Dagur - 18.08.1998, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 18.ÁGÚST 199 8 - 27
Xk^wr
LÍFIÐ t LANDINU
R A D D I R
FQLKSINS
MEINHORNIÐ
• Svörtu síma-
sjálfsalarnir
sem er að finna
á kaffihúsum,
hótelum og víð-
ar fara alveg
óstjórnlega í
taugarnar á
meinhyrningi.
Þessir svörtu
skrattar stela
peningum eins
og þeir fái borg-
að fyrir það,
ekki er hægt að
hringja fyrir
minna en 20
krónur og sím-
inn skilar aldrei
peningum þó að
of mikið hafi
verið látið í
hann eða ef
ekki svarar eða
það er á tali.
Kannski það
borgi sig bara
að fá sér gsm-
síma til þess að
vera Iaus við
þessi leiðindi.
Frá Akureyri. Jónas Guðmundsson fjallar um nærsýni fjölmiðla og hættuna á að þeir láti
fréttaljós sín skína skært á nágrenni ritstjórnarskrifstofanna.
Dagsmenn
í eigin biíri
JÓNAS GUÐMUNDSSON REKTOR
SAMVINNUHÁSKÓLANS Á BIFRÖST
SKRIFAR
Einn af blaðamönnum Dags, Geir
Guðsteinsson, sendi mér fyrir nokkru
línu í blaðinu vegna greinar um Nær-
sýna fjölmiðla sem ég hafði ritað í hér-
aðsfréttablaðið Skessuhorn á Vestur-
Iandi. Grein mín fjallaði um þann veik-
Ieika fjölmiðia víða um heim að láta
fréttaljósin skína skært á nágrenni rit-
stjórnarskrifstofanna, sinna fyrst og
fremst atburðum í þeirra næsta ná-
grenni, öðrum minna. íslenskir „lands-
Ijölmiðlar" væru vissulega þessu marki
brenndir.
Geir blaðamaður var ekki alls kostar
ánægður með greiningu mína á frétta-
flutningi íslenskra Ijölmiðla. Sérstak-
Iega var blaðamaðurinn óhress með þá
kenningu mína að landsfjölmiðlarnir
framkölluðu ímyndarskekkjur með því
að sniðganga uppbyggilegar fréttir af
Ijarlægari landsvæðum en eltast samt
sem áður við furðufréttir sem spyrðust
út af þessum svæðum.
Nærsýnl Dags
Grein mín í Skessuhorni
fj'allaði hvergi sérstaklega
um fréttaflutnings Dags.
Geir blaðamaður vildi samt
sem áður sverja af blaðinu
þennan stimpil. Hvers
vegna skyldi ég hér þurfa að
vitna um einstök atriði úr
grein blaðamannsins fyrir
hans eigin lesendur? Má
kalla það nærsýna dreifing-
arstefnu? Grein hans var
nefnilega rituð i
ið-Vesturland,
Dags sem ekki berst til les-
enda blaðsins utan Vestur-
lands. Hefur blaðið, með
takmarkaðri dreifingu hér-
aðskálfa sinna, tileinkað sér svæðis-
bundna nærsýni og takmarkað þar með
Skagablað-
blaðkálf
'°ma'
Strandgötu 31, 600, Akureyri
Þverholti 14,105 Reykjavík
Sími umsjónarmanns
lesendasíðu:
460 6111
Netfang: ritstjori@dagur.is
Símbréf: 460 6171/551 6270
Óskað er eftir að bréf til
blaðsins séu að jafnaði hálf til
ein vélrituð blaðsíða, 1000-1200
tölvuslög. Dagur áskilur sér rétt
til að stytta lengri bréf.
fréttaflutning sinn á landsvísu?
Með því að takmarka dreifingu frétta
við þröng landssvæði virðist mér Dag-
ur, því miður, hafa sett sitt starfsfólk í
landshlutunum í eins konar búr; það
geti sagt fréttir innan landshlutanna
en eigi erfitt með koma fréttum útfyrir.
Mér finnst sem eitthvað hljóti að hafa
farið öðruvísi en ætlað var með upp-
hafiegu hugmyndinni um að veita hér-
aðsfréttablöðum skjól innan vébanda
blaðsins. Ég vona að ég verði skjótlega
leiðréttur hafi ég þá misskilið hug-
myndina.
Nýlegt dæmi af fréttaflutningi blaðs-
ins ýtir undir grunsemdir um nærsýni
þess. Fréttin bar greinilegri vanþekk-
ingu á starfsemi stofnana á Vesturlandi
vitni. Þrátt fyrir að háskólakennsla hafi
í fimmtíu ár verið stunduð við Búsvís-
indadeild Bændaskólans á Hvanneyri
og í tíu ár við Samvinnuháskólann á
Bifröst var því haldið fram að bráðlega
færi fyrsta háskólakennsla utan
Reykjavíkur og Akureyrar fram á Hól-
um í Hjaltadal. Skýrt dæmi um ófull-
nægjandi sjón IandsQöImiðiIs utan við
Elliðaárdal og Gleráreyrar, ekki satt?
Nærsýnispróf
Líklega hefðu fjölmiðlar gott af nær-
sýnisprófi. Starfsmenn Dags ættu e.t.v.
að framkvæma sjálfsmat í þessum efn-
um, líkt og Geir blaðamaður hóf í sinni
grein. Vilji blaðið endurskoða útfærslu
héraðsblaðahugmyndar sinnar á það
auðvitað ýmsa möguleika til þess. Ein-
faldast væri að hefja strax dreifingu
blaðkálfanna til allra landsmanna.
Onnur leið væri að leggja þá niður og
gera fréttum úr öllum landshlutum
jafnhátt undir höfði. Island er að mínu
áliti ekki stærra en svo að fólk hefur
ánægju af fréttum úr öðrum landshlut-
um en það dvelur í. Við getum væntan-
lega verið sammála um að við höfum
enga sérstaka þörf fyrir nærsýna Iands-
fjölmiðla.
Alvarlegt
ábyrgðarleysi
Líkamsárás sú
sem átti sér
stað við
Reykjanesbraut
þar sem konu
var nauðgað
hefir kallað á
gagnrýni á að-
gerðarleysi veg-
farenda.
Þórólfur Þór-
lindsson prófessor, hefir tjáð sig
um málið ásamt Kolbrúnu Berg-
þórsdóttur og er ég þeim að
mestu sammála um viðbrögð
sem þurfa að verða í þjóðfélag-
inu. Ekki er það einfalt mál að
stöðva bifreið sína og Ieggja til
atlögu við ókunnan einstakling
sem er í árásarham. Reikna má
með að til átaka komi við það
tækifæri og af því gæti leitt
meiðsli á öðrum eða báðum að-
ilum.
Réttarstaða ókunn
Sá sem leggur í borgaralega
handtöku til varnar öðrum þarf
að vita um réttarstöðu sína. Ef
eitthvað fer úrskeiðis við stymp-
ingarnar við þann sem á að
hindra í aðgerðum sínum getur
orðið til skaðabótaskylda gagn-
vart þeim sem á að hindra eða
sá sem tekur að sér að hindra
ofbeldið getur orðið fyrir líkam-
legum skaða sem hann hugsan-
Iega ekki fær bættan. Til að fá
fram þá breytingu sem prófess-
orinn telur æskilega til að
tryggja betur öryggi borgaranna
þarf að upplýsa þá um hvað er
að ræða þegar borgari fer í að
handtaka annan mann vegna of-
beldis eða annarra lagabrota.
Einhver lög eru til um það sem
kallast borgaraleg handtaka og
er nauðsynlegt að almenningur
sé upplýstur um þau lög til þess
að hann viti hvar hann er stadd-
ur í rétti sínum og skyldum þeg-
ar hann stendur andspænis
slíku neyðarástandi sem þarna
átti sér stað. Það er ábyrgðar-
hluti að hvetja menn til aðgerða
án þess að þeir séu upplýstir um
það. Þessi upplýsingarskylda
hlýtur að hvíla á yfirvöldum lög-
reglu- og dómsmála.
BrynjoKun
Brynjólfsson
skrifar
„Ekki er það einfalt mál að stöðva bifreið sína og leggja til atlögu við ókunnan
einstakling sem er í árásarham."
Hrísaliindur
frábær verslmi
MAREN ÁRNADÓTTIR
ÁSLÁKSSTÖÐUM
GLÆSIBÆJARHREPPI
SKRIFAR
Eg versla alltaf í Hrísalundi sem
er að mínu viti frábær verslun
og þjónustan alltaf til fyrirmynd-
ar. Starfsfólkið brosir og er kurt-
eist og ef ég gleymi einhverju þá
hleypur það til og minnir mig á.
Svo er núna þannig mál með
vexti að margir eru í sumarfríi
og þá er bæði mannfærra og
óvant fólk, sem samt er mjög
elskulegt. Þess vegna verð ég
bæði sár og reið þegar ég verð
vör við framkomu sumra við-
skiptavina sem eru óþolinmóðir
og skamma afgreiðslufólkið fyrir
að vera ekki nógu fljótt til og
skilja ekki að ef það bíða margir
þá er ekki hægt að ætlast til eins
mikillar þjónustu og ella.
Þetta hef ég séð og vil bara
hvetja fólk til að taka tillit til
þess að óvant fólk er ekki eins
fljótt og vant fólk og líka það að
ef það eru fáir við afgreiðslu þá
verður það að bíða svolítið Ieng-
ur.
En ég mæli eindregið með
Hrísalundi, þetta er alveg yndis-
legt fólk sem þar vinnur og gerir
allt sem það getur til að aðstoða.