Dagur - 18.08.1998, Síða 10

Dagur - 18.08.1998, Síða 10
26 - Þ K IÐJ U D AG U R 18. ÁGÚST 1998 LÍFIÐ t LANDINU L Hvernig á að kaupabil? Grundvallaratriðið er að fara yfir Qármálin til að sjá hvað maður ræður við. Sumir hafa brennt sig á því að þeir sáu draumabílinn og slógu á kaupin, síðan bytjuðu vandræðin. Þegar það er orðið nokkuð ljóst hvað er hægt að setja mikla peninga í bílakaupin er næsta spurning hvort maður ráði við að kaupa nýtt eða verði að kaupa notað. „Ef þú ert að kaupa nýtt ertu nokkuð bundinn af þeim verð- um sem eru í gildi á markaðinum. Það má segja að í karpi um kaup og kjör sé meira verið að tala um ein- hvem fimmtíu þús- und kall niður, ellegar mottusett eða útvarp sem menn fá,“ segir Runólfur. Hins vegar er verðskráin fjöl- breytt á markaði fyrir notaða bíla: Skráð verð, staðgreiðsluverð og svo ýmis milliverð, allt eftir því hvað um semst. Þó menn séu ekki á aðal-markaðssvæðinu á suð-vesturhorni Iandsins marg borgar sig að taka upp símtólið og hringja á milli staða. Sömuleiðis að fylgjast með þeim auglýsingum sem í gangi eru. „Það á enginn að vera feiminn við að bjóða jafnvel tölur sem þykja út úr kort- inu á einhverjum ákveðnum tíma- punkti," segir Runólfur. Þegar búið er að finna bíl sem menn eru sáttir við er næsta skref að skoða hann. FIB mælir með að farið sé með bílinn í svokallaða söluskoðun sem er m.a. framkvæmd hjá Bifreiðaskoðun ís- lands. „Sé ekki val um slíka skoðun eða annað þvíumlíkt þá er allavega mjög ráðlegt að láta einhvern kunnugan aðila sem þekkir vel inn á bíla, kannski bif- vélavirkja, fara vel yfir bílinn. Þetta er skoðun sem kostar nokkur þús- und krónur og þegar menn eru að tala um jafnvel næst stærstu fjárfestingu ævinnar, þá er það mjög fljótt að skila sér.“ Það er líka nauðsynlegt að kanna eig- endaferilinn, hvort bíllinn hafi lent í tjóni, hvort á honum hvíli veðskuldir. „Þetta á bílasali að kanna og baktryggja, en það er oft ekki verra að gera það Ifka sjálfur. Það hefur brugðið út af stundum.“ En hvernig í ósköp- unum á maður að finna allar þessar upplýsingar? „Það er hægt að komast að því með einu símtali við Bif- reiðaskrána uppi á Höfða. Þar kemur fram hvort það séu áhvílandi veðskuldir og/eða bifreiðagjöld. Svo ef um er að ræða díselbíla, þá er nauð- synlegt að kanna hvernig staðan er með þungaskatt. A bílasöl- unum hafa menn að- gang að bifreiða- skránni í gegn um Skýrr hf. þannig að það er hægt að biðja um útskrift til að hafa þetta alveg á hreinu." Ef semst um kaupverð og bíllinn reynist í lagi, þá er komið að því að ganga frá viðskiptunum. „Þá er ákveðið grundvallaratriði að allt sem sagt er sé skráð í afsal,“ segir Runólfur og nefnir lítið dæmi: Seljandinn segir að topp- grind fylgi, en hún sé heima í skúr. „Það á að koma fram í afsali, annars er kaupandinn kannski búinn að missa af þessari toppgrind." Á heimasíðu FIB eru ítarlegar ráð- leggingar fyrir þá sem hyggja á bíiakaup ásamt gátlista til að fara yfir þegar bíll- inn er skoðaður. Slóðin þar er: www.fib.is BÍLAR □ Olgeip Helgi Ragnarsson skrifar Það eralltafsami höfuð- verkurinn þegarkomið er að því að endumýja híl- inn. Hvað á maðurað kaupa og hvemig á mað- urað bera sig að? Við ræddum við Runólf Ólafssonframkvæmda- stjóra FÍB um hvemig ætti að bera sig að ef mann langaði í bíl. Skellti of fast Á heimasídu 4X4 klúbbsins kennir margra grasa. Þar er m.a. þessi skemmtilega mynd af sundurrifnum Ford Bronco og textinn sem fylgir myndinn er líka ágætur: „Hvað er skemmti- legra en að rífa M Bókstaflega taka hann í nefið, saga hann sundur og rífa hvern einasta hlut í spað. Slípa, sjóða, renna, snitta, skrúfa og mála. Setja bílinn svo aftur saman eftir eigin höfði þannig að hann sé öllum bílum fremri bæði hvað varðar útlit, gæði og getu. Skúli skiptilykill vandaði sig eins og hann gat og allt gekk vel þangað til hann skellti framhurðinni aðeins of fast!" Netfang umsjónarmanns bílasíðu er: oIgeirheIgi@islandia.is Rotvamarefni í brauðum SVOJMA ER LIFIÐ Vigdís svarar í símann! Ertu með ráð, þarftu að spyrja, viltu gefa eða skipta? Vigdís svarar í símann kl. 9—12. Síminn er 563 1626 (beint) eða 800 7080. Póstfang: Þverholt 14 Rvk. eða Strandgötu 31 Akureyri. Netfang: ritstjori@dagur.is Lesandi Lesandi hringdi og vildi þakka lög- reglunni á Akur- eyri góða þjónustu. Sagðist hafa lent í vandræðum yfir helgina og hringt í neyðarlínuna 112 og innan nokkurra mínútna var lög- reglan komin á vettvang og bjarg- aði málum. Það hringdi til mín kona sem sagðist oft hafa lesið það að í erlendum brauðum væri svo mikið af rotvarnarefnum að þau skemmdust hreinlega ekki. Henni fannst þetta ekki gott, en svo vildi þannig til um daginn að hún átti brauð frá stóru bakaríi hérlendis. Brauðið var orðið heldur gamalt hjá henni og hún ætl- aði að henda því en ákvað svo að prófa hvernig það geymdist. Þegar hún var búin að geyma það í tvær vikur athugaði hún málið og sá að það var enn mjúkt og ekki farið að mygla hið minnsta. Þetta finnst kon- unni dálítið skrítið og segist hafa áhyggjur af því að ís- lenskir bakarar séu að nota rotvarnarefni í brauðið þó svo að ekkert slíkt sé skráð sem innihaldslýsing. Hún segist vita það að þegar hún bakar brauð sjálf, þá sé það orðið þurrt eftir örfáa daga og farið að mygla eftir viku sé það geymt í poka eða kassa þar sem rakinn helst. Herbalife og imglingar Til mín hringdi ung stúlka og bar upp eftirfar- andi spurningu: Mega 12 ára gamlir krakkar nota Herbalife? Þessi spurning virðist kannski einföld í sjálfu sér, en þó ekki. Eg hafði samband við næringarfræðing til að fá upplýsingar um þetta. Herbalife er ekki eitthvað eitt efni, heldur margar tegundir og virka á ýmsa vegu þó svo að þær innihaldi vítamín og steinefni. Hingað til lands má flytja ákveðnar tegundir þessa efnis en þó er enn verið að flytja inn þau efni sem ekki má og sá sem kaupir þau veit kannski ekki hvað er löglegt og hvað ekki. En viljir þú nota Herbalife til að grennast, þá myndi ég ráðleggja þér að gera það ekki. Fyrir það íyrsta er ekki gott að venja sig á að nota einhver grenningarmeðul og sérstaklega ekki fyrir börn. Krakkar á þínum aldri eru oft með fitulag sem kallað hefur verið „hvolpafita" sem hverf- ur þegar á unglingsárin líður. Sértu hinsvegar það mikið of feit að þú sjáir ekki fram á að fitan hverfi af sjálfu sér, þá er miklu betra til langtíma að temja sér gott og heil- brigt mataræði og stunda íþróttir. Ef þú leitar til næring- arfræðinga og þeir eru margir, þá færðu áætlun til að vinna eftir og bara það að fara í röska gönguferð daglega og synda hratt i 15 mín. annan hvern dag getur orðið til þess að aukafitan hverfur af þér bæði hratt og vel. Eg tala nú ekki um ef þú breytir um mataræði um leið. Það er nefnilega þannig að þó svo fólk brenni mis- miklu, þá eru því þannig varið að það sem þú borðar aukalega, umfram þörf, verður að fitu. Mjólkurlaus „ostakaka“ Margir hafa ofnæmi eða óþol fyrir mjólkurvörum en Iangar eigi að síður að borða mat eins og ostakökur. Þessi „ostakaka" inniheldur engar mjólkurafurðir og er þar að auki fremur hitaeininga- snauð og hentar því ágætlega fólki sem vill halda í við sig. I kökuna fer: 150 g af kexi, t.d. háfrakexi öðru slíku sem ekki er of sætt. 14 bolli ristaðar peacan hnet- ur (hesilhnetur fyrir þá sem hugsa um hollustuna, því peacan hnetur eru feit- ari) Um það bil 80 g bragðlaus olía eða smjörlíki sem ekki inniheldur mjólkurvörur, heldur aðeins jurtafeiti. Bræðið. 3 græn epli, þunnt sneidd. Fylling: 1 pakki af þéttu tofu ca. 300 g, látið renna af því. 3 léttþeytt egg 1 þeytt eggjahvíta Vi bolli púðursykur 1 tsk. vanilludropar Ofan á kökuna: 2 tsk. matarlím / bolli appelsínumarmelaði, sigtað Smyrjið 24 sm hringlaga form. Setjið kex og hnetur í matvinnsluvél og saxið fínt. Bætið smjörlíki við. Látið í botninn á forminu og pressið niður. Setjið í ísskáp. Setjið tofu í matvinnsluvél og saxið. Bætið eggjum, eggjahvítu, sykri og vanillu við og hrærið. Hellið í formið og bakið í 35 mín. við 180°C. Setjið eplasneiðarnar í pott með sjóðandi vatni, Iátið sjóða í um það bil þrjár mínútur. Takið sneiðarnar upp og lát- ið renna af þeim. Raðið sneiðunum á kökuna. Setjið matarlímið út í marmelaðið í lítinn pott, hitið varlega með því að setja pottinn í annann stærri með sjóðandi vatni. Látið marmelaðið yfir eplin og bíðið þar til storknar. Það er hægt að gera þetta í örbylgjuofni líka. Hver skammtur inniheld- ur: 254 kaloríur 11 gfitu 1 g trefjar.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.