Dagur - 22.08.1998, Blaðsíða 4
4-LAUGARDAGVR 22.ÁGÚST 1998
.Tkyftr
FRÉTTIR
íslendingar í Lux-
emburg forviða
Ákvörðun Flugleiða nú kemur sem reiðarslaghjá Luxemburgurum og er þegar
farið að ræða opinberlega um að hætta við fyrirhugaða stækkun flugstöðvarinn-
arþar.
Niðurlagnmg Lux-
emburgarfhigs Flug-
leiða hefur mikil
áhrif á líf í slendinga í
Luxemburg. Vekur
gríðarlega athygli í
landinu og þegar talað
um að hætta við
stækkun llugstöðvar-
innar.
Islendingar í Luxemburg, sem
eru hátt í 500 talsins, eru forviða
yfir þeirri ákvörðun Flugleiða að
Ieggja af flug til Luxemburg frá
9. janúar næstkomandi sem lið í
sparnaði. Akvörðun Flugleiða er
aðalmálið í fréttum fjölmiðla í
Luxemburg þessa dagana, enda
um stórmál að ræða þar sem
Flugleiðaflugið er helsta tenging
landsins við Ameríku.
Svo mikilvægt hafa stjórnvöld í
Luxemburg talið flug Flugleiða
þaðan að þegar Flugleiðir íhug-
uðu að flytja sig yfir til Frankfurt
fyrir nokkrum árum var ákveðið
að bjóða Flugleiðum verulega
styrki með m.a. niðurfellingu
lendingargjalda. Ákvörðun Flug-
Ieiða nú kemur sem reiðarslag og
er þegar farið að ræða opinber-
lega um að hætta við fyrirhugaða
stækkun flugstöðvarinnar úti.
Virkar sem fyrirsláttur
Islendingum í Luxemburg er
talsvert brugðið. Hjónin Þórður
Siguijónsson flugmaður og Þór-
hildur Hinriksdóttir hafa búið í
Lux um árabil og segja þessi tíð-
indi mjög slæm. „Það virkar á
okkur sem fyrirsláttur að hætta
við flugið hér og ég get ekki
ímyndað mér að þetta sé aðgerð
sem sé Iíkleg til árangurs. Og
þessi ákvörðun er mjög slæm fyr-
ir okkur Islendingana," segir
Þórður.
„Eg hef áhyggjur af því fólki
sem missir vinnuna vegna þessa.
Þess fyrir utan hefur þetta auð-
vitað mikil áhrif á daglegt Iff Is-
lendinga hér. Og þetta hefur
töluverð áhrif fyrir Luxemborg-
ara, því þetta hefur verið eina
beina flugið til Ameríku héðan og
hefur þess vegna verið styrkt af
yfirvöldum hér. Akvörðunin er
líka lítt skiljanleg í ljósi þess að
það hefur aldeilis ekki vantað
farþegana, það hefur miklu frek-
ar vantað fleiri sæti á háannatím-
anum,“ segir Þórhildur. - FÞG
Lúxem-
borgarar
í Baugi
Engin biðröð
erlendra
stórmarkaða
er eftir bréf-
um í Baugi
hf., rekstrar-
aðila Hag-
kaups-, Bón-
us- og Ný-
kaups-þúðanna, segja góðar
heimildir. Ekkert bendir til að
áhugi kaupmanna í öðrum Iönd-
um sé fyrir rekstri matvörubúða
hér á landi.
Kaupþing hf., sem átti 37,5%
af Baugi hf. seldi í fyrradag 20%
af hlutabréfum sínum. Kaup-
andinn er Ijárfestingarsjóður í
Lúxemborg. Þar í landi hefur
Ivíiupþing hafið rekstur á útibúi
og er hnútum kunnugt í fjár-
málalífi landsins.
Heimildir Dags segja að ekki
sé ætlunin hjá sjóðnum að kom-
ast til áhrifa í Baugi, til dæmis
munu Lúxemborgarmenn ekki
ætlast til að fá mann í stjórnina.
Bréfin verða seld í hlutabréfa-
pökkum til minni íjárfesta að
sagt er.
Bréf í Baugi verða markaðs-
sett í október. Þá mun almenn-
ingi í landinu bjóðast kostur á
að eignast hlut í Baugi, en fyrir-
tækin innan hans, munu skila
400-600 milljónum króna í
hagnað á þessu ári. -jbp
INNLENT
Atviiiimulausuni fækkar lítillega
Atvinnuleysi í júlí mældist um 2,5 prósent af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði, samkvæmt nýjasta yfirliti Vinnumálastofnunar. Það er
mun minna en á sama tíma í fyrra en svipað og í júní síðastliðnum
en mældist atvinnuleysi 2,6 prósent. Eins og áður er atvinnleysi með-
al kvenna meira en meðal karla.
Atvinnleysið minnkaði hlutfallslega mest á Norðurlandi vestra.
Það er nú mest á höfuðborgarsvæðinu en minnst á Vestfjörðum.
Skrifað imdir samning við Möltu
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðnerra, skrifaði í gær undir
samning um samstarf Islands og Möltu í heilbrigðismálum. í tilkynn-
ingu frá ráðuneytinu se^gir að Möltubúar hafi um hríð lýst miklum
áhuga á samstarfi við Islendinga á þessu sviði. Ingbjörg sagði við
undirritunina að þetta væri heiður fyrir þjóðina, væri enn ein stað-
festing á því hve framarlega Islendingar væru á þessu sviði og styrk-
ti heilbrigðiskerfi beggja ríkjanna.
Meimingamótt í borginni
Reykjavíkurborg efnir til menningarnætur í þriðja sinn í dag, laugar-
dag, og verða tónleikar, myndlistarsýningar og ljóðalestur á ólíkleg-
ustu stöðum í miðborginni.
Menningarnóttin verður formlega sett í Hallgrímskirkju klukkan
fimm með ávarpi borgarstjóra. Eftir athöfn þar taka við fjölbreytt
dagskráratriði út um alla borg. Gallerí opna dyr sínar upp á gátt,
listasöfn bjóða á tónleika og jafnvel verslanir standa fyrir uppákom-
um, með Ijóðskáldum og tónlistarfólki. Flestar verslanir og söfn í
miðbænum sem á annað borð bjóða upp á dagskrá eru opin til mið-
nættis, sum Iengur. Þá verður Laugavegurinn, og hugsanlega fleiri
götur, lokaður fyrir umferð, en bílastæði verða ókeypis.
Þingforsetar funda í Eyjafirdi
■TT <9 Forsetar þjóðþinga Norðurlanda halda
Ólafur G. Einars-
son foseti
Alþingis.
þjóðþinga Norðurlanda halda fund á Öng-
uisstöðum í Eyjafjarðarsveit á þriðjudaginn og ræða
samstarf þinganna og fleira. Forsetarnir koma flestir
til landsins á mánudag og áður en þeir fara norður
munu þeir eiga fund með Berit Larsen forseta Norð-
urlandaráðs, sem er hér stödd í tilefni 30 ára afmæl-
is Norræna húsins.
Þingforsetar Norðurlanda halda árlega slíkan fund
og bera saman bækur sínar um þingstörf og var hann
síðast haldinn hér á landi 1993. A Öngulsstöðum er
gisti- og fundaaðstaða og bóndi þar er Jóhannes Geir
Sigurgeirsson, fyrrverandi alþingismaður.
Omefnanefnd
aftur til fortíðar
Sveitastjómarmenn
segja nýju nafnalögin
hafa verið sett til að
auka frelsi sveitarfé-
laga til nafngiftar og
gagnrýna því þau meg-
in sjónarmið Ömefna-
nefndar að uota
akveðiu viðskeyti við
nafngiftina.
Örnefnanefnd hefur aðeins sam-
þykkt tvö nöfn af þrettán á nýju
sameinuðum sveitarfélögunum í
landinu, en félagsmálaráðunevt-
ið lætur hana gefa út umsagnir
um nöfnin. Örnefnanefnd vill að
viðskeytin hreppur, byggð, bær
og borg verði við nöfnin á nýju
sveitarfélögunum. Þetta Iíkar
viðkomandi sveitarstjórnar-
mönnum illa og þykir afstaða
nefndarinnar bera vott um
þröngsýni og afturhvarf til forti'ð-
ar. Aðeins nöfnin Fjarðabyggð og
„Grímsnes- og Grafningshrepp-
ur“ fengu samþykki. Önnur ekki,
þar á meðal Arborg, Árdalsvík og
Austurríki.
Sturlaugur Þorsteinsson, bæj-
arstjóri í Hornafjarðarbæ, en
nöfnum hins nýja sveitarfélags
þar, Hornafjörður og Skaftfell-
ingabyggð var hafnað, segir að
afstaða nefndarinnar sé spor aft-
ur á bak.
„Ástæða þess að lögunum um
nafngiftir sveitarfélaga var
breytt, var gagnrýni á það að
Sturlaugur Þorsteinsson, bæjarstjóri f
Hornafjarðarbæ: Kæmi ekki á óvart-
þótt nafið yrði látið standa óbreytl
nöfnin yrðu að bera með sér við-
skeytin „bær“, „hreppur" eða
hvað það nú er. Manni þykir það
dálítið skondið að nú tekur Ör-
nefnanefnd þetta upp aftur,“
sagði Sturlaugur.
Hann segir að eftir þennan úr-
skurð nefndarinnar verði málið
aftur tekið upp í bæjarstjórn og
það myndi ekki koma sér á óvart
þótt lagt yrði til að hafa nafnið
óbreytt, Homafjarðarbær. Hann
bendir hins vegar á að nafnið
Hornafjörður hafi fengið yfir-
gnæfandi meirihluta í tilnefning-
um íbúa nýja sveitarfélagsins.
Hann sagði að menn yrðu að
virða sjálfsákvörðunarrétt hvers
sveitarfélags.
Átti að auka frjálsræðið
Guðmundur Bjarnason, bæjar-
stjóri í bæjarfélaginu sem kallað
hefur vérið Austurríki, segir það
hafa komið sér mjög á óvart að
nefndin skuli hafa hafnað 11
nöfnum. Aðeins nafnið „Fjarða-
byggð“ var samþykkt. Hann segir
líka forsendurnar fyrir höfnun
nafnanna og vilja nefndarinnar
til að hafa þessi viðskeyti líka
koma sér mjög á óvart.
„Með nýju nafnalögunum átti
að auka frelsi sveitarfélaganna til
nafnavals. En svo gerðist það á
lokaspretti lagasetningarinnar á
Alþingi að því var stungið inn að
fá þyrfti umsögn Örnefnanefnd-
ar á nýjum nöfnum sveitarfélaga.
Ég tel því að þessi afstaða nefnd-
arinnar gangi þvert á Iögin sem
menn voru að setja," sagði Guð-
mundur Bjarnason.
Vont að vera nafnlaus
„Nafnið Borgarfjörður fékk yfir-
gnæfandi fylgi í skoðanakönnun
íbúa og því eru ménn ekkert
hressir með hversu kaþólsk
nefndin er í sínum forsendum
fyrir nöfnum. Ég tel víst að við
sendum þeim einhver önnur
nöfn en á meðan svörum við í
símann með þvf að segja „Skrif-
stofa Borgarfjarðar" því okkur
þykir leiðinlegt að svara bara
með því að nefna símanúmerið
okkar. En nafn verðum við að fá
því það er ekki hægt að vera
nafnlaus til lengdar," sagði Rík-
harður Brynjólfsson oddviti hins
nýja sveitarfélags í uppsveitum
Borgarfjarðar um þetta nafna-
mál. -S.dór