyrir sér. Þeir
færustu telja að urriðinn gefi sig einkum
fyrst, og hann sé stærstur í
Helluvatni. Geir Thorsteinsson
sem oft hefur miðlað fróðleik um
vatnið er Iöngu búinn að áminna
okkur um að vaða ekki of langt
út í fyrstu, urriðinn snuddar
uppi við land. Og hann tekur
straumflugur þessa dagana,
bregði hann ekki venju, Micky
Finn númer 2 er talin sterk.
Fluguveiðihandbókin sem kom
út fyrir jólin er með helling af
góðum hugmyndum fyrir Elliðavatnsunn-
endur. Góða skemmtun!
Tími til að byrja
Þessa maípistla ætla ég að helga byrjend-
um. Þeir sem lengi hafa ætlað sér að
taka loksins skrefið örlagaríka munu gera
það nú, eða ekki fyrr en að ári. Byrjend-
ur: þetta eru ykkar pistlar!
1) Konur
Mig grunar að margir tvístígandi verðandi
fluguveiðimenn séu konur. Hér er mitt
ráð: byrjið. Fluguveiði er sérlega gott
kvennasport - ef við látum eftir okkur að
nota svo óhátíðlegt orð. Innsæi kvenna er
mikilvægara en kappsemi karla þegar
fiskar eru annars vegar. Konur: ykkar tími
er kominn.
2) Flókið mál?
Fluguveiði er sáraeinföld ef maður vill,
og hún er uppfull af leyndardómum sem
manni endist ekki lífið til að kanna. Mitt
ráð er það sem Stefán Jónsson heitinn
gaf mér: gefðu þig leyndardóminum á
vald, vertu í þessu af lífi og sál, og þú
munt fá mun meiri ánægju út úr því en
ella. En flókið mál er þetta ekki.
3) Græjudella?
Nei. En eins og næstum ailt annað sem
varðar fluguveiði er svarið líka já. Græju-
della getur verið hluti af flugveiði, en þarf
alls ekki að vera það, og ég mæli gegn
því. Ein góð stöng, eitt einfalt hjól. Og
svo mikilvægir smáhlutir: veiðimanna-
gleraugu (til að vernda augun), smáklipp-
ur á girnistauminn, nokkrar flugur. En
listinn yfir „hjálpartæki" veiðimannsins er
óendanlegur og um hvert þessara tækja
stendur lifandi og heit umræða. Geymdu
hana.
4) Leiðsögn?
Eg byrjaði sjálfur að kasta flugu sam-
kvæmt bæklingi sem ég keypti í búð.
Eyddi svo mörgum dýrmætum veiði-
stundum eigrandi um eyðimörk fáfræð-
innar. Þetta er ekki „gerðu það sjálf/ur“
athöfn. Leiðsagnarþörf er kannski helsti
þröskuldurinn fyrir þá sem vilja byija.
Fyrsta skrefið er að fá leiðsögn. Enn eru
kastnámskeið í gangi. Og svo er hitt:
fluguveiðimenn eru ótrúlega gjafmildir á
ráð og hafa óendanlega gaman af þvf að
miðla til annarra. Þú gerir vini eða kunn-
ingja í hópi fluguveiðimanna stóran
greiða með því að biðja um hjálp.
5) Kastið
Það flóknasta. Því miður. Og lyk-
illinn að velgengni. Undirstöðuat-
riðin verða að vera á hreinu.
Astæðan er ekki sú að venjulegt
fólk geti ekki komið sér upp að-
ferð til að slæma út flugu. Meg-
inástæðan er sú að án leiðsagnar
lendir maður í því að festast í
óvana. Þá þróast maður afskap-
lega hægt sjálfur. Framtíð þín sem
fluguveiðimanns er fólgin í því að verða
góður kastari. Enginn góður veiðimaður
er lélegur kastari, enginn lélegur kastari
er góður veiðimaður.
6) Stöngin
Það mikilvægasta og það eina sem er
verulega mikilvægt í græjum. Ekki ganga
blindur inn í einhverja veiðibúð að biðja
um „stöng“. Því miður eru ekki allir af-
greiðslumenn vandanum vaxnir. Sumir
eru meiri sölumenn en veiðimenn. Aðrir
flækja málið um of með erfiðum spurn-
ingum sem þú vissir ekki einu sinni að
hægt væri að spyrja, hvað þá að svara. Eg
hef mínar skoðanir á stöngum, en fer
ekki út í vörumerki. Þetta má segja:
Kauptu þá eins dýra stöng og þú hefur
efni á - upp að vissu marki. Hægt er að fá
mjög góða stöng fyrir innan \að 20 þús-
und krónur - lífsförunaut. Eyddu meiru í
stöng, minna í hjól. Hentug stöng fyrir ís-
lenskar aðstæður, og byrjanda sem vill
geta veitt lax og silung jöfnum höndum
er níu - níu og hálfs - feta stöng, fyrir
línu númer átta. Flóknara er málið ekld.
7) Hjól og lína
Einfalt hjól gerir allt sem gera þarf. Sá af-
greiðslumaður í veiðibúð er elcki mikils
virði sem ekki getur leiðbeint og sett Ifn-
una ujjp á hjólið fyrir þig. Flestir byija á
flotlínu, og uppgötva fljótt að þeir þurfa
líka sökldínu, hægtsökkvandi eða hrað-
sökkvandi. Til að lina kvölina sem fylgir
völinni legg ég til að þú fáir þér fyrst flot-
Iínu. Á enda hennar lætur þú búðarmann
setja lykkju til að auðvelda þér að skipta
um tauma. Ofnir taumar eru dýrir, en
einfalda þér lífið. Þú tengir ofinn taum
við flugulínuna með „lykkju í Iykkju“, og
framan á ofna tauminn (aftur „Iykkja í
lykkju“) setur þú girnisenda (30-50 cm)
þar sem flugan er hnýtt. Þegar þú veiðir
uppi í yfirborði setur þú flottaum á flot-
línu. Þegar þú þarft að ná flugunni nokk-
ur fet niður setur þú ofinn sökktaum á
flotlínuna. Þannig er hægt að komast af
með eina línu til að byrja með, en til eru
staðir sem krefjast sökklínu... og þá ertu
að byrja að skilja að fluguveiðin er full af
launhelgum.