Dagur - 18.08.1998, Blaðsíða 7
Xk^iií-
ÞRIDJUDAGUR 18. ÁGÚST 1998 - 23
Nú ersýningunni
Handverk ‘98,þeirri
6. sem haldin erað
Hrafnagili, lokið. Sýn-
ingin stóð heldur leng-
urað þessu sinni, eða
Jjóra dag og varörtröð
fráfyrstu klukku-
stund, sem sýnirbetur
en margtannað
hversu áhugi á hand-
verki hefuraukist.
Punkturinn á Akureyri var með bás á sýningunni og þar fékk fólk tækifæri til að prófa það handverk sem unnið er í Punktinum. Leirinn var vinsæll hjá yngstu
kynslóðinni.
Mikið fjölmenni kom á sýninguna Handverk ‘98 og um tíma á laugardeginum
var dálítinn troðningur.
Um 8000 manns komu á sýn-
inguna og er það meira en
nokkru sinni. Áberandi var hvað
andrúmsloftið var afslappað og
hversu vel mannfjöldinn dreifð-
ist yfir helgina og um salina. Að-
standendur sýningarinnar segja
að margir sýningaraðila séu
orðnir vanir, hafi komið oft og
kunni á undirbúninginn og komi
þess vegna tímanlega sem geri
allt auðveldara.
Tréverk áberandi
Ein nýjung var á sýningunni, en
það var þjónusta Búnaðarbank-
ans sem bjargaði mörgum kort-
hafanum sem ekki var með
reiðufé.
Tréverk og keramik voru mest
áberandi á þessari sýningu líkt
og í fyrra en helst mátti segja að
vantaði íslenskar ullar- og
mokkavörur og mega þeir sem
slíkar vörur framleiða gjarnan
hafa það í huga fyrir næsta ár.
Sterk kántrýlína er í gangi og
mátti sjá hennar stað í mörgu
sem ekki er beinlínis í þeim
geira. Keramikið hefur smám
saman verið að færast í átt til
þess að vera gróft og ýmis
mynstur hafa verið að stinga
upp kollinum. Endurnýting var
líka áberandi og í þremur básum
var hún allsráðandi. Notalegt að
sjá hversu meðvitaðir hand-
verksmenn eru að verða um um-
hverfið og að hlutir eru ekki
endilega ónýtir þó þeir séu orðn-
ir gamlir. VS.
Básar með tréverki í „kántrýstíl" voru vinsælir og margir keyptu sér eitt
og annað.
FJOLVÍTAMJN
MEÐ STEINEFNUM
NAJ Tt KULGI
60 töflur
Ein með öllu
handa öllum
heiisuhúsið
Skðlavörðustíg, Kringlunni, Smáratorgi
_________og Skipagótu 6, Akureyri_______