Dagur - 07.07.1998, Síða 1
/ safni Jóns Kr. Ólafsson á Bíldudal má finna hundruð hljómplatna, úrklippna, Ijósmynda og veggspjalda sem tengjast íslenskri tónlistarsögu. Hér
heldur Jón á veggspjaldi frá miðjum sjöunda áratugnum þar sem auglýst er á dansleik „... hin landsfræga hljómsveit Svavars Gests og söngvarinn
vinsæli Ragnar Bjarnason." mynd: sbs
Jón Kr. Ólafsson á Bíldudal á
eitt merkasta safn sem til er
um dægurtónlist á íslandi.
Frægastur er Jón fyrir lagið
Ég erfrjáls, sem hann söng
fyrir 30 árum - og enn er
hann syngjandi.
Ohætt er að skipa Jóni Kr. Olafssyni
söngvara á Bíldudal í hóp einna sérstæð-
ustu tónlistarmanna landsins. I þessu litla
kauptúni vestur við Arnarfjörð hefur hann
alið allan sinn aldur, en engu að síður hef-
ur hann skipað sér í hóp tónlistarmanna á
landsvísu. En það er meira en að Jónsyngi
sjálfur lög og Ijóð, dægurlög jafnt sem
sálma, því í húsi hans Reynimel við
Tjarnarbraut er varðveitt eitt merkasta
safn um dægurtónlist á Islandi sem finna
má. Það er að segja þá tónlist sem við lýði
var áður en Bítlarnir komu og breyttu tón-
list heimsins og kannski heiminum líka.
Raggi, Vilhjálmur, Clausen og
Morthens
„Við getum sagt að ég varðveiti tónlist
minnar kynslóðar og þær menningarminj-
ar sem henni fylgja. Þar er ég að tala um
tónlist þess fólks sem nú er komið að sex-
tugu,“ sagði Jón Kr. Ólafsson þegar blaða-
maður Dags heimsótti hann á dögunum.
„Elvis Presley var minn maður og ég dáði
hann. Eg náði hinsvegar aldrei Bítlunum
og það var gott þegar Svavar vinur minn
Gests sagði að Bítlarnir væru bóla sem
myndu springa innan skamms. Sú kenn-
ing gekk að vísu ekki upp, en hún er góð
fyrir því.“
Einmitt þessi orð Jóns, að Bítlarnir hafi
aldrei náð að fanga hug hans og hjarta,
endurspeglast líka í hinu sérstæða safni
hans sem hefur að geyma hundruð platna,
ljósmynda, veggspjalda, blaðaúrklippur og
fleira slíkt. Þeir íslensku tónlistarmenn
sem skipa öndvegi í þessu safni eru þeir
sem komu fyrir Bítlabyltinguna, til dæmis
Ragnar Bjarnason, Alfreð Clausen, Erfa
Þorsteinsdóttir, Sigurður hestamaður
Ólafsson og Þuríður dóttir hans, Vilhjálm-
ur og Ellý Vilhjálms, Haukur Morthens og
fleiri mætti nefna.
Mclódiskar ballöður
Alla tíð hefur Jón verið syngjandi. Vestur á
Bíldudal starfaði hann lengi með
kirkjukórnum og oft var hann einsöngvari
í sálmasöng í kirkjunni. En líklega ber
nafn Jóns á tónlistarsviðinu þegar nefnd
er Bfldudalssveitin Facon sem starfaði
nærfellt allan sjöunda áratuginn. Arið
1969 gáfu S.G. hljómplötur út hljómplötu
með sveitinni og óhætt er að segja að strax
hafi hitt í mark lagið Ég er frjáls sem Jón
söng, en Iagið er eftir Pétur Bjarnason,
fyrrverandi varaþingmann og nú fræðslu-
stjóra Vestfjarða.
„Mér finnst lagið Ég er frjáls ekki endi-
lega það besta sem ég hef sungið. Sjálfur
tel ég mig vera melódískan ballöðusöngv-
ara, enda er skemmtilegast að syngja
þannig lög,“ segir Jón Kr. Ólafsson, sem
enn er syngjandi. A síðasta ári gaf hann út
plötuna Kvöldkyrrð sem hefur að geyma
mörg hans bestu laga og af nægu er að
taka þar. Sérstaklega heldur hann uppá
eitt lag þar á plötunni, Kvöldkyrrð, sem er
eftir Steingrím heitinn Sigfússon, sem
lengi var organisti á Patreksfirði.
Lítið safn í kjallaranum
„Ragnar vinur minn Bjarnason hefur nú
aldrei verið mikið að geyma þá muni sem
tengjast tónlistarferli hans. Hann á ekki
einu sinni plöturnar með sjálfum sér,“
segir Jón Kr. Ólafsson, sem á reyndar
flestar plötur sem með Ragnari hafa kom-
ið og flestum öðrum tónlistarmönnum af
hans kynslóð. Má raunar segja að heimili
Jóns sé eitt merkasta menningarsafn
Iandsins sem þyrfti að vera fleirum að-
gengilegt. Og það stendur einmitt til að
gera.
„Já, ég nenni ekki að leigja nema til
haustsins þessum Pólverjum sem eru hér
í kjallaranum hjá mér. Ég er að spá í að út-
búa niðri einmitt lítið safn þar sem fólk
getur kynnt sér merka tónlistarsögu okkar
Islendinga og í sögunni sjálfri og eins í
safninu verður af nægu að taka,“ segir Jón
Kr. Ólafsson. -SBS.
Stæiðii: 13'
14'
Stæiðii: 14'
Stæiðii: 14'
15'
16'
1J'
Stæiðii: 13'
14'
IUNIROYAL ~ —
■ * i"-'“i I h l Sterk og
vönduð jeppadekk fyrir
íslenskar aðstæður
Gámmívinnustofan ehf.
Réttarhélsi 2, simi: 587 5588
Skipholti 35. sími: 5531055
Þjónustuaðilar um land allt.
+-