Dagur - 09.05.1998, Page 4
í SL - r.oí i n n .0 b i) nsiavi t i
20 - LAV GARDAGVR 9.MAÍ 1998
MENNINGARLÍFIÐ í LANDINU
\
Elias Snæland
Jonsson
ritstjóri
bókaS
HILLAN
Retsinom
reiðinnar
Einn af athyglisverðari foringjum
andófs blökkumanna í Banda-
ríkjunum á sjöunda áratugnum
er genginn til feðra sinna.
Eldridge Cleaver, höfundur bók-
ar sem hafði mikil áhrif á þeim
tíma - „Soul on Ice“ - og fyrrum
talsmaður samtakanna Svörtu
hlébarðanna - lést á alþjóðlegum
baráttudegi verkalýðsins, 1. maí,
62 ára að aldri.
ai5
ím
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Stóra sviðið kl. 20.00
Grandavegur 7
- Vigdís Grímsdóttir
Leikgerð: Kjartan Ragnarsson
og Sigríður M. Guðmundsd.
( kvöid Id. - Id. 16/5 næst
síðasta sýning - sud. 24/5
síðasta sýning.
Óskastjarnan
eftir Birgi Sigurðsson
9. sýn. á morgun sud. uppselt
- 10. sýn. fid. 14/5 örfá sæti
laus -11. sýn. Id. 23/5 örfá
sæti laus - 12. sýn. mvd. 27/5
nokkur sæti laus.
Fiðlarinn á þakinu-
Boch/Stein/Harnick
Föd. 29/5.
Ath. aðeins þrjár sýningar eftir.
Meiri gauragangur
Ólafur Haukur Símonarson
Föd. 15/5 næstsíðasta sýning
- fid. 28/5 síðasta sýning.
Smíðaverkstæðið
kl. 20.00
Poppkorn - Ben Elton
Á morgun sud. nokkur sæti
laus - föd. 15/5 nokkur sæti
laus - sud. 17/5 - föd. 22/5 -
Id. 23/5 - fid. 28/5.
Ath. sýningin er
ekki við hæfi barna.
Litla sviðið kl. 20.30
Gamansami harm-
leikurinn
- Eve Bonfanti og
Yves Hundstad.
[ kvöld Id. uppselt - sud. 1Q/5
uppselt - fid. 14/5 uppselt - Id.
16/5 uppselt - föd. 22/5
uppselt - Id. 23/5 laus sæti -
fid. 28/5 uppselt.
Miðasalan er opin mánud.-
þriðjud. 13-18, miðvikud.-sun-
nud. 13-20. Símapantanir frá
kl. 10 virka daga.
„Soul on Ice“ (1968) er djúp-
hugsuð og raunsönn lýsing á
stöðu bandarískra blökkumanna
á sjötta og sjöunda áratugnum.
Hún var skrifuð í bandarísku
fangelsi, þar sem höfundurinn
var fastagestur á yngri árum.
Cleaver fæddist í Arkansas árið
1935. Fimmtán ára gamall var
hann dæmdur fyrir að stela reið-
hjóli og sendur á heimili fyrir
unga afbrotamenn í Whittier í
Kaliforníu. Þar fékk hann
kennslu í glæpum hjá eldri
drengjum. Hann slapp út árið
1953, en var fljótlega sendur til
baka fyrir að selja maríjúana.
Enn var honum sleppt og aftur
tekinn nær samstundis með
fíkniefni í fórum sínum. Nú fékk
hann tveggja og hálfs árs fangels-
isdóm og var sendur í ríkisfang-
elsið í Soledad. Vistin þar gjör-
breytti lífi hans.
Ofbeldi sem vopn
Eins og Cleaver lýsir svo vel í
„Soul on Ice“ hófst sjálfsmennt-
un hans í Soledad-fangelsinu.
Hann sökkti sér niður í rit and-
ófs- og byltingarmanna á borð við
Thomas Paine, Voltaire, Karl
Marx and W. E. B. Du Bois og
fór að skilgreina kúgun blökku-
manna i Bandaríkjum hvíta kyn-
stofnsins.
DEU
95c
d _..0P|6SIN VWNT
COVE»^OM.U.IONtOW®
SOULonlCE
CUHKR
Soul on lce: bók sem hafði mikil áhrifá
sjötta áratugnum.
Aukin þekking á þessum
bandaríska veruleika samtímans
fyllti hann gífurlegri reiði. Þegar
hann slapp úr fangelsinu gaf
hann tilfinningum sínum lausan
tauminn. Hann varð ofbeldisfull
refsinorn reiðinnar í garð hinna
hvítu og fékk einkum útrás íyrir
hatur sitt með því að nauðga
hvítum konum. „Nauðgun var
byltingaraðgerð," skrifaði hann
seinna um þetta tímabil í lífi
sínu.
Cleaver var handtekinn ári eft-
ir að hann slapp út og dæmdur í
tveggja til fjórtán ára fangelsi íyr-
ir hastarlega líkamsárás. I San
Quentin og Folsom fangelsunum
fékk hann tækifæri til að endur-
skoða afstöðu sína og komst að
þeirri niðurstöðu að hann hefði
svikið sjálfan sig sem manneskju
með hátterni sínu. „Þess vegna
fór ég að skrifa. Til að bjarga
sjálfum mér,“ segir hann í „Soul
on Ice.“
Trúin réði einnig úrslitum um
endurmat hans á sjálfum sér.
Hann varð fylgjandi Malcolm X,
eins helsta leiðtoga hinna
svokölluðu Svörtu múslima sem
aðhylltust Islam.
Lögfræðingurinn Beverly Axel-
rod fékk áhuga á máli CÍeavers
og fékk hann loks látinn lausan
úr fangelsi í desember 1966.
Hún kom greinum hans og bréf-
um á framfæri við útgefanda. Af-
rakstur þess var „Soul on Ice“
sem kom út skömmu síðar.
Með Svortu hlébörðimum
Þegar Cleaver var laus úr fang-
elsi kynntist hann strax leiðtog-
um Svörtu hlébarðanna, sem þá
voru fyrirferðarmiklir í kynþátta-
átökunum; Huey Newton og
Bobby Seale. Einnig Kathleen
Neal sem varð eiginkona hans
árið 1967.
Cleaver særðist og var hand-
tekinn í átökum viö lögregluna í
þeim víðtæku mótmælum sem
urðu í kjölfar morðsins á Martin
Luther King. Hann fékk að
ganga laus á meðan málaferlin
gegn honum voru á leið gegnum
dómskerfið og tók þá mikinn þátt
í áróðri fyrir málstað þeirra
blökkumanna sem vildu umbylt-
ingu á bandarísku þjóðlífi: hélt
meðal annars fyrirlestra í háskól-
anum í Berkeley og fór í forseta-
framboð árið 1968.
Þegar dómstólar komust að
þeirri niðurstöðu í nóvember
1968 að Cleaver yrði að fara aft-
ur í fangelsi fyrir að hafa rofið
skilorð, flúði hann Iand; fór fyrst
til Kanada, þá til Kúbu, svo til Al-
sír, þar sem hann bjó um nokkurt
árabil, og loks til Parísar. Þar
varð hann fyrir nýrri trúar-
reynslu: frelsaðist eins og það
heitir og ákvað sjálfviljugur að
snúa aftur til Bandarikjanna árið
1975 ásamt konu sinni og tveim-
ur börnum. Þar slapp hann með
átta mánaða vist f fangelsi og var
upp frá því fijáls ferða sinna.
Cleaver sneri baki við flestum
þeim róttæku stefnumálum sem
hann boðaði á sjöunda áratugn-
um, gerðist repúblíkani og skrif-
aði bækur um Jesús.
Æskudraumur
rætist
„Mig langaði til að fjalla um líkamann og hoidið og henda gaman að snyrtivörufárí
og auglýsingamennsku nútímans. Það er alltaf verið að segja konum að þær eigi
að vera unglegar og grannar og í og með er ég að ögra þeirri hugmynd, “ segir
franski rithöfundurinn Marie Darrieussecq.
Franski rithöfundur-
inn Marie Darrieus-
secq varstödd hérá
landi á dögunum til að
kynna bók sína Gylt-
ing sem nýkomin erút
í íslenskri þýðinguAd-
olfs Friðrikssonar.
Gylting er skemmtileg og áhuga-
verð saga sem segir frá ungri
stúlku sem starfar á snyrtistofu
og verður fyrir þeirri óvenjulegu
lífsreynslu að breytast í gyltu.
Bókin varð metsölubók í Frakk-
landi og hefur komið út í 35
löndum.
BókLn gerði hana fræga
og ríka
„Eg þekkti enga útgefendur per-
sónulega og sendi handritið að
bókinni í pósti til sex forlaga.
Fjögur þeirra vildu gefa hana út
og ég valdi að gefa hana út hjá
því forlagi sem var minnst
þekkt,“ segir hin 28 ára gamla
Marie. Gylting er ekki fyrsta sag-
an sem Marie hefur skrifað því
hún hóf að sinna ritstörfum strax
sex ára gömul og hefur verið sí-
skrifandi síðan. Þegar Marie
skrifaði Gyltingu stundaði húh
bókmenntanám við franskan há-
skóla. Bókin hefur gert hana
bæði fræga og ríka og nú þarf
hún ekki að fást við neitt annað
en skriftir. „Þetta er allt ævintýri
líkast," segir hún um hinn óvæn-
ta frama sinn. „Æskudraumur
minn var alltaf sá að geta einbeitt
mér að ritstörfum."
Allt eins um giraffa
En af hverju skrifaði hún um
konu sem hreytist i svín? Er það
vegna þess að henni finnist komið
fram við konur eins og væru þær
svtna?
„Ég veit ekki af hverju ég skrif-
aði um svín. Ég hefði allt eins
getað skrifað um gíraffa," segir
Marie og bætir við: „Mér finnst
ekki að það sé komið fram við
konur eins og væru þær svín.
Mig langaði til að fjalla um lík-
amann og holdið og henda gam-
an að snyrtivörufári og auglýs-
ingamennsku nútímans. Það er
alltaf verið að segja konum að
þær eigi að vera unglegar og
grannar og í og með er ég að ögra
þeirri hugmynd."
Þegar Marie er spurð hvort
hún líti á sig sem femínista segir
hún: „Að vissu marki lít ég á mig
sem femínista en ég er ekki rót-
tækur femínisti. I Bandaríkjun-
um hafa kvennasamtök litið á
bókina sem femíníska skáldsögu
sem sé innlegg í baráttu þeirra.
Það er í góðu lagi þótt henni hafi
ekki meðvitað verið ætlað það.
Öðrum þræði er þetta skemmti-
saga.“
Sökuð um ritstuld
Önnur skáldsaga Marie, sem
hún lýsir sem draugasögu, hefur
fengið blendnar viðtökur fran-
skra gagnrýnenda og Marie hefur
jafnvel verið sökuð um ritstuld.
„Ef maður slær í gegn með fyrstu
bók þá eru margir sem bíða eftir
því að fá að tæta þá næstu í sig.
Og sumir gagnrýnendur voru
harðir í dómum sínum, en þan-
nig gengur þetta nú einu sinni
fyrir sig. Svo er ég í eðli mínu
kjaftfor uppreisnarmanneskja og
mörgum Iíkar ekki \áð mig,“ seg-
ir hún.
„En framtíðin er ráðin. Ég á
ekkert val,“ segir Marie Darri-
eussecq. „Ég mun halda áfram
að skrifa. Æskudraumur minn
hefur ræst.“