Dagur - 07.07.1998, Blaðsíða 4
20-ÞRIÐJUDAGUK 7. JÚLÍ 1998
LÍFIÐ t LANDINU
Nú þegar síðasti hluti
HM í Frakklandi fer í
hönd bætast enn við nýir
knattspyrnuunnendur
framan við tækin, nýir
HM-horfendur; fólldð
sem horfir aldrei á fót-
bolta nema um sé að
ræða úrslitaleik í Heims-
meistarakeppni. Þetta er
einmitt sama fólkið sem
aldrei hugsar um pólitík
nema á kosningadag, sem
aldrei fer úr bænum
nema til að skoða stór eldgos. Jæja. En til
þess að hjálpa þessu fólki (einkum konur
og aldraðir samkynhneigðir bændur) að
skilja leikinn og lýsingu íþróttafrétta-
manna og kommentatora fylgja hér út-
skýringar á nokkrum algengustu frösun-
um í lýsingum knattspyrnuleikja.
„Mexíkóar eru greinilega að reyna að
komast inn í leikinn..."
„Meðal suðrænna þjóða bregður oft svo
við er leikur æsist að varamenn spretta
upp af bekknum og reyna að hlaupa inn á
völlinn, oft margir saman. Yfirleitt kemur
það í hlut vallarstarfsmanna að halda
þeim utan vallar en í þessari Heimsmeist-
arakeppni hefur franska óeirðalögreglan
einnig þurft að beita sér.
„hefur ekki sést í leiknum til
þessa...“
„Sóknarmenn stærri þjóða, einkum
frægir og ríkir leikmenn, eiga það til að
bregða sér frá í miðjum leik ef þeim leið-
ist þófið og fá ekki boltann. Þeir skreppa
þá gjaman uppí stúku og spjalla við ná-
komna ættingja og kærustur. Leikmenn
Brasilfu eiga það jafnvel til að bregða sér
út af leikvangi í snöggan kaffibolla hand-
an götunnar. Fræg er sagan af Jazinho
sem eitt sinn lék fyrir lið sitt Flamengo f
Brasilísku bikarkeppninni gegn smáu liði
af landsbyggðinni. Jazinho skoraði gott
mark snemma í fyrri hálfleik en brá sér
síðan frá til að ganga frá sölu á bíl sínum.
Kaupandinn reiddist hinsvegar þegar í
ljós kom að sóknarmaðurinn hafði logið
til um árgerð bifreiðarinnar. Snörp átök
urðu á milii þeirra sem enduðu með því
að Jazinho puttabrotnaði. Hann tafðist
þvf lengur en ella og loks þegar hann
kom aftur með Ieigubfl af sjúkrahúsinu
var staðan orðin 3-1 fyrir gestina og ein-
ungis stundar^órðungur eftir af leiknum.
Allt fór þó vel að lokum. Jazinho gerði
nokkur lagleg skyndimörk og Flamengo
fór áfram í bikarnum.
„venjulegum Ieiktíma er Iokið...“
Að loknum venjulegum leiktíma tekur
við svokallaður „óvenjulegur Ieiktími".
„þeir láta aftasta manninn liggja
mjög aftarlega...“
Þetta er algengt bragð hinna smærri
þjóða í knattspyrnuheiminum. Einn varn-
armanna er látinn Iiggja rétt framan við
vítateig. Hvort tveggja dregur þetta úr
UMBUDA-
LAUST
Hallgnímur
Helgason
skrifar
Nokkrar
útskýr-
ingar
fyrir
nýjaHM
horf-
endur
einbeitingu sóknarmanna er þeir nálgast
vítateiginn og sjá framundan sér liggjandi
mann, og eins vill hann oft þvælast fyrir
bolta og sóknarmönnum.
„hann les leikinn mjög vel...“
I leikhléi eru gefnir út litlir og snögg-
prentaðir bæklingar um gang leiksins fyr-
ir leikmenn að lesa áður en þeir koma
aftur inná. Að sjálfsögðu eru menn mis-
munandi duglegir að lesa leikinn í hléi og
reyndar kjósa margir leikmenn að koma
algjörlega ólesnir aftur til leiks.
„hann er sannarlega betri en enginn í
marki Argentínumanna....“
Sum lið kjósa að leika með tólf útileik-
menn og hafa þannig engan markvörð.
Onnur lið kjósa hinsvegar að fórna einum
leikmanna sinna til að veija markið og
takist honum vel upp er gjarna sagt að
það sé betra að hafa hann en engan í
markinu.
„nei, þessi bolti er of lengi á Ieið-
inni...“
Samkvæmt nýjum reglum FIFA eru
átta knettir í umferð f hverjum Ieik, til að
grípa til ef bolta er skotið langt upp í
stæði. Þetta er eitt af helstu framlögum
okkar Islendinga til knattspyrnunnar,
hugmynd sem varð til og þróaðist uppá
Skaga þar sem knötturinn fór oft á haf út
í langspyrnum Ólafs Þórðarsonar. Tafðist
leikurinn þá oft í tíu mínútur á meðan
synt var út eftir knettinum, þar til ungur
vallarstarfsmaður á Langasandi kom með
þá snjöllu hugmynd að setja annan bolta
í leik. Til að auka spennu í leiknum eru
hinir átta knettir hafðir mis-þungir. Varn-
armenn eiga það til að smygía þyngsta
knettinum í leik rétt fyrir hornspyrnur,
aukaspyrnur og aðrar fyrirgjafir utan af
kanti.
„þýska liðið leikur rólega og reynir
að svæfa andstæðinginn...“
Þetta er gamalt herbragð sem einkum
Þjóðverjar og Italir beita. Telja margir að
rekja megi þá taktík til fasismans sem
sterkastur var í þessum löndum. Aðferðin
felst í því að öftustu menn liðsins láta
knöttinn dingla á milli sín fyrir augum
mótherjanna á mjög dáleiðandi hátt. A
sama tíma syngja sóknarmenn þýska liðs-
ins gamla þýska vöggusöngva. (I þessu
samhengi er gaman að geta þess að nú-
verandi sóknardúett Þjóðverja, Klins-
mann og Bierhoff, þykir einn besti dúett-
inn sem sungið hefur fyrir Þýskaland frá
því þeir félagar Múller og Breitner sungu
Þjóðverja til heimsmeistaratignar í
Múnchen ’74. Einkum dást menn að fal-
legri tenór-rödd Ólivers Bierhoffs.) Að
stundarfjórðungi liðnum eru mótherjarn-
ir yfirleitt flestir hálf dottandi ef ekki
sofnaðir á sínum vallarhelmingi og eftir-
leikurinn þá auðveldur. Gallinn við þessa
aðferð er þó sá að hún gefur einungis
kost á einu marki; til að þess að leikurinn
geti hafist að nýju þarf að vekja iið and-
stæðinganna. Þó hefur það komið fyrir að
þeim Bierhoff og Klinsmann hafi tekist
að syngja lið í svefn tvisvar í einum leik.
9
Vinna Danir HM?
Sem sæmilega skynsamri konu
finnst mér stundum vera meira vit/
Iitlum guttum en fulltíða karl-
mönnum. Og þessa dagana hef ég
ólíkt meira álit á litlu pollunum í
hverfinu mínu, sem þjóta út á göt-
ur til að leika fótbolta í stíl Brasil-
íumanna, en þeim íþróttafrétta-
mönnum sem sitja í sjónvarpssal og
halda með Dönum.
Eg hafði ekki lengi setið í minni
litlu snotru stofu og fylgst með leik
Dana og Brasilíumanna þegar mér
varð ljóst að stuðningur minn við
Brasilíumenn var algjörlega úr takti við
lýsingar íþróttafréttamanna sem fest
höfðu ákafa ást á Dönum. Þeir áttu ekki
orð yfir frammistöðu Dana sem lýst var
sem „hetjulegri“, „frábærri“, „stórkost-
legri“. „Stórmeistaraheppni" var orðið
sem notað var um frammistöðu Brasilíu-
manna. Þetta fannst mér ekki
sanngjarnt í garð betra liðsins
sem vann leikinn.
Það má svosem vel vera að
skilgreina megi Dani sem frænd-
ur okkar og vini, þrátt fyrir að
þeir hafi alið okkur á möðkuðu
mjöli í nokkra mannsaldra. En
hvað sem þeim kunningsskap líð-
ur þá töpuðu þeir Ieiknum. Það
virðist hins vegar hafa farið fram-
hjá fjömiðlamönnum því eitt það
allra fyrsta sem blasti við í sjón-
varpsfréttum og sagt var frá í út-
varpi voru fagnaðarlæti á Báðhústorginu
vegna marka sem Danir skoruðu í leikn-
um sem þeir töpuðu. Allnokkru minna fór
fyrir fréttum af viðbrögðum minna manna
í Ríó enda eru þeir sennilega skilgreindir
sem útlendingar en ekki „frændur og vinir
og drengir góðir“.
MENNINGAR
VAKTIN
Það var mikill léttir
þegar Norðmenn voru
slegnir úr HM eftir stór-
karlalegar yfirlýsingar um
eigið ágæti. En það er
eins og maður hafi ekki
enn losnað við Dani.
Eins og okkur er flestum
kunnugt vinna Islending-
ar (að eigin sögn) íþrótta-
mót þótt þeir tapi. Og
þessa skilgreiningu virð-
ist landinn að þessu sinni
hafa heimfært upp á
Dani. Þegar upp er staðið
verður sennilega búið að
telja mér og litlu guttun-
um í götunni minni trú
um að Danir séu hinir
ókrýndu heimsmeistarar í
knattspyrnu.
JfSBM
sfllls
«sai
„Ég hafði ekki lengi setið í minni litlu snotru stofu og fylgst með
leik Dana og Brasilíumanna þegar mér varð Ijóst að stuðningur
minn við Brasilíumenn var algjörlega úr takti við lýsingar íþrótta-
fréttamanna sem fest höfðu ákafa ást á Dönum"