Dagur - 29.05.1998, Blaðsíða 6

Dagur - 29.05.1998, Blaðsíða 6
22-FÖSTUDAGUR 29. MAÍ 1998 Xk^nr LIF OG FJOR Tolli sýnir lands- lag Listamaður- inn ToIIi ætlar að sýna Iands- lag og fólk í Gallerí Horn- inu og hefst sýningin á morgun. Myndirnar eru unnar bæði með vatnslitum og olíu. „Eg held að einkenni þessarar sýningar fyrst og fremst sé Iitróf jarðar,“ segir Tolli. „Litaskalinn er vel spenntur og myndirnar Ieysast dálítið upp í abstrakt litfæði." Sýningin stendur til 18. júní. Blað úr eina handriti Þorlákstida. (Ljósm. Jóhanna Úlafsdóttir, SAM) Eina handrit Þorlákstíða til sýnis Á hvítasunnudag 31. maí Id. 16 verður opnuð ný handritasýning í Stofnun Árna Magnússonar í Árnagarði við Suðurgötu. Sýningin ber yfirskriftina „Þorlákstíðir og fleiri handrit tengd Skálholti" og er Iiður í Listahátíð í Reykjavík. Heiðurssess á sýning- unni skipar eina handrit Þorlákstíða sem til er, AM 241 a II fol. frá því um 1400. Málverk og sknLpthrar Á morgun kl. 15.00 verður opnuð í Gerðar- safni í Kópavogi sýn- ing á verkum eftir Vigni Jóhannsson, þar sem hann sýnir hefðbundin mál- verk úr íslenskri náttúru, sem fjalla um tengsl manns- ins við vatnið og landið. Sum verka hans eru gríðarstór, allt að þremur metr- um á breidd og má sjá hluta af einu þeirra á myndinni. Einnig sýnir hann skúlptúra. Sýninging stendur til 15. júní og er opin alla daga frá kl. 12-18, nema mánudaga. ■ HUflfl ER Á SEYfll? Markúsaguðspjall í Bústaðakirkju Sýning Leikfélags Akur- eyrar á Markúsarguð- spjalli verður flutt í Bú- staðakirkju nú um hvíta- sunnuhelgina. Sýning þessi var frumsýnt um páskana á Akureyri og fékk hún mjög góðar við- tökur. Sýningar verða í Bústaðakirkju á hvíta- sunnudag kl. 20.00 og annan í hvítasunnu kl. 20.00. Miðasala verður við innganginn, en unnt er að panta miða i Bú- staðakirkju í síma 553- 8500 og hjá Leikfélagi Akureyrar í síma 462 - 1400. NORÐURLAND Nonnahús opnað Mánudaginn 1. júní verður Nonna- hús opnaö og verður það opið dag- lega kl. 10.00-17.00 til 1. september. Fjörutíu og eitt ár er liðið síðan Zontaklúbbur Akureyrar stofnaði minningarsafn um rithöfundinn og jesúítaprestinn Jón Sveinsson, Nonna, sem þekktur er um allan heim fyrir frásagnir af ævintýrum sín- um á íslandi. Zontaklúbbur Akureyrar hefur látið merkja gönguleið frá Nonnahúsi upp á Höfðann og að „Nonnasteini". Kort ásamt leiðarlýsingu fæst í Nonnahúsi og er göngugörpum að kostnaðar- lausu. Kaffi Akureyri Diskótek á föstudagskvöld. Sigga Beinteins og Grétar Örvarsson leika á laugardags- og sunnudagskvöld. Lúðrasveit Verkalýðsins Lúðrasveit verkalýðsins verður á Ak- ureyri um hvítasunnuhelgina. Laug- ardaginn 30. maí marserar sveitin um miðbæ Akureyrár og heldur síð- an tónleika á Ráðhústorginu þar sem flutt verður íslensk tónlist. Á hvítasunnudag heldur sveitin tón- leika í Akureyrarkirkju. Tónleikarnir hefjast kl. 17.00. Flutt verða innlend og erlend verk, m.a. mars eftir Árna Björnsson, rússneskur sjóliðadans eftir Reinhold Gliere, Unter der Ad- mirals Flagge eftir Fugic, syrpa af lögum úr My fair lady eftir Frederick Loewe, Sir Duke eftir Stevie Wonder, titillagið úr Simpsons þáttunum og marsar eftir John Philip Sousa. Stjórnandi sveitarinnar er Tryggvi M. Baldvinsson. Safnasafnið á Svaibarðsströnd Á hvítasunnudag verður opnuð sýn- ing á verkum eftir Helga Þorgils Frið- jónsson á fyrstu hæð Safnasafnsins á Svalbarðsströnd. Á sýningunni verða olíumálaðir skúlptúrar úr leir, skissur fyrir gosbrunna og verk sam- tengd fjöldaframleiddum skrautstytt- um, einnig teikningar og eldri verk úr ýmsum efnum. Sýning Helga Þorgils verður, eins og aðrar sýningar Safnasafnsins, opin daglega frá kl. 11.00 til 18.00. Sýningin stendur til 5. júlí. Vorkoma Lionsklúbbs Dalvíkur Dagana 30. maí til 1. júni heldur Lionsklúbbur Dalvíkur „Vorkomu" í samvinnu við Vigni Hallgrímsson og Sigurjón Kristjánsson. Setningarat- höfn verður í Dalvíkurskóla á laugar- dag kl. 13.00 þar sem Arngrímur Baldursson, formaður vorkomu- nefndar, og Haraldur Ingi Haralds- son, forstöðumaður Listasafns Akur- eyrar, flytja ávörp. Valva Gísladóttir flytur tónlist. Sýning verður á verkum Eiríks Smith í Dalvíkurskóla (Gamla skóla). Eiríkur er eitt af stóru nöfnunum í sögu ís- lenskrar myndlistar. Einnig sýna nokkrir heimamenn verk sín, þau Valva Gísladóttir, Steingrímur Þor- steinsson, Halldór Gunnlaugsson og Hjörleifur Hjartarson. Anton Antonsson á Gilsá í Eyjafjarð- arsveit sýnir tréskurðarverk. Stórsýningar verða í Gallerý Iðju. Sýningarnar verða opnar á laugar- dag kl. 13-20, sunnudag kl. 13-20 og mánudag kl. 13-18. Sýning Eiríks Smith verður opin til 8. júní. Laugardaginn 30. maí verða tónleik- ar í Dalvíkurkirkju, þar sem fram kemur Húsabakkakórinn Góðir háls- ar. Stjórnandi er Rósa Kristín Bald- ursdóttir. Fjölskyldudagur knatt- spyrnudeildar KA Á laugardaginn kl. 14.00 verður haldinn fjölskyldudagur knattspyrnu- deildar KA. Forráðamenn deildar, meistaraflokksleikmenn og yngri- flokka leikmenn munu koma saman. „Stoke-bræðurnir“ Lárus Orri og Kristján Sigurðssynir verða á staðn- um, nýkomnir frá Englandi. Boðið verður uþpá grillmat, brauð, drykki og kex. Farið verður í leiki. SUDURLAND Körfuskreytinganámskeið Helgina 6. og 7. júní verður haldið körfuskreytinganámskeið fyrir áhugafólk í Garðyrkjuskóla ríkisins að Reykjum í Ölfusi. Námskeiðið stendur kl. 10.00-16.00 báða dag- ana. Leiðbeinendur verða Uffe Bals- lev blómaskreytingameistari og Mar- grét Guðnadóttir sem er sérfræðing- ur í öllu sem viðkemur körfugerð. Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu skólans. AUSTURLAND Sumartónleikar á Seyðisfirði í sumar verður gerð tilraun til að bjóða upp á röð tónleika á miðviku- dagskvöldum í Seyðisfjarðarkirkju. Skipuleggjandi er Muff Worden af- leysingaorganisti á staðnum og henni til aðstoðar er Sigurður Jóns- son. Á tónleikunum miðvikudaginn 3. júní verður Muff Worden með ein- söngstónleika með skoskri þjóð- lagatónlist, en auk þess koma fram Zbigniiew Zuchowicz, Keith Reed, Kirkjukór Seyðisfjarðar og fleiri. Niðja^og^^úðarda^^^ VESTURLAND Helgina 11. og 12. júlí ætla niðjar Boga Sigurðssonar bónda og kaup- manns í Búðardal að koma saman þar. Stefnt er að því að snæða há- degisverð í Dalabúð á iaugardegin- um. Hlýtt verður á messu hjá sókn- arprestinum í Hjarðarholtskirkju kl. 14.00 á sunnudeginum og síðdegis- kaffi drukkið á Edduhótelinu á Laug- um í Sælingsdal á eftir. Nánari upp- lýsingar og skráning: Gunnar Björns- son s. 456 7672, Karl Ágúst Úlfsson s. 587 5777, Ólafur Gunnarsson s. 567 2353, Ragnar Þorsteinsson s. 554 5067 og Ragnheiður Sigurðar- dóttir s. 553 5571. Undir Jökli Mannræktarmiðstöðin Snæfellsás býður upp á aevintýraríka hvíta- sunnuhelgi undir Jökli. Farið verður með gesti um áhugaverða staði á Útnesinu og jökullinn skoðaður á sleða og skíðum. Kvöldvökur. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Snegla listhús Það verða tvær kynningar hjá Sneglu listhúsi dagana 29. maí til 19. júní. Fyrst skal nefna kynningu á silki- slæðum sem eru handmálaðar og þrykktar og eru engar tvær eins. Slæðusýning Sneglu er orðin árviss vorsýning listhússins og tilhlökkun- arefni þeim er sækja. Einnig verður kynning á pastelmynd- um Jónu Sigriðar Jónsdóttur í glugg- um Sneglu, en Jóna lauk námi frá Textíldeild MHÍ árið 1985. Opið er mánudaga til föstudaga kl. 12-18 og laugardaga kl. 11-15. Saga norðurslóða Fjölþjóðleg ráðstefna um sögu norð- urslóða verður haldin í Odda, húsi Háskóla íslands, dagana 18.-21. júní nk. Að ráðstefnunni standa Sagn- fræðistofnun Háskólans og utanrík- isráðuneytið í samvinnu við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar. Á áttunda tug fræðimanna frá þrett- án löndum flytja erindi á ráðstefn- unni. Meginefnin eru þrjú: miðstjórn- arvald og jaðarsvæði, menning inn- fæddra og áhrif að utan, og land- búnaður. Þátttökugjald er 6.000,- krónur fari skráning fram fyrir 1. júní Ofi PIOIMEEIT The Art of Entertainment ,KK &) Ptofveen , * « CB j <E9 !T**-rr DEH 345/útvarp og geislaspilarí • 4x35w magnari • RDS • Stafrænt útvarp • 18 stöðva minni • BSM • Loudness • Framhlið er hægt að taka úr tækinu • Aðskilin bassi/diskant • RCA útgangur • Klukka r»iorvieeR The Art of Entertainment KEH 1700/útvarp og segulbandstæki • 4x22w magnari • Stafrænt útvarp • 24 stöðva minni • BSM • Loudness • Framhlið er hægt að taka úr tækinu • Aðskilin bassi/diskant KEH 2700/útvarp og segulbandstæki • 4x35w magnari • Stafrænt útvarp • 18 stöðva minni • RDS • BSM • Loudness • Framhlið er hægt að taka úr tækinu • Aðskilin bassi/diskant • RCA útgangur • Klukka ffj&ipfi ytn í&fi& Qtfý Vesturland: Málningarþjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga, Borgarnesi.Blómsturvellir, Hellissandi. Guöni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Asubúö.Búöardal Vestfiröir: Geirseyrarbúöin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafiröi. Noröurland: Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blðnduósi. Verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Austurland: Kf. Hóraösbúa, Egilsstööum. Suöurland: Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Geisli.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn.Keflavlk. Rafborg, Grindavík. ______________________________________________________________________________________

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.