Dagur - 21.05.1998, Page 16

Dagur - 21.05.1998, Page 16
/\/ýtt - /(ýft* t/mar AKUREYRARLISTINN er róttækasta nýjungin í bæjarmálapólitík á Akureyri í marga áratugi. I honum sameinast þeir kraftar sem ötulast hafa barist fyrir samfélagslegu réttlæti og velferð öllum til handa. Engum er því betur treystandi til að standa vörð um heill og hamingju bæjarbúa en AKUREYRARLISTANUM. Stefnuskrá AKUREYRARLISTANS er ítarleg og metnaðarfull. Brýnasta verkefnið er að koma hjólum atvinnulífsins til að snúast hraðar og í stefnuskránni er bent á ýmsar leiðir til þess. Þar er einnig lögð megináhersla á að öll þjónusta og aðstaða, sem bæjarfélagið veitir íbúum sínum verði fyrsta flokks, s.s. á sviði skóla- menningar- og félagsmála, og að Akureyri verði í fararbroddi í jafnréttis- og umhverfismálum. Stefnuskrá AKUREYRAR- LISTANS er þannig traustur vegvísir að þróttmiklu og vaxandi bæjarfélagi á nýrri öld. Góbir Akureyringar, vib höfum sameinað krafta okkar í ykkar þágu, og óskum nú eftir öflugum stubningi til nýrrar framfarasóknar fyrir bæinn okkar. AKUREYRARLISTINN

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.