Dagur - 19.05.1998, Page 1
Ambindiyllur og Grimmhildur
Rokkið erkomið í Tónlistar-
skólann og þarhafa stelpum-
ar tekið það upp á sína arma.
Þeirsem kenna tónlistverða
að mæta rokkinu „með opn-
um huga“.
„Þegar stelpur eru í hljómsveit er yfirleitt
ætlast til þess að þær séu bara söngkonur.
I samspilshópunum hjá mér í tónlistar-
skólanum er ég að mestu leyti með djass-
hópa og þar hafa þessar stelpur ekki
áhuga á þátttöku. Þær vildu vera með sín-
ar eigin sveitir sem leika þá tónlist sem
þeim sjálfum best líkar; harða alvöru
rokktónlist," sagði Jón Rafnsson, sem er
kennari við Tónlistarskólann á Akureyri og
hefur verið hinum ungu tónlistarkonum í
\mbindryllum og Grimmhildi til halds og
trausts.
„Stelpurnar hafa að sjálfsögðu sömu
mögleika á því að vera góðir rokktónlistar-
menn og strákarnir. Fyrirmyndir á Islandi
eru til dæmis Grýlurnar, sem sýndu lands-
mönnum að þær gátu vel spilað virldlega
góða rokktónlist. Músíktilraunir í Tónabæ
í Reykjavík hafa ýtt undir marga upprenn-
andi tónlistarmenn og komið mörgu góðu
af stað. Þar hafa stelpur virkilega nýtt sér
tækifærið - og gott dæmi eru til dæmis
hljómsveitin Kolrassa krókríðandi, sem
fyrst kom fram á Músíktilraunum," segir
Jón.
„Ambindryllu-stelpurnar fóru á Músík-
tilraunirnar fyrir sunnan nú í vor og stóðu
sig vel, komust í úrslit. Og það sem ég
heyrði til þeirra fannst mér gott. Grimm-
hildarstúlkur hafa starfað skemur, byrjuðu
fyrst saman fyrir alvöru nú eftir áramótin,
og þær hafa staðið sig mjög vel. Náð að
spila sig saman á skömmum tíma með
miklum æfingum - og það er jú það sem
gildir ef árangur á að nást.“ segir Jón tón-
listarkennari.
Dægurtónlist með opmun huga
„Þegar ég var í tónlistarnámi voru mögu-
leikar í tónlistarnámi helst á klassíska
sviðinu. Með tilkomu Tónlistarskóla Fé-
lags íslenskra hljómlistarmanna hefur
þetta breyst og alþýðutónlistardeild tón-
listarskólans hér á Akureyri er að sumu
Ambindryllur og Grimmhildur. Þessar stúikur eru æskublómi Akureyrar og framtíðín í íslenska kvennarokkinu? Kannski eru hér Björk, Ragga Gísla
og Andrea Gylfa næstu ára? Fyrst tónlistarskólinn, svo heimurinn! mynd: brink.
leyti byggð upp á svipuðum grunni og
skóli FIH. Þar gefst krökkum möguleiki á
að nema á hljóðfæri sem algeng eru í dæg-
urtónlistinni, svo sem rafmagnshljóðfæri
af ýmsum toga, trommur og þess háttar,"
segir Jón.
En um það hvort ekki sé rétt að gera
dægurtónlistina meira gildandi í grunni
tónlistarnámsins í stað þess að byggja á
hinni klassísku tónlist segir Jón, aðspurð-
ur, að hinar gömlu og gildu aðferðir í
kennslunni verði alltaf að vera til staðar.
Ekki megi víkja um of frá hinni sígildu tón-
list - en dægurtónlistinni verði jafnframt
að marka sess og henni verði þeir sem
kenna tónlist að mæta með opnum huga.
Fnunsamið og aimarra manna efni
Hljómsveitina Ambindryllu skipa þær Sara
Blandon, söngkona, Helga Oddsdóttir
leikur á gítar, Bryndís Dröfn Traustadóttir
á bassa, María Björk Gunnarsdóttir á
trommur og það er Helga Björk Gunnars-
dóttir sem slær nótur hljómborðsins. -
Stúlkurnar í Grimmhildi eru Anna Þor-
björg Jónasdóttir, sem leikur á trommur,
Hrafnhildur Ósk Magnúsdóttir, leikur á
bassa, Þórhildur Kristjánsdóttir á hljóm-
borð og Dís Pálsdóttir syngur.
Báðar þessar sveitir leika rokktónlist eft-
ir aðra tónlistarmenn, sem þær hafa æft
undir stjórn Jóns Rafnssonar í vetur, en
þær munu einnig leika frumsamið efni.
Fjórir piltar nafnlausir
Þriðja sveitin er skipuð fjórum piltum, er
enn nafnlaus, en hana skipa Róbert Reyn-
isson, sem leikur á gítar, Jósep Þeyr Sig-
mundsson á bassa, Davíð Fransson á
trompet, og Benedikt Brynleifsson á
trommur. Þessir íjórir strákar hafa allir lát-
ið að sér kveða í djassleik á undanförnum
árum - en rokkelementið blundar í þeim og
undir þeim merkjum koma þeir fram í
kvöld. Munu þeir leika ífumsamda tónlist,
sem er blanda af djassi og rokki.
Kvennarokkið hefst kl. 21.00, í
Kompaníinu við Hafnarstræti, þar sem fé-
lagmiðstöðin Dynheimar var áður. Að-
gangur er ókeypis. -SBS.
RÁÐGJÖF SÉRFRÆÐINGA UM
GARÐA- OC
Þarftu að eyða illgresi? Eru pöddur í garðinum þínum?
Veistu ekki hvernig á að bregðst við? Leyfðu okkur að aðstoða þig.
Ráðgjöf sérfræÖinga um garð- og gróSurrækt
GRÓÐURVÖRUR
VERSLUN SÖLUFÉLAGS GARÐYRKJUMANNA
SmiSjuvegi 5 • 200 Kópavogi • Sími: 554 321 1 • Fax: 554 2100
Munið!
Fagmennska
í fyrirrúmi!