Dagur - 05.05.1998, Side 5

Dagur - 05.05.1998, Side 5
ÞRIÐJVItAGVR 5. MAÍ 199V - 5 Xkgwir FRÉTTIR 1 á Alvarlegar ásakanir Sverrir Hermannsson hefur engum hlíft í ásökunum sínum, eftir að hann hætti sem bankastjóri Landsbankans. Frá því Sverrir Her- maimsson, fymun Landsbankastjóri, tjáði sig fyrst um Landsbankamálið hef- ur bann verið óspar á alvarlegar ásákanir í garð nafngreindra og ónafngreindra ein- staklinga. Hér eru þær alvarlegustu. 1. Landsbankamálið er pólitísk aðför að Sverri. „Mér var sagt að Kjartan Gunnarsson sé, ásamt Finni Ingólfssyni, höfuðpaurinn í aðförinni að mér í Landsbanka- málinu." 2. Ríkisendurskoðandi laut „í einu og öllu“ leiðsögn Finns og Helga S. Guðmundssonar og margbraut á Sverri „lögverndað- an rétt hans til varna í máli, sem hann átti æru sína og starf und- ir“. 3. Jóhanna Sigurðardóttir „var send inn á Alþingi til þess að hafa af mér mannorðið... af svik- urum í bankakerfinu". 4. Bankaráðsmenn hófu við- skiptin við Bálk ehf., laxveiðifé- lag Sverris. Halldór Guðbjarnar- son veiddi í Hrútu 1991 og 1992 „með svo nánum félögum sínum að erfitt myndi að kalla það við- skiptaferðir". Gömul gjaldþrotamál dregin upp 5. Helgi S. Guðmundsson reyndi „með einni handsveiflu" að flytja „allar tryggingar Landsbankans yfir í“ VÍS. 6. Gjaldþrot Lindar, upp á nær 800 milljónir króna, var „skelfi- legt mál og greinilegt spillingar- mál, eins og þau mál gerast verst“. Finnur var samkvæmt Sverri sérstakur ráðgjafi Þórðar Ingva Guð- munds- sonar um útboðslaus kaup á þunga- vinnuvél- um af Toyota fyr- ir 130 milljónir króna. Til að „rétta við eigin fjárhag, flokks og félaga". 7. Opinber rannsókn ætti að - fara fram á „stórfúlgu tapi, sem Landsbankinn mátti sitja uppi með... vegna viðskipta við Al- þýðubandalagið". Sverrir gefur sterklega í skyn að núverandi for- seti Islands, hafi þar komið ná- Iægt óeðlilegum málum. 8. Gjaldþrota framsóknarmanni var „seld Ióð í eigu LÍ fyrir rúmar 30 milljónir króna. Þessum samningi rifti Sverrir Hermanns- son og seldi lóðina á útboði fyrir rúmar 70 milljónir króna“. Finn- ur lofaði manninum þessu „fyrir kosningar ef hann fengi aðstöðu til“. 9. Pétur Blöndal þingmaður lét af andstöðu sinni við fjár- magnstekjuskattinn þegar „hon- um var boðið að fella alveg niður skatta af arði hans af öllum hlutabréfunum sem hann sefur á“. Þingmenn í vomlurn málum 10. Sturla Böðvarsson þingmað- ur, sem stjórnarmaður Finns í Járnblendinu, fór í laxveiði á kostnað fyrirtækisins og bauð Sverri með. 11. Hjálmar Árnason þingmaður krafðist þess að fá skip og veiði- heimildir frá Landsbankanum á 240 milljóna króna afslætti. 12. Þróunarfélag Islands rak Gunnlaug Sigmundsson, núver- andi þingmann, sem fram- kvæmdastjóra eftir að í ljós kom að hann hafði selt sjálfum sér hlutabréf í fyrirtækinu. Gunn- laugur er orðinn „eignamaður upp á 100 milljónir króna á örfá- um árum upp á flokksins pung“. 13. Einar Kr. Guðfinnsson þing- maður „nuddaði" í Kjartani Gunnarssyni um að „Landsbank- inn gæfi sér eftir háa fjárhæð sem hvíldi á höllinni hans vestra". 14. Eimskipamennirnir Hörður og Indriði þrýstu með pólitísku offorsi á um að Landsbankinn setti samkeppnisaðilann Sam- skip í gjaldþrot. Þær stöllur Ásta R. Jóhannesdóttir og Svanfríður Jónasdóttir gætu átt eftir að sitja lengi enn i þingsal ef ekki næst samkomulag um lokin á þingha/dinu í vor. Þrngið ræður engu „Á þessari stundu sé ég ekki fyr- ir mér hvenær þingfrestun getur farið fram. Við höldum áfram með þessi mál sem ríkisstjórnin hefur sett í forgangsröð, það eru hálendisfrumvörpin þrjú og frumvarpið um húsnæðismálin. segir Olafur G. Einarsson, for- seti Alþingis. „Eg þori engu að spá. Það hef- ur ekkert samkomulag verið gert milli stjórnar og stjórnarand- stöðu um þinglok. Ég fæ ekki betur séð en ríkisstjómin sé búin að taka völdin í Alþingis- húsinu. Við í stjórnarandstöð- unni og stjórn þingsins ráðum engu lengur. Ríkisstjórn hefur ákveðið að fá þessi Ijögur frum- vörp afgreidd fyrir þingfrestun og taka til þess þann tíma sem þarf. Það verður langur tími,“ segir Svavar Gestsson, formaður þingflokks Alþýðubandalagsins. -S.DÓR Ragnar í Kreditkortm Ragnar Önundarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Europay-Kredikortum í stað Gunnars Bæringssonar. Ragnar var áður einn af framkvæmdastjórum hjá íslands- banka. Runólfur gegn háu gangagjaldi Vegna fyrirsagnar á frétt í blaðinu fyrir helgi þar um að Runólfur Ólafsson hjá FIB væri nú sammála Speli, er rétt að undir- strika að fyrirsögnin vísaði til þess að út- reikningar FIB og Spalar á meðalgjaldi væru ekki ósvipaðir. FIB telur hins vegar að gjaldið fyrir fólksbíla og minni bíla allt of hátt þannig að stærsti hluti bíleigenda sé Runólfur Ólafsson, fram- í raun að greiða niður verðið fyrir hina. kvæmdastjóri FÍB. Sendiherrahjón/n Juri og Nina Resitov ásamt Davið Oddssyni forsætisráðherra. Júri kveður Rússneski sendiherrann Júri Resitov og kona hans Nina Resetov héldu um helgina kveðjuhóf fyrir vini og samstarfsmenn á Islandi, en þau eru nú á förum heim eftir farsælt starf á Islandi. Þau hjónin eru miklir íslandsvinir eins og fjöldi gestanna í veislunni bar með sér. VIS bauð ekkl í tryggmgamar Bankaráð Landsbauk- aus ræddi ítarlega um kaup á tryggingum af VÍS en ekkert varð úr ])ví bankastjómin ákvað að bjóða út. Samkvæmt traustum heimildum Dags var ítarlega rætt um það á bankaráðsfundum Landsbank- ans að kaupa tryggingar af Vá- tryggingafélagi Islands (VIS), þar sem Helgi S. Guðmundsson nú- verandi bankaráðsformaður er sölustjóri. Ekkert varð þó úr því að verslað yrði við VIS, því bankastjórnin tók þá ákvörðun að bjóða tryggingarnar út meðal Ijögurra tryggingafélaga, þar á Helgi S. Guðmundsson. meðal VÍS, en ekkert tilboð barst þaðan. Sverrir Hermannsson, fyrrum Landsbankstjóri, hefur haldið því fram í Morgunblaðinu að Helgi S. Guðmundsson hafi reynt „með einni handsveiflu" að flytja „allar tryggingar Lands- bankans yfir í Vátryggingafélag- ið“ og auk þess hefur Sverrir gef- ið í skyn að Helgi hafi haft frjár- hagslegra hagsmuna að gæta vegna sölulauna. Helgi hefur sagt að þetta sé ósatt og í samtali við Dag vildi hann ekkert tjá sig nánar um tryggingarnar. Dagur hefur hins vegar fyrir því traustar heimildir að eftir kaup bankans á helmingi hluta- bréfa í VÍS hafi bankaráðið ítar- lega rætt um tryggingakaup af VIS, en bankinn hefur aídrei tryggt innbú sitt. Þegar banka- stjórnin ákvað að endingu að leita tilboða hjá Ijórum trygg- ingafélögum bar svo við að VIS sendi ekki inn tilboð. - FÞG Tregari áfengissala Áfengissala dregst saman í höndum heHdsala þrátt fyrir gódæri. Tekjur af áfengisgjaldi urðu 280 milljónum króna minni árið 1997 heldur en Ijárlög gerðu ráð fyrir og m.a.s. 80 milljönum króna minni heldur en árið þar áður, samkvæmt skýrslu íjár- málaráðherra um ríkisfjármál árið 1997. Virðist þetta athyglis- verð þróun í ljósi stóraukins kaupmáttar á árinu, sem oftast hefur Ieitt til aukinnar sölu en ekki samdráttar. Lækkunina rek- ur ráðuneytið m.a. til minnkandi sölu, sem er einkar athyglisvert í ljósi verulegrar kaupmáttaraukn- ingar á árinu, sem jafnan hefur leitt til aukinnar sölu en ekki samdráttar. En jafnframt hafi aukinn innflutningur á bjór, á kostnað sterkra drykkja, haft áhrif til lækkunar áfengisgjalds- ins. Afengisgjaldið 6% undir áætlun Við fjárlagagerðina fyrir 1997 var áætlað að' tekjur af áfengisgjaldi mundu aukast í takt við almenn- ar veltubreytingar, en í reynd urðu þær rúmlega 6% minni en fjárlög gerðu ráð fyrir. I fjárlög- um yfirstandandi árs er aftur gert ráð fyrir að tekjur af áfengisgjaldi aukist í takt við almennar veltu- breytingar, í 4,8 milljarða - þ.e. aftur sömu upphæð og áætluð var í fjárlögum ársins áður. Frelsi umboðsmanna til áfengisinn- flutnings virðist því síður en svo hafa leitt til aukins innflutnings, eins og ýmsir höfðu óttast. - HEl

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.