Dagur - 18.08.1998, Side 3

Dagur - 18.08.1998, Side 3
Xfc^ur PRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 19 9 8 - 19 LÍFIÐ í LANDINU F ánýt vemd Karl Sigurbjömsson biskup telur að íslendingar standi nú íjyrsta sinn í þúsund árframmi fyrir raunvemlegu voli milli krístni og heiðni. Hann telurálfa og tröllgefafánýta vemd miðað við vemd Guðs. „Borg getur fallið, þjóð getur dcíið, visnað innan frá. ÞAÐ gerist er þjóðin hættir að reikna með Guði sem raunveruleika og storkar boðum hans og manneskjan verður heymarlaus og sljó gagnvart því sem máli skiptir. Islendingar hafa álitið sig kristna þjóð, og eru að btia sig undir að minnast þtisund ára kristni t þessu landi. Við erum að búa okkur undir að minnast þess er þjóðin hafnaði heiðnum átrúnaði, heiðn- um vættum, og gekkst Kristi á hönd. Si'ðan hefur Guð og góðir englar hans verið ákallaðir um vernd og hltfð og sti vemd signir landið okkar. Gleymum þvt ekki. Snúum ekki baki við því t oflæti auðs og velsældar." Fólk gerir ekki greinarmun Karl Sigurbjörnsson biskup predikaði á Hólum um helgina og gerði þar að um- talsefni þegar Jesú grætur yfir Jerúsalem, ekki gleðitárum heldur harmatárum, vegna þess dóms sem hann sá blasa við borginni. Þetta bar biskupinn saman við stöðu Islendinga og þjóðkirkjunnar í dag og taldi að þjóðin stæði frammi fyrir raunverulegu vali milli heiðni og kristni. Kristni hefði mótað grundvallar lífsvið- horf þjóðarinnar, verið uppistaðan og ívafið í þjóðarvefnum og væri það enn. Stofnanir og grundvallar viðhorf fjarlægð- ust hins vegar æ meir þennan uppruna sinn. Karl nefndi sem dæmi að stjórnendur Spalar hefðu ákveðið að útnefna bergtröll sem verndara Hvalfjarðarganga en sagði jafnframt að álfar og tröll gögnuðu ekki þegar á reyndi. Það væri fánýt vernd. „Alfasögur og trölla eru mér kærar eins og þorra Islendinga, þær eru dýrmætur arfurt...], þær lýsa gjarna þeirri ógn sem það er að vera ginntur af álfum og trylltur í björg. Mynd hins óræða og ógnvekjandi og óskiijanlega sem tilveran geymir," sagði hann og benti á að án helgrar venju verði hjartað ólæst á hið helga mál. Fólk hætti að gera greinarmun á átrúnaði og álfasögum. Vemd tniariimar bregst ekki „Andspænis þessu er helgidómurinn, kirkjan, sem er samfélag við Guð. Það er vernd sem ekki bregst. Það er ekki mynd af einhverju eða frásögn af einhverju sem var einu sinni heldur raunveruleg nálægð á daglegri för í samtíðinni. Trúnni er ætl- að að gefa okkur haldreipi hins góða and- spænis því illa. Bergtröll og álfar voru táknmyndir þess sem við þurftum að ótt- ast og jafnvel að friðmælast við,“ sagði séra Karl þegar Dagur hafði samband við hann í gær. - En af hverju stöndum við frekar frammi fyrir þessu vali nti en fyrir tíu árum? „Við gerum okkur meira grein fyrir því nú en þá. Þróunin er hraðari nú en hún hefur verið. Ef slakað er á í uppeldi heimilanna og börnin læra ekki bænirnar sínar þá verða þau ónæm á þennan veru- STAUPA STÉINN VERNDARI KV A1F/AI0 A&OANGA Lógóið sem styrinn stendur um. Verndari eða ekki? Það er spurningin. Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, spyr hvortkirkjan sé ekki óþarflega veik efmenn telja þar á bæ að fyrirtæki eins og Spölur geti ráðið um trúarlíf þjóðarinnar. leika. Það er það sem við horfum á núna og ég hef áhyggjur af.“ Bíanda saman vörumerki og trú Gísli Gíslason, stjórnarformaður Spalar, Erla Stefánsdóttir sjáandi segir að auðvitað séu íslendingar kristnir þó að þeir trúi á guð náttúr- unnar og guð alls. Karl Sigurbjörnsson biskup hvetur þjóðina: Snúum ekki baki við guði í oflæti auðs og vel- sældar. segir að þeim þyki afar leitt ef biskup telji þá hafa gert eitthvað á hlut kirkjunnar því að til þess hafi ekki verið stofnað af vilja eða ásetningi. Hann segir: „Hitt er annað að það má kannski spyrja hvort kirkjan sé ekki óþarflega veik ef menn telja þar á bæ að fjrirtæki eins og Spölur geti ráðið um trúarlíf þjóðar- innar. Þegar menn blanda saman vöru- merki og kristinni trú þá tel ég að menn séu að tengja saman óskylda hluti og það sé verið að gera stjórn Spalar upp skoð- anir sem hún ekki hefur,“ segir hann. „Þó að Spölur hafi sett í merki sitt álf þá hefur þjóðin í aldaraðir búið við ákveðna þjóðtrú varðandi álfa og tröil og kirkjan hefur þar tekið virkan þátt, sem dæmi má nefna þegar Guðmundur góði barðist við bergtröll í Drangey. Þó slíkri þjóðtrú sé haldið á Iofti, hvort heldur af kirkju eða grunnskólum landsins, þá hef ég ekki nokkra ástæðu til að ætla að það rýri gildi kristinnar trúar. Okkur finnst það leitt að kirkjan skuli taka þetta upp með þessum hætti og vonum að mönnum takist að vinna að trúarlífi þjóðarinnar á víðtækari vettvangi." - Biskupinn tekur þetta mjög bókstaf- lega og talar um að bergtröllið sé vemdari ganganna? „Það er alveg rétt að „verndari Hval- fjarðarganga" kemur fram í merkinu en ég held að menn verði að skoða það í ljósi þeirrar þjóðtrúar sem víða er. Við getum tekið sem dæmi að Vegagerðin hefur sniðgengið ákveðna staði, sjálfsagt í því skyni að raska ekki friði þeirra sem menn telja þar vera. Ef kirkjan telur að hún geti boðið betri tryggingu en gengur og gerist þá er það þeirra að koma því á framfæri og standa við þá tryggingavernd sem þeir bjóða. En við erum hins vegar ekki að taka þátt í slíku enda teljum við að þessi mál séu óskyld." Verndin keniur frá englum og guði Stjómendur Spalar fengu Erlu Stefáns- dóttur sjáanda til að fara að mynni Hval- Ijarðarganganna og teikna mynd af veru út frá þeim straumum sem hún fann á staðnum. Hún teiknaði mynd af dverg eða trölli, þjóðsagnapersónu, út frá hug- leiðslu sinni á staðnum og segir að vel megi vera að tröllið veiti fánýta vernd enda sé þetta „svona lógó, bara merki“. Verndarar séu venjulega englaverur, ekki tröllaverur en auðvitað séu Islendingar kristnir þó að þeir trúi á guð náttúrunnar og guð alls. Þetta hangi allt saman. „I sjálfu sér er ekki hægt að segja að tröllið sé verndari ganganna. Þetta er bara skemmtilegt merki sem minnir á þjóðtrúna. Þjóðsögurnar eru hluti af okk- ar arfi. En auðvitað kemur verndin frá englum og guði. Eg gerði þetta bara til gamans. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það. Ég er vön að sjá ýmislegt og þetta er ekkert öðruvísi en ég er vön að sjá,“ segir hún. ... “Jestís sá hvert stefndi. Þegar Ijósinu er hafnað kernur myrkrið, fyrr eða stðar"..., sagði séra Karl Sigurbjörnsson á Hólum. - GHS „Efkirkjan telurað húngeti boðið betrí trygg- ingu en gengur og geríst þá er það þeirra að komaþví á framfærí og standa viðþá trygginga- vemd sem þeirbjóða. “

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.