Dagur - 18.08.1998, Page 6
22 - ÞRIÐJUDAGUR 18.AG0ST 1998
LÍFIÐ í LANDINU
U^nr
Maga-
dansar
Marieke Van Beek kennirAk-
ureyringum að dansa maga-
dans. Hún segirdansinn ekki
erótískan, heldurfyrst og
fremst skemmtun og konur
þuifi alls ekki að veragrann-
ar til að stunda hann.
Marieke Van Beek er hollensk listakona
sem jafnt gerir skúlptúr úr leðri og dans-
ar magadans. Hún er stödd á Akureyri nú
í ágúst og hefur meðal annars kennt Ak-
ureyringum að dansa arabískan maga-
dans.
Hið kvenlega heillar
„Kvenlíkaminn hefur alltaf heillað mig og
veitt mér innblástur. Þess vegna nota ég
til dæmis leður í skúlptúrlistinni. Það er
húð og með henni get ég tjáð tilfinningar
í verkunum mínum eins og að framkalla
hrukkur eða ákveðin svipmót." Marieke
er menntuð í skúlptúrnum en hvernig
kom magadansinn til? „Eg tók námskeið í
magadansi meira fyrir tilviljun fyrir tíu
árum og hef verið að síðan. Ég var alltaf í
dansi og í líkamlegu athæfi og magadans-
inn höfðaði sérstaklega til mín vegna þess
Marieke segir konur 30-50 ára vera á toppnum í magadansinum.
„Það eru engar sögur af prinsessum sagðar eða neitt slíkt í magadansi. Þú býrð til myndir í dans-
inum og tjáir tilfinningar, ekkert annað, “ segir Marieke. myndir: brink.
hve kvenlegur hann er. Þetta snerti þvi
það sem heillaði mig mest í skúlptúrnum
- það kvenlega."
Marieke segir magadansinn mjög skap-
andi en hann sé þó mjög afstrakt. „Það
eru engar sögur af prinsessum sagðar eða
neitt slíkt í magadansi. Þú býrð til myndir
í dansinum og tjáir tilfinningar, ekkert
annað.“
Ekki erótískur dans
Arabískur maga-
dans á sér mjög
langa sögu og er
upprunninn í
Egyptalandi.
Hann er mikið
notaður í Mið-
Austurlöndum og
í norðanverðri Afr-
íku og hefur víða
táknrænt gildi.
„Sumir ættbálkar í
Afríku dansa maga-
dans þegar fæðing
barns á sér stað. Þá
herma magadansar-
arnir eftir hreyfing-
um vanfæru konunnar og hjálpa henni
þannig. Það léttir á þrýstingnum þegar
aðrir taka þátt,“ segir Marieke. Þá þykir
ósiðlegt að dansa í Egyptalandi við ákveð-
in tækifæri. I brúðkaupum er jafnan
magadansmær fengin til að dansa fyrir
gestina og tjá í dansinum gleðina sem rík-
ir en einnig til að auka likur á frjósemi.
Marieke hélt námskeið í arabískum
magadansi í Deiglunni á Akureyri um helg-
ina. Hún segir dansinn erfiðan, mun erfið-
ari en hann lítur út fyrir að vera. „Þetta er
dans sem byggist á því að útiloka suma Iík-
amshluta á meðan aðrir eru hreyfðir. Það
eru vissar undirstöðu hreyfingar í maga-
dansi en síðan má Ieika þetta mikið eftir
hendinni." Marieke segir tónlistina spila
stórt hlutverk og arabísk tónlist falli best að
dansinum. „A námskeiðinu kynnti ég und-
irstöðuna og vona
nú að þátttakend-
urnir geti tekið
nokkur spor fari
þeir til Arabaland-
anna,“ segir hún
og hlær.
- Mundir þú
kalla þetta eró-
tískan dans?
„Hann er
stundum not-
aður í þeim til-
gangi, aðallega
á Vesturlönd-
um. Það er
misnotkun og
ég geri það ekki. Hann er
kannski erótískur í þeim skilningi að þú
ert að skemmta þér með eigin Iíkama.
Þetta er bara afslappandi skemmtun.“
Marieke segir magadansinn ólíkan öðrum
dönsum að því leyti að konur eru að jafn-
aði bestar á aldrinum 30-50 ára. „Þú
þarft ekki að vera grönn og getur gert
þetta langt fram eftir aldri. Dansinn fer
best þroskuðum konum sem hafa lifað."
-JV