Dagur - 22.08.1998, Qupperneq 1
1
i
i
1
1
1
i
J
Stefini á fyrsta sæti
ef ég fer i prófkjör
Mikil spenna iiuian
Framsóknarflokksms
vegna brotthvarfs
Guðmundar Bjama-
sonar. Akureyringar
vilja að heimamaður
leiði lista flokksins í
kjördæminu.
„Finni ég stuðning við það frá
mínu flokksfólki að ég gefi kost á
mér í prófkjörið þá geri ég það.
Og ef ég fer í prófkjör þá stefni
ég á fyrsta sæti listans, annað
kemur ekki til greina," sagði Jak-
ob Björnsson, fyrrverandi bæjar-
stjóri á Akureyri, í samtali við
Dag í gær.
„Það breytir vissulega miklu að
Guðmundur hefur lýst því yfir að
hann sé hættur. Eitt er að fara í
slag við sitjandi þingmann og
ráðherra, sem er í fyrsta sæti list-
ans, og annað að takast á við
aðra um efsta sætið,“ sagði
Jakob.
Akiireyriiijjar
óþolinmóöir
Dagur hefur fyrir
því traustar
heimildir að
framsóknarmenn
á Akureyri séu
orðnir óþolin-
móðir að eignast
þingmann, enda
lagt síðan það
gerðist síðast.
Þeir voru ekki til-
búnir til að leggja
í slag við Guð-
mund Bjarnason,
en nú þegar hann hefur ákveðið
að hætta telja þeir að sá sem taki
sæti hans og leiði listann verði
að vera Akureyringur. Jakob hef-
ur verið leiðtogi framsóknar-
manna á Akureyri síðastliðin ár
og því miklar líkur á að hann
verði þingmaður næsta vor.
I prófkjöri mun Valgerður
Sverrisdóttir að sjálfsögðu verða
firna sterk, enda hefur hún verið
í öðru sæti listans síðustu tvö
kjörtímabil og verið formaður
þingflokks á yfirstandandi kjör-
tímabili. Hún
stefnir nú á
efsta sæti list-
ans.
Því er haldið
fram að verði
hún skipaður
ráðherra út kjör-
tímabilið í stað
Guðmundar
Bjarnasonar fái
hún mikið for-
skot í prófkjörs-
baráttunni fyrir
norðan. Jakob
var spurður
hvort hann teldi eðlilegt að veita
henni þetta forskot?
„Eg vil engu svara þar um. Það
er annarra að ákveða það,“ svar-
aði Jakob.
Mikil spenna
Þingmenn Framsóknarflokksins,
sem Dagur ræddi við í gær, við-
urkenna að mikil spenna ríki nú
í þingflokknum vegna ráðherra-
málanna. Auk Valgerðar Sverris-
dóttur sækir Guðni Agústsson af
alefli í ráðherrastólinn. Hans
menn á Suðurlandi benda á að
Guðni hafi mikla og farsæla
reynslu sem þingmaður, en hann
er að Ijúka sínu þriðja kjörtíma-
bili. Hann er í efsta sæti listans í
stærsta landbúnaðarhéraði
landsins og það eigi að skipa
landbúnaðarráðherra. Fram hjá
honum sé erfitt að ganga.
Þá sækir Siv Friðleifsdóttir það
af krafti að fá ráðherrastólinn.
Hún er sögð eiga minnsta mögu-
leika þremenninganna vegna
þess að hún er á sínu fyrsta kjör-
tímabili og hefur því minnstu
reynsluna. Auk þess kemur hún
úr útgerðarkjördæmi en ekki
landbúnaðar.
Einnig er Ijóst að vaxandi and-
staða er innan þingflokksins með
það að Guðmundur Bjarnason
sitji sem ráðherra til áramóta.
Menn vilja að hann láti af störf-
um sem fyrst því ráðherra sem
lýsir því yfir að hann sé að hætta
sé ekki valdamikill.
Allir voru þingmennirnir sam-
mála að Halldóri Ásgrímssyni
væri mikill vandi á höndum að
leysa úr málinu. - s.dór
Sanmmgana
upp á borð
Stjórn Landspítalans hefur ósk-
að eftir því að læknar sem starfa
við sjúkrahúsið og gert hafa sam-
starfssamninga við Islenska
erfðagreiningu eða sambærileg
fyrirtæki geri efni þeirra kunn-
ugt. Þorvaldur Veigar Guð-
mundsson fer með málið fyrir
stjórn. Hann segir að þau mál
sem hann hafi kynnst hafi ekki
sýnt „annað en að allt sé í lagi“.
„Landslagið breyttist mikið við
tilkomu Islenskrar erfðagrein-
ingar, nú eru miklu meiri pen-
ingar og miklu meiri möguleik-
ar,“ segir Þorvaldur. „Sumt fer í
gegnum okkar bókhald, ekki
allt“. Blaðinu er kunnugt um
gagnrýni vegna þess að samning-
ar hafa ekki verið uppi á borð-
inu. Spurt er hvort læknar séu að
selja gögn sem ríkið hefur kostað
söfnun á og varðveislu. Þorvald-
ur Veigar segir að nú sé unnið að
rammasamningi sem eigi að vera
Ieiðbeinandi fyrir lækna á spít-
alnum í samvinnu þeirra við fyr-
irtæki utan sjúkrahússins. -SJH
/ gær var verið að vinrta að uppsetningu umferðarljósanna á mótum vegarins frá Gullinbrú og Fjallkonuvegar, en
þar var áður afar umdeilt hringtorg. mynd: pjetur
Flugfélag íslands uppfyllir ekki lág-
markskröfur um eiginfjárstöðu
samkvæmt reglum um veitingu
flugrekstrarleyfa. Sennilegt að
endurskoðendur Flugmálastjórnar
skoði málið.
Fhigleyfi í
uppiiámi?
Lök afkoma og neikvæð eigin-
Qárstaða Flugfélags Islands mun
að öllum líkindum verða tekin til
umfjöllunar hjá Flugmálastjórn
með það í huga að endurskoða
flugrekstrarleyfi fyrirtækisins.
„Það er ekki ósennilegt að málið
verði skoðað, þótt engin ákvörð-
un hafi verið tekin um það, enda
kom þetta ekki endanlega í ljós
fyrr en í gær [fimmtudag],“ sagði
Skúli Guðjónsson, eftirlitsmaður
í flugrekstrardeild Flugmála-
stjórnar í samtali við Dag.
Afturköllim
„Það er alltaf fylgst með stöðu
þeirra flugfélaga sem eru að
fljúga hér á landi og er Flug-
málastjórn með sérstaka endur-
skoðendur sem vinna í því eftir-
liti,“ segir Skúli.
Flugfélag Islands er með svo-
kallað „minna“ flugrékstrarleyfi
og samkvæmt reglugerð EBE um
veitingu flugrekstrarleyfa til
handa flugfélögum, sem gildir
hér á landi, verða slík flúgfélög
„ávallt að geta fært sönnur á að
eigið fé þeirra nemi að minnsta
kosti 80.000 evrópskum
mynteiningum (ECU) eða lagt
fram, að kröfu stjórnvalda er
veita leyfi, þær upplýsingar er
skipta máli fyrir 5. mgr.“ I þeirri
málsgrein kemur fram að stjórn-
völd geti ávallt, þegar ljóst er að
flugfélag á i Ijárhagsörðugleik-
um, metið fjárhagsstöðu þess og
afturkallað flugrekstrarleyfið
tímabundið eða endanlega. 80
þúsund ECU samsvara 6,3 millj-
ónum króna. - FÞG
Með Baldri yfir Breiðafjörð
Ferðir alla daga: Alltaf viðkoma í Flatey
Frá Stykkishólmi kl. 09:00 og 16:00
Frá Brjánslæk kl. 12:30 og 19:30
Flateyjarpakkinn á góða verðinu.
Dagstund í Flatey með útsýnissiglingu
Ferjan Baldur 438 1120 og 456 2020
Alfa Laval
Vnnitiisjdptar
SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTUNI 31 • SIMI 562 7222 • BREFASIMI 562 1024