Dagur - 26.05.1998, Blaðsíða 1
Hvorki hvatning
né dauðadómur
Guðmimdiir Amí
Stefánsson segir út-
komu sameiginlegu
framboðauna víða
mikil vonbrigði.
Hvorki dauðadómur
ué hvatniug, segir
Svavar Gestsson.
Sterk aðvöruu, segir
Steingrímur J. Sigfús-
son.
„Eg tel þessi úrslit sveitarstjórn-
arkosninganna hvorki dauðadóm
né bakslag í sameiningarmálum
en heldur ekki neina hvatningu
enda eru úrslitin svo misjöfn að
það er engin ein lfna í þessu yfir
Iandið. Eg tel að þegar málið er
gert upp í heild séu bæði plúsar
og mínusar í málinu og niður-
staðan þannig að úrslitin hafi
engin sérstök áhrif,“ sagði Svav-
ar Gestsson alþingismaður um
útkomu sameiginlegu framboð-
anna í sveitarstjórnarkosning-
unum.
„Eg tel að skýringar á úrslitun-
um séu einkum þijár. I fyrsta Iagi
þar sem sterkir
Ieiðtogar eru
gengur dæmið
upp. Það sést á
Ingibjörgu Sól-
rúnu, Kristjáni
Asgeirssyni á
Húsavík og
Smára Geirssyni
í Austurríki og
raunar fleirum.
Síðan koma til
sögunnar stað-
bundnar aðstæð-
ur sem geta verið
hagstæðar ein-
stöku framboðs-
listum óháð
flokkum. Það
þriðja sem skiptir
máli er hinn póli-
tíski prófíll. Þar
sem ekki er
sterkur leiðtogi,
staðbundnar aðstæður ekki hag-
stæðar og enginn pólitískur prófíll
er útkoman léleg,“ segir Svavar.
MiMI vonbrigði
„Auðvitað er niðurstaða kosning-
anna víða um land mikil von-
brigði fyrir þá flokka sem stóðu
að sameiginlega
framboðinu.
Menn gerðu sér
vonir um að
þessi nýi valkost-
ur næði að brjóta
sér leið í gegn en
það tókst ekki
nema með fáum
undantekning-
um. Mestu von-
brigðin eru auð-
vitað góð útkoma
ríkisstjórnar-
flokkanna. Það
er nokkuð sem
stjórnarandstað-
an hlýtur að
verða að setjast
niður og skoða
betur,“ sagði
Guðmundur
Arni Stefánsson
alþingismaður.
„Það verður ekki horft fram
hjá þeim tölulegu staðreyndum
að þessi sameiginlegu framboð
gengu mjög misvel. Og þrátt fyr-
ir mjög ánægjuleg frávik og
glæsilega útkomu eins og á
Húsavík og í Austurríki og góða
útkomu á nokkrum stöðum í við-
bót þá er því miður almenna til-
hneigingin sú í öllum stærstu
kaupstöðum og sveitarfélögum
landsins, fyrir utan Reykjavík, að
sameiginlegu framboðin tapa
fylgi. Og á nokkrum stöðum tap-
aðist umtalsvert fylgi frá því sem
flokkarnir sem að því standa
höfðu þegar þeir buðu fram sér,“
segir Steingrímur J. Sigfússon
alþingismaður.
„Það er Iangt frá því að hægt sé
að túlka þau sem einhverja
hvatningu fyrir sameiginleg
framboð að svo miklu leyti sem
hægt er að túlka úrslit í sveitar-
stjórnarkosningum yfir á lands-
málin. Að auki er auðveldara að
sameina flokkana í sveitarstjórn-
armálum en í Iandsmálapólitík-
inni. Með það í huga fæ ég ekki
annað Iesið út úr þessum úrslit-
um en sterka aðvörun til manna
um að vera með báða fætur á
jörðinni," sagði Steingrímur.
- S.DÓR
Steingrímur J. Sigfússon segir hina al-
mennu tilhneigingu i sameigin/egum
framboðum ekki uppörvandi.
UmlOO
ónýt
D-atkvæði
Nálægt 100 af þeim 188 atkvæð-
um sem kjósendur í Reykjavík
gerðu ógild ónýttust með þeim
hætti að fylgjendur Sjálfstæðis-
flokksins merktu skilmerkilega
við D-listann en strikuðu út nöfn
manna á R-Iistanum.
Aðeins er leyfilegt að breyta
röð manna og strika út á þeim
lista sem kjósandinn velur. Jón
Steinar Gunnlaugsson, sem situr
í yfirkjörstjórn í Reykjavík, segir
að þetta hafi verið mest áberandi
ástæða þess að atkvæði urðu
ógild.
Um 8.600 kjósendur R-lista
eða um 25% heildarinnar, og um
1.300 kjósendur D-lista strik-
uðu út eða breyttu röð frambjóð-
enda. Lang stærsti hluti þessara
kjósenda strikaði út nafn Hrann-
ars B. Arnarssonar og/eða Helga
Hjörvar á R-lista. - FÞG
Kristin Blöndal, Steinunn 1/aldís Óskarsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir funduðu I fyrsta sinn i Ráðhúsinu í gær eftir
sveitarstjórnarkosningarnar um helgina. Eins og búast mátti við var glatt á hjalla, enda hélt R-listinn borginni. Hlaut 8
fulltrúa af 15. Mynd Hilmar
Jón Gunnar Ottósson: Með ólíkindum
að órökstuddum grunsemdum hafi
verið komið til fjölmiðla.
Maðuriim
er saklaus!
„Mér var af Magnúsi Jóhann-
essyni, ráðuneytisstjóra um-
hverfisráðuneytisins, falið að
kanna sannleiksgildi ásakana á
hendur starfsmanni Náttúru-
fræðistofnunar Islands um að
hann hefði án heimildar notað
gögn Landmælinga Islands í
vinnu fyrir Mál og menningu.
Það hef ég gert og niðurstaða
mín er að starfsmaðurinn er sak-
laus af þessum áburði. Þessar
grunsemdir eiga sér enga stoð,“
segir Jón Gunnar Ottósson, for-
stjóri Náttúrufræðistofnunar Is-
lands.
Eins og fram kom í Degi á
fimmtudag hefur stjórn Land-
mælinga kannað hvort tveír frá-
farandi starfsmenn stofnunar-
innar hafi brotið af sér með því
að taka með sér upplýsingar úr
stofnuninni til notkunar hjá
Máli og menningu (M&M).
Annar mannanna hefur hafið
störf hjá M&M við kortaútgáfu,
en hinn aðilinn, sem nú starfar
hjá Náttúrufræðistofnun, var
sagður hafa unnið \dð kortagerð-
ina £ þágu M&M. „Að mínu viti
hafa einhverjar annarlegar hvatir
legið að baki því þegar þessum
röngu upplýsingum er lekið í
fjölmiðla," segir Jón Gunnar.
- FÞG
Snúin staða
Guðlaugs
Guðlaugur Þór Þórðarson var í
þeirri sérkennilegu stöðu í gær
að gegna bæði stöðu þingmanns
á Alþingi fyrir Vesturland og
stöðu borgarfulltrúa fyrir D-list-
ann í Reykjavík. Guðlaugur Þór
hlaut kosningu um helgina í
borgarstjórn, sem 7. maður
Sjálfstæðisflokks í Reykjavík, en
hann er jafnframt fyrsti vara-
þingmaður Vestlendinga fyrir
Sjálfstæðisflokk, og þurfti að
leysa af á Alþingi í gær. — BÞ
W
Afgreiddir samdægurs
Venjulegir og
demantsskomir
trúlofunarhringar
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI • SÍMI 462 3524