Dagur - 09.05.1998, Síða 10
26 - LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1998
Aðalfundarboð
Aðalfundur Steinullarverksmiðjunnar hf. verður haldinn 19. maí
1998, kl. 15.00, á veitingastaðnum Króknum á Sauðárkróki.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf, skv. 16. gr. samþykkta fé-
lagsins:
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess sl. starfsár.
2. Efnahags- og rekstrarreikningur fyrir liðið reikningsár,
ásamt skýrslu endurskoðenda.
3. Tekin skal ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða
tap félagsins á reikningsárinu.
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og endurskoðenda.
5. Kosning stjórnar og varastjórnar og tilnefning fulltrúa ríkisins.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa.
8. Önnur mál, sem löglega eru upp borin.
Dagskrá fundarins, ársreikningur, skýrsla endurskoðenda og tillaga
um útgáfu jöfnunarhlutabréfa liggur frammi á skrifstofu félagsins
viku fyrir aðalfund skv. 14. gr. samþykkta þess.
Steinullarverksmiðjan hf.
LÍFIÐ í LANDINU
L
Geisladiskur með lögunum úr
VILLTA VESTRINU
fæst í Bókvali, Tónabúðinni, Blómavali
og Kea Nettó.
Velkomin í Villta vestrið
- athyglisverðasta áhugamannasýningin 1998.
Freyvangsleikhúsið
Sendi börnum og tengdabörnum
innilegar þakkir fyrir hjálpina á 60 ára afmæli mínu.
Einnig sendi ég mínar bestu kveðjur og þakkir til allra er
glöddu mig með heimsóknum og gjöfum.
Hallfríður Svavarsdóttir (Haddý),
Svalbarðseyri.
Óskum eftir bifvélavirkja til afleysinga í
sumar, júní, júlí og ágúst.
Upplýsingar gefur Þorsteinn í síma 462 3570.
Frumherji hf., Bifreiðaskoðun,
Akureyri.
Ást vlð fyrsta hlaup
Bryndís Svavarsdóttir, 41 árs
hafnfírsk húsmóðir og fjögurra
barna móðir, er trimmari af lífi
og sál. Hún hreinlega safnar
maraþon- og langhlaupum
og hefur verið dugleg við
það síðustu árin. Bryndís
fékk hlaupabakteríuna íyrir
sjö árum, eða í febrúar
1991, þegar hún mætti í
sitt fyrsta trimm, hjá
trimmhópi í Suðurbæjar-
laug í Hafnarfirði. „Eg sá
auglýsingu og mynd af
trimmhópnum í bæjarblað-
inu og ákvað að mæta á
staðinn. Síðan hef ég verið
stanslaust á hlaupum,“
sagði Bryndís í samtali við
Dag.
Bryndís sem er starfí
maður á Hrafnistu í Haf
arfirði, sagði að áður b .i
hún Iítið stundað íþróttir,
nema þá helst skíði og
sund. „Eg fann á mér að
tími væri kominn til að
breyta um lífsstíl og sé ekki
eftir því. Eg er mikil félags-
vera og eiginmaðurinn mik-
ið á sjó, þannig að trimmið
er mér mikil upplyfting. Út
úr þessu fæ ég mikinn og
góðan félagsskap og kvnnist
mörgu góðu fólki um allt
land,“ sagði Bryndís. „Mér
líður frábærlega eftir trimm-
ið, enda hef ég alltaf farið
varlega og er ekkert að flýta
mér. I keppnum hleyp ég frekar
lengri vegalengdirnar og kemst
alltaf í mark þótt hægt fari.“
Bryndís tók strax á fyrsta ár-
inu þátt í keppni. „Það var á
sumardaginn fýrsta í Víðavangs-
hlaupi Hafnarfjarðar. Eg var
eina konan í hlaupinu og því
eini sanni sigurvegarinn og auð-
vitað í fyrsta sæti, hvað annað!
Síðan hef ég farið víða og tek
þátt í flest öllum hlaupum sem
hlaupin eru á suð-vesturhorninu
og víðar. Mitt fyrsta hálfmara-
þon var í Reykjavíkurmaraþoni
árið 1992, en fyrsta heila mara-
þonið hijóp ég í Stokkhólmi árið
1995. Það hlaup hljóp ég með
brákaðan lærlegg án þess að vita
af því, en ég hélt að þetta væri
bara slæm tognun. Eftir það tók
ég mér smáfrí meðan beinið var
að gróa og var ég orðið ansi
óþolinmóð með að geta ekkert
hlaupið á meðan.“
En Iítum nú á það helsta í
hlaupasafninu:
1992
Hálfmaraþon:
Reykjavík
Brúarhlaup Selfossi
1993
Hálfmaraþon:
Akranesi
Akureyri
Reykjavík
Suðurnes(25 km)
1994
Hálfmaraþon:
Akureyri
Reykjavík
Selfoss
Amsterdam
1995
Heilt maraþon:
Stokkhólmur
Dublin
Hálfmaraþon:
Húsasmiðjuhlaup (besti tími
1:52,00)
Reykjavík
1996
Heilt maraþon:
New York
Hálfmaraþon:
Reykjavík
Selfoss
1997
Últramaraþon:
Laugavegurinn (60-65
km) Þórsmörk-Landmanna-
laugar
Þingstaðahlaup (50 km)
ÞingvelIir-AIþingishús
Heilt maraþon:
Kaupmannahöfn
Reykjavík (besti tími
4:26,14)
Malta
Hálfmaraþon:
Akranes
Akureyri
Selfoss
1998
Heilt maraþon:
Marsmaraþon Reykjavik
Eins og sést á upptalning-
unni, þar sem aðeins er
upptalið það helsta, er eng-
an bilbug að finna á Bryn-
dísi. Hún hefur aldrei
hlaupið meira. Hún hleypur
og hleypur og ef þið lesend-
ur góðir fáið ykkur bíltúr til
Hafnarfjarðar, þá rekist þið ör-
ugglega á Bryndísi, ef þið eruð
nógu þolinmóð.
Bryndís segir að trimmið gefi
sér heilmikið, bæði til sálar og
líkama. „Þetta varð eiginlega ást
við fyrsta hlaup,“ segir Bryndís.
„Eg hvet alla, þó fólk sé komið
yfir miðjan aldur og komið í
þungavigtina, að fara í trimmið.
Þó ekki væri nema út að ganga
°g 8anga þa rösklega. Eg hvet
líka unga fólkið til að stunda
íþróttir og ég hef lagt mitt af
mörkum til þess, þegar við í
Lionsklúbbunum störtuðum
vímuvarnarhlaupinu sem var
einmitt hlaupið núna um síð-
ustu helgi,“ sagði Bryndís og
skokkaði brosandi af stað. -EK
Það er stutt í glensið hjá Bryndísi, sem hér stillir sér upp
með fílnum sem segir: „i’ts crazy man“.