Dagur - 23.05.1998, Page 7

Dagur - 23.05.1998, Page 7
m LAUGARDAGUR 23. MAÍ 1998 - 23 LÍFIÐ í LANDINU Á hverju byggist árangur? Hvað ergóð liðsheild? Guðjón Þórðarson lands- liðsþjálfari í knattspymu ernúfarinn að heimsækja fyrirtæki og kenna mönn- um aðfæra liðsandann og liðsheildina úríþróttun- um yfirá atvinnulífið. Vinnumarkaðurinn getur margt lært afsportinu. „Raunverulega fjalla ég um tvennt, annars vegar liðsheild- ina og hins veg- ar einstakling- inn innan liðs- heildarinnar. Liðsheild er hlutur sem allir eru að glíma við og allir vilja fá svör við. Ef það væri hægt að svara því í stuttu máli hvað liðsheild er þá væru allir búnir að leysa gátuna en það má segja að góð liðsheild sé þegar viðkomandi hópur gerir sér grein fyrir því að velferð ein- staklingsins er undir því komin að hópurinn vinni vel saman og þegar góður hópur vinnur vel saman þá blómstra einstakling- arnir. Þetta vinnur í báðar áttir,“ segir Guðjón Þórðarson, lands- Iiðsþjálfari í knattspyrnu. Verður samt að gera það Guðjón fór að skynja liðsanda og sigurvilja og þýðipgu þess fyr- ir mörgum árum þegar hann var leikmaður hjá IA og fékk mis- munandi tilsögn og mismunandi leiðbeiningar hjá þjálfurum. Hann varð var við að það var afar misjafnt hvernig þjálfararnir komu áherslum sínum á fram- færi og fengu leikmennina til að fara eftir leiðbeiningum sínum. Hann fór að velta fyrir sér hvernig þjálfari fengi liðið til að vinna saman að markmiðinu, sigri, og hvernig honum tækist að framkalla sigurvilja meðal leikmanna. Hann fór að leggja áherslu á að ná fram þessum hlutum í starfi sínu og það var ekki að sökum að spyrja. Guðjón er nú einn færasti þjálfari lands- ins og aðilar í atvinnulífinu fá Guðrún Helga Sigurðardóttir skrifar Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari horfir til ársloka 1999 í starfi sínu með landsliðið. Hann vill raunhæfa markmiðssetningu í starfi og leggur áherslu á liðsheild- ina. Hann bendir á að „þegar góður hópur vinnur vel saman þá blómstra einstaklingarnir. “mynd: eól. Þarf sífellt að klappa mönnum hann í síauknum mæli í heim- sókn í fyrirtæki til að fjalla um Iiðsanda, liðsheild og sigurvilja - innan fyrirtækja. „I fótbolta lenda oft einstak- Iingar í því að vinna önnur verk en þeir sjálfir vilja og þá þarf að fá þá til að vinna þetta verk án þess að vera með einhverjar vangaveltur að þetta sé betra svona eða hinsegin. Ef maður er með 20 manna hóp getur maður verið með meira en helminginn af hópnum ekki ánægðan af því að Ieikmennirnir hafa aðrar hugmyndir um sjálfa sig. Vara- mennirnir eru óánægðir af því að þeir komast ekki í liðið og þeir sem ekki komast á bekkinn eru óánægðir af því að þeir kom- ast ekki þangað. Þetta er alveg eins úti í atvinnulífinu. Það er ekkert gaman að vera Iögreglu- maður og sækja mann sem hef- ur tekið líf sitt í heimahúsi. Það verður samt að gera það,“ út- skýrir Guðjón mál sitt. öflugir einstaMingar í sterkri liðshcild - En hvemig fær þjúlfari leik- mennina til að vinna að sama marki? „Menn verða að hafa skilning á því sem þeir eiga að fara að stefna að, skilja eftir hveiju þeir eru að sækjast og menn verða að standa saman að því og gera sér grein fyrir því að það er sam- takamátturinn sem á endanum ræður úrslitum. I liðsheildinni skiptir máli hvernig menn vinna saman og menn verða að gefa af sér. Reynslan af sterkri liðsheild er að þar koma yfirleitt fram mjög öflugir einstaklingar. Þá skapast svipað umhverfi og í fótboitanum, þar verður einhver að skora. Oft er það þannig í sterkri liðsheild að það er ein- hver sem fær fleiri færi en aðrir og sá skorar undantekninga- laust,“ svarar hann. - En gildir þetta líka í atvinnu- lífinu? „Það er alveg ldárt að menn skora í atvinnulífinu. Sumir eru betri sölumenn en aðrir. Það gefur auga leið. Sumir eru betri samningamenn en aðrir. Lykill- inn að því er að finna vettvang fyrir hvern og einn og finna í hverju hver og einn er góður. Það eru ekki allir markmenn eða miðherjar." Tilflnningamar teknar með Guðjón talar um að beita „mað- ur á mann“-aðferðinni og segir að sumir séu hræddir við þessa aðferð af því að hún geti orðið svo persónuleg og sumir geti aldrei gefið af sér af því að undir niðri séu þeir kannski aðrir en þeir séu út á við. Sumir einstak- lingar geti alltaf hætt við, aðrir geti alltaf gefið eftir og farið í felur við ákveðinn þrýsting. I erfiðleikum stingi leikmennirnir ef til vill hausnum í sandinn. Þjálfari verði hins vegar að skilja leikmennina sína, ná að hvetja og vinna jákvætt með þá og til þess þarf hann að þekkja hvern einstakling. I sumum tilvikum er hægt að herða að mönnum með skrúfu, í öðrum tilvikum eru leikmennirnir svo spenntir að það þarf að fá þá til að slaka á. Guðjón vill „fara vel með“ mennina sína. „OII erum við einstök og öll höfum við okkar tilfinningar. Það er mjög mikilvægt fyrir stjórnanda að skynja starfsfólkið sitt, liðsmennina sína. Fyrir mig er mjög mikilvægt að skynja leikmennina mína. Þegar mann- inum líður vel þá gerir hann betur en stundum þarf að bijóta hann niður til að hann geri vel,“ segir Guðjón. „Maður er sífellt að ldappa leikmanninum og koma við hann, finna hvernig honum líður og hvort hann er hræddur eða óöruggur. Stund- um getur þetta orðið trúnaðar- tal. Þetta er eins og hljóðfæri, þetta er bara spurning um hvaða hljóm þú vilt fá.“ Letjandi að setja markið of hátt Guðjón leggur áherslu á að stjórnendur, starfsmenn og fyrir- tæki setji sér raunhæf markmið til að keppa að. Hann kveðst ekki hafa trú á því að setja sér of hátt markmið eins og sumir hafa talið vænlegt til árangurs, það sé beinlínis „fáránlegt". Talið berst að Vímuefnalausu Islandi árið 2002 en það verkefni hefur einmitt verið gagnrýnt fyrir of háa markmiðssetningu. Guðjón telur að það geti haft letjandi áhrif á hópinn ef það er ljóst frá byijun að markmiðið mun alls ekki nást, menn séu búnir að missa andann áður en þeir leggi af stað því að þeir geri sér Ijóst að þeir nái ekki markmiðinu. Sjálfur kveðst hann horfa fram til ársloka 1999. „Mitt markmið er að styrkja stöðu þessa landsliðs. Við erum reyndar í mjög erfiðri stöðu í þessum riðli en markmiðið er að bæta stöðuna. Eg er ekki sáttur við að vera í 72. sæti á listanum þó að 200 þjóðir séu á þessum lista,“ segir landsliðsþjálfarinn og bætir við að ekki sé allt undir sér komið. Starfsskilyrðin skipti líka máli og hvemig aðstæður sér og landsliðinu séu búnar. „Það skiptir máli hvaða starfs- skilyrði ég fæ, hvaða vettvang hef ég, hvað er mér skammtað af fjármunum til að styrkja stöðu liðsins. Það eru margir þættir sem spila inn í þegar maður ætlar að ná árangri og það er alveg eins og í atvinnulíf- inu.“ - En hvernig tekst fyrirtækjum að viðhalda árangrinum og jafn- vel að hæta við sig? „Stundum getur maður lent í því í okkar litla samfélagi að vera búinn að ná öllu því sem hægt er og þá verður að við- halda árangrinum og setja sér ný markmið. Þetta er oft vandrat- aður vegur." Læra af þeim sem skara framúr Þegar Guðjón er beðinn um að flytja fyrirlestur í fyrirtæki segir hann að menn séu oftast á hött- unum eftir hvatningartali, „pepp talk“. Hann reynir að kynna sér starfsemi fyrirtækisins lyrirfram, hvernig viðkomandi fyrirtæki hagar sinum starfsmannamálum og hverju það vill ná fram. Ekki megi gleyma huglæga þættinum. Menn megi heldur ekki gleyma sér i öfund í garð þeirra sem skara fram úr heldur eigi þvert á móti að reyna að læra af þeim. „Eg hef farið mjög víða og kynnt mér fótbolta. Maður sér það sem vel er gert og maður sér líka fullt af slæmum hlutum, bæði í skipulagi félaganna og skipulagi æfinganna. Hvernig fara þeir með mennina sína? Hvað æfa þeir? Hveiju reyna þeir að ná fram? Hvar liggja áherslurnar? Hver er tilgangur- inn með að vinna svona? Eftir hverju er maður að Ieita?,“ spyr landsliðsþjálfarinn Guðjón Þórðarson.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.