Dagur - 09.05.1998, Side 5

Dagur - 09.05.1998, Side 5
 LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998 - 21 LÍFIÐ í LANDINU Sænski myndlistcLr- maðurínn Roj Fríberg hófungurferíl sinn og vakti snemma á sérat- hygli. Hann sýnirverk sín í Listasofninu á Akureyrí. Sænski myndlistarmadurínn Roj Fríberg sýnir áleitin og sterk verk i Listasafninu á Akureyri. Hann sækir áhrifí tilvist manneskjunnar sem og síbreytilega náttúru. myndir: bOs. Ákærður fyrir að vera manneskja Á sýningunni eru verk frá ýms- um tímabilum í list hans. Fín- legt og nákvæmt handbragð ein- kennir verk hans ásamt sterkri og leitandi sýn á manneskjur og náttúru. Innsetning byggð á Réttarhöldunum eftir Franz Kafka er sterk og drungaleg, svo menn fá ekki varist þeirri hugs- un að þeir séu sjálfir dregnir fyr- ir dóm. - Mér finnst eins og þú lítir á manneskjur sömu augum og þú lítur tré eða landslag. Fólkið í myndum þínum eru fremur náttúrufyrirbæri en manneskj- ur? . „Það er rétt. Það kvarnast úr fólki eins og klettum og það bognar eins og tré í vindi. Þeg- ar fólk safnast saman eru hreyfingar þess eins og í nátt- úrunni, eins og öldugangur eða hreyfing skógar í vindi.“ - Mótun manneskjunnar er óltk mótun náttúrunnar að því marki að í andlitum fólks birt- ast örlög þess og andlegt ástand. „Eg mála og teikna ímynd- uð andlit ekki raunverulegar persónur. Þegar manneskja missir vitið, þá gerist eitt- hvað í andlitinu sem ekki er hægt að segja hvað er, en hægt að sýna í teikningu eða málverki. I skáldskapnum nota menn myndhverfingar eins og Pablo Neruda og geta tekið myndir eins og þegar lækur rennur niður ldetta og breytt þessari mynd í hugmynd. Mynd sem hefur merkingu í huga okk- ar. I myndlistinni verður maður að gera eitthvað annað úr mynd- hverfingunni. Þetta er alltaf spurning um form og tungumál. Þegar ég geri myndverk veit ég ekki hver útkoman verður og þegar hún kemur í ljós get ég horft á myndina árum saman og velt því fyrir mér um hvað hún sé. Þetta er það sem er merki- Iegast við myndlistina og það er mjög gefandi að horfa á eigið verk og skilja ekki til fulls leynd- ardóma þess.“ - Þú talar um skáldskapinn. Þit virðist sækja mikið til rithöf- unda eins og Strindberg og Franz Kafka? „Sérstaklega Franz Kafka sem ég hef lesið næstum viku- lega frá því um 1950. Kafka skapar myndir. I hvert sinn sem ég les hann sé ég eitthvað fyrir mér. Eg nota þessar myndir sem birtast mér við Iestur verka Kafka ekki til að stæla þær, heldur sem inn- blástur í verkum mínum. Það eru þessar bókmenntalegu myndir sem heilla mig í verkum Kafka. Eg set þær á svið með sjálfum mér. Ég hef gert talsvert af því að gera sviðsmyndir lyrir leikhús og ég fer ósjálfrátt að búa til sviðsmyndir þegar ég les Kafka og stundum er fólk á svið- inu og stundum er það farið." - Innsetningin sem ber heiti skáldsögu Kafka „Réttarhöldin“ ber með sér áhrifúr leikhúsinu. „Upphafleg hugmynd Réttar- haldanna var úr sýningu á Medeu, óperu Cherubinis. Sviðsmyndin var eins og klettur og við gerðum þrjúhundruð and- lit í sviðsmyndina og svo var kór- inn með grímur, þannig að þetta virkaði eins og það væru tvö þúsund manns á sviðinu. Þessi sviðsmynd var notuð í óperu- húsinu í Sydney. Síðar notaði ég þessar grímur í höggmynd sem ég gerði með því að nota grímumar sem steypumót. Síðan hef ég steypt þau í brons og jám. Svona heldur þetta áfram." - Þú málar It'ka náttúruna. Hvers leitarðu í náttúr- unni? „Þessu er erfitt að svara. Það em náttúr- lega form og rými. Náttúran varð til langt á undan okkur og hún er hér enn. Hún verður til langt á undan mannshuganum og er því í eðli sínu súrrealísk. Það getur aldrei neinn botnað í náttúruni, en um Ieið er hún lifandi veruleiki; mosi og skófir vaxa á steini og það merkir ekki neitt; það er enginn sýnilegur tilgangur með því.“ - Hver er þá merking og til- gangur listarinnar? „Ég held að fólk sé stöðugt að leita að tilgangi með lífi sínu og það hefur fundið hann í neysl- unni. Aglýsingamennskan og neysluhyggjan er yfirþyrmandi. Tilgangur lífsins er að vera með- vitaður um og í samræmi við náttúruna; við sköpunina. Nátt- úran er síbreytileg og það er að mínu viti mikilvægt að skynja líf- ið. Fólk hefur sífellt meiri möguleika til neyslunnar. Það getur ferðast þangað sem það vill eignast alls konar hluti, en það hjálpar því ekki neitt. Listin er aðferð til að skynja. Ef maður getur notið listar, þá getur mað- ur notið lífsins. Geti maður það ekki getur maður heldur ekki notið neyslunnar.“ - Liggur þá mikilvægi sköpun- arinnar t þessu? „Hinn kristni heimur var skapaður á sex dögum og sköp- unin heldur áfram. Sá sem ekki tekur þátt í sköpuninni Iifir ekki. Sköpunin felst í því að hafa reynslu af heiminum. Menn verða að skynja tilvist sína og skynji maður hana, þá er maður skapandi. Gleymi maður þessu gleymir maður sjálfum sér og þá er ekkert eftir nema innantóm neysla. Þegar maður hugsar um Rétt- arhöldin eftir Kafka þá eru til ótölulegar túlkanir á því verki. Ég held að ein leið til þess að túlka verkið sé að Jósef K. er ásakaður fyrir það að vera manneskja án þess að vera sér meðvitaður um það. Hann lifir fullkomlega venjulegu lífi og starfar í kerfinu og skyndilega er hann ákærður. Hann er hluti af skrifræðinu og glæpur hans felst í því að svíkja manneskjuna í sjálfum sér. Kafka vann sjálfur í miðju skrifræðinu, en tókst að heíja sig upp yfir það með verk- um sínum. Það hefur ekki mörg- um tekist." hh Leikfélag Akureyrar Söngvaseiður The Sound of Music eftir Richard Rodgcrs og Oscar Hammcrstein II, sýn. laug. 9. maí kl. 20.30 UPPSELT sýn. sun. 10. maí kl. 16.00 sýn. föst. 15. maí kl. 20.30 sýn.laug. 16. maíkl. 20.30 UPPSELT sýn. mió. 20. maí kl. 20.30 sýn. flmm. 21. mai kl. 20.30 sýn. laug. 23. maí kl. 20.30 sýn. sunn. 24. maí kl. 20.30 Síóustu sýningar Markúsar- guðspjall ..Saltið cr gott, en cf saltið missir selt- una, mcö hvcrju viljid þcr þá krydda þaö? Hafiö salt í sjalfum yður, og nald- iö frið yðar á milli." 9. 50. Einleikur Aöalsteins Bergdal. á Rcnniverkstacðinu. Lýsing: Ingvar Bjömsson. Ieikmynd: Manfred Lemkc. Lcikstjóm: Trausti Ólafsson. sýn.flmmt. 14. maíkl. 20.30 sýn. sunn. 17. ntaí kl. 17.00 síóustu sýningar á Akureyri í Bústaðaídrkju í Reykjavik 31.maíkl. 20.30 og 1. júníkl. 20.30 Gjafakort á Markúsarguðspjall tilvalin femiingargjöf Landsbanki íslands vcitir handhöfum gull debctkorta 25% afslátt. Miðasalan er opin þriðjiul.-funmtud. kl. 13-17, föstud.-sunnud. fratn að sýningu. Símsvari allan sðlarhringinn. Munið pakkafcrðintar. Stmi 462 1400 er styrktaraöili Leikfélags Akureyrar

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.