Dagur - 26.05.1998, Qupperneq 3

Dagur - 26.05.1998, Qupperneq 3
 ÞRIOJUDAGUR 26.MAJ 19 9 8 - 3 FRÉTTIR Útfhitningsverðmæti eykst um 2,5-3 milljarða Lagt til að þorskkvót- inn verði aiLkinn uin 32 þúsimd tonn. Skerðing í úthafs- rækju, ýsu og skar- kola. Þjóðarfram- leiðsla eykst um 0,5% og ríkissjóður fær 700-800 milljónir. „Þetta er auðvitað mikil búbót og mikil ánægja. Það er líka alveg augljóst að þorskstofninn er að koma sterkur upp vegna þeirra friðunaraðgerða sem gripið hef- ur verið til,“ segir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra. Þjóðarframleiðsla eykst um 0,5% Samkvæmt mati Þjóðhagsstofn- unar eykst útflutningsverðmæti sjávarafurða um 2,5-3 milljarða króna á næsta fiskveiðiári miðað við ráðgjöf Hafrannsóknastofn- unar um aflann á næsta fisk- veiðiári. Þetta eykur einnig þjóð- arframleiðsluna um 0,5% og eyk- ur tekjur ríkissjóðs um 700-800 milljónir króna. Sjávarútvegsráð- herra segir að búið sé að ráðstafa þessum tekjum og þær fari í að greiða niður skuldir. 15% aukning í þorski I ráðgjöf Hafrannsóknastofnun- ar er Iagt til að þorskkvóti næsta fiskveiðiárs, sem hefst 1. sept- ember nk., verði 250 þúsund tonn, eða 32 þúsund tonnum meira en sfðast. Þetta er um 15% aukning frá því í fyrra, en 60% aukning sé miðað við 155 þús- und tonna þorskkvóta árið 1995. Þetta er jafnframt þriðja árið í röð sem lagt er til að þorskkvót- inn verði aukinn. Þá er einnig lagt til að bráðabirgðakvótinn í Ioðnu verði 945 þúsund tonn. Búist er við að heildarloðnuafl- inn geti orðið allt að 1420 þús- und tonn á vertíðinni. Minni kvóti í úthafsrækju Af öðrum botnfisktegundum er kvóti næsta árs svo til óbreyttur að því undanskildu að ýsukvót- inn minnkar úr 40 þúsund tonn- um í 35 þúsund tonn. Af flatfisk- um minnkar skarkolakvótinn um 2 þúsund tonn en kvóti annarra tegunda er óbreyttur. Hinsvegar skerðist kvóti í úthafsrækju um 10 þúsund tonn, eða úr 70 þús- und tonnum í 60 þúsund tonn. Þessi staða í úthafsrækjunni er m.a. skýrð út frá vexti þorsk- stofnsins. Lagt er til að síldar- kvótinn minnki úr 100 þúsund tonnum í 90 þúsund tonn og humar úr 1500 tonnum í 1200. Aftur á móti er lagt til að hörpu- diskkvótinn verði aukinn um 1800 tonn. Síðast en ekki síst leggur Hafró til að aflahámark hrefnu verði 250 dýr og 100 langreyðar. Almenn ánægja Ráðgjöf Hafró var kynnt hags- munaaðilum í sjávarútvegi í gær og voru menn almennt ánægðir með það sem þar kom fram. I það minnsta var Kristján Ragn- arsson, formaður LIÚ, ánægður á svipinn eftir þann fund og sömuleiðis Helgi Laxdal, for- maður Vélstjórafélags Islands. Þetta var jafnframt í síðasta sinn sem dr. Jakob Jakobsson, fiski- fræðingur og forstjóri Hafró, kynnti þessa skýrslu um nytja- stofna á Islandsmiðum, en hann Iætur af störfum í ár. - GRH Hraiiiiar vílíur sæti Hraimar sest ekki í borgarstjóm eða í nefndir á meðan skattamál hans em enn til skoðunar. Að líkindum tekur Pétur Jónsson sæti hans. Hrannar B. Arnarsson borgar- fulltrúi Reykjavíkurlistans hefur ákveðið að gegna ekki opinber- um trúnaðarstörfum á vegum Reykjavíkurlistans og taka ekki sæti í borgarstjórn „fyrr en það mál sem til meðferðar er hjá skattyfirvöldum hefur fengið far- sælan endi,“ eins og segir í fréttatilkynningu frá Hrannari. „Ég er mjög sáttur með að taka þessa ákvörðun, þótt ég hefði kosið að vera í þeirri stöðu að ganga strax glaðbeittur til starfa í borgarstjórn. En framhjá því verður ekki horft að ófrægingar- herferð sjálfstæðismanna sverti Hrannar B. Amarsson: Mér finnst ekki við hæfi að hunsa þær fjöimörgu útstrikanir sem áttu sér stað. nafn mitt og mér finnst ekki við hæfi að hunsa þær fjölmörgu út- strikanir sem áttu sér stað. Þetta er má segja nýr mælikvarði í ís- lenskum stjórnmálum og ég tel það eina rétta í stöðunni að ég víki til hliðar um stund. Ég vil ekki starfa í skjóli góðra starfa félaga minna, heldur á eigin for- sendum og til þess þarf ég að endurvinna það traust sem nauðsynlegt er að ríki,“ segir Hrannar í samtali við Dag. I fréttatilkynningu Hrannars kemur fram að Ingibjörg Sólrún og aðrir á R-listanum hafi í kosn- ingabaráttunni aftekið að Hrannar viki af Iista í kosninga- baráttunni. Hrannar segist ekki gera sér grein fyrir hve langur tími geti liðið þar til hans mál eru komin á hreint, en segist hafa þrýst á um að rannsókn sinna skatta- mála taki ekki óþarflega langan tíma. Þótt Anna Geirsdóttir læknir skipi 9. sætið er hún ekki endi- Iega sá varamaður sem færist upp sem aðalmaður. Líklegra er talið að það verði næsti krati sem leysir Hrannar af hólmi eða Pét- ur Jónsson. - FÞG Sj ónvarpsgreiðslumar leyndarmál Ríkisútvarpið fékk á endanum réttinn til að sýna frá íslensku knattspyrnunni. Frá þessu var gengið, við þýska rétthafann UFA, í gær. RUV framselur hluta réttarins til sjónvarpsstöðvarinn- ar Sýnar sem mun hefja beinar útsendingar frá Landssímadeild- inni strax í næstu umferð. Með samkomulaginu hefur verið gengið frá sýningarrétti þessara aðila á fótboltanum, Landssíma- deildinni og Coca Cola bikarn- um, til ársins 2001. Ekki fékkst uppgefið hvað stöðvarnar borga fyrir sjónvarpsréttindin en að sögn Eggerts Magnússonar var það sanngjarnt verð. Fréttastofa Sjónvarps sagði í gær að upphæðin næmi 15-20 milljónum króna. A blaðamannafundi í gær sagði Ingólfur Hannesson að skynsem- in hefði ráðið með þessari lend- ingu málsins. Þannig væri tryggt að fótboltinn bærist flestum landsmönnum í gegnum sjón- varpið. - GÞÖ Jón Ólafsson mvndar fjölmiðlarisa Jón Olafsson og félagar í íslenska útvarpsfélaginu og tengdum fyrir- tækjum hafa ákveðið að sameina Stöð 2, Bylgjuna, Sýn, Regnbog- ann, Skífuna, Islandia, Fjölvarpið, Stúdíó Sýrland og Stjörnuna í eitt öflugt fjölmiðlunar- og afþreyingarfyrirtæki undir nafninu Norður- ljós hf. Velta þessara fyrirtækja var upp á tæplega fjóra milljarða króna og starfsmenn um 350, sem þýðir að fyrirtækið er í námunda við að vera í 30. sæti yfir veltuhæstu fyrirtæki landsins. Að sögn Ragnars Birgissonar hjá Skífunni eru breytingarnar ekki frágengnar og ennfremur ófrágengið með breytingar á eignarhlutum. Þar liggur þó fyrir að Jón Ólafsson og Sigurjón Sighvatsson verða lang stærstu einstöku eigendumir og er þá reiknað með því að eftir gangi að Jón kaupi hluti þeirra Jóhanns J. Ólafssonar, Haralds Har- aldssonar í Andra, Guðjóns Oddssonar í Litaveri og Gunnars Ólafs- sonar í Miðnesi. Chase Manhattan bankinn endurfjármagnar Norð- urljós hf., en eignarhlutur bankans mun þó ekki aukast. —FÞG Þingstörf hófust í gær Alþingismenn komu saman í þinghúsinu í gær eftir nokkurt hlé sem gert var vegna sveitar- stjórnarkosninganna. Sighvat- ur Björgvinsson formaður jafn- aðarmanna og Páll Pétursson félagsmálaráðherra virtust báð- ir ánægðir með kosningaúrslit- in um helgina. Sérfræðingareikniiigar vandlega skoðaðir í TR Endurgreiðslur á kostnaði fyrir þjónustu sérfræðilækna, meðan þeir voru án samninga við Tryggingastofnun ríkisins, bíða eftir því að ný- leg lög þar um birtist í Stjórnartíðindum. Reikningar sem stofnun- inni hafa borist nú þegar eru komnir í vinnslu, að sögn Kristjáns Guðjónssonar, deildarstjóra Tryggingastofnunar. Reikningana segir hann fara í vandlega athugun. Eitthvað af þeim verði sjálfsagt end- ursent, m.a. vegna ónógra upplýsinga. En greiðslur vegna annarra reikninga verði sendar út eftir að þeir hafi hlotið samþykki og lögin birt. -HEl

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.