Dagur - 23.05.1998, Blaðsíða 11
LAUQARDAGUR 23. MAÍ 19,98 - 27
LÍFIÐ í LANDINU
iV I rtai
UMSJÓN:
HALLA BÁRA
GESTSDÓTTIR
Það erákveðin
hefð hjá mörgum
að koma saman og
fylgjastmeðkosn-
l
ingasjónvarpinu.
Á þeirri stundu er
tilvalið að bera fram léttar
veitingar.
Þar sem við höfum öll nýlokið við að
borða popp og snakk yfir Eurovision
söngvakeppninni datt mét í hug að gefa
uppskriftir af puttamat sem gott er að
grípa í við þetta tækifæri. Réttina má
bera alla fram samtímis, einnig getur ver-
ið sniðugt að bera þá fram einn í einu
með góðu millibili fram á nótt.
Grænmetis
___________samósur_______________
35 til 40 stykki
2 msk. olía
1 laukur (saxaður)
1 hvítlauksrif (saxað)
2 tsk. karrí
1 bökunarkartafla (skorin
í teninga)
1 gulrót (skorin í teninga)
1 græn paprika (skorin
í teninga)
1 msk. mjólk
5 blöð vorrúlludeig
olía til djúpsteikingar
Hitið olíuna á pönnu, setjið lauk, hvit-
lauk og karrí út á og brúnið þar til lauk-
urinn er mjúkur, þá er kartöflunum og
gulrótunum blandað saman við og allt
eldað í fimm mínútur, blandið þá
paprikunni saman við og kælið í eina
klukkustund.
Skerið deigið í hringi u.þ.b sjö senti-
metra stóra (gott að nota glas til að skera
eftir) setjið eina matskeið af grænmetis-
blöndunni á mitt degið, penslið kantana
með mjólk og lokið deiginu þannið að
það verði hálfmáni, þrýstið vel á kantana
þannig að samósurnar lokist vel áður en
þær eru djúpsteiktarog bornar fram.
Samósurnar er hægt að gera daginn áður,
en þær verður að steikja rétt áður en þær
eru bornar fram.
Ostur í fíló-
___________skjóðum________________
30 til 35 stykki
100 g rjómaostur
50 g gráðostur
2 msk. parmesan (rifinn)
_______________Lfi8_______________
örl. cayennapipar
örl. múskat
6-9 blöð fílódeig
60 g smjör til penslunar
Grænmetis samósur, til vinstri, einn afréttunum sem Friðrik gefur uppskrift af.
Saxið laukinn smátt og brúnið í
smjörinu og kælið. Afhýðið kartöfl-
umar og rífið þær með millifi'nu
rifjárni, kreistið safann af kartöflun-
um og setjið þær í skál ásamt
lauknum og kryddið til með salti og
pipar. Hitið olíu vel á pönnu og
sétjið u.þ.b. eina matskeið af kart-
öflublöndunni með jöfnu millibili á
pönnuna og brúnið vel áður en
þeim er snúið við. Þegar búið er að
steikja kartöflurnar á báðum hlið-
um em þær teknar af og settar á
pappír og síðan á fat þar sem gras-
laukskremið er sett ofan á og rétt-
urinn borinn fram. Þennan rétt er
ekki hægt að undirbúa daginn áður.
Graslaukskrem:
90 g rjómaostur
2 msk. sýrður ijómi
1 tsk. sítrónubörkur (rifinn)
1 msk. sítrónusafi
Blandið ostinum, egginu og kryddinu vel
saman í skál. Penslið deigblað með smjöri
og setjið annað blað ofan á, penslið það
með smjöri og skerið deigið í ferninga
sem eru u.þ.b átta sentimetrar á alla
kanta. Setjið eina teskeið af ostamassa á
miðjan deigferninginn og reisið síðan
hornin upp þannig að þau mætist og Ioki
sekknum, raðið þeim síðan á smurða ofn-
plötu og kælið í eina klukkustund áður
en þær eru bakaðar í 170°C heitum ofni í
tíu mínútur eða þar til deigið er fallega
brúnað. Þennan rétt má einnig gera dag-
inn áður og geyma í kælisáp (eða frysta)
en hann verður að bera fram nýbakaðan.
Lambaspjót með
___________jógurtsósu__________________
40 stykki
750 g Iambahakk
1 laukur (saxaður)
1 hvítlauksrif (saxað)
1 tsk. kanill
2 tsk. paprikuduft
2 tsk. cumin
'Á tsk. chilli duft
2 msk. söxuð minta (fersk)
'A bolli fersk steinselja (söxuð)
1 msk. rauðvín
40 stk. grillpinnar
Blandið öllu í skál og hnoðið vel saman,
mótið síðan eina matskeið af blöndunni á
endann á grillpinna, og brúnið vel á
pönnu, í ofninum eða á grillinu og berið
síðan fram heitt með jógúrtsósunni.
jógúrtsósa:
500 g hrein jógúrt
2 hvítlauksrif (söxuð)
1 msk. steinselja (söxuð)
2 msk. söxuð minta (fersk)
1 msk. graslaukur (saxaður)
Öllu blandað vel saman og geymt í kæli-
skáp í 30 mínútur áður en sósan er borin
fram.
Ostur í fílóskjóðum.
Lambaspjót með jógúrtsósu.
Rosti kartöflur með
graslaukskremi
40 stykki
1 msk. smjör
1 laukur
3 bökunarkartöflur
olía til steikingar
salt og pipar
1 msk. saxaður graslaukur
Blandið ostinum og sýrða rjómanum
saman með trésleif, þar til blandan er
orðin mjúk þá er hinu hráefninu blandað
saman við og kremið tilbúið ofan á rosti
kartöflurnar.
Grænmetisbakki með
chillí og paprikusósu
4 gulrætur
1 agúrka
2 rauðar paprikur
2 gular paprikur
1 búnt ferskur spergill
Skerið allt grænmetið nema spergilinn i
ræmur á stærð við franskar kartöflur,
skerið neðsta hlutann af sperglinum og
sjóðið toppana í fimm til átta mín í létt-
söltuðu vatni.
Takið spergilinn upp úr suðuvatninu,
setjið beint í kalt vatn og kælið, þá er
hann þerraður vel og raðað fallega á fat
ásamt hinu grænmetinu, gott er að skilja
eftir pláss á miðju fatinu fyrir skál með
dressingunni.
Chillí og paprikusósa:
u.þ.b. '/ lítri
2 pauðar paprikur
60 ml lime safi
70 gr brauðrasp
2 rauð chiilí
4 hvítlauksrif
1 rauðlaukur
2 msk. parmesan
Grillið paprikuna vel undir grillinu í ofn-
inum þar til húðin er orðin dökkbrún, þá
er hún tekin úr ofninum, kæld, afhýdd og
kjarninn hreinsaður innanúr.
Blandið öllu hráefninu saman í mat-
vinnsluvél og maukið vel þar til útlitið
minnir á pizzasósu, þá er dressingin til-
búin en hana má gera nokkrum dögum
áður og geyma í kæli. -
Eg vona að þessar hugmyndir komi að
notum í kvöld.
Verði ykkur að góðu.