Dagur - 26.05.1998, Blaðsíða 2

Dagur - 26.05.1998, Blaðsíða 2
 2 -ÞRIÐJUDAGUR 26.MAÍ 1998 FRÉTTIR Ný reglugerð um sektir vegna brota á umferðarlögum þyngir ekki aðeins refsingar við ölvunar- og hraðakstri, heidur er þar að finna sektarákvæði við smæstu og stærstu brotum á umferðarreglum. Þyngri refsingar við olvuuar- og hraðakstri Ný og ítarleg reglugerð um sektir við umferðar- lagabrotum. Sektarupp- hæð frá 2-100 þúsund krónur. Ökuleyfissvipting og sekt vegna hrota á hvíldarákvæðum. I nýrri reglugerð dómsmálaráðuneytis- ins vegna umferðarlagabrota eru refs- ingar vegna aksturs undir áhrifum áfengis þyngdar nokkuð og sömuleiðis vegna hraðaksturs í þéttbýli. Þá er nýja reglugerðin mun ítarlegri auk þess sem viðurlög við ýmsum brotum hafa verið samræmd. 100 þúsund króna sekt Samkvæmt reglugerðinni geta sektir FRÉTTAVIÐ TALIÐ numið frá 2 þúsund krónum vegna vanbúinna reiðhjóla og allt að 100 þús- und krónum vegna brota og sviptingu ökuleyfis í annað sinn. Þá þyngjast sektir vegna aksturs undir áhrifum áfengis og getur numið allt að 60 þús- und krónum sé áfengismagn í efri mörkum og ökuleyfissvipting í eitt ár. Aður nam þessi sekt 47 þúsund krón- um. Sekt vegna ölvunaraksturs er þó aldrei minni en 30 þúsund krónur við fyrsta brot. Ef ökumenn virða t.d. ekki gangbrautarrétt er hægt að sekta þá um 9 þúsund krónur og um 5 þúsund krónur sé bil á milli ökutækja of stutt, svo dæmi sé tekið. Dýr hraðakstur Sem dæmi geta ökumenn fengið 8 þúsund króna sekt ef þeir aka t.d. á 45 km hraða þar sem hámarkshraði er 30 km. Þeir sem staðnir verða að því að aka á 91 km hraða þar sem hámarks- hraði er 50 km verða sviptir ökuleyfi í einn mánuð og sektaðir um 20 þúsund krónur. Þeir sem aka á allt að 111-120 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km verða sektaðir um 10 þúsund krón- ur og sviptir ökuleyfi um tíma. Hæsta sekt við hraðakstri getur numið allt að 80 þúsund krónum og sviptingu öku- leyfis í ár sé ekið hátt á 200 km hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. Þá geta ökumenn flutningabifreiða fengið allt að 50 þúsund króna sekt og misst ökuleyfið í 2 mánuði ef þeir gera ekki hlé frá akstri eftir 12 tíma sam- felldan akstur. -GRH Ótal getgátur eru uppi um hvers vegna Davíð Oddsson sé svoná pirraður eftir það sem hann kallar glæsilega frammistöðu flokksins á laugardag. Á sunnudag höfðu þeir sem horfðu á kosningasjón- var RÚV úr nægu að moða: Davíð strunsaði út að loknum sjónvarps- umræðum formanna án þess að kveðja né taka í útrétta hönd fréttastjórans; á sunnudagskvöld bættist enn við sagnasjóinn þegar hann hellti sér yfir fréttastofuna. Iþróttaáhugamaðurinn í pott- inum taldi skýringuna þá að hann hafi verið eft- ir sig vegna þess að hann hafi verið svo fullur - af gleði kvöldið áður... Aukaskýring á vanlíðan Davíðs er af öðrum toga: Hann viti að Sverrir Hermannsson sé á leið í framboð fýrir vestan næsta vor! Pottverjar eru gríðarlega áhuga- samir um stofnun hins nýja fyrir- tækis á sviði margmiölunar og af- þrcyingar sem Chase Manhattan haukinn stendur að baki ásamt fleirum. Nýja fýrirtækiö Norður- ljós hf. verður til með sameiningu Stöðvar 2, Skífunnar, Sýnar, Regn- bogans, Bylgjunnar, Íslandíu, Fjölvarps, Stúdíós Sýrlands og Stjömunnar. Eins og upptalningin ber með sér er hér um viðamikla sameiningu að ræða, og í pottinum sögðu menn að Jón Ólafsson væri að sameinast sjálfum sér.... Mikið er nú spáð í það hvað þeir sveitarstjómarmenn sem misstu meirihluta sinn í kosningunum fari að gera. Frá Akureyri heyrist nú að Jakob Bjömsson, sein brátt lætur af embættibæjarstjóra ef að líkum lætur, hafi fengið áskoranir frá flokksbræðram um að sækja xmi starf bæjarritara sein nú er laust hjá bænum. Jakob sé bæði vinsæll og gjörþekki bæjarkerfiö. Það gæti því reynst erfitt fýrir nýja meirihlutann að liafna honum - jafnvcl þótt þeir séu þegar bún- ir að lofa ö V Jakob Björns- son. Jón Ólafsson. HelgiH. Jóns- son fréttastjóri Sjónvarpsitis. Forsætisráðherra hefur gagnrýntfréttastofu sjón- varps harðlega fyrirhlut- drægni í hosningabarátt- unni. Helgi vísarþví á bug sem firru. Vegið að atvinnu- heiðri fréttamanna. Óvenjulegt af forsætisráðherra — Sjálfstæðismenn með forsætisráð- herra í broddi fylkingar hafa farið mik- inn og gagnrýnt ykkur á fréttastofunni fyrir að hafa dregið taum R-listans í kosn- ingabaráttunni. Hver eru þín viðbrögð? „Eg vísa öllu slíku á bug sem einberri firru og hef í svipinn ekki mikið annað um það að segja. Þetta er auðvitað algjör firra vegna þess að við drögum hvorki í þessu né öðru taum eins eða neins. Við vinnum okkar vinnu eins vel og óhlutdrægt og við megn- um og getum. Það er hinsvegar ekkert nýtt að menn séu að agnúast út í fréttastofuna. Eg er búinn að vera blaða- og fréttamaður í áratugi og er kominn með ansi þykkan skráp í þeim efnum. Það má kannski segja að þetta sé samt svona óvenjulangt gengið um þessar mundir." - Ætlar þú kannski að svara þessu? „Ja, ég hef nú verið að melta það með mér hvað ég ætti að gera í því efni. Þar sem veg- ið er að atvinnuheiðri starfsmanna Ríkisút- varpsins, þá hlýtur það öðru fremur að vera hlutverk yfirmanna stofnunarinnar að svara því. Forsætisráðherra hefur talað i þessu sambandi um ríldsQöImiðlana, þótt hann gagnrýni einkum fréttastofu Sjónvarpsins. Eins og þetta blasir við mér svona í fyrsta umgangi þá hlýtur þetta að snúa að æðstu ráðamönnum stofnunarinnar. - Munið þið ekki hafa frumkvæðið að því sjálfir á fréttastofunni? „Við bíðum og sjáum væntanlega hvað þeir segja svona til að byija með.“ - Var það eitthvað sérstakt sem þií hnaust um í þessari gagnrýni? „Mér fannst ])að bara vera endaleysa frá upphafi til enda og allt mjög óverðskuldað og ómaklegt. Eg vil hinsvegar ekki túlka þetta neitt. Fréttastofan vinnur eins sam- viskusamlega og hún frekast getur. Við höf- um unnið okkar verk eins vel og við höfum getað við þær kringumstæður sem okkur eru búnar.“ - Heldurðu að þú eigir eitthvað undir högg að sækja í þessari gagnrýni sjálfstæð- ismanna vegna þess að eiginkona þín er jafnframt borgarritari? „Eg verð nú að segja það eins og er að ég skil ekki af hverju það ætti að vera að draga hana inn í þessa umræðu." - Hvemig var stemmningin meðal for- ystumanna flokkanna fyrir útsendingu í sjónvarpssal á kosninganóttina? „Menn hafa kannski verið miskátir, ég veit það ekki svo glögglega. Eg varð ekki var við að hún væri öðruvísi en gengur og gerist. í það minnsta merkti ég það ekki. Það var líka mikið um að vera þessa nótt.“ - Gerðist eitthvað eftir útsendinguna? ,/EtIi menn hafi ekki haldið áfram að vera miskátir. Annars þurfti ég bara að snúa mér þegar í stað að öðrum verkefnum." - Sjálfstæðismenn liafa líka verið að wppnefna þig og kallað þig Helga Hjörvar fónsson. Hvað finnst þér um það? „Ég hef nú ekki heyrt það sjálfur en hef heyrt af því. Ég brosi nú bara að þessari gamansemi manna úti í bæ. H-ið stendur hinsvegar fyrir nafnið Hörður." - Er þessi gagnrýni kannski óvægnari en verið hefur? „Ég veit það ekki. Þetta kemur frá forsæt- isráðherranum og það er kannski óvenju- legt.“ -GRH

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.