Dagur - 22.08.1998, Blaðsíða 2
2 - LAÚGARDAGUR 22. ÁGÚST 1998
FRÉTTIR
Vinningar í skjáleik Sjónvarpsins eru skattskyidir og því gæti konu sem hefur verið iðin við vinningakolann að undanförnu brugðið í
brún í ágúst að ári.
Sópar tíl sín
viiinmguiiiiin
: Sama konan tekur til sín
nánast alla vinninga úr
skjáleik Sjónvarpsins.
Reglimum breytt til að
fleiri fái notið?
!
|
Skjáleikur VOX og Sjónvarpsins hefur
náð nokkrum vinsældum og hefur
fjöldi hringinga á sólarhring numið
nokkrum þúsundum þegar best lætur.
Keppt er um vinninga og ræður al-
menn þekking og viðbragðsflýtir mestu
, um árangur. Einn þátttakandi ber höf-
, uð og herðar yfir aðra í þessum efnum
r og hefur fengið tugi vinninga sam-
kvæmt heimildum hlaðsins í sumar.
' Sömu heimildir segja að vegna þess
hve dreifing vinninga sé Iftil sé nú í bí-
gerð að breyta reglunum þannig að
nöfn bestu einstaklinganna fari í pott
og svo verði dregið tilviljanakennt úr
honum. Með því sé komið í veg fyrir að
þátttakandinn, sem er kona, hljóti
gervallt góssið.
Dagur bar þetta undir Kristján
Franklín hjá VOX í gær en hann sagði
ekki endilega samhengi á milli þess að
nú stæði til að breyta reglunum og
þátttöku þessarar tilteknu konu. „Ekki
er það nú beinlínis ástæðan. Hitt er
rétt að konan hefur verið verið iðin við
að afla sér vinninga. Hún er dugleg,
hringir mikið og hefur einhveija hæfi-
leika á þessu sviði. Það hefur hins veg-
ar lengi staðið til að breyta reglunum
og lengur en konan hefur tekið þátt,“
segir Kristján Franklín.
Bjuggumst ekki við
atvinmimönnum
Hann segir að tilgangurinn með leikn-
um hafi aldrei verið sá að einhver væri
bestur heldur fyrst og fremst sá að al-
menningur hefði gaman af honum og
gæti unnið sér inn eitthvert smáræði í
leiðinni. Með öðrum orðum hafa Krist-
ján og félagar ekki búist við atvinnu-
mönnum í skjáleiknum? „Nei, í sjálfu
sér ekki. Það er nokkuð til í því,“ segir
Kristján Franklín og hlær.
Hjá VOX fengust ekki svör við því
hve marga vinninga konan hefur hlot-
ið, en m.a. hafa henni áskotnast garð-
slátturvélar, skíðaútbúnaður og fjöl-
margt fleira. Ekki er víst að allir geri
sér grein fyrir að vinningar af þessu
tagi eru skattskyldir og á því konan von
á að greiða væna summu til Haarde og
félaga næsta ár. Þá gæti símareikning-
urinn verið ansi hár. Mínútan kostar
nefnilega á sjöunda tug króna. — BÞ
Ástæðan íyrir þvl hversu dýrslega
Grindjánar léku Köttara, eða öllu
heldur Grindvíkingar Þrótt, er
fundin. Grindvíkingar gripu til
þess afbragðs ráðs að ráða Jóhann
Inga Gunnarsson, sálfræðing og
íþróttakennara, til að peppa upp lið-
ið. Hatm greip til þess ráðs að fara
með liðið á laugardag í Hótel Örk. Þar voru menn
eystra við besta atlæti og sváfu vel um nóttina. Á
sunnudag dunduðu menn við að kýla golfkúlur og
undir kvöld var haldið til Reykjavíkm. Á Laugar-
dalsvelli mættu ellefu trítilóðir leikmenn Grinda-
víkm og gjörsigruðu Þróttara eins og alkuima er....
Jóhann ingi
Gunnars-
son.
Samkvæmt fréttum hafa margir ís-
lendingar farið á mis við góðærið og
könnuðust ekkert við það í spum-
ingaköimun á dögunuin. Útlending-
ar hafa hins vegar frétt af því að hér
sé mikið af sterkeínuðum íslending-
um sem séu hugsanlegir fjárfestar er-
lendis. Þannig fréttist í heita potthm
að fulltrúi fjármálaiyrirtækisins Golman Sachs
Intemational í London hafi haft samband við Dag
og óskað eftir þvi að fá nokkur eintök af Degi þar
sem birtist listinn sem Friðrik Þór Guðmundsson
hlaðamaðm tók saman yfir eignamestu íslending-
ana. „We understand you had a list of ali the rich-
est Icelanders" mun fulltrúi bankans hafa sagt...
Friðrik Þór
Guðmunds-
son.
í pottinum kom til umræðu krafa frá vestfirskum
framsóknarmanni sem birtist í DV í gær um að
Gunnlaugur Sigmundsson yrði gerðm að ráðhem
í stað Guðmundar Bjamasonar. Töldu menn ein-
sýnt að þótt Gunnlaugur hefði engan tíma til að
vera þingmaðm, enda hað haim um leyfi frá þing-
inu vegna anna annars staðar, þá hefði hann
ábyggilega tíma til að vera ráðhem. Þess utan
töldu kaldhæðnir pottverjar einsýnt að Gunn-
laugur væri rétti maðminn fýrir Framsókn að
hainpa nú eftir Kögunar og Þróunarfélagsmálin -
þetta væri jú spumingin um hætt siðferði í stjóm-
máliun...
V_________
Línuritin sýna
íjögurra daga
veðurhorfur á
hverjum stað.
Línan sýnir
hitastig, súluritið
12 tíma úrkomu
en vindáttir og
vindstig eru
tilgreind fyrir
neðan.
Hæg norðvestlæg
eða breytileg átt.
Skýjað með
köflum
vestanlands, en
léttskýjað austan-
til. Hiti 5-17
stig, hlýjast
sunnatil síðdegis,
en kaldast á
annesjum
norðaustanlands.
Færð á vegum
Allir vegir greiðfærir.