Dagur - 26.05.1998, Blaðsíða 13

Dagur - 26.05.1998, Blaðsíða 13
ÞRIDJUDAGUR 26.MAÍ 1 9 9 8 - 13 _ : 1 f ÍÞRÓTTIR íslandsmeistaramir í íorvstu Frá leik Vals og Þróttar. Grindvíkingar saim færandi á móti Leiftri. ÍR-ingar óheppnir á móti hik- armeistunmum. Hvorki KR né Fram átti stig skHið fyrir frammistöðuna í Laugardalnum. Tíu Þróttarar náðu jöfnu gegn Val. Ekki verður sagt að knattspyrnan sem boðið var upp á í annarri umferð Landssímadeildarinnar hafi verið rismikil. Aðeins Eyja- menn og Grindvíkingar sýndu þann neista sem til þarf að inn- byrða sigur og Þróttarar sýndu sterka skaphöfn er þeir náðu að jafna gegn Val. Grindavík - Leiftur 3-1 Skotinn, Scott Ramsey var maður leiksins í Grindavík á laugardaginn. Hann virðist í mjög góðu formi og er lunkinn leikmaður. Auk þess að gera fyrsta mark heimamaniia alger- lega upp á sitt einsdæmi átti hann stóran þátt í öðru markinu, sem Sinica Kekic skoraði mínútu seinna Ramsey hirti boltann af sofandi miðjumönnum Leifturs og sendi á Kekic, sem afgreiddi boltann laglega í netið rétt fyrir leikhlé. OIi Stefán Flóventsson skoraði þriðja mark Grindvíkinga í byrjun síðari hálfleiks. Kári Steinn Reynisson svaraði fyrir Leiftur með marki stuttu fyrir leikslok. Lið Leifturs olli talsverðum vonbrigðum. Alla baráttu vantaði í liðið auk þess sem lítið gekk upp af því sem leikmennirnir reyndu. Leikmenn frá sex þjóð- löndum léku fyrir Leiftur í Grindavík og Páll Guðlaugsson, þjálfari liðsins, þarf greinilega meiri tíma til að slípa mannskap- inn saman. Menn höfðu á orði að Leiftursmenn ættu að leika undir fána Sameinuðu Þjóðanna og fá Kofi Annan sem liðsstjóra. ÍR - Keflavík 1 - 2 Keflvíkingar sýndu enga meist- aratakta er þeir heimsóttu nýliða deildarinnar, ÍR, á laugardaginn. í roki og rigningu lögðu þeir heimamenn, 1 - 2, og máttu kall- ast heppnir að halda heim með stigin þijú sem í boði voru. IR- ingar fengu ágætis færi til að jafna leikinn en þau runnu flest út í sandinn, mest vegna reynsluleysis þeirra. Ólafur Ing- ólfsson kom Keflvíkingum yfir seint í fyrri hálfleik og Gunnar Oddsson bætti við marki um miðjan seinni hálfleikinn áður en Kristján Brooks náði að minnka muninn fyrir heima- menn. IR-ingar horfa fram á erfitt sumar. Leikmannahópur- inn er tæplega meðalgóður og engin stjarna er í liðinu. Nái lið- ið þeirri samstöðu sem þarf og leggi sig 110% fram í hverjum Ieik getur það strítt „stærri Iiðun- um“ og jafnvek forðast fallið. Valur - Þróttur 3-3 Vilji menn sjá mörk þá elta menn Þróttara í sumar. í þeim tveim leikjum sem liðið hefur leikið hafa verið skoruð 12 mörk. Það segir nokkuð um varnarleik- inn sem er veikasta hlið Þróttar. I leiknum við Val sýndu Þrótt- arar að það er kraftur í Iiði þeirra. Eftir að Kristján Jónsson var rekinn af leikvelli komst Þróttur í 0 - 2 með mörkum frá Hreini Hringssyni og Tómasi Inga Tómassyni. Eftir það fór að sfga á ógæfuhliðina og Valur náði forystunni með þrem mörk- um í röð frá Sigurbirni Hreiðars- syni, Herði Má Magnússyni og Jóni Stefánssyni. Það hljóta því að hafa verið gífurleg vonbrigði Hlfðarenda-strákanna þegar gestir þeirra jöfnuðu í Iokin hirtu sitt annað stig í keppninni. ÍBV - ÍA 3-1 Eftir markalausan fyrri hálf- leik skiptu Islandsmeistararnir í Eyjum um gfr í leik sínum við Skagamenn. Þeir hreinlega völt- uðu yfir lánlausa gesti sína og skoruðu þrjú mörk á korters kafla. Jens Paeslack braut ísinn með góðu skoti sem lak inn, með hjálp Steingríms Jóhannessonar, og bætti öðru marki við skömmu áður en Steingrímur skoraði þriðja markið. Heimir Guðjóns- son minnkaði muninn fyrir Skagamenn á síðustu mínút- unni. ÍA er nú í nákvæmlega sömu stöðu og það var í á sama tíma í fyrra. Með eitt stig úr tveimur umferðum og tap fyrir ÍBV í Eyjum. Fram - KR 0-2 Það væri of sterkt til orða tek- ið að segja að leikur Fram og KR á Þjóðarleikvanginum á sunnu- dagskvöldið, hafi verið bragð daufur. Hann var algerlega bragðlaus. Fram-liðið var með eindæmum bitlaust og illa skipu- Iagt. Þrátt fyrir að hafa verið meira með boltann fékk liðið ekki eitt einasta marktækifæri og varla hálffæri. Ljósi punkturinn í leik þeirra var Freyr Karlsson, sem var sá eini sem virtist vita hvað hann ætlaði sér að gera. Þorbjörn Atli var frystur úti á kantinum langtímum saman þannig að hraði hans og tækni nýttist liðinu lítið. KR var lítið skárra. Munurinn var að þeir fengu færi og nýttu tvö þeirra. Þeim tókst þó að brenna af vítaspyrnu en það kom ekki að sök í þetta sinn. Andri Sigþórsson skoraði fyrst fallegt mark eftir varnarklúður Framara með góðu skoti yfir Ólaf Péturs- son, markvörð Fram, sem var í skógarferð í vítateignum. Seinna mark KR skoraði besti maður vallarins, Sigurður Örn Jónsson, í seinni hálfleik. Þetta var fyrsta deildarmark Sigurðar, sem nú lék á miðjunni í stað bakvarðar. Bæði þessi knattspyrnustór- veldi verða að taka sig verulega á ætli þau sér að ná viðunandi ár- angri í sumar. Það er ljóst að leið þessara liða getur ekki legið öðruvísi en upp á við. Allavega Fram sem situr eitt á botninum án stiga. - GÞÖ ■ SKOOUN r Erlingur Kristensson Dónaskapur Tveir leikir helgarinnar gátu ekki hafist á réttum tíma vegna þess að vellirnir voru ekki til- búnir til leiks. Á laugardaginn hófst leikur Vals og Þróttar tutt- ugu mínútum of seint vegna þess að merkingar vallarins voru rigndar niður. Leikur Víkings og KVA í fyrstu deildinni tafðist ámóta vegna þess að Víkings- völlurinn hafði verið færður til og gömlu merkingarnar höfðu ekki verið afmáðar sem skildi. Það var því hálf fáránleg sjón að sjá vallarstarfsmenn í Víkinni rölta um völlinn og reyna mála grasið grænt og hylja þannig eldri merkingarnar. Tafír af þessum völdum eru ólíðandi með öllu. Það er félög- unum til skammar að láta áhorf- endur hanga, í hundleiðinlegu veðri, bíðandi eftir að leikur geti hafist vegna þess að vallarstjór- arnir unnu ekki verk sín af þeirri samviskusemi sem ætlast er til. Valsmönnum var vorkunn þar sem merkingarnar höfðu rignt niður. En þeir hefðu átt að athuga stöðuna hálftímanum fyrr. Víkingar eiga sér engar málsbætur fyrir dónaskapinn. Slíkt má ekki endurtaka sig. Næstuleikir Onnur umferð meistaradeildar kvenna í knattspyrnu verður leikin í kvöld. Akranesvöllur ÍA - KR kl. 20.00. Ásvellir Haukar - Fjölnir kl. 20.00. Kópavogsvöllur Breiðabnk - ÍBV kl. 20.00. Valsvöllur Valur - Stjaman kl. 20.00. Þriðja umferð Landsímadeildarinnar hefst á miðvikudag. Miðvikudagur 27. maí KR-völlur KR - Grindavík kl. 20.00. Þriðja umferð 1. deildar karla hefst á miðvikudag. Miðvikudagur 27. maí Akureyrarvöllur Þór - FH U. 20.00. BorgarnesvöIIur Skallagrímur - HK kl. 20.00. Kópavogsvöllur BreiðabHk - Fylkir kl. 20.00. Stjömuvöllur Stjarnan - KA kl. 20.00. ÍÞRÓ TTAVIÐ TALIÐ T Sigurður Öm Jónsson Fyrsta markið orðið að veruleika. Skemmtilegt að leika á miðjunni. Áhug- inn áfóíboltanum kemur ogfer. Áhugmn keiiiur og fer - Hvernig var tilfinningin eftir að hafa skorað fyrsta tneistarafloklistnarkið? „Hún var mjög góð. Eg reynd- ar vissi ekki strax að ég hafði skorað því ég sá ekki boltann fara í netið. Ég átti ekki von á að vera einn í þessari stöðu og vissi ekkert hvert ég var að skjóta. En þegar ég sá strákana fagna leið mér mjög vel. Það er markmiðið að skora mörk og þegar það tekst er alltaf gaman." - Nú hefur þií lengst af leikið í vöminni. Hvernig fannst þér að leika d miðjunni í þessum leik? „Ég hafði leikið þrjá leiki á miðjunni í deildarbikarnum og líkaði það bara vel. Svo var ég settur í vörnina í fyrsta leiknum okkar á móti Val. Það er þrælgaman að vera í öllum lát- unum á miðjunni. Maður þarf að hafa miklu meira fyrir hlutunum þar, hlaupin eru mun meiri og það hentar mér mjög vel að vera í slagsmálunum. Mér finnst þetta miklu skemmtilegra." - Hvernig ketnur KR liðið til leiks núna eftir allar breyting- amar sem orðið hafa á leik- manna h ópnum ? „Mér líst mjög vel á Iiðið í dag. Þó við höfum misst marga frá því í fyrra hefur það ekki breytt mjög miklu. Við höfum ekki fengið marga nýja leikmenn þannig að við vitum að hverju við göngum. Nú kemur Guðmundur Bene- diktsson sterkur til leiks og það er ómetanlegt fyrir okkur. And- inn í hópnum er líka mjög góður enda er liðið í fínu formi. Það var mjög gott að fá frjálsíþróttaþjálf- arann, Kristján Harðarson til þess að taka okkur í gegn. Við erum búnir að æfa spretti og lyfta markvisst til að koma okkur í form. Hann er búinn að kenna okkur að hlaupa aftur og hans vinna á eftir að skila sér enn bet- ur þegar liðið hefur náð að slíp- ast betur saman. Besim Haxijad- in á eftir að koma til eftir meiðslin. Hann þarf smá tíma til að komast inn í leikskipulagið hjá okkur, þá verður hann góð- _ tt ur. - Hvemig fannst þér leikur- inn við Fram? „Mér fannst hann að mörgu leyti ágætur þó ég viti að hann hefur alls ekki verið nein skemmtun fyrir áhorfendur. Við Iétum Framarana dúlla sér með boltann en brutum þá svo niður í vörninni. Við lokuðum svæðun- um og kvöldum þá svolítið þannig. Sóknarleikur þeirra var nákvæmlega eins og Bjarni Þor- steinsson gat óskað sér heitast, að taka stóru framherjana í ná- vígum og skallaboltum þar sem hann er sterkastur. En það er að sjálfsögðu margt sem við þurfum að laga í leik okkar á næstunni." - Er það rétt að þú hafir aldrei haft mikinn áhuga fyrir fótbolta? „Ja, áhuginn kemur og fer. Hann er svo sannarlega til staðar núna. Strákarnir eru að grínast með það að hann hafi kannski komið of snemma þetta árið og að ég verði því hættur í júlí. En það verður ekki.“ - Þú varst valinn í landslið á síðasta ári. Kitlar það ekki metnaðinn að komast í lands- liðið? „ Jú, auðvitað kitlar það metn- aðinn. Guðjón Þórðarson velur landsliðið og þangað til ég verð valinn aftur mun ég leggja mig fram eins og ég get.“

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.