Dagur - 26.05.1998, Blaðsíða 5
ÞRIÐJVDAGUR 2 6. MAÍ 199 8 - S
FRÉTTIR
Kraumar í kötl um
MeMhlutaviðræðiir í
fulluin gangi.
Víða um Iand kraumaði í pól-
itískum kötlum í gær og gærkvöld
þegar viðræður um meirihluta-
myndun flokkanna fóru fram. I
Reykjanesbæ var talið öruggt að
Sjálfstæðisflokkur og Framsókn-
arflokkur, sem mynduðu meiri-
hluta á sfðasta kjörtímabili,
héldu því áfram.
„Við áttum óformlegar viðræð-
ur á sunnudag um meirihluta-
myndun við J-listamenn og síðan
áttu framsóknarmenn og J-lista-
menn óformlegar viðræður. Eftir
það óskuðu framsóknarmenn
formlega eftir viðræðum við okk-
ur í fyrrinótt og við svöruðum þvf
jákvætt í morgun," sagði Ellert
Eiríksson, oddviti sjálfstæðis-
manna í Reykjanesbæ, í gærdag.
Hann sagði líkurnar á að sam-
starf flokkanna héldi áffam vera
meiri en minni en sagði það samt
ekki sjálfgefið að samningar
næðust. Fundur var boðaður um
málið í gærkvöld og sagðist Ellert
ekki viss um að gengið yrði frá
samkomulaginu á þeim fundi,
þótt það gæti hugsanlega gerst.
Ilafnarfjörður
„Við höfum verið í viðræðum við
framsóknarmenn og ætlum að
halda þeim viðræðum áfram í
kvöld. Eg geri fastlega ráð fyrir
því að við náum að ganga frá
samstarfssamningi í kvöld enda
bendir allt til þess að fullur vilji
sé til þess hjá báðum," sagði
Magnús Gunnarsson, oddviti
sjálfstæðismanna í Hafnarfirði,
um miðjan dag í gær.
Hann var spurður um bæjar-
stjóraefni, hvort það væri hann
sjálfur sem væri bæjarstjóra-
kandidat?
„Bæjarstjóramálið verður rætt
á fundinum í kvöld enda tel ég
eðlilegt að frá því verði gengið
strax. Það má segja að varðandi
það mál sé allt opið enda getum
við ekki fyrirfram hafnað neinu,“
sagði Magnús Gunnarsson.
Óhreytt
Þröstur Karls-
son, oddviti
framsóknar-
manna í Mos-
fellsbæ, sagði
allt útlit fyrir að
framsóknar-
menn og G-lista-
menn héldu
samstarfi sínu
áfram. Það væri
fullur vilji til
þess hjá báðum.
Hann sagði
Sjálfstæðisflokk-
inn hafa misst 2
menn 1994 og
flokkurinn hefði
enn tapað at-
kvæðum nú.
„Þetta teljum
við fullkomin
skilaboð til okkar
sem vorum í
meirihluta síð-
asta kjörtímabil,
um að halda því áfram og hjá
báðum er vilji fyrir því,“ sagði
Þröstur Karlsson.
Arborg
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
og Framsóknarflokks í Arborg
unnu i gær að myndun nýs meir-
hluta í bæjarstjórn. „Það var nið-
urstaða okkar að þetta kæmi best
út fyrir okkur. Málefnaágreining-
urinn milli þessara flokka er Iít-
ill,“ sagði Ingunn Guðmunds-
dóttir, oddviti sjálfstæðismanna í
Árborg, í samtali við Dag.
Síðustu tvö kjörtímabil hafa
sjálfstæðismenn á Selfossi átt í
meirihlutasamstarfi við K-Iista,
sameiginlegt framboð félags-
hyggjufólks. Með sameinuðu
sveitarfélagi, það er Selfossi,
Sandvíkurhreppi, Eyrarbakka og
Stokkseyri, er landslag í stjórn-
málum á svæðinu hinsvegar gjör-
breytt, segir Ingunn.
Að sögn Ingunnar er vilji til
þess að endurnýja starfssamning
við Karl Björnsson bæjarstjóra,
sem verið hefur bæjarstjóri á
Selfossi síðan 1986.
Nýskðpun á Akureyri
A Akureyri hafa sjálfstæðismenn
og Akureyrarlistinn staðið í
meirihlutaviðræðum frá því um
helgina og var reiknað með að
niðurstaða fengist í það mál í
dag. Kristján Þór Júlíusson, odd-
viti og bæjarstjóraefni sjálfstæð-
ismanna, lýsti því yfir strax eftir
kosningar að niðurstaðan væri
krafa um breytingu og að meiri-
hlutaviðræður við Akureyrarlist-
ann væru fyrsta skrefið í þá átt.
Asgeir Magnússon sagði í sam-
tali við Dag í gær að þeim hefði
þótt eðlilegast í ljósi kosningaúr-
slitanna að byrja á þessum
möguleika.
Framsókn
hætti við Bæj-
armálafélag
Framsóknar-
menn í Isafjarð-
arbæ höfðu farið
fram á meiri-
hlutaviðræður
við Bæjarmála-
félag en áður en
til fundarins
kom sneri B-Iist-
inn sér að D-
lista. Sá fundur
var í gærkvöld
og vegur stefna í
skólamálum þar
þungt auk þess
sem sjálfstæðis-
menn voru með
bæjarstjóraefni,
Halldór Hall-
dórsson, sem
ekki er víst að
framsóknarmenn séu hrifnir af
nema embætti forseta bæjar-
stjórnar komi í þeirra hlut.
Samstaöa og Sjálfstæðis-
flokkur í viöræðum
Forystumenn Samstöðu og Sjálf-
stæðisflokks funduðu í gærkvöld
um meirihluta í bæjarstjórn
Vesturbyggðar og sagði Haukur
Már Sigurðarson, oddviti Sam-
stöðu, að þeir mundu nýta vik-
una til að móta málefnaskrá ef
um framhald viðræðna yrði að
ræða. í stefnuskrám beggja
flokkanna var ákvæði um að aug-
lýst yrði eftir bæjarstjóra.
Krían hæði í viðræðum við
D- og B-lista
Listi Kríunnar á Hornafirði
ræddi bæði við D- og B-lista á
Hornafirði, þó í sitt hvoru lagi.
Ákveðið verður í dag að hvorum
listanum Kríumenn halla sér en
heldur er talið ólíklegt að B- og
D-listi fari í meirihlutaviðræður,
til þess skortir vilja hjá sjálfstæð-
ismönnum. 80% kjósenda valdi
nafnið Hornafjörður en Skafta-
fellsbyggð fékk 20%. Á Austur-
Héraði hófust samningaviðræð-
ur f gærkvöld milli B- og F-lista.
Samstarf í hurðarliðnum á
Norðurlandi
Á Blönduósi verður fundað í
kvöld um áframhald meirihluta-
samstarfs D- og H-lista og sama
er að segja á Dalvík, þar eru B-
og S-listi að ræða um framhald
meirihlutasamstarfs frá síðasta
kjörtímabili. I Skagafirði hefur
náðst samkomulag um meiri-
hlutasamstarf B- og D-Iista. For-
maður Héraðsráðs (bæjarráðs)
verður Herdís Á,. Sæmundar-
dóttir (B) en forseti Héraðsráðs
(bæjarstjórnar) Gísli Gunnars-
son (D). Núverandi bæjarstjóri
starfar a.m.k. til hausts en þá er
stefnt að því að auglýsa starfið.
Meirihlutasamstarf hefur ver-
ið undirritað á Siglufírði milli B-
og D-lista. Skarphéðinn Guð-
mundsson (B) verður forseti
bæjarstjórnar en Haukur Omars-
son (D) formaður bæjarráðs.
Samningur standa yfír um end-
urráðningu á núverandi bæjar-
stjóra, Guðmundi Guðlaugssyni.
I nýju sveitarfélagi, Húnaþingi,
funduðu D- og Q-listi í gærkvöld
um meirihlutasamstarf.
- s.dór/gg
Ekki var létt yfir Ásgeirí Magnússyni og Óla komma á kosninganótt þegar úrslit lágu fyrir á
Akureyri. Það breytirþví hins vegar ekki að Ásgeir hefur framttð meirihluta I bæjarstjóm I
höndum sér ásamt fulltrúum Sjálfstæðisflokks. Mynd sbs
11.000 hileigendiun
hótað kUupingu
Númeraklippingar vegna næst-
um 230 milljóna vanskila á bif-
reiðagjöldum og þungasköttum
ársins 1998 hófust í gær. „Við
sendum út um 11.000 bréf
vegna vanskila á bifreiðagjöldum
og þungaskatti fyrir árið 1998,“
sagði Grétar Guðmundsson,
deildarstjóri hjá tollstjóranum í
Reykjavík, spurður um fjölda
vanskilamanna. I bréfunum
væru menn minntir á vanskilin
og gefinn vikufrestur til
greiðslu, sem meirihlutinn jafn-
an notfærði sér. En þeir sem
gleymt hafa að greiða eiga á
hættu að koma að bílum sínum
númerslausum á næstunni. Toll-
stjóri ráðleggur þeim sem greiða
Vanskil þýða að ökumenn missa bilnúmer.
meðan á aðgerðum stendur að
hafa sýnilegt afrit af greiðslu-
kvittun í bifreiðinni.
Nær 450 milljóna vanskil
Höfuðstóll útistandandi bif-
reiðagjalda og þungaskatts er
samtals rúmlega 350 milljónir
króna og þar við bætast rösklega
90 milljónir vegna dráttarvaxta
og kostnaðar, þannig að hátt í
450 milljónir eru til innheimtu.
Þar af eru gjöld yfirstandandi árs
hátt í 230 milljónir, sem öll eru
komin á eindaga, en vanskil ár-
anna 1997 og þaðan af eldri hátt
í 220 milljónir. Grétar segir það
mistök hjá mörgum að leggja
ekki inn númer af bílum sem
þeir sjá fram á að nota ekki
næstu 3 mánuðina eða lengur af
ýmsum ástæðum. „Þessi ökutæki
hlaða á sig skuldum á meðan,“
sagði Grétar. Með því að leggja
inn númerin geti menn bæði
sparað sér bíiaskatta og trygging-
ar. - HEl
Ördeyða í grásleppuimi
Mun færri trillukarlar hafa gert
út á grásleppu á þessu vori en í
fyrra, en þá voru þeir um 400
talsins. Þeir sem ekki nýta sér
veiðiheimildina í ár telja margir
hverjir að ekki sé gerandi út á
þau verð og magn sem standa til
boða. Þær verksmiðjur sem hafa
keypt grásleppuhrogn undanfar-
in ár buðu um 41 þúsund krónur
fyrir tunnuna, eða 1125 þýsk
mörk, sem er mun lægra verð en
í fyrra, og hafa þeir sem gert hafa
út þurft að sætta sig við það verð
og gengið til samninga á þeim
nótum. I fyrra voru borguð 1700
þýsk mörk fyrir tunnuna eða um
62 þúsund krónur.
Auk þessa mega grásleppukarl-
ar ekki veiða nema um helming
þess magns sem leyft var að
veiða í fyrra, svo bæði fækkun og
aflasamdráttur veldur því að
heildarveiðin í ár hérlendis verð-
ur ekki nema um 7 þúsund tunn-
ur, sem yrði eitt hið lakasta frá
upphafi, bæði í magni og verði.
Veiðin var 13.400 tunnur í fyrra.
—GG
ReykjavOairbömin eimþá best
Samkvæmt hefð náðu skólabörn í Reykjavík bestum árangri á land-
inu í samræmdum prófum 10. bekkinga. Meðaleinkunn í íslensku,
stærðfræði og ensku er 5,4 á höfuðborgarsvæðinu en 5,3 í dönsku.
Lökust er útkoman á Vestíjörðum og Norðurlandi vestra.
700 milljóna kr. tap á
Lind
Landsbankinn tapaði verulegu fé vegna fjár-
mögnunarfyrirtækisins Lindar, eða um 700
milljónum króna, skv. frétt RUV í gærkvöld.
Þetta kom fram í svari viðskiptaráðherra eftir
að Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir lagði fram
fyrirspurn. Ásta segir að í svari viðskiptaráð-
herra komi fram að alvarlegir misbrestir hafi
verið í útlánum Lindar og verulegan hluta
ábyrgðar megi rekja til fyrrum framkvæmda-
stjórnar. Bankaráð hafi ennfremur ekki sætt
ábyrgð.
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir.
Hafnarkráin með leyfi
Hafnarkráin í Hafnarstræti hefur fengið fullt vínveitingaleyfi á ný, en
gegn skilyrðum um bættan aðbúnað. Þau fela meðal annars í sér að
aðstaða fyrir gesti verður opnuð í kjallara krárinnar.
Hávær mótmæli íbúa og fyrirtækjarekenda í nágrenninu komu Jm'
næstum til leiðar um tíma að Hafnarkráin missti leyfið fyrir fullt og
allt, en Haraldi Blöndal, lögmanni krárinnar, tókst að herja út leyfi
sem bundið var skilyrðum um opnunartíma. Nú hefur tekist að fá
fullt leyfi á ný, eftir að borgarstjórn, félagsmálaráð og lögreglan sam-
þykktu áætlanir um umbætur hjá kránni. - fþg